Tíminn - 20.11.1963, Side 15

Tíminn - 20.11.1963, Side 15
HRINGDI Framhald af 1. síðu. leigjanda í húsinu og fór það- an upp á aðra hæð hússins. Ein 'kona var í húsinu, Ágústa Helgadóttir, fædd 1895. Tíminn átti tal við Ágústu í kvöld og sagðist henni svo frá: „Eg ætl- aði að fara út í búð að kaupa, var komin í kápuna og á leið niður stigann, þegar ég sá stofu hurðina hreyfast örlítið. Eg hélt fyrst, að einhver af heim ilisfólkinu væri kominn og leit inn í stofuna. Sá ég þá, hvar piltur stóð á stofugólfinu og horfði á mig. Eg spurði hann, hvað hann væri að gera hér og hvernig hann hefði komizt inn, en hann sagði, að mér kæmi það ekkert við. Eg'spurði, hvort hann vildi ekki fara út. en hann harðneitaði því, sagðist vilja vera hérna, hér væri svo rólegt og gott. Eg sagði honum þá, að það væri margt fleira fólk í húsinu til þess að láta hann ekki halda, að ég væri ein hérna. Skimaði hann um stof- una og virtist vera að leita að einhverju. Eg bauð honum kaffi frammi í eldhúsi, sem hann þáði, en sagðist svo geta drepið mig Eg sagði honum þá, að hann færi nú varla að drepa svo gamla konu, og jánk aði hann því. Svo settist hann aftur inn í stofu og fór að lesa blöðin, en ég fór fram og hringdi á lögregluna. Hann sþurði mig svo, hvort ég væri búinn að hringja á lögregluna, og sagði eg honum, að ég væri búin að því Þá sagði hann, að hún hlyti að fara að koma og var hinn rólegasti og hélt áfrarn að lesa blöðin inni í stofu hjá mér, þar til lögreglan kom. Við yfirheyrslu hjá lögregl- unni játaði hann svo að hafa barið Jóhönnu með bjórflösk- unni. Piltur þessi sem er að'eíns 16 ára, var undir örlitlum áfengis- áhrifum, er hann var tekinn, og hefur áður lent í kasti við lög regluna og þá fyrir nokkrum árum. Hann er í gæzluvarð haldi. Frá Mbmgi að Benedikt hefði sent kjósendum í Vesturlandskjördæmi bréf, þar sem kvartað var sáran yfir því, hve erfitt væri að vinna með Sjálf- stæðismönnum að þessum málum. Minnti Halldór þá á frumvarp Framsóknarmanna um Vega- og brúasjóð, þar sem byggt hefði ver ið á því, að allar tekjur af um- ferðinni rynnu til nýbyggingar og viðhalds vega. Á valdatíma núver- andi stjórnarflokka hefur orðið hu-ndruð milljóna króna aukning á tekjum af umferðinni og nema nettótekjur ríkissjóðs af umferð- inni nú 200—300 milljónum króna. Hins vegar hafa framlög ríkissjóðs til vegasjóðs aðeins hækkað á sama tíma úr 16 í 25 milljónir, en fjárlög um nær 200% Lýsti Halldór síðan stuttlega ástandi veganna og taldi, að ekkert nema stórkostlegt átak í vegamálum gæti fært þessi mál í viðunandi horf. Ingólfur Jónsson ítrekaði enn að ríkisstjórnin hefði staðið mjög vel að vegamálunum. Benedikt Gröndal sagði, að það þyrfti að skilgreina nánar, hvað átt væri með „tekjum af umferð- inni“. Taldi hann, að þar mætti aðeins telja benzínskatt, þunga- skatt og gúmmígjöld, en ekki inn- flutningsgjöli'. af bifreiðum. en ef innflutningsgjöldin eru ekki tal- in með verður ríkissjóður að ieggja fram fé til viðbótar, ef viðunandi ætti að teljast. Halldór Ásgrímsson sagðist vilja leiðrétta þann misskilning Bene- dikts, að hann hefði talið fé til vegaviðhalds of mikið. eða að það ætti fremur að renna tii nýbygg- ingar vega. Hann hefði einmitt sagt þveröfugt, að vegaviðhalds-J féð væri of lítið. Halldór E. Sigurðsson minnti á, j að stjórnarflokkarnir hefðu hækk- að benzínskatt um 34 aura 1960 og jafnframt tekið þann hluta benzínskattsins, sem