Alþýðublaðið - 09.01.1942, Page 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÖTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXffl. ARQANGUR
FÖSTUDAGUR 9. JAN. 1942.
8* TÖLUBLAÐ
Kúgunarlðgin gengln f gildi
Báðir ráðherrar SJálfstæðisflokks-
Ins beygðir nndir ok Framsóknar.
Grunnkaupshækkun og verkfðll bonnuð.
.....♦... ■—
Ráðberra Alpýðuflokksins lýsir yfir, að
gundvðllur þjóðstjórnarinnar sé rofinn.
---■»
BBRÁÐABIRGÐALÖGIN um gerðardóm í kaupdeilum og verð-
lagsmálum, sem voru gefin út í gærkveldi, eru enn þá sví-
virðiEegri en nokkurn heiðarlegan mann hafði órað fyrir. Með þeim
eru launastéttirnar ekki aðeins sviftar samningsréttinnm um kaup
og kjör og réttinum til þess að gera verkfall, heltiur er hinum fyr-
irhugaða gerðardómi uppálagt að fara eftir þeirri meginreglu að
grunnkaup megi ekki hækka frá því, sem þ*að var á árinu 1941.
Og eins og til frekari áherzlu þessu ákvæði er svo fyrir mælt í
bráðabirgðalögunum, að allir þeir samningar, sem gerðir hafa
verið síðan um áramót um grunnkaupshækkun, skuli vera ógild-
ir. Lögin eiga að gilda til ársloka 1942 og háar sektir, 100-100000
krónur, eru lagðar við brotum á þeim.
Eins og menn sjá hefir það „klókindabragð“ Ólafs Thors, að láta það vera óákveðið
mál í bráðabirgðalögunum, hvort gerðardómurinn mætti ákveða grunnkaupshækkim eða
ekki, verið hundsað af Hermanni Jónassyni við samningu laganna — og dóminum bein-
íínis verið fyrirskipað að dæma launastéttunum aldrei í vil. Báðir ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins hafa látið svínbeygja sig undir ok Framsóknarflokksins í þessu máli — Jakob
Möller engu síður en Ólafur Thors, þó að Sjálfstæðismenn hafi borið út þá sögu um
bæinn undanfarna daga, til þess að reyna að bréiða yfir svik og niðurlægingu flokks
síns, að Jakob hafi verið gerðardómslögunum andvígur.
_ . Mótmæli Stefáns Jóhanns
Engm skylda til
að hverfa aftar
til VÍBUL
■ f
ii
| j* FTIR að bráðabirgða- *
A-l lögin höfðu verið ltes-
in upp í útvarpinu í gær-
kveldi var því bætt við af
þulinum, sem hafði verið
uppálagt það í nafni rík-
isstjórnarmeirihlutans, að
samkvæmt þessum lögum
ættu allir iðnaðarmenn,
sem nú ættu í verkfalli, að
hverfa aftur til vinnu
sinnar í dag.
Þetta er ósvífin hlekk-
ing, sem á sér ekki einu
sinni stoð í hinum nýju
kúgunarlögum.
Iðnaðarmennirnir hafa
verið reknir af vinnustöð-
unum af því að þeir vildu
ekki vinna fyrir sama
kaup og áður og að sjálf-
sögðu ber þeim engin
skylda til þess að hverfa
aftur til sinna gömlu
vinnustöðva. Þeim er
frjálst að leita sér atvinnu
hvar sem þeim sýnist.
Bráðabirgðalögin voru gefin út af meirihluta ríkis-
stjórnarinnar, báðum ráðherrum Framsóknarflokksins og
báðum ráðherrum Sjálfstæðisflokksins, að aíloknum ráð-
herrafundi og ríkisráðsfundi á sjötta og sjöunda tímanum
í gærkveldi og síðan lesin upp í útvarpinu.
Ráðherra Alþýðuflokksins, Stefán Jóh. Stefánsson,
mótmælti bæði á ráðherrafundi og í ríkisráði setningu þess-
ara laga, og fara mótmæli hans á ráðherrafundinum hér á
eftir:
„Frá því að þessi samsteypustjórn tók til starfa, hefir það
vérið viðtekin regla og yfirlýst af hálfu forsætisráðherra, að
bráðabirgðalög yrðu ekki gefin út, án þess að allir ráðherrar
væru því samþykkir. Fnunvarp til bráðahirgðalaga, sem hefir
nú verið lagt fyrir fimd ríkisstjórnarinnar og hefir að geyma
fyrirmæli um þvingaðan gerðardóm í kaupgjaldsmálum og bann
við verkföllum, er í algerðri andstöðu við yfirlýsta afstöðu mína
og þess stjórnmálaflokks, er stendur að baki mér. Auk þess vil
ég benda á, að kaupdeila sú, fer nú stendur yfir, er hvorki víðtæk
né reynt til nokkurrar hlítar, hvort samkomulag milli aðilja
fáist í henni; þvert á móti hendir margt til þess, að samningar
hefðu þegar fengizt í siunum starfsgreinunum, ef ekki hefðu
verið yfirvofandi nú um viku skeið þvingimarráðstafanir af
• ‘ *
hálfu ríkisvaldsins. Vara ég einnig sérstaklega við setningu
þessarar löggjafar sem óheppilegri tilraun til lausnar á yinnu-
deilum, sem vel gæti, eins og á stendur, frekar skapað vandræði
en afstýrt þeim.
