Alþýðublaðið - 17.10.1941, Qupperneq 4
I
FÖSTUDAGUR 17- OKT. 1941.
AIÞÝÐDBIAÐIÐ
FÖST UDAQUR
Naeturlæknir er María Hallgríms
dóttir, Grundarstíg 17, sími; 4384.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
oð Iðunnarapóteki.
ÚTVARPIÐ:
20.30 Útvarpssagan: „Glas lækn-
ir“, eftir Hjalmar Söder-
berg, IV (Þórarinn Guðna-
son læknir).
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Ýms þjóðlög, útsett af Kass-
mayef.
21.15 Ávarp frá Jarðræktarfélagi
Reykjavíkur á 50 ára afmæli
þess (Þorsteinn Finnbogason
bóndi; form. félagsins).
21.30 Hljómplötur: Phantasie fyrir
fiðlu og píanó eftir Schubert.
Ameríkskir blaðamenn,
sem hér eru staddir, skoðuðu
Háskólabygginguna í gær. Voru
það stúdentar úr stúdentaráði, sem
sýndu gestunum skólann. Urðu
blaðamennirnir hrifnir af húsa-
kynnunum.
Fálkinn,
sem kom út í dag, flytur m. a.
þetta efni: Frá Reykjanesi, for-
síðumynd, Árbækur Reykjavíkur,
hin nýútkomna bók eftir dr. Jón
Helgason biskup, Ráðgáta Páska-
eyjunnar, með mörgum myndum,
Brjóstsykur, eftir O. S. Dugge,
Blaðakongurinn Júlíus Cæsar, eftir
Egon Larsen, Óður lífsins, smá-
saga eftir Carin Leander. John
Sögur perluveiðarans
heitir ný bók, sem kom í bóka-
búðir í dag. Sig. Helgason kennari
endursagði. Aðalútsala er í Bóka-
búð Æskunnar.
Vörður Iaganna
heitir mynd, sem sýnd er dagsýn
ingu á Gamla Bíó núna. Er það
kúrekamýnd með George O’Brien
í aðalhlutverkinu.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
er að hefja vetrarstarf sitt. Hefst
það með hverfisstjórafundi í Bað-
stofu iðnaðarmanna kl. 2 á sunnu-
daginn. Eru Allir hverfisstjórar
beðnir að mæta vel og stundvís-
lega. Til umræðu verður m. a. af-
staðan til dýrtíðarmálanna á Al-
þingi. Fulltrúum úr Fulltrúaráði
Alþýðuflokksins og þingmönnum
flokksins er boðið á fundinn.
íbúar í húsunum
nálægt Elliheimilnu kvarta mjög
undan ódaun miklum, sem leggi
frá svínastíu heimilsins. Bar sér-
staklega mikið á þessu í gær, því
að verið var að bera áburð úr
svínastíunni á garða. Kvað svo
ramt að ódauninum, að ekki er
hægt að opna glugga í nálægum
húsum.
GUÐSPEKIFÉLAGIÐ
Rieykjavíkurstúkan heldur fund
í kvöld kl. 8Vs- Efni: Söngur
Nðmskeið í uppeldis-
fræði fjrrir keunara
SÍMON JÓH. ÁGÚSTSSON,
dr. phil. heldur námskeið
í uppeldisfræði í háskólanum í
v'etur fyrir kennara.
Námsskeiöið hefst fimmtudag-
inn 6. nóvember og verður hátt-
að sem hér segir-
I. Á fimmtudögium kl- 6—7 fyr-
irlestraf um sálarfræði og tupp-
eldisfræði. öllum er heimill að-
gangur að þtessuni fyrirlestrum
(salur nr. I).
II. Fyrirlestrar og æfingar,,
fimmtudögtum kl. 5—6 (salur
nr. 3)-
III. Æfingatímar eftir sam-
komulagi við nemendur, par sem
kennd verður meðferð greindar-
prófa o. fl-
Þeir kennarar og nemendur í
keimaraskólanum, sem hafa í
hyggju að sækja þetta námskeið
tilkynni þáfcttöku sína Símoni
Ágústssyni, Víðimel 31, sími 4330.
