Tíminn - 16.10.1963, Qupperneq 5
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
nauðsynlegt fyrir utan
bæjarfélög að kljúfa K.S.I.?
Hinn 3. ágúst s.l. var samkvæmt
keppnisskrá Knattspyrnusambands
í nds, í annarri deild íslandsmóts-
ins, en í því móti tók Knattspyrnu-
fc'.ig Siglufjarðar þátt í fyrsta sinni,
ákveðið að fram skyldi fara á Siglu-
firði knattspyrnukeppni milli Knatt
spyrnufélags Siglufjarðar annars veg
ar og Knattspyrnufélagsins Þróttur,
frá Reykjavik, hins vegar.
KS, en svo mun ég hér skamm-
stafa Knattspyrnufélag Siglufjarðar,
hafði nokkru áður leikið einn af
keppnisleikjum sínum i annarri deild
og þá orðið fyrir því óláni, að nokkr
ir úr kappliðinu, vinstri og hægri
kantmenn, miðframherjinn, annar
bakvörðurinn og markvörðurinn,
höfðu meiðzt svo, að all'ar likur
bentu til þess, að KS myndi ekki
geta, vegna manneklu, tekið þátt í
áður auglýstum leik nema því að-
eins, að undanþága fyrir yngri leik-
mann fengist frá Knattspyrnusam-
bandi íslands.
Þar sem hér er um mjög takmark
aðan leikmannafjölda að ræða í
svona litlu bæjarfélagi sem okkar,
og því ekki nema um mjög fáa vara
menn að ræða, þá ákvað KS, til þess
að geta hal'dið áfram þátttöku í
keppninni, að sækja um undanþágu
fyrir einn leikmann til að mega leika
með liðinu, og svo annan sem vara-
markvörð.
li>egar fór að nálgast leiktímann
og leikmenn voru ekki orðnir full-
frískir vegna áðurnefndra meiðsla
sinna, þá sendi KS, hinn 31.7., eftir-
farandi símskeyti:
Knattspyrnusamband íslands
(í/o Björgvin Schram
Vesturgötu 20
SEykjavik.
Vegna meiðsla á mönnum
í kappliði okkar, óskast undan
þága fyrir Sigurjón Erlends-
son til að keppa með okkur
við Þrótt laugardaginn 3.8.
stop ííinnig óskast undanþága
fyrir Óla Birgisson sem vara
■ markmann stop svar óskast
strax vegna leiksins.
Knattípyrnufél. Siglufjarðar
Tómas Hallgrímsson.
Þas- u j skeyti þetta fór seint um
daginn, eða uim klukkan 16,30, þá
þorði foimaður KS ekki annað en
hringja emnig til hr. Björgvins
Schram, forwwnns KSÍ, og tjá hon-
um alla mai-.vexti varðandi undan-
þágubeiðni Sigurjóns Erlendssonar.
í símtalinu, sem átti sér stað um
klukkan 17 sama dag (31.7.), sagðist
formaður KSÍ ekki hafa móttekið
símskeytið enn þá, og bað^hann því
formann KS um að lesa fyrir sig
upp efni skeytisins í símann. Eftir
að hafa heyrt skeytið þá sagðist
formaður KSÍ halda fund um málið
í kvöld, og skyldi KS fá svar frá
þeim (KSÍ) á morgun, annaðhvort
með símskeyti eða símtali. Hinn
1.8., klukkan 22 að kvöldi hringdi
hr. Ingvar Pálsson (einn úr stjórn
KSÍ). til formanns KS og tilkynnti
honum þá orðrétt: „Það er allt i
lagi fyrir ykkur að láta þessa menn
spila með á laugardaginn".
Formaður KS bað þá Ingvar um
að senda sér þetta í símskeyti, þar
sem hann taldi sig þurfa að hafa
—Greinargerð Knattspyrnufélags Siglufjarðar í máli Þróttar
og KS, en sem knattspymudómstóll óskaði ekki eftir að fá.
þetta leyfi staðfest vegna leiksins,
og lofaði Ingvar Pálsson að senda
símskeytið strax næsta dag.
Hinn 2.8. kom svo skeytið frá
Ingvari, og tal'di KS það vera stað-
festingu á símtalinu við Ingvar
kvöldið áður, þótt orðalag væri þar
breytt frá því, sem í símtalinu var,
og símskeytið einnig sent í nafni
KSÍ þótt undirskrift væri aðeins
„Ingvar". Skeytið var þannig:
Knattspyrnuráð
Tómas Hallgrímsson
Siglufirði.
