Tíminn - 01.12.1963, Síða 9
LSSON RITÁR
ADSTADA MANNA VARDANDILANSFE
TIL iBllDABVGGINGA VERDIJOFNUÐ
Einar Ágústsson flytur í
sameinuðu þingi ásamt
þeim Sigurvin Einarssyni,
Ingvari Gíslasyni, Karli
Kristjánssyni, Jóni Skafta-
syni, Halldóri Ásgrímssyni,
Halldóri E. Sigurðssyni,
Ólafi Jóhannessyni og Birni
Fr. Björnssyni, tillögu til
þingsályktunar um endur-
skoðun laga um lánveiting-
ar til íbúðabygginga. Tillag
an er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að kjósa
fimm manna nefnd hlutbund-
inni kosningu til þess að endur
skoða öil gildandi lög um lán-
veitingar til íbúðabygginga í
landinu.
Nefndin skal gera tillögur að
nýrri löggjöf í þessum efnum,
er m. a. hafi það markmið:
að auka lánveitingar til bygg
ingar nýrra íbúða, svo að
unnt verði að lána til
hverrar íbúðar af hóf-
legri stærð, hvar sem er
á landinu, tvo þriðju
hluta af byggingarkostn-
aði,
að jafna aðstöðu manna til
STEFNT VERÐI AÐ ÞVÍ AÐ LANA TIL HVERRAR ÍBÚÐAR AF HÓFLEGRI STÆRÐ,
HVAR SEM ER Á LANDINU, TVO ÞRIÐJU HLUTA BYGGINGARKOSTNAÐAR
láusfjái þannig, að heild-
arlán geti orðið svipuð til
hvers manns, miðað við
sömu stærð íbúðar, hver
sem hann er og hvar sem
hann býr;
að greiða íyrir mönnum með
lánveitmgum til að endur-
bæta íbúðir svo og að
kaupa íbúðir til eigin
nota;
að lækka byggingarkostnað í
landinu.
Nefndin leggi tillögur sínar,
ef unnt. reynist, fyrir Alþingi
það, er nú situr, en að öðrum
kosti fyrir næsta reglulegt Al-
þingi.
Kostnaður af störfum nefnd-
arinnar greiðist úr ríkissjóði".
í greinargerð með tillögunni
segir:
Allir þurfa á húsnæði að
halda, engu síður en fæði og
klæði Siðferðileg skylda ríkis-
valdsins til að gera mönnum
mögulegt að eignast þak yfir
höfuðið er engu minni en að
stuðla að nægilegri atvinnu og
viðunandi lífskjörum að öðiju,
-5
leyti.
Það verðut jafnan eitt af
fyrstu viðfangsefnum þeirra, er
stofna heimili, að reyna að eign
ast íbúðir. Fiestir eru ungir að
árum, þegar þeir mynda eigið
heimili, og fæstir þeirra eru
miklum efnum búnir. Hins veg-
ar kostar íbúð fyrir fjölskyldu
mikið fé, eins og nú er komið.
Meðalstærð þeirra íbúða, er
byggðar voru í landinu árið
1962. mun hafa verið 375 rúm
metrar. Slík íbúð kostar nú,
samkv. vísitölu byggingarkostn
aðar í okt s. 1., um 688 þús. kr.
og hefur þá hækkað í verði um
227 þús. kr. eða um 49% á síð-
ustu fjórum árum, þ. e. frá 1
okt. 1959 Á sama tíma hafa
lán úr Byggingarsjóði ríkisins
hækkað aðeins um 50 þús. kr.
á íbúð. Af þessu leiðir, að eig-
ið framlag hvers manns, sem
byggir ser ibúð af fyrrnefndri
stærð, þarf að vera um 538
þús. kr. Nærri má geta, hversu
torvelt slíkt er ungu og efna-
litiu fólki. Óhjákvæmilegt er
verrt
Einar Ágústsson
1. flm.
þv| að s.tórhækka -Ján ,
ar íbúðar.
Eins og allir vita, eru mögu-
leikar manna til lánsfjáröflun
ar misjafnir en að því ber að
stefna, að allir geti eignazt hús-
næði til eigin nota.
Einnig er hagkvæmt að veita
mönnum nokkurt lánsfé til end
urbóta á gömlum húsum eða til
að kaupa slík hús til eigin notk
unar. Með því má hagnýta bet-
ur húsnæði, sem fyrir er, spara
lánsfé, sem annars þyrfti í nýj-
ar íbúðir, og koma í veg fyrir,
að menn búi i óviðunandi íbúð-
um.
Byggingarr.ostnaður er nú
orðinn óhæfiiega hár hér á
landi, og er bvi aðkallandi nauð
syn að rá hann lækkaðan. í 2.
gr. laga nr. 42 frá 1957, um
húsnæðismálastofnun o. fl., eru
ýtarieg ákvæði um ráðstafanir
til lækkunar á byggingarkostn-
aði. Því miður hefur húsnæðis-
málastofnunin ekki haft fjár-
ráð til þess að framkvