Alþýðublaðið - 13.08.1941, Síða 4
MIÐVIKIJBAGUX 13. áflúst 104i
ALÞYÐUBLAÐIÐ
BHÐVIKUDAGUR
Næturvörður er í nótt í Ingólfs
og Laugavegs apótekum.
Næturlæknir er í nótt Jóhannes
Björnsson, Sólvallagötu 2, sími
5989.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Óperulög.
20,00 Fréttir.
20.30 Erindi: Frá Bretlandi, I.
(Thorolf Smith).
20,55 Hljómplötur: Létt lög.
21,00 Auglýst síðar.
21,20 Orgelleikur í Dómkirkj-
unni(Eggert Gilfer): For-
leikur og fúga í G-dúr, eftir
Bach.
21,40 Hljómplötur: „Moldá“ úr
lagaflokknum „Föðurland
mitt“, eftir Smetana.
Sextugur.
Valdimar Guðjónsson. Nýlendu-
götu 6, er sextugur á morgun, 14.
ágúst.
Afturgangan
heitir ameríksk kvikmynd, sem
Nýja Bíó sýnir núna. Aðalhlut-
verkið leikur einn höfuð skapgerð-
arleikari heimsins, Boris Karloff.
Umferðaslys.
í fyrrakvöld varð maður að
nafni Ari Finnsson, Ásvallagötu 16
fyrir herfintningabifreið, fékk
heilahristing og meiddist eitthvað
meira.
Innbrot /
var framið á íþróttavellinum að-
faranótt síðastliðins mánudags.
Var brotizt inn í búningsklefa í-
iþróttamanna og stolið tveimur úr-
um og 130 krónum í peningum,
sem geymdir voru í læstum skáp.
¥
Esja
austur um land til Siglufjarðar
í byrjun næstu viku. Vörumót-
taka á venjulega viðkomustaði
meðan rúm leyfir á föstudag.
Franska jiingræðið úr
sðgoBDi, segir Petain
Darlan fær yfirstiórn hers,
flnghers og flota bæði i
Frakklandi og nýlendnnun>.
PETAIN marskálkur flutti í
gærkveldi ræðu, sem beð-
ið var eftir af mikilli eftirvænt-
ingu um allan heim. Hann
minntist 'ekki á kröfur Hitlers
um bækistöðvar í Afríkuný-
lendum Frakka, en ræða hans
gefur glögga hugmynd um á-
standið í Frakklandi nú.
Petain skýrði frá því, að Dar-
lan hefði mú fengið æðstu yfir-
stjúrn landsms, flughers og fiotai
Frakkiands 'Og nýlendnanna ísín-
ar hendttr. f>á sagðisit marskálk-
urinn vona að Bandaríkjianienn
sýndu frönsku þjóðinni skilning.
Franska þingræðið væri að vísu
dautt í fyrri rnynd sinni, en
Frakikiar væru enm frelsiselskandi
þjóð, sem mundi taka langan
tíima að vönja við hina nýju
skipan í Evrópu.
Þá sagði Petain, að stefnu
Vichys tjó rnarinriar mætti draga
saimian í 12 atriði. Samkvæmt
þessari stefnuskrá verða allir
stjómniálaf lo kka r bannaðir í
hinum óhemiumda hluta Frakk-
lalnds, allir frímúrar neknir úr
þjónusítu ríkisiras, lögreglan auk-
in stórum, leynifélög upprætt,
þeir, sem teljast ábyrgir íjyrir
fall Frakklands, dregnir fyrir ]ög
og dóm o. fl.
Peningaþjófnaður. .. ..
í vikunni sem leið var stolið úr
mannlausri íbúð hér í bænum
1500 krónum. Voru peningarnir í
læstum skáp, og íbúðin sjálf var
læst, en skrárnar voru gamlar og
ekki smekklás fyrir hurðum.
63 ána
er í dag Jón Tómasson, Fram-
nesvegi 34-
RÚSSLAND
Frh. af 1. síðu.
ar. Enda þótt Rússar biðu
nckkuð manntjón hjá Uman
fyrstu daga Ukrainusóknarinn-
ar, mun þá vera fjarri því, að
því takmarki Þjóðverja sé náð.
Loftá ás á Leningrad
mistekst.
í tilkynningu frá herstjóm-
inni í Moskva í morgun er frá
því sagt, að Þjóðverjar hafi í
nótt gert tilraun til árásar á
Leningrad, en allar flugvélar
þeirra hafi verið hraktar á
brott af næturorustufiugvél-
um Rússa og loftvarnaskothríð
þeirra.
