Alþýðublaðið - 14.08.1941, Qupperneq 1
*
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXII. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR U- ÁGÚST 1941 138. TÖLUBLAÐ
Rússar viðurkenna, að peir
hafi yfirgefið Smolensk.
Fjögurkolaskip
til íslands.
Litur betur út með kolavið-'
sbifti við Breta en áður.
HáLDUR lítur nú betur út
með kolainnflutning til
landsins frá Bretlandi.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Alþýðublaðið fekk í
morgun frá viðskiptamála-
ráðuneytinu hefir að síðustu
fengizt leyfi frá Bretum fyrir
4 skipsförmum af kolum hing-
að. Líklegt er talið, að eitt skip
sé þegar lagt af stað með kol
hingað.
Þetta er betra en á horföist
— en langt frá því, að það full
nægi okkur. Framtíðarlausn á
kolaþörfum okkar er enn ekki
fengin og munu viðræður nú
fara fram milli okkar og Breta
um þetta efni.
Er þess fastlege vænst, að
þau loforð verði haldin að okk-
ur verði séð fyrir brýnustu
nauðsynjum okkar.
En aðalorusturnar geisa
enn suður í Ukrainu.
4-------
RÚSSAR TILKYNNTU í morgun að þeir hefðu yfir-
gefið Smolensk og borgin væri nú í höndum Þjóð-
verja. Segja þeir, að orustan á þessum vígstöðvum haldi á-
fram austan við borgina, þar sem aðalher Rússa muni verja
veginn til-Moskva.
Þjóðverjar höfðu fyrir mánuði síðan tilkynnt fall Smo-
lenskborgar, en Rússar hafa haldiö hinu gagnstæða fram
þar til í morgun. Víst er það að geysilegar orustur hafa
staðið á þessum slóðum um langa hríð og er í Moskva talið,
að 60 000 Þjóðverjar hafi fallið hjá borginni.
Þrátt fyrir fall Smolensk virðist aðalsókn Þjóðverja
enn vera í Ukrainu. Tilkynnti þýzka útvarpið í gær, að
Odessa væri þegar á valdi Þjóðverja, en Rússar mótmæla
því kröftuglega- Hins vegar viðurkenna Rússar, að þeir
hörfi á Ukrainuvígstöðvunum, en þeir segjast gera það
hægt og skipulega. Segja þeir, að iðnverin miklu í Don-
héruðunum, austast í landinu, séu í engri hættu.
Sókn Þjóðverja í Ukrainu beinist nú gegn fjórum borgum
aðallega, Odessa, Nikolajev, Uman og Kiev. Er talið í Moskva,
að í Ukrainu hafi Þjóðverjar 750 000 mánna lið til sóknar.
í morguntilkynningu rússneáku herstjórnarinnar er talað
um aukna bardaga á norðurvígstöðvunum í kringum Ilmenvatn.
Er í tilkynningunni minnzt á bardaga við Staraja Russa, en sú
borg hefir ekki v'erið nefnd í tilkynningum Rússa áður. Staraja
Russa er beint sunnan við vatnið, 220 km. suður af Leningrad,
100 km. austur af Porchow.
Óttast Tyrkir
árás Þjóðverja?
Inæoia 1, Tjrrklandi yfir irflr-
jýsingum Breía og Rússa
Hvað er að gerast
í Tyrklandi? Þannig
spyrja menn nú.
Yfirlýsing Breta og Rússa
um að þeir ábyrgðust landa-
mæri Tyrklands og að þeir
myndu veita Tyrkjum jiðstoð,
ef á 'þá yrði ráðizt, kom mjög
skýndilega.
Og næstum í sarna mund
kom frétt um það, að von Pa-
pen, sendiherra Þjóðverja í
Ankara, hefði verið kallaður
heim . til Berlínar til að gefa
skýrslu.
Tyrkneska stjórnin hefir
enga opinbera yfirlýsingu gefið
út af yfirlýsingum Breta og
Rússa, en utanríkismálaráð-
herra hennar hefir látið hafa
eftir sér, að Tyrkjum þætti
vænt um yfirlýsingarnar.