Samkvæmt reglum um knatt
spyrnumót er knattspyrnuráð
um heimilt að veita allt að
fjórum leikmönnum yngri en
18 ára undanþágu til keppni
með fyrsta flokki.
Ingvar.
Þar sem hér á staðnum er ekkert
knattspyrnuráð starfandi, enda .er
Knattspyrnufélag Siglufjarðar ein-
asta starfandi knattspyrnufélagið á
staðnum, og það því beinn aðili að
KSÍ, þá taldi KS þetta svar vera
staðfestingu KSÍ á símtalinu frá
kvöldinu áður.
Laugardagurinn 3, ágúst rann upp
bjartur og fagur, völiurinn var
merktur upp og allt var haft tilbúið
fyrir leikinn, sem hefjast átti klukk
an 16.
Leikurinn hófst á tilsettum tíma,
og er fyrri hálfleik lauk stóðu mörk-
in sem skoruð voru 2:0 Þrótt í hag.
Svo hófst síðari hálfleikurinn, en
þá skipti um fyrir Þrótti, getan yfir
'gaf þá og upplausn kom í liðið. KS
skoraði í þeim hálfleik 4:0. Leikn-
um lauk því með 4:2 mörkum KS
í vil.
Það skal hér tekið fram að for-
maður KS sýndi dómara I'eiksins,
hr. Frímanni Gunnlaugssyni skeyti
þau, er farið höfðu á milli KS og
KSÍ, og var honum einnig skýrt
frá samtölum þeim, sem farið höfðu
milli formanns KS og stjórnarmeð-
lims KSÍ, hr. Ingvars Pálssonar. —
Dómari kvað enga nauðsyn hafa
verið til þess að tilkynna Þrótti um
undanþágu þessara manna þar sem
KS væri. með leyfi fyrir þeim frá
KSÍ, bæði samkvæmt símtalinu og
símskeytinu, og væri því leikurinn
l'öglegur.
Þess skal hér strax getið, að hér
var ekkí farið í neinar felur með
þennan undanþágumann, enda taldi
KS sig hafa allt á hreinu varðandi
hann og hefði ekkert verið falið,
honum viðkomandi, þegar sótt var
um keppnisleyfi fyrir hann til KSÍ.
Þegar líða tók á daginn fór það
að fréttast, að Þróttarar mundu ætla
sér að kæra leikinn vegna þátttöku
Sigurjóns, enda hafði liðsmaður
Þróttar þau orð um þetta, „að það
yrði erfitt að koma heim aftur með
tapið eftir að hafa átt svona góða
vinningsstöðu í leikhléi, og því væri
ekki annað að gera en kæra leik-
inn“.
Það er erfitt að taka þátt í leikj-
um og kunna ekki að taka réttlátu
tapi með drenglyndi.
En hvaðan vissi nú Þróttur öli
þessi deili á hinum unga duglega
undanþágumanni, sem varð þeim
þessi fjötur um fót, hvað hann væri
gamall og hvenær hann var fæddur?
Ekki stóð neitt um aldur hans á
leikskránni né hel'dur, að undanþága
hafði fengizt fyrir hann til leiksins.
Jú, allt þetta vissu þeir löngu áður
en þeir mættu til leiks, og þeim var
því hægðarleikúr að finna að því
við dómarann áður en leikurinn
hófst, að þessi ólöglegi ungi maður
væri þarna í l'iðinu, og þeir mundu
ekki hefja keppni fyrr en KS hefði
skipt um mann. Þetta hefði verið
heiðarlegt og hefði þá KS, ef því
sýndist svo, getað skipt um mann.
