Tíminn - 23.10.1963, Side 9

Tíminn - 23.10.1963, Side 9
Framlög ti) raforkumála hafa minnkað. Ástandið í húsnæðismál- \im fer síversnandi, og svona mætti lengi telja — þetta eru aðeins dæmi um hinar geigvænlegu af- leiðingar stjórnarstefnunnar í þess- um greinum Rannsóknir Framlög til lífsnauðsynleg- ustu undirstöðurannsókna í þágu framleiðslunnar eru skorin svo við nögl, að stórtjóni veldur, og óhugsandi er að geti staðizt, ef framleiðni og framleiðsla á að geta vaxið svo, sem brýn nauðsyn kref- ur. — Elcki peningar til. — Ofþensla. ,— Verður að leggja peninga til jafnvægis inn í kerfið — en það þýðir, að þeir peningasterku geti komið sínu í framkvæmd. Ofan á þetta bætist svo, að þrátt fyrir þessar gífurlegu álögur er vaxandi hluti af því, sem gengur til framkvæmda af hálfu ríkisins, tekinn að láni og velt yfir á fram- tíðina og eru nú á þessu fjárlaga- frumvarpi í fyrsta sinn stórir út- gjaldapóstar til að standa undir þessum skuldum, sem hefur verið safnað í góðærum, og þessir póst- ar hækka gífurlega á næstu árum. Sumar af þessum ríkisskuldum virðast ekki einu sinni taldar á nk:sreikningum fyrir 1962 t. d. og ekki milljóna tuga útgjöld, sem greidd eru með lántökum — en ráð herra segist hafa haft afgang af álögum sínum 1962 og nú einnig í ár, og þykir engum það mikið, sem •'sér innflutninginn núna og verzlunarjöfnuðinn við útlönd. Ekki peningar til eða ofþensla Segist ráðherra leggja eitthvað taisvert á bók til að styrkja „jafn- vægið,“ í efnahagsmálum, sem þeir kalla, og er það tilkynnt með viðhöfn á sérstökum tyllidögum ríkisstjórnarinnar, en hversdags- lega eru engir peningar til að halda uppi lífsnauðsynlegiMn sam- göngum í landinu, hvað þá til að halda í horfinu iim skólamál, hús- næðismál og önnur þvílík mál í onesta góðæri, sem þjóðin hefur lengi lifað. Allar tiUögur Fram- sóknarmanna til að tryggja, að hæfilegur hluti ríkisteknanna renni sem áður til slíkra fram- kvæmda, hafa verið drepnar og ýmist sagt að ekki væru peningar til eða ef peningar voru til, þá, að það mætti ekki nota þá, því það skapaði ofþenslu. Áunnizt hefur þó, að ríkisstjórn- in er orðin meira en lítið óróleg undir þungri pressu, vegna öng- þveitisins í vegamálum, enda verð- ur ekki þar á linað né í fleiri slík- um málum, fyrr en undan verður látið. Hæstvirtur fjármálaráðherra er nú búinn að skrumskæla þannig ríkisreikninginn, að enginn fær af honum séð, hver afkoma ríkissjóðs er. Ríkislánum og stórum útgjalda póstum eins og t.d. ríkisábyrgða- töpum, er haldið utan við. Þykjumst við þó sjá, að greiðslu- aígangur sé 1962, þótt ekkert sé að sjálfsögðu — þegar svona er komið — að marka tölur hæstv. ráðherra, og þá hlýtur að verða af- gangur, á þessu ári, enda dýru vei ði keyptui' eins og sést á álögun jm, innfhhningnum og verzlunar- jöfnuðtnum Munum við nú, Framsóknar- menn, hefja harða sókn fyrir því, að einhvexju verulegu, sem um munar af því, sem með þessum gegndarlauisu álögum hefur tekið a+ alrr.ennmgi umfram þarfir rík- ísins, verð' varið til að styðja fram gang sumra hinna brýnustu nauð- synjamála, sem setið hafa á hak- anum unaanfarið, svo sem t. d. samgöngumála og íbúðarmála og ýmissa fleiri mála. Tollpeningana má ekki nota Við erurr ekki í miklum vafa um hverju tillögur okkar um þetta eiga að mæta frá stjórnarliðinu. Það verður æpt, þessa peninga má ekki nota. það veldur ofþenslu — það verður að leggja þessa peninga mn í bankakerfið. Sú viðureign, sem um þetta verð ur ætti að geta orðið mörgum iardómsrík. Það er sem sé of- þensla að veita meira fjármagn í íbúðarbyggingar, svo forðað verði frá neyðarástandi í húsnæðismál- um og það þótt fé væri tekið með beinum álögum á þjóðina. Sama er að segja um að verja skattafé í vegi, brýr, framkvæmdir í sveitum eða við sjó og hvað eina, sem lífs- nauðsynlegt er að koma í fram kvæmd almennings vegna. Þessar fi amkvæmdir verði að bíða og það fé sem tekið er af mönnum með gegndarlausuen álögum megi ekki nota í þessar