Tíminn - 01.12.1963, Qupperneq 1

Tíminn - 01.12.1963, Qupperneq 1
A ANNAÐ HUNDRAÐ FORUST I FLUGSLYSI NTB-Monti'eal, 30. nóv. 118 MANNS fórust I flug- slysi við Montreal í gærkvöldi, klukkan hálfsjö að staðartíma. Kanadísk þota af gerðinni DC8 hrapaði þegar eftir flugtak jg lenti niður á akri við Sainí Theresa, rétt norðan við Montr eal. — Þotan var frá Trans Canada Airlaines og sagði tals- maður TCA, að slysið hlyti að vera af völdum skemmdarverks. Þegar kom upp eldur í vél- inni, og komst enginn út úr flakinu. Slagveðursrigning var, er þetta gerðist, og torveldaði það allt björgunarstarf, því akurinn óðst upp, svo ekki var fært um hann á neinu farar- tæki. — Logaði enn í vélinni, tveim timum eftir að slysið varð. Flugvelin myndaði tveggja metra djúpan gíg í jörðina, 30 metra í þvermál, og torveld- aði það enn alla hjálp, að vatn- ið undan akrinum seig saman í þenan gíg. Svo blaut var jörð in, að björgunarmenn óðu aur- inn upp að hnjám. 111 farþeg- ar voru með vélinni, sem hafði sjö manna áhöfn, en ekki er enn vitað. hvort þar voru útlend ingar með eða yfirleitt hverjir voru farþegar. Mikið af skóla- Framhald á 23. síðu. VARÐ UNDIR BILNUM MYNDIN Hér til hllðar er af steypubíl sem valt á mótum Miklubrautar og RauðagerSis á laugardagsmorguninn um hálftólf-leytiS. Ökumað- urlnn Stefán Pálsson, til heimilis að Sklpasundi 25, klemdist á milli hurðar og stafs, undir bilnum, þar sem hann lá á hliðinnl. Var Stefán fluttur á Slysavarðstofuna. Nokkur hálka var þarna og mun hún hafa verið orsök þess að bíliinn valt, en hann mun ekki hafa skemmst mlkiS þótt hann væri fullhlaðinn. (L)ósm.: TÍMINN—GE). KH-Reykjavík, 30. nóv. Enn er mikill vöxtur í Ölfusá, þó að veðrið hafi nú gengið niður, og er svo til allt láglendið frá Hellisheiði að Kaldaðarnesi, aust- an Ölfusár, undir vatni, eins og myndin hér að ofan ber með sér, en KJ tók hana austur yfir Ölfus- ið í morgun. Austurvegur er fæir, en ófært er til nokkurra bæja nær sjónum. í óveðrinu eyðilögðust víða girðingar, símastaurar brotn- uðu og símalínur slitnuðu, og var enn þá símasambandslaust við Biskupstungur, nema um bráða- biirgðalínu um hádegi í dag. í fyrradag brutust fjórir menn á íshröngli út í Tungueyju í Hvítá og björguðu þaðan 50—100 hross- um, sem nærri lá, að flæddi þar. í Tungueyju í Hvítá, sem er all- stór eyja, er oft geymdur hópur hrossa. Voru þar um 50—100 hross í vikunni, þegar vöxtur hljóp í ána. Vegna bágborins símasam- bands náði blaðið ekki tali af nein um þeirra, sem björguðu hrossun- um, en sjónarvottur frá einum bæjanna austan Hvítár, sagði, að þaðan hefðu hrossin sézt híma á rindum hingað og þangað um eyna, og sum sýndust standa í vatni. Ekki var viðlit að koma við báti út í eyna fyrir íshröngli, en fjórir karlmenn brutust út í eyna á hrönglinu og teymdu hrossin öll heil á húfi til Lands. Er það talið. mikið þrekvirki, því að talið var, að ekki mundi nokkur lifandi mað ur komast út í eyna. . Framhald á 23. síðu. Dýrir lækkuðu - ódýrir hækkuðu KJ-Reykjavík, 25. nóv. — Nú er árgerð 1964 af amerísku bíl unum komin á markaðinn, og líður væntanlega ekki á löngu áður en þcir fara að sjást hér á götunum, ef þeir eru þá ekki þegar konmir. í því sambandi er ekki úr vegi að minnast þess að við tilkomu nýju tollskrár- innar lækkuðu flestir ef ekki allir amerískir bílar, og stærri gerðirnar af evrópsku bílunum cinnig. Lækkun þessi mun hafa numið sem næst sex af hundr- aði, en er þó dálítið breytileg, eftir verði einstakra tegunda. Það sem olli lækkuninni, var að leyfisgjöld af fólksbílum, sem eru 1150 kg. og þyngri, voru iækkuð úr 135 af hundr- aði í 100 en leyfisgjöld eru reiknu'ö aí fob. verði bifreið- anna. Til dæmis um lækkunina má geta þess, að nú kostar Opcl Kapitain um 280 þúsund og lækkaði hann um 30 þúsund kr. við leyfisgjaldabreytinguna. — Dýrari bílarnir hafa þannig orðið ódýrari en þeir ódýrari dýrari n eð nýju tollskránni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.