Ekki- verður enn séð, hvort
um er að ræða nýja þýzka sókn
á þessum slóðum. En fyrir rösk-
lega viku síðan hóf þýzki her-
inn sókn hjá Cholm, sem er 90
km. sunnan við Staraja Russa,
og var sú sókn stöðvuð af Rúss-
um. Henni var bersýnilega
stefnt gegn járnbraulánni milli
Moskva og Leningrad, og er
því líklegt, að þessari nýju
sókn, ef um alvarlega sókn er
að ræða, sé einnig beint gegn
járnbrautinni.
Bardagar virðast enn geisa
bæið í Eistlandi og á Kyrjála-
eiði. Viðurkenna Þjóðverjar, að
Rússar hafi gert gagnáhlaup á
Eistlandsvígstöðvunum.
BrMn yftr Báná
Það hefir nú komið í ljós, að
brúin yfir Dóná, sem Rússar
eyðilögðu, var mun mikilvæg-
ari en fyrst var talið. Liggur
það í því, að ekki aðeins brúin,
heldur og aðal olíuleiðslan milli
Ploesti (olíuborgarinnar) og
Constanza, var eyðilögð. Um
brúna fóru allar birgðir til
þýzka hersins í Dobrudscha.
Eftir olíuleiðslunni fór öll olía
handa hinum litla flota, sem
Þjóðverjar hafa í Svartahafi.
Munu það vera nokkrir kafbái-
ar. tund.urskeytabátar og svo
örfá herskip. sem Þjóðverjar
hafa teki.ð’ af Rúmenum.
dudmuBdiir Etríksson
bæjnrfulitrði iátinn.
Guðmundur eiríksson
bæjarfulltrúi Jést í Lands-
spítalanuim i i'yrrinótt, eftir að
haia verið veikur sí’ðan í vor.
Var hann allþungt haldlnn upp
á síðkastið- Guðmiundur v,ar rúm-
lega fimmtugur að aldri. Átti
hann sæti í bæjarstjórn Reykja-
vfikur síðan 1940.
í áskorun
templara til ríkisstjórnarinniar,
sem birt var í blaðinu í fyrrad.,
varð villa. Þar átti að standa utan-
stúkumenn í stað utanhéraðsmenn.
Ifirlýsing Attlee kinkkan 2 í dag.
C>. , ♦ .----
HURCHILL, forsætisráðherra Breta, og Roosevelt, for-
seti Bandaríkjanna, hafa hitzt á herskipum í Norður-
Atlantshafi. Herskipið Prince of Wales flutti Churchill á
ákvörðunarstaðinn.
I fylgd með þeim Roosevelt og Churchill voru háttsett-
ir foringjar úr landher, lofther og flota beggja landanna.
Þeir ræddu um framtíð styrjaldarinnar og þátttöku
Bandaríkjanna í baráttunni gegn heimsyfirráðastefnu naz-
ista. Undirrituðu þeir sameiginlega yfirlýsingu um styrj-
aldarmarkmið beggja þjóða í þessari styrjöld. Er yfirlýs-
ingin í átta liðum. Þar segir meðal annars, að hvorugt ríkj-
anna stefni að landvinningum, að þau virði bæði rétt allra
þjóða til að lifa friálsar í löndum sínum og undir þeirri
stjórn, §em þau kjósa sér.
Beaverbrook, birgðamálaráðherra Breta, fer bráðlega
til Washington.
Skriðdrekar í eyðimörkinni
Þótt litlar fréttir berist frá Norður-Afríku, er stöðugt barizt þar,
þótt í smáum stíl sé. Bretar hafa mikinn fjölda .skriðdreka í
eyðimörkinni, og sést á myndinni, hvar foringi eins þeirra gefur
öðrum merki. f Einkennismerki brezku skriðdrekasveitanna er
svört alpahúfa, eins og einnig sést á myndinni.
Stórfeiöar umbætur á veg-
im I asgrenni bæjarins.
-------«.------
VEGURINN frá Árbæ og upp að Geithálsi verður allur
malbikaður í sumar. Allir aðalvegir í nágrenni Reykja-
víkur verða breikkaðir að mun og allar brýr verða breikk-
aðar um helming alla leið austur yfir fjall og upp í Mos-
fellssveit. (Frh. á 2. síðu.)