Kennslan er ókeypis.
Druhknir menn ráð-
ast á vegfarendnr.
*
AÐ bar við í fyrrakvöld
á Laugavegi. að tveir Is-
lendingár, sem yóru ölvaðir,
réðust á tvo vegtfarendur og
reyndu að berja þá niður.
Tókst þeim að verjast, þang-
að til fleiri menn komu á vett-
vang og flýðu þá árásarmenn-
irnir.
Lögreglan náði í árásarmenn
ina í gær .og voru þeir sektaðir,
Vinant sendiherra o. m. fl. fusuis.
gj Gðmlsi dansarntr
laugaklagirm 18. okt.kl. 10 e. h. í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
g©íu. — Áskriftarlisti og aðgöngumiðar frá kl. 2. Sími
4900. — Aðeins leyfðir gömlu dansarnir.
HÁÍfcMONIKUHLJÓMSVEIT félagsins.
Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur.
Allur ágóði af skemmtun þessari rennur til húsbygginga-
sjóðs berklasjúklinga.
@GAMLA BÍÚWÆ
Jarlinnaf Chicago 1
(Tbe Earl af Chicago) 1
Amerísk sakamálakvikmynd
með
Robert NontgowerF
Sýnd kl. 7 og 9.
Áframhaldssýning kl. 3.30.6.30
Tðrðnr laganna
(The Marshaíl of Mesá. City)
Covvboy-mynd með
George Ó Brien
NÝJA BIO 339
Úlfurinn
á njósnaraveiðum
(The Lone Wolf Spy Hunt).
Spennandi njósnaramynd
Aðalhlutverkin leika:
WAREN WILLIAM og
IDA LUPINO.
Börn fá ekki aðgang.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
(Lækkað verð kl. 5).
ÍGAMLA BfGiH
Kanpendur AlDýOublaðsins
sem fá blaðið sent beint frá afgreiðslunni í Reykjavík
'eru vinsamlegast beðnir að innleysa póstkröfur sem
nú hafa verið sendar til þeirra sem skulda.
Það tiikynnist vinum og ættíngjum, að konan mín
HELGA JÓHANNESDÓTTIR
andaðist á Landsspítalanuni 16. þ. m.
Agúst Pétursson,
Baldursgötu 36.
Jarðarför mannsins núns,
ÓLAFS ÖLAFSSONAR,
fyrv. skipstjóra fer fram frá dómkirkjunni á morgun, laugardag
18. október, og hefst með húskveðju á heimili hans, Brávallagötu
8, kl. 2 síðdegis. Guðríður Pálsdóttir.
hvor um sig, um 300 krónur.
Auk þess var þeim gert að
greiða skaðabætur fyrir fata-
S23ÍÖU.
Digbók bollegska flóttadrengsins Systir mío og ég, kernor í bókabóðir á ntorgse.
W. SOMERSET MAUGHAM:
Þrír biðlar
— og ein ekkja.
og hana langaði til að skemmta gestum sínum með
söng hans.
— Maria tók upp tösku sína.
— Nú er ég tilbúin.
-— Ungfrúin hefir gley-mt skammbyssunni.
Skammbyssan lá á náttborðinu.
Maria hló.
— Þú ert 'flón. Ég ætlaði einmitt að skilja hana
eftir. Hvað á ég að gera við hana? Ég hefi aldrei
hleypt skoti úr byssu. Ég hefi ekki leyfi til þess að
bera skammbyssu, og ef hún fyndist hjá mér, myndi
ég lenda í allskonar vandræðum.
— Ungfrúin lofaði herranum því að hafa skamm-
byssuna með sér.
— Herrann er líka flón.
— Það eru allir menn, þegar þeir eru ástfangnir,
sagði Nina hugsandi.
Maria leit undan. Þetta var málefni, sem hún
kærði sig ekki um að ræða að svo komnu máli. Italsk-
ir þjónar eru aðdáanlegir, trúir og duglegir, en þeir
vissu allt um hagi húsbænda sinna og Maria vissi
það vel, að Nina vildi fá að ræða þetta mál við
hana. Hún opnaði töskuna sína.