Um leið og ég mótmæli þessu bráðabirgðlagafrumvarpi
(Frh. á 2. sáðu.)
Miðstjórn og þingmenn
Alþýðuflokksins kvaddir
á fund síðdegis í dag.
...... ..... -jm,
Stjórn Alþýðasambandsins og stjórn
Ir iðnfélaganna héidu fundi í morgun
.................
AilsherjarfnHdnr verkfallsmaiina f dag.
•.........
MIBSTJÓRN OG ÞINGMENN Alþýðuflokksins, sem eru
hér í Reykjavík, hafa verið kaUaðir saman á fund
síðdegis í dag til þess að taka afstöðu til hins nýja viðhorfs,
stem skapazt hefir við setningu bráðabirgðalaganna. Stjórn
Alþýðusambandsins kom saman á fund kl. 9 í morgun.
Stjórnir iðnfélaganna, sem staðið hafa í verkföllmn, komu
saman á sameiginlegan fimd kl. 10 í morgun, og sameigin-
legur fundur fyrir alla meðlimi félaganna hófst í Góðtempl-
arahúsinu kl. 1.
Engir verkfallsmenn mættu til vinnu í morgun.
Fjárhagsáætlunin;
Engin af ttilðgum AI-
pýðnflokksins sampykt
.....'■♦■■■-
Engsir ráðstafanir verða gerðar
tilaðbila ihaginn fyrir framtiðina
RÁTT fyrir allt verða*
engar framkvæmdir
gerðar að þessu sinni í þá
átt, að húa svo í haginn fyrir
bæjarfélagið og þá, sem það
byggja, að þeir geti mætt
fyrirsjáanlegum örðugleik-
um að stríðinu loknu. Það
verður ekki gert á því fjár-
hagsári, sem nú er að hefj-
ast.
Meirihluti bæjarstjómar sá
fyrir ‘þessu á hæjarstjómar-
fundinum í gærkveldi.
Fjárhagsáætlunartillögur
meirihlutans voru allar sam-
þykktar, en tillögur Alþýðu-
flokksins ýmist felldar eða
þeim var vísað til bæjarráðs.
Fer meirihlutinn oft þannig
með tillögur, sem hann telur
óheppilegt fyrir álit sitt í bæn-
um að fella beinlínis.
Sama framkvæmdaleysið,
sama hirðuleysið á að ríkja á-
fram í þessu bæjarfélagi — ef
sami meirihiuti og nú ræður
sigrar við kosningarnar 25. þ.
m.
Fulltrúar Alþýðuflokksins í
bæjarstjórninni, Haraldur Guð-
mundsson, Jón Axel Pétursson
og Soffía Ingvarsdóttir gerðu
grein fyrir breytingartillögum
flokksins.
Verður nánar skýrt frá ræð-
um þeirra á morgun.
Útvarpiii baflaað ai
birta aaglýsiagar
frá iibjðflblaðiBB!
ALÞÝÐUBLAÐIÐ sendi út-
varpinu í morgun eftir-
farandi auglýsingu til birtingar
um hádegið:
„Róðherra Alþýðuflokksins
var ekki gefinn kostur á að
gera hin nýútgefnu bróða-
'birgðalög að umtalsefni í út-
varpinu í gærkveldi, þegar
tveir fulltrúar stjómarmeiri-
hlutans töluðu fyrir lögunum.
En sjónarmið Alþýðuflokks-
ins er hægt að sjó í Alþýðu-
blaðinu í dag.“
Þessa auglýsingu neitaði út-
varpsstjóri að birta og endur-
sendi Alþýðublaðinu hana með
eftirfarandi ummælum:
,,Með því að auglýsingin
fjailar að efni til um ágreining
innan ríkisstjórnarinnar, taldi
ég rétt að bera hana undir ráð-
herra útvarpsins og mælti hann
svo fyrir, að engar auglýsingar
blaðs yðar varðandi ágreinings-
mól þetta skyldu birtar að svo
stöddu.“
Við þetta hefir blaðið engu
að bæta. Þessi ákvörðun ráð-
hérrans Hermanns Jónassonar
skýrir sig sjálf.