áður rann í útflutningssjóð í ríkissjóð, en til viðbótar við þetta hafa tekjur af umferðinni vaxið um hundruð milljóna, en framlög til vegamála aðeins vaxið úr 42 milljónum í 70. Þetta er ekki að halda við í vegaviðhaldinu á sama tíma og fjárl'ög hafa nær þrefaldazt. Um skijgreiningu á „tekjum af um- ferðinni1' kvaðst Halldór vilja vísa til greinar Geirs fyrrum vegamála- stjóra, þar sem hann taldi öll gjöld af bifreiðum og benzíni og olíum til tekna af umferðinni, því að að- eins vegna þess að við höfum lagt hér vegi höfum við haft þessar tekjur af farartækjunum og sann- leikurinn er sá, að eins og nú er háttað hefur ríkissjóður stórlega hagnazt af vegalagningunni. ÖSKUFALl. Framhald af 16. síðu. jarðskjálfta, en ekki mun vera hægt að tryggja sig gegn flóð- bylgjuhættu. Og nú eru þeir farnir að fá smjörþefinn af óþægindum í sam- bandi við gosið, því að seinnipart inn í dag tók aska að falla í kaup staðnum, öskuryk settist á þök, og lá við að mairaði í spori á gan.g- stéttum. Hennur hafa verið tekn- ar undan húsþökum til að varna því, að öskumengað vatnið renni í brunnana. Eru menn kvíðnir, ef eitthvað neldur áfram að falla aska, því að eftir nokkra daga mundi skapazt vandræðaástand þess vegna. Suðvestan kaldi er í eyjum. Vestmannaeyingum sýnist annars nýja eyjan vera að líkjast Helgafelli. Enn var mikil loftumferð ,við gosið í‘dag, en erfiðara var; nú að fara nálægi mekkinum vegna öskufalls, sem féll nú allt um kring. Settist aska á rúður vél- anna, og skemmdust jafnvel rúð- ur af þeim sökum. Skyggni var annars gott. Vísindamenn komu saman til fundar í morgun og réðu ráðum sínum um, hvernig rannsókn skyldi hagað í sambandi yið gos- ið. Fiskideildin gerir út leiðang- ur á Maríu Júlíu undir stjórn Að- alsteins Sigurðssonar, fiskifræð- ings, og verður siglt til Eyja á morgun. Sennilega verða Jón Jóns son, jarðfræðingur, og prófessor Trausti Einarrson með í förinni. Haldið verður áfram að safna sýn ishornum og fylgjast á annan hátt með gosiriu. Sigurður Þórarinsson, jarðfræð ingur, sagði í viðtali við blaðið í dag, að sér virtist athugandi að gera rannsóknir á vatninu í Eyj- um, ef öskufall heldur áfram þar, með tilliti til flúors, sem líklegt er, að lUKÍzt talsvert. En flúor má ekki fara yfir visst mark í vatni til þess að það geti orðið slæmt. 'IOLISTINN Framhald af 1. síðu. skilorð en tíðkast þar sem um hóp náðun er að ræða. f náðunartil- fellum einvtaklinga fer náðunin aftur á mótj eftir eðli mála þeirra Eins og að 'raman greinir voru á annað hundrað manns náðaðir, og þar af margu sem ekki höfðu tek- ið út neina refsingu fyrir afbrot sín Sumir peirra er náðaðir voru og „sátu inni“ eru komnir aftur á hælið og iiefur náðunin þannig • kki komið neitt að gagni í sam bandi við þá Ekki var hægt að fá nákvæma tölu yfir þá sem náð aðir voru og bá ekki heldur nversu margir hefðu algjörlega sloppið við refsingu an þeir hljóta að hafa ' crið nokkuð margir Hér i Hegn ingarhúsinu Reykjavík er rúm fyrir 7 reisivistarfanga en þar þurfa alltaf aö vera klefar til taks. UTVIKK’UJ Pnm‘-«io af 1 siðu. ir ritaði tursetinn nafn sitt í gestabók ekkjudrottningarinnar, að Clarenee House. sem er að- setur hennar. Þá heimsótti forsetinn báðar deildir brezka þingsins, og á eft- ir var te-Irykkja í salarkynnum brezka þinghússins í boði brezka þingmannasambandsins. í neðri deild brezka þingsins stóð yfir fyrsti spurningatíminn, sem nýi forsætisráðherrann tekur þátt í. Þar fóru fram fjörugar umræð- ■ ur um öryggismál á meðan for- setinn sat í heiðursstúku á áheyr endapöllum. f kvöld var að lokum fjölmenn veizla yfirborgarstjóra Lundúna í Guildhall til heiðurs forseta- hjónunum. Þar flutti yfirborgar- stjórinn og forsetinn ræður: og kemur hér ágrip af ræðu forset- ans: „Land vort liggur í miðju hafi, en Norður-Atlantshafið er nú nokkurs konar Miðjarðarhaf hinna elztu og öruggustu lýð- ræðisþjóða. Þetta er góð lega, og oss vel Ijóst, að fámenn þjóð er ekki örugg, nema hún búi við gott nágrenni. Atvinnuvegir vor ir eru fábreyttir, og vér greiðum með fiski og sjávarafurðum mestan Jiluta þess innflutnings, sem nauðsynlegur er nútíma menningarþjóð. Alþjóða álit um fiskveiðaland- - helgi hefur breytzt á síðari ár- um, og íslendingum lífsnauðsyn að stækka landhelgi sína. Þessi hagsmunaárekstur leiddi til al- varlegra átaka, sem hvorki Bret- ar né íslendingar óskuðu eftir. En í þorskastríðinu, sem sum- ir hafa kallað svo, voru sáttfús- ir stjórnmálamenn við völd, og skipherrar á hafinu, sem skipt- ust meir á heilræðum úr ritning unni en skotum. Visast hefði brezkum og íslenzkum víkingum fyrri ailda þótt það lélegt stríð! 'Viðúrdfgn þéssari láuk, ári slýsa, með sátt og samkcmulagi. Vér hittumst nú sem gamlir vinir og góðir nágrannar, meir til að muna allt bttur, sem vel hefur verið um sambúð vora. Ef allt ætti að muna og engu að gleyma, sem þjóðum og ættum hefur borið á ruilli, þá væri allri vin- áttu og velvild útrýmt af jörð- inni, og fjandskapurinn einvald- ur. Bretar eru kunnir fyrir drengi legar leikreglur og langreyndir í öllum stjórnmálum. Pólitísk orð á ensku máli eru oftar dreg- in af leik og keppni, en síður af vafasömum kennisetningum. Mannúð og umburðarlyndi ein- kenna brezka þjóð. Vér erum vissulega i tölu þeirra þjóða sem hafa notið og kunna að meta endurtekna brezka baráttu gegn einræði og yfirgangi. Ég gleymi aldrei því ári, þegar Bretar stóðu einir í vörninni í síðustu heimsstyrjöld. Þá var hvorki talið eftir fé né -fjör. Ég kom tvisvar til Lundúna tneðan á styrjöldinni stóð. Þriðj ungur allra húsa í City var jafn- að við jörðu Rósemi fólksins er mér minnisstæðust. Það kvart aði enginn hvorki um kulda, skort né lífshættu. Það var eitt- hvað sérstaklega brezkt yfir þessu yfirlætislausa hugrekki. Það var meira í veði fyrir örlög mannkynsins en Bretland eitt saman. Sigri bandamanna eigum vér, eins og margir aðrir, það að þakka, að vér erum frjáls þjóð og getum haldið áfram ferðinni ,á þeim biautum frelsis og þing- ræðis, si'i.-n liggja frá landnáms öld og svo langt fram í tímann sem augað eygir. Frelsi og sjálf stjórn er vor sameiginlegi arfur og framtíðarhugsjón- Við þing- ræði varðvsitist jafnvægi bezt milli frelsis og stjórnar. Ég dreg enga dul á það, að vér ís- lendingar berum mikla virðingu fyrir og vinarhug til hinnar brezku þjóðar. Herra borgarstjóri! Ég flyt beÁu þakkir fyrir virðulegt boð á þessum fornhelga stað, og hinni brezku þjóð vinarkveðju frá íslendingum.“ 38 MANNS voru í kvöldverð- arboðinu, sem Home forsætis- ráðherra iiélt til heiðurs forseta- hjónunum í gærkvöldi. Meðal þeirra voru Guðmundur í. Guð- mundsson, utanríkisráðherra og frú hans, ennfremur Harold Wilson og Christopher Soames, sendiherra íslands í London, for setaritarian og frú þeirra. Kvöld verðarboð þetta var haldið í Downing Street 10 og hafði for- setinn írú Butler á hægri hönd og Lady Douglas Home á þá vinstri og við hlið_ hennar sat utanríkisráðberra íslands, en brezki forsætisráðherrann hafði forsetafrúna á hægri hönd, við hlið hennar sat Butler. Forsæt- isráðherrann bauð forsetann vel kominn í kvöldverðarboðinu með nokkrum mjög vinsamlegum orð um. Forsetinn þakkaði og var einnig mjög stuttorður. Að kvöldverðarboðinu loknu var fjölmenn gala-móttaka til heiðurs forsetanum og var þar fjöldi íramámanna Breta og allt fylgdarlið fersetans, auk nokk- urra íslendinga búsettra í Lond- on. Veitt var franskt kampavín og má geta þess, að þetta er fyrsta móttakan í Downing Street 19 eftir að forsætisráð- herrabústaðurinn hefur verið endurnýjaður, en hann var gerð ur upp fyrir eina milljón sterl- ingspunla, að sagt er. Meðal íslendinga í hinni almennu rnót- töku voru Björn Björnsson, Karl Strand, Jóhann Sigurðsson, Ei- ríkur Benediktsson og frúr þeirra. Þess má að, lokum geta, að fréttamyndii voru af komu for- setahjónanna í báðum sjónvarps dagskrám brezka útvarpsins í gærkvöldi og tveggja dálka mynd birtist í Times í dag af því, þeg ar forsætisráðherrann var að bjóða forsetann velkominn ásamt alllangri frásögn af heimsókn- ELDUR Framhald af 1 síðu. ig gamlar vélar, sem hætt var að nota. Eins og fyrr segir kom eldurinn upp í norðurenda hússins, r-n þegar blaðið hafði samband við slökkviliðið um klukkan 23:15 fékk það þær fréttir, að eldurinn hefði breiðzt út í viðbygginguna, sem er um miðbik hússins, og gekK illa að slökkva hann. Pípuverksmiðjan er gamalt og gróið íyrirtæki, og fram leiðir hún ýmiss konar stein- steypuvörur Húsið var tryggt hjá Húsatryggingum Reykja- vikur, en það sem á loftinu var, var ótryggt Tjón var í kvöld talið vera nokkuð. en óvíst hvað mikið. eða hvort vélar á GERÐI ÓFRJÓAR Franihau, af bls. 3. hinn mikla fjölda ólöglegra fóstur eyðinga, kvaðst andvígur þeim og sagðist oft hafa talað konur til að ala börn sín, en lofað þeim í stað- inn að hann myndi sjá til, að þær yrðu ekki framar vanfærar. Hann lagði einnig áherzlu á, að mörgum mæðrum þætti vænna um sjón- varpstækin en börnin sín. Aðstoðarlæknir dr. Dohrns, dr. Annemarie Meves, var kvödd sem vitni, og lýsti hún viðbrögðum kvennanna, sem ek'ki þurftu fram- ar að óttast að verða barnshafandi. — Þær voru yfir sig hamingjusam ar, sagði hún. — Hjónabandinu var borgið og þær gátu lifað eðli- legu fjölskyldulífi á nýjan leik, og eytt öllu sínu starfsþreki á börnin sín, sagði dr. Meves. Rétturinn varð við þeirri ósk verjanda að birta ekki nöfn kvenn anna 149, sem við málið eru riðn- ar. BOLTAR, Skrúfur, Rær Maskinuboltar Borðaboltar Fr. skrúfur Bílaboltar Skífur Boddyskrúfur Múrboltar Vald. Poulsen h.f. Klappasstíg 29. Sími 15024. jarðhæðinni hefðu skemmzt nokkuð. Þegar líða tók á slökkvistarf- ið fannst Gunnar Sigurðsson, A'araslökkvlIIðsstjóri, meðvit- undarilaus uppi á lofti í húsinu. Mikill reykur var á loftinu. — Gunnar var fluttur i slysavarð- stofuna. Talið er að hann hafi misst meðvitund vegna reyks- ins. Guðný Magnúsdóttir Háafelli, Skorradal, andaðist 18. þessa mánaðar. Vandamenn. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og margvíslega aðstoð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, ‘ íns Jónssonar frá Flagbjarnarholti. Sigríður Gestsdóttir, börn, tengdabörn og barrrabörn. T í M I N N, miðvikudagjnn 20. nóv. 1963. 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.