Tíminn - 23.10.1963, Síða 7
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framlrvæmdastjórl: Tómas Árnason. _ Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson.
Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augi., sími 19523. Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjaid kr. 80,00 á mán. innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Vilja þeir kiifra niður
stigann?
Morgunblaðið birtir í gær eftirfarandi ummæli, sem
birtust í Tímanum 4. september síðastliðinn:
„Það sem ríkisstjórnin og þingið þurfa að segja nú og
standa við er þetta: við ætlum ekki að gera neinar hækk-
unarráðstafanir. Þvert á móti ætlum við að byrja að
klifra niður stigann með lækkunaraðgerðum."
Mbl. spyr síðan, hvort FramsóKnarmenn og Tíminn
ætli að standa við þessi ummæli.
Þessu er bezt svarað með því að vísa til þess, að allir
Framsóknarmenn í neðri deild nafa lagt fram frumvarp
um lækkun vaxta. Ef það væri samþykkt, myndi það
vera góður áfangi leiðarinnar niður dýrtíðarstigann. Þær
atvinnugreinar, sem nú standa verst, eins og frystihús-
in, myndu þá fá verulegar kjarabætur, en flestar nota
þessar atvinnugreinar mikið lánsfé Jafnframt væri að-
staða hina efnaminni til framkvæmaa bætt verulega frá
því, sem nú er.
Stjórnarstefnan hefur verið fólgin í því að láta allt
hækka meira og meira. Á þessu þarf að verða breyting
Það þarf að hefja viðnám gegn þessari stefnu og sá að-
ili, sem þar á að ganga á undan, er fyrst og fremst hið
opinbera sem getur gert það með Jækkun vaxta og rík-
isálaga. Með því myndi skapast allt önnur aðstaða til
viðnáms. Annað verður auðveldara á eftir. En vonlaust
er að ætla að ná markinu í einu stóru stökki. Það myndi
aðeins enda með nýrri kollsteypu og aukinni ringulreið.
Hér verður að fara í áföngum.
Sú stöðvunar- og niðurfærsluleið, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur látið Alþýðuflokkinn impra á, er hins vegar
fjarri öllu lagi. Sú leið er fólgin i því að færa niður kaup
launafólks og bænda, en láta þá, sem mest hafa grætt,
halda sínu og græða síðan á niðuríærslunni hjá launa-
fóilci og bændum. Sú leið getur aðein? leitt til harðnandi
stéttaátaka og aukins ófarnaðar
Hin rétta stöðvunar- og niðurfærsJuleið er sú, að hið
opinbera gangi á undan og hafi sjálft forustu um að
klifra niður dýrtíðarstigann. Um það fjallar frumvarp
Framsóknarmanna um vaxtalækkunina Hér býður stjórn-
arandstaðan ríkisstjórninni jákvætt samstarf. Svar stjórn-
arflokkanna sker úr um það, hvort þeir vilja raunveru-
lega klifra niður dýrtíðarstigann öðru vísi en á kostnað
Jaunafólks og bænda.
Fjarstæð rök
Þau fjarstæðu rök eru færð gegn vaxtalækkun, að
hún muni auka þenslu, sem þegar sé hér meiri en nóg.
í fyrsta lagi eru þessi rök fjarstæð vegna þess, að
reynsla seinustu missera hefur sýnt. að háir vextir hafa
ekki hamlað gegn þenslunni
í öðru lagi eni þessi rök fjarstæð vegna þess, að eigi
að gera ráðstafanir gegn of mikilli þenslu ber að beita
öðrum ráðum en þeim, sem bitna fyrst og fremst á
þeim efnaminni, eins og vaxtahækkun gerir. Slíkar ráð-
stafanir eiga að miðast að því að draga úr framkvæmd-
um, sem óþarfari eru og frekar geta því beðið. Vaxta-
hækkun gerir þetta ekki. Háir veviir eru ekkí aðeins
haldlítið ráð til að draga úr þenshi. heldur líka mjög
ranglátt að því leyti, sem það kann nð bera árangur.
ALE0 NOVE;
Hvers vepa selur Krustjoff gull
til að kaupa korn í staðinn?
Orsakir kornskorfsins, sem nú er í Sovétríkjunum
GREIN sú, sem hér fer á eftir,
ræSir um kornskortinn, sem
nú er í Sovétríkjunum og or-
sakir hans. Höfundur hennar
er prófessor í alþjóðlegum við-
skiptafræðum við háskólann í
Glasgow. Greinin er þýdd úr
„Sunday Times".