Þetta hefði verið drengilegt að gera
f
íþróttasíðunni hefur
bprizt eftirfarandi grein-
argerS frá Knattspyrnu-
félagi Siglufjarðar meS
ósk um að hún yrði birt
óstytt. Er hér með orðið
við þeirri ósk, en því
má bæta við, að fyrir-
sögn og undirfyrirsögn
eru Siglfirðinga.
fyrir þá Þróttara, en það hefur kann
ske verið ætlazt til of mikils af þeim
með þessu, enda kom það og á dag-
inn. Það glopraðist nefnilega út úr
forráðamönnum Þróttar við framá-
menn KSÍ, er þeir (Þróttarar) voru
spurðir um það, hvort þeir mundu
hafa kært nefndan leik ef þeir hefðu
unnið hann? Þessu svöruðu „sigur-
vegararnir" neitandi. Hér má því
hver maður sjá, að þessi framkoma
þeirra gefur til kynna, að hér hafi
aldrei átt að vera drengilegur leikur
frá Þróttar sjónarmiði, heldur hitt,
að ná sér í vinninginn án tillits til
þess hvaða leið skyldi til þess farin.
Það er til vottföst yfirlýsing áheyr
anda að því, að Þrótti var sagt frá
unga undanþágumanninum og öll
deili á honum, sama daginn og leik
urinn átti að fara fram.
Eftir komu Knattspyrnufélagsins
„Þróttar" til Reykjavíkur, þá barst
formanni KS fyrsta vitneskjan um að
Þróttur mundi ætla að kæra leikinn,
en það var með eftirfarandi bréfi
frá formanni Þróttar:
Reykjavík, 6.8. ’63.
Knattspyrnufélag Siglufjarðar
c.o. hr. formaður Tómás
Hallgrímsson.
Stjórn Knattspyrnufélagsins
Þróttar vill með bréfi þessu
þakka Knattspyrnufél. Siglu-
fjarðar, og alveg sérstaklega
formanni þess, hr. Tómasi
Hallgrímssyni, fyrir frábærar
mótttökur á Siglufirði um sið-
ustu helgi. Þátttakendur í ferð
inni lýsa allir yfir ánægju
sinni með dvölina, og segir
þeim svo frá, að á móti þeim
hafi verið tekið af sérstakri
gestrisni. Vonumst við til þess
að geta endurgol'dið ykkur
þetta síðar.
Því miður hefur samt borið
skugga á. Það hefur komið í
ljós, að lið Siglufjarðar var
ekki löglegt í leiknum við
Þrótt, og sjáum við okkur til
neydda til að kæra það. Von-
umst við til þess, að til slíks
komi ekki aftur, og að sam-
vinna okkar haldist þrátt fyrir
þetta,
Heð beztu kveðjum,
F.h. Knattspyrnufél.
Þróttar,
Jón Ásgeirsson
(sign).
Þessi setning í bréfi Þróttar „því
miður hefur samt borið skugga á“,
er dálítið brjóstumkennanleg fyrir
þá og sýnir þeirra „hreina og drengi
lega“ innræti, með því að vorkenna
KS fyrir þennan „skugga". En hvern
ig hefðu nú Þróttarar farið að, ef
þeir hefðu ekki haft þennan þeirra
„því miður skugga" til þess með
hjálp skuggans og KSÍ og meðborg-
ara sinna, að komast yfir sigurinn
frá KS, og gerast þannig „sigurveg-
arar“ í sínum riðli. Nei, KSÍ-dóm-
stóliinn gat ekki samkvæmt lögum
dæmt KS til refsingar fyrir réttileg
an sigur þeirra yfir Þrótti, heldur
hefðu þeir í hæsta lagi, vegna þess
ara mistaka KSÍ-„drengjanna“ látið
leika leikinn upp aftur á Siglufirði,
en það hefði einnig verið óréttlátt
gagnvart KS.
Nokkru síðar, eða hinn 9. ágúst,
frétti formaður KS að þann dag á
hádegi hafði borizt til KSÍ kæra
dags. 6. ág„ vegna leiks KS og Þrótt
ar hinn 3. ágúst s.l.
íþróttabandalagi Siglufjarðar barst
einnig sams konar kæra, sem tekin
var hér fyrir á fundi fþróttahéraðs-
dóms hinn 11. ágúst, og var þar,
með tilliti til þeirra upplýsinga sem
fyrir lágu, og hér að framan er
getið, úrskurðað, að leikurinn væri
löglegur og kærunni að öðru leyti
vísað frá sem of seint kominni.
Þessari málsmeðferð undu þeir
Þróttarar ekl;i og kærðu því áfram
til KSÍ, sem síðan fékk Knattspyrnu
dómstólnum málið tii meðferðar, en
hann dæmdi það síðan Þrótti í vil,
og var sú dómsniðurstaða tilkynnt
KS hinn 3. september, með eftirfar
andi símskeyti:
Knattspyrnuráð Siglufjarðar,
formaður Tómas Hailgrímss.