Þá segir í tilkynningunni, að
flugher Rússa geri stöðugar á-
rásir á stöðvar Þjóðverja, véla-
hersveitir þeirra samgöngu-
æðar, birgðir o. fl.
Bretar og Russar lofa
TyKium aðstoð.
Bretar og Rússar lofuðu í gær
að veita Tyrkjum fulla aðstoð,
ef á þá yrði ráðizt. Fóru sendi-
herrar Breta og Rússa í Ankara
á fund utanríkismálaráðherr-
ans og gáfu yfirlýsingu um það
fyrir hönd stjórna sinna.
Tíðindum þessum er fagnað
í blöðum Bandamanna, en
Þjóðverjum þykir fátt um.
HEKLA
Frh. af 1. síðu.
anum, varpaði til okkar stiga og
gátum við stalulast upp stigannn.
Um borð vair okkur tekið hið
bezta, fengum við fyrsit súkku-
laði, en því næst léttan mat.
Vorum við orðnir mjög borað-
ir og ætluðum varla að þekkja
sjálfa okkur í spegli. Skipið, sem
bjargaði okkur, heitir Candytuft
HGAMLA Btomm
Herti þig fieorge!
(COME ON GEORGE.)
Ensk gamanmynd. Aðal-
hlutverkið leikur enski
skopleikarinn og gaman-
vísnasöngvarinn
George Formby.
Sýnd klukkan 7 og 9.
NÝIA BIO
Aftargangan
(The Man with nine Lives.)
Spennandi og dularfull
ameríksk kvikmynd. Að-
alhlutverkið leikur sér-
kennilegasti „karakter“-
leikari nútímans,
BORIS KARLOFF.
Börn fá ekki aðgang.
Sýnd klukkan 7 og 9.
Símapöntunum ekki veitt
móttaka.
I
Tilkynning
frá og með degmnm í dag lækb-
ar verd á ýsu um 10 aura per
kfilógramm.
Fiskhollin
og aðrar útsölur,
Jóns og Steingríms.
þg eir 1100 tonna skip. Gengu
skipverjar úr rúmi fyrir oklkur,
létu sór að öllu leyti mjög annt
um oktour og hjúkruðu okkurhið
bezta.
Þann 15. júlí andaðist eiinin af
félögum okkar, Karl Guðmunds-
son. Hafði verið náð í lækni til
hans og áleit hainn, að öllu væri
óhætt, en hjartað mun hafa bil-
að.
Herskipið skilaði oíkkur áland
á St. John á New Foundlandi,
en þaðain iórum við til Halifax.
Þannig v,a,r f-rásögn Ingibergs
Lövdals af þessum langvarandi
hrakningum.
VERKAMANNABÚSTAÐIRNIR
(Frh. af 1. síöu.)
lagiiði var stofnað dró lögmað-
ur út númer allra stofnendainna.
— Það þyrfti að vera hægt
að byggjia fleiri íbúðir.
„Já, sannarlega. En áþvíimunu
verða mikliir örðugleikar. Stjóni
félagsins mun þó athiuga þetita
nú þegaT og ræða um það við
stjóm B yggingas j ó ðsin s. Anraars
enu erfiðleikaTamir langmestir á
því að fá byggingarefnið, en
stjóm félagsins h-efir þegar byrj-
að á því að útvega það. Verður
skýrt nánar frá því síðar hvo-rt
hægt verðuT að byggja meira“.
35 VICKI BAUM:
SUMAR VIÐ VATNIÐ
svalirnar og stökk niður. Svo þaut ég niður í kjall-
arann á gistihúsinu Litli Pétur, en þar fann ég felu-
stað. Þeir hafa sennilega furðað sig á því, að unga
greifafrúin skyldi vera svona dugleg að klifra! All-
an daginn sat ég íj hnipri í kjallaranum og var dauð-
hrædd um, að Eggenhofer finndi mig, og ég grét
og bað allan daginn. Og svo hugsacji ég: Braa að
Bulli væri nú hþrna, Bulli er sá eini, sem getur
hjálpað mér. En ég vildi ekki láta taka mig fasta
aðeins vegna þess, að ég átti ekki peninga. Það er
ekki glæpur að vera peningalaus! Og þegar þrumu-
veðrið kom, og allir flýttu sér í hús, þá læddist ég
út og hingað til þín og hér verð ég þangað til Bulli
hjálpar mér burtu.
Og þegar Anika var komin þetta áleiðis í frásögn
sinni, kinkaði hún kolli þrisvar, til meiri áherzlu,
spennti greipar og horfði á Hell, sem var gersam-
lega orðlaus, en hún var svo barnslega sakleysis-
leg, að hún afvopnaði hann gersamlega.