„VIÐ HÖFUM neyðzt til að
kaupa korn erlendis. Við keypt
um 6,8 milljónir smálesta í Kan
ada, 1,8 milljónir smálesta í
Ástralíu og einnig dálítið af
korni frá íleiri löndum. Við
erum þakklátir félögum okkar
í Rúmeníu fyrir þá bróðurlegu
aðstoð að lána okkur 400 þús.
smálestir af korni. Ef við för-
um sparlega með brauð ættu
handbærar birgðir að nægja til
að tryggja fólki neyzlukorn í
eðlilegum mæli”.
Ofanskráð ummæli viðhafði
Krústjoff í ræðu, sem hann
hélt í Krasnodar 26. sept. s. 1.,
en þá var hann að skýra þjóð-
inni frá þeim ráðstöfunum, sem
gerðar höfðu verið til að greiða
úr aðsteðjandi vanda. Ræðan
var birt sex dögum síðar.
Þegar höfð er hliðsjón af
bjartsýni í áætlunum um efl-
ingu iandbúnaðarins „til þess
að komast fram úr Ameríku-
mönnum", virðist kornskortur-
inn hljóta að vera alvarlegt á-
fall fyrir álit Sovétríkjanna út
á við, og ekki síður fyrir Krúst
ioff persónulega.
EF ÞJÓÐFÉLAGSskipulag
Sovétríkjanna væri látið eiga
alla sök á kornskortinum væri
það á áróðri byggt en ekki
gaumgæfilegi'i athugun. Sovét-
ríkin hafa venjulega getað flutt
út korn, þrptt fyrir skipulag
sitt, og að minnsta kosti síðan
árið 1954 hefur aldrei valdið
neinum erfiðleikum að sjá al-
Imenningi fyrir brauði. (Fóður-
skortur hefur verið viðvarandi
í mörgum landshlutum). Veðr-
ið á sýnilega mesta sök á þeim
vanda, sem nú steðjar að.
í sumum hlutum Sovétríkj-
anna valda náttúruöflin oft
nokkru tjóni. Verði hvergi slík
óhöpp er uppskeran mjög mik-
il, eins og 1958. Árið 1963 var
eitthvað að í flestum landshlut
um. Á svæði því, þar sem vetr-
arhveitinu er sáð, var veturinn
einhver hinn kaldasti í manna
minnum og frostin komu á
auða jörð. Víðast hvar varð að
sá aftur að vorinu. í norð-vest-
ur og vesturhluta landsins var
veðráttan hin sama o-g í Evr-
ópu. Vorið var síðbúið, sumar-
ið svalt og alveg sérlega vot-
viðrasamt. í sunnanverðu land-
inu og austan til voru langvinn
ir þurrkar. Svo virðist sem ný-
ræktarsvæðin í Kazakhstan og
sunnanverðri Síberíu hafi orð-
ið sérlega hart úti af þessum
sökum. Þar var ekki einungis
mjög þurrkasamt, heldur mik-
ið um heita vinda, sem ullu
rykbyljum.
ENN HAFA ekki verið birt
ar neinar áætlaðar tölur um
uppskeruna í haust. Sýnilegt er
þó, að bráðabirgðayfirlit hafa
skotið yfii'völdunum skelk í
bringu Þau hafa séð sig knúin
KRQSTJOFF
til að kaupa meira korn erlend
is frá en nokkru sinni áður
og skipa jafnframt fyrir um
ýtrustu aðsjálni í notkun heima
fyrir. Sagt er, að kaup ríkis-
ins séu aðeins 18% minni en
1962, en heildarkornuppskeran
gæti vel verið fjórðungi minni
fyrir því. Upplýsingarnar um
kaup ríkisins munu eiga við
allt korn, en brauðkorn gæti
verið af skornara skammti en
annað korn.
Það kann að koma undarlega
fyrir sjónir að slæm uppskera
eitt sumar skuli valda miklum
erfiðleikum, og það einmitt
næst á eftir uppskerunni 1962,
sem sögð var nema 147 milljón
um smálesta af korni og 71
milljón smálesta af hveiti. —-
Þetta var langt umfram meðal-
lag og hefði átt að nægja til
drjúgrar birgðasöfnunar, auk
nægilegs fóðurs handa fjölg-
andi húsdýrum. Manni verður
á að ætla, að yfirlýstar tölur
um uppskeruna hafi verið
verulega ýktar. Ýmislegt bend-
ir til, að tölur um uppskeruna
séu við annað miðaðar en full-
þurrkað og þreskt korn, og „ís,
mold og stönglar” sé innifalið í
þunganum, eins og Krústjoff
komst einu sinni að orði.