— Jæja, komdu þá með skammbyssuna.
Ciro yar kominn með bílinn. Það var þægilegur
bíll, sem Maria hafði keypt, þegar hún tók húsið á
leigu, og hún ætlaði að selja hann aftur, þegar hún
fær úr Kúsinu. Hún steig inn í bílinn og ók gæti-
lega niður stiginn, sem lá ofan að hliðinu og út á
þjóðveginn, sem lá ofan að Flórens. Hún kveikti
ljós í bílnum og leit á klukkuna, til þess að vita,
hvórt hún hefði tíma aflögu. Hún komst að raun
um, að hún hafði nægilegan tíma til þess að geta
farið sér hægt. í raun og veru langaði hana ekki í
þessa kvöldveizlu, því hún vildi heldur borða ein
heima á grasflötinni. Það var unun, sem hún varð
aldrei þreytt á, að sitja þar á júníkvöldi, þegar stjörn
urnar glitruðu og kvöldroðinn var eins og purpura-
blæja á vesturhimni. Það var svo yndislega frið-
sælt og þar gat hún notið fúllkominnar hvíldar.
Það var eins og að hlusta á tónverk eftir Mozart,
glaðlegt og kátt á yfirborðinu, en með þunglyndis-
legum undirhljóm.
— Ég var heimskingi að fara, sagði hún við sjálfa
sig. Ég hefði átt að sitja kyr, þegar Edgar fór.
En auðvitað hefði það verið heimskulegt. Þarna
gat hún notið kvöldsins og hugsað sig um svarið,
sem hún þurfti að gefa Edger. Enda þótt hún hefði
lengi haft grun um það, sem Edgar hafði í huga,
hafði henni ekki dottið í hug, að hann myndi bera
fram bónorðið og hún hafði því ekki huigsað neitt
um það, hverju hún ætlaði að svara, ef hann bæði
hennar. Hún ætlaði að geyma sér þá ákvörðun þang-
að til að því ræki, ef það yrði. En nú var komið að
því að hún yrði að taka ákvörðun. En nú var hún
komin að jaðri borgarinnar og varð því að gæta
ýtrustu varkárni við aksturinn.
Þegar Maria kom að veitingahúsinu, varð hún þess
vör, að hún kom lang síðust. Prinsessan var ameríksk
að ætterni, aldurhnigin kona, orðin ofurlítið grá-
hærð. Eiginmaður hennar, sem var rómverskur prins,
hafði látizt fyrir aldarfjórðungi og tveir synir henn-
ar voru í ítalska hernum. Hrún átti litla peninga, en
var mjög vinsæl. Þótt hún hefði aldrei verið fögur
kona var hún samt mjög glæsileg. Hún var mjög á-
kveðin á svip og sköruleg. Sagt var, að hún hefði
verið mjög ótrygg í hjónabandinu, en það hafði ekki
haft nein áhrif á þjóðfélagslega aðstöðu hennar. Hún
þekkti alla þá, sem hún kærði sig um að hafa sam-
bönd við, og kunningj-ar hennar væru hrifinr af því
að vera í kunningsskap við hana. í veizlu hennar
voru fáeinir Eniglendingar, sem voru staddir á ítah'u,
meðal þeirra voru Rowley Flint, kynlegur ævintýra-
maður, sem fæstir vildu hafa mikið saman við að
sælda. Þau höfðu þó hitzt áður í samkvæmum, og
Maria hafði orðið þess vör að hann gaf henni auga.
— Ég verð að láta yður vita það, að ég er hér ein-
ungis sem eyðufylla, sagði hann, þegar Maria heilsaði
honum.
— Það var mjög fallegt af honum að koma, greip
prinsessan fram í. — Ég bað hann að koma, þegar
Edgar hringdi til mín og sagðist þurfa að fara til
Cannes. Hann var boðinn annað og hafði lofað að
koma, en hann rauf það loforð mín vegna.
— Þér vitið vel, í að yðar vegna myndi ég rjúfa
hvaða loforð sem væri, sagði hann.