Siglufirði.
Dómsorð Knattspyrnudóm-
stólsins vegna ólöglegs leik-
manns í liði KS í kappleik í
annarri deild háðum á Siglu-
firði 3. ágúst 1963, milli KS
og Þróttar, Reykjavík. Skal
leikurinn dæmast tapaður fyr
ir KS. Bréf á leiðinni.
Knattspyrnusambandið.
Þarna skeður það, að Knattspyrnu-
dómstóll KSÍ fer ekki að l'ögum,
sem þó hefði mátt búast við að
hann gerði, og skylda er að gera
í frjálsu landi, en það var, að biðja
um umsögn KS í málinu áður en
það yrði dómtekið. Nei, dómur var
látinn ganga (í málinu) án varnar
gagna frá KS, og mun sú málsmeð
ferð vera einstök í íslenzkri dóm-
sögu.
Þá skeður það hér hjá Knatt-
spyrnudómstól KSÍ, að hann dæmir
KS til refsingar fyrir atvik, sem
ekki er talið refsivert í lögum KSÍ,
enda er hvergi talað um það í lög-
unum að hægt sé að refsa fyrir það,
að láta yngri mann leika með eldri
flokkum í keppni, er refsing liggur
við er eldri maður leikur með yngri
flokkum. Þetta hefðu dómendur
Knattspyrnudómstólsins átt að vita,
eða að minnsta kosti að kynna sér
í lögum KSÍ, sem þeir eiga að dæma
út frá, áður en þeir felldu úrskurð
sinn í málinu, sem varð þannig, að
hann verður alltaf blettur á íþrótta
heiðrinum og sjálfum dómstólnum
og dómurum til ævarandi skammar.
Þessari málsmeðferð kunni KS illa
og hringdi því formaður KS til for
manns KSÍ og spurðist fyrir ýmis
atriði varðandi málið, svo sem:
Hvort haldinn hafi verið fundur í
KSÍ um undanþágubeiðni KS í sím
skeyti þess hinn 31.7. s.l.?
Þessu svaraði formaður KSÍ þann
ig, „að fundur hefði ekki verið hald
inn um málið, en hann (formaður-
inn) hefði falið þeim Ingvari Páls-
syni og Sveini Zoega að annast af-
greiðslu málsins".
Hvort KSÍ fyndist KS ekki hafa ver
ið í fullum rétti sínum með að Iáta
Sigurjón Erlendsson leika með liði
sínu móti Þrótti, samkv. svari þeirra
KSÍ-manna til KS?
Þessu svaraði formaður KSÍ því
til, að áðurnefndum meðlimum KSÍ
hefðu orðið á mistök í leyfisveitingu
sinni til KS, um að leyfa Sigurjóni
að leika með“. Þannig voru svör
formannsins.
En nú er spurningin sú, bar ekki
þeim KSÍ-mönnum að láta KS vita
um þessi mistök sín áður en leikur-
inn fór fram svo hægt væri að 6kipta
um mann í liði KS, eða var þetta
gert af ásettu ráði til þess að úti-
loka KS frá þeim möguleika að
komast í fyrstu deild?
Hvaða heilvita maður skyldi nú
halda það, að lcnattspyrnufélag færi
að sækja um undanþáguheimild fyrir
mann til leiks, sem fullan rétt hefur
til þess að leika með liði félagsins?
Nei, stjórn KSÍ má vita það, að
þegar sótt er um undanþáguheimild
til leiks fyrir einhvern mann, þá
hlýtur eitthvað að vera ábótavant
við það, að sá maður sem leyfið er
beðið um fyrir, megi leika með
fyrsta flokks liði.
Eftir að hafa móttekið áðurnefnt
símskeyti Knattspyrnudómstólsins,
þá sendi KS, hinn 6.9., eftirfarandi
símskeyti til KSÍ:
Knattspyrnusamband íslands,
c/o Björgvin Schram, 1
Vesturgötu 20, Rvík.
Mótmælum dómi knatt-
spyrnudómstólsins um leik
KS og Þróttar 3. ágúst síðastl.
Framhald á 13. síðu,
T í M I N N, miðvikudaginn 16. október 1963. —