— Já, þú segir að ég eigi að hjálpa þér, en h-vern-
ig má það ske? spurði hann áhyggjufullur, er hann
hafði hugsað sig um stundarkorn.
— Það dettur engum í hug að fara að leita að mér
hér, þeir vita ekki, að við þekkjumst. Þess vegna
er mér óhætt að vera hér, og snemma í fyrramálið,
kl. 4,18, fer lestin til Vínarborgar. Vonandi setja
þeir ekki vörð við lestina, og ég get ef til vill slopp-
ið. Ég lséðist til brautarstöðvarinnar klukkan að
ganga fjögur, áður en nokkur er kominn á fætur.
— Já, einmitt það, sagði Hell, og það var eins
og eitthvað stæði í honum. — Þú ætlar með öðrum
irðum að gista hjá mér. Það er þokkalegt til af-
spu-rnar fyrir mig. Hann tók upp vasahnífinn sinn
og fór að tálga með honum borðbrúnina eins og
krakki. Hann sneri baki að Aniku. Regnið buldi
stöðugt á þakinu.
—-Það yrði þá ekki í fyrsta skipti, sagði Anika
að lokum.
— Hvað áttu við? spurði Hell.
— Það yrði ekki í fy-rsta skipti, sem ég gisti hjá
þér, hélt Anika áfram ofurlítið varkárri.
— Nei, og það er einmitt þess vegna, sagði Hell
fokvondur. Anika þagði ofurlitla stund, svo færðist
bjart bros yfir grátið andlit hennar.
— Ó, Bulli er alls ekki reiður. Bulli er bara hrædd-
ur'við mig, sagði hún sigri hrósandi. Hell sneri sér
að henni. — Ég er alls ekki hræddur, sagði hann
ákafur, fremur við sjálfan sig en Aniku. — En er
það nikkur furða, þótt manni gremjist sumt af því,
sem fyrir kemur hér. „Greifinn“ ferðast um ver-
öldina, lætur fólk snúast í kringum sig. En sumir
eru bara ómerkilegir sundkennarar. Og svo á ég að
hjálpa í þokkabót. Hvað viltu, að ég geri við þig?
— Allt sem þú vilt, sagði Anika. Hún sat þarna
á rúmstokknum, og reyndar var hún aðdáunarverð,
svo hugrökk var hún. Hún var rennvot og það var
mjög illa komið fyrir henni, en hún kvartaði ekki.
Hún skalf af kulda. Hell kenndi 1 brjósti um hana.
Hann lagði lófana á vanga hennar og sagði: — An-
ika! En hve þú ert léttúðarfull og barn-aleg.
Anika skildi þessi orð sem vott um fyrirgefningu
og vináttu. — Það komu ofurlitlir krampadrættir í
kringum munninn á henni, en þó reyndi hún að
brosa, og Hell klappaði henni og var snortinn. —
Þetta er gott, Anika litla, þú mátt bara ekki fara
að gráta, sagði hann. — Þetta batnar allt með tím-
anum. Við skulum sjá, hvort ekki er hægt að bjarga
þér.
'Anika spratt á fætur, hljóp í fang honum og kyssti
hann á allt andlitið. Hell formælti sjálfum sér, af
því að hann gat ekki komizt hjá því að verða var
við unaðartilfinnin-gu við kossa hennar. Svo gekk
hann fram hjá henni, að glugganum og opnaði hann
upp á gátt. — Það er of þröngt hér, sagði hann og
stundi ofurlítið. Anika sýslaði við eitt og annað.
Henni var ennþá kalt, og hún skalf af kulda. — Mér
er kalt, sagði hún. — Ég er líka rennvot og svo er
ég svöng.
— Svöng! Jæja, svo að þú ert svöng! Við skulum
nú sjá, það verður sennilega ekki mikið, sem ég
get fundið handa þér, svaraði Hell og fór hjá sér.
Hann athugaði á hillunni og fann brauð og smjör
og mjólkursopa. Þegar Anika byrjaði að borða, sett-
ist hann á r-úmstokkinn hjá henni og horfði á eftir
hverjum munnbita, sem hvarf ofan í hana. Það var
kvöldmaturinn hans, sem fór þarna veg allrar ver-
aldar, hugsaði hann og reyndi að kæfa þungt and-
varp, sem leið af vörum hans. Þegar Anika var
búin að borða, át hann leifarnar. Anika þrýsti sér
upp að honum og reyndi að stin-ga höfðinu undir