framfarir, sem al- menningur nefur mesta þörf fyrir. Hvað á að sitja fyrir? Hvers vegna eiga þessar fram- kvæmdir að bíða og peningarnir að leggjast til „jafnvægis" í kerfið. — Til þess &ð þeir, sem fyrir fjár- magni ráða í landinu og hafa að- gang að fjármagni fyrir náð ríkis- stjórnarinnar, komist að með sín- ar framkvæmdir og sína eyðslu. Þeirra framkvæmdir og þeirra eyðsla valda ekki ofþenslu, þær eru exki áfcyrgðarleysi eins og til- lögur Framsóknarmanna um að leggja fjáimagn til lífsnauðsyn- legia framkvæmda í þágu al- mennings íbúðarbvggingar, raforkulínur, vegagerðir og aðrar slíkar eiga samkvæmt stjórnarstefnunni að víkja fyrir því, sem þeir peninga- sterku vilja koma í framkvæmd og sjá sér mestan hag í að gera. Það er þeirra stefna. En við segj um, það verður að beina fjár- magninu til þeirra framkvæmda í landinu, sem lífsnauðsynlegar eru, þeir eiga að sitja fyrir og því á hiklaust að nota fé ríkisins í Jiessu skyni, og fyrir þvi verður barizt. Allir vita, að fullkomið öng- þveiti og stjórnleysi ríkir í fjár- festingarmálum eins og 1 öðrum efnum, en i öllu öngþveitinu er þó einn fastur punktur, sem er kjarni stjórnarsteínunnar: Þeir. sem fyr- ir fjármai,ninu ráða og stjórnin vill hlaða undir Stór-kapitalið á að fá að rótfesta sig með sínum framkvæmdum í sem flestum grein um. en almannaframkvæmdir eiga að víkja og þær framkvæmdir al- mennings, sem studdar hafa ver- ið af almannafé. Með þessum aðförum vei-ður sjilfum grjndvelli þjóðarbúskaps- ins breytt óðfluga, enda hefur það alltaf verið höfuðtilgangur stjórn- arstefnunnai, en allt annað ýmist umbúðir eða aukaatriði. Tvær stefnur Um þessai stefnur tvær verður tekizt á við afgreiðslu fjárlaga sem fyrr nú undanfarið og þau mcrgu þmgmál önnur, sem um þetta fjalla Þeir sem vilja láta framkvæmdir í almannaþágu og framkvæmdir einstaklinga til að auka framleiðni og íramleiðslu sitja fyrir með því að veita skipulega og hiklaust fé til beirra, þeir verða nieð okkur. Þeir, sem vilja gera þessar fram kvæmdir að hornreku og láta þær víkja svo stórkapitalið geti leikið lausum haia með sinar framkvæmd ir, hversu tjarri sem þær kunna að vera því að leysa úr brýnustu þörf- um þjóðarinnar, og hversu gífur- lega sóun, sem þær kunna að hafa í tör með sér — þeii, sem það vilja styðja, þeir verða með hinum. En það er til marks um átökin, sem framundan eru um það hvað eigi að víkja og hvað sitja fyrir, að stórkapitalið er farið að heimta stóran greiðslu- afgang hjá ríkinu. sem lagður sé í peningakerfið til jafnvægis. Og stjórnin tekur undir og máske eigam við eftir að sjá framan i rJHögur um aukna neyzluskatta í þessu skyni álagða. Þrengja að neyslu og f.vamkvæmdum, almenn- ings og leggja peningana inn svo að hinir þeir, sem fjármagninu ráða mest geti komið sínu í framkvæmd. -- En baráttulaust mun þetta ekki gerast, og ekki ólíklegt að þetta skýri nokkuð stefnur í þjóðmálum. Skipbrot viðreisnarinnar sið þessa umræðu er skylt að reyna að bregða upp mynd af efnahagsmálaástandinu, því ríkis- búskapurinn verður ekki slitinn úr sambandi við annað starfslíf í 'andinu. Það blasir nú við þjóðinni svo ekki verður um deilt né um villzt, að stefna rfkisstjórnarinnar ,,Við- reisnin“, sællar minningar, eða hilt þó heldur, hefur beðið algert skipbrot Reynt var með hvers ky.xs Ijótum brögðum að leyna þessu nokkuð í vor fyrir þjóðinni og þá vantaði ekki glæsiiegar lýs- ingar á því, sem kallað var árang- ur viðreisnarinnar. Meira að segja var kosningum flýtt um nokkrar vikur til þess ekki skyldi koma fram. hvað kjaradómur teldi opin- bera starfsmenn þurfa að hafa í ka -p í viðreisnarríkinu. Stjórnar- flckkarnir náðu meirihluta við ill- ati .eik í vor með blekkingum um ástandið, sem nú liggur ljóst fyrir. Nú verður loks að játa Öjarni Benediktsson lýsti því yf- ir á Varðaifundi fyrir nokkrum dögum, að öngþveiti blasti nú við í launamálum, enda víst ekki gott að komast hjá því að játa það lengur, hvernig komið er, þegar