TVÍMÆLALAUS óheppni
með veður fylgdi í kjölfar
nokkurra ára kyrrstöðu í land-
búnaði. Verulegrar aukningar
gætti fyrstu árin eftir fráfall
Stalíns, þegar auðvelt reyndist
að afla aukins ágóðahlutar með
aukinni fjárfestingu, en Stalín
hafði vanrækt landbúnaðinn
um langt skeið. En aukning-
unni var lokið árið 1958. Tekj-
ur bænda hættu þá að hækka
og fóru jafnvel læ-kkandi aftur.
Valdboð um sölu búvéla til sam
yrkjubúa hafði alvarleg áhrif
á viðhald og endurnýjun. Fram
leiðsla margra búvéla dróst
mjög saman upp úr 1958. Og
framleiðsla tilbúins áburðar
var lan.gt að baki því, sem á-
ætlað hafði verið.
Allt varð þetta til þess að
lengja bilið milli áætlana og af
kasta í landbúnaðinum. Við-
brögð Krústjoffs voru þau, að
heimta af ráðamönnum árang-
ur, sem ekki var unnt að ná.
og hann vék þeim frá, sem
ekki gátu fullnægt fjarstæðum
kröfum Yfirvöld heima í hér-
uðunum höfðu um langt skeið
valdið illu einu með vanhugs-
uðum afskiptum af rekstri bú-
anna. Og nú reyndu þeir enn
ákafar en áður að gera gang-
skör að því að knýja fram
meintan vilja yfirvaldanna í
Moskvu.
í TVEIMUR tilfellum mun
þetta hafa aukið alvarlega á
erfiðleikana 1963. Viðvörun bú-
fræðinga í Kazakhstan um eyð
ingu og tæmingu jarðvegs var
ekki sinnt, þar sem flokks-
leiðstogar þorðu ekki að til-
kynna um minnkað sáðland. —
Og Krústjoff skipaði fyrir um
alvarlega minnkun lands til
grasræktar og jafnvel hafra, til
þess að auka sáningu afurða-
meiri jurta, svo sem maíss,
belgjurta og sykurrófna.
Svalt og rakt veðurlag sum
arsins 1963 hefði orðið hag-
stætt smáranum, en var sér-
lega óhagstætt fyrir maís. Súmt
af fóðurslkortinum, sem af
þessu leiddi, er því ekki veðr-
inu að kenna, heldur „félaga
Krústjoff” sjálfum. Það er
einnig sök yfirvalda, að ekki
slruli hafa verið komið upp þökt
um eða að minnsta kosti stein-
steyptum gólfum til þreskingar
og geymslu á búunum. Gramur
fréttaritari lýsti því í Pravda
í vikunni sem leið, að upp-
skorið hveitið lægi í svaðinu í
rigningunni og spíraði og rotn-
aði.
VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR Sov-
étríkjanna verður fyrir þungu
áfalli af miklum innflutningi
nauðsynjavöru, sem venjulega
er flutt út í ríkum mæli..Þeg-
ar búið er að kcma í kring
umsömdum kaupum í Ameríku
fyrir upphæð, sem svarar til 90
milljóna sterlingspunda, er
ekki ósennilegt, að samanlögð
hveitikaup Sovétríkjanna í doll
urum og sterlingspundum svari
til rúmlega 300 milljón sterl-
ingspunda. Annar umsaminn
innflutningur Sovétríkjanna er
einkum miðaður við áætlanir
uim eflingu iðnaðarins (ekki
sízt efnaiðnaðarins), og ráða-
mennirnir vilja eindregið halda
honum óskertum. Lána er aft-
ur á móti varla að vænta í
auðvaldsheiminum. Það hefur
því reynzt nauðsynlegt að selja
mun meira gull en venjulega,
ef til vill fyrir. allt að 100 millj
ónum sterlingspunda undan-
gengnar vikur. Gera má ráð
fyrir meiri gullsölu til greiðslu
aukinna skuldbindinga.
Gullvinnsla Sovétríkjanna og
gullforði er algert launungar-
mál, og sumir hafa ályktað að
hvort tveggja væri mjög mikið.
Launungu í Sovétríkjunum er
samt sem áður oftar beitt til
þess að dylja veikleika en styrk
leika Vafalítið mun litið á
gullsöluna sem illa nauðsyn,
sem valdi nokkurri rýrnun
forða.
Það er ein af nýjungunum í
stjórnmálum Sovétríkjanna, að
stjórnin skuli telja brauðkorns-
birgðir svo mikilvægar, að hún
flytur heldur inn korn fyrir
gull en að horfast í augu við
Framhalo f 13 siðu
J
T f MIN N, miðvikudaginn 23. október 1963