búið er að afskræma svo efnahags- keifið, að verkamaður vinnur sér inn rétt ríflega vexti og annan kostnað af lítilli íbúð með viðreisn arverðinu, með því að vinna átta stundir hvern virkan dag ársins. Og með landbúnaðarverðinu. sem nýbúið er uð setja, getur bóndinn ekkl staðið til fulls undir afskrift- um af eintú dráttarvél með við- reisnarverðinu, hvað þá öðrum vélakosti. Er það nokkur furða, þótt þeir sem fyrir þessu standa neyðist nú loks til að játa öng- þveitið, sem búið er að stofna til við hagstæðustu ytri skilyrði, sem þekkst hafa á landi hér. Viðskiptamálaráðherra orðaði játningu sina þannig í áróðurs- ræðu, sem bann lét tvílesa í hlut- la-isa útvarpið okkar. að í einu atrlði ríkti ringulreið þ. e. í kaup- gja'ds- og verðlagsmálum. Sumir voru að segja að hann hefði átt að segja, að í einu atriði ríki ring- ulreið þ. e. verðlagsmálum, kaup- gja'dsmálum, húsnæðismálum, fjár festingarmálum yfirleitt og mál- fcfnum framleiðslunnar t. d. Þó ekki hefði að heldur verið allt talið sem í játningunni átti að vere með réttu. Væri nú ekki rétt fyrir þessa menn að gera þjóðinni grein fyrir því hvers vegna Viðreisnin hefur farið svo gersamlega út um þúfur og hvað p;lr hafa af þessu lært. Ekkert þýðir fyrir þá lengur að haida því íram, að ,.Viðreisnin“ hafi farið út um þúfur, af þvf að kaupgjaldið til verkamanna hafi hækkað um 50—60 kr. of mikið á V'ku árið 1961, en þá lækkuðu þeir gengi krónunnar um 13% út af kaupgjaldságreiningi, sem svaraði t<I 1—2% breytingu á útflutnings- verði. Og sú gengislækkun var gerð þrátt fyrir stóraukna framleiðslu og hækkandi verð á útflutnings- afuiðum. Um það segir stjórn Seðlabankans í ársskýrslu sinni orðrétt: „Þegar á heildina er litið liefur verð á útflutningsafurðum batnað verulega á árinu 1961. Samt lækkuðu þeir gengið. Og þrátt fyr- ir þessa stað.-eynd lét Gylfi Þ. Gísla son sér sæma í þeirri óvönduðu áróðursræðu, sem ég minntist á áðan, að halda því fram að þeir heíðu hæk’cað gengið vegna verð- lækkanana á afurðum. En það er staðreynd að verðið fór batnandi. Benzín á bálið Allir vita nú, að gengislækk- unin 1961 var ástæðulaust frum- hlaup gert > bræði og átti að kenna mönnum að gera það eitt sem stjórnin vildi. Gengislækkun þeirra þá reyndist eins og benzín á dýr- tiðarbálið og síðan hefur stjóm- in ekki ráðið við neitt. Þeir hafa nú viðurkennt þetta hreinlega og þar með ómerkt öll sín ljótu sví- vrðingaro'ð um þá, sem leystu kjaramálin 1961 og björguðu þjóð- arframleiðslunni. Bjarni Benediktsson talar um gengislækkunarleik, sem ekki megi endurtaka og verði að ljúka. Krónan sé ekki fallin núna og eigi því ekki að fella hana. Þetta eru játningar. sem segja sex. Dóm- ur um þeirra eigin verk og mál- flutning og hvers trausts hann er verður, sem ekki mun fara fraim hjá neinum. Það er gott ef nú á að standa við það að fella ekki krón- una, enn þá einu sinni og þeim mun verða haldið að þessum lof- orðum. En þjóðin spyr, hvað rétt- lætti gengislækkun 1961. Hvað iéttiætti þann þokkalega leik. — Þegar nú er játað af þeim seku frá 1961 að ckkert réttlæti gengis- lækkun nú. Allt fór öðru vísi Viðreisnin átti að skapa jafn- vægi og stöðugt verðlag, en hef- ur sprengt efnahagskerfið og vald- ið meinlegri dýrtíðarólgu, en dæmi eru áður til f landinu. Umtumað bllu efnahagskerfi landsins. í stað þess að tryggja verðgildi sparifjár. befur orðlð heiftarlegri rýmun þest en áður eru dæmi til. í stað jafuvægis I lánamálum, stórfelld- ari lánsfjárkreppu og harðhentari lánsfjárskömmtun en áður hefur ekkst og svo er þetta kallað frelsi. stað skattalækkana, meiri álögur en nokkru sinni áður í sögu lands- ins. Og svo átti þetta allt að vera ger< til að lækka skuldirnar við útlcnd, en þær eru nú að frá- dregnum innstæðum, meiri en nokkru sinni fyrr. Framhald á 13 siðu A AD HERDA AD ALMENNINGI SVO STÖR- KAPlTAllD GETIKOMID ðLUI SlNU FRAM? TÍMINN, miðvikudaginn 23. október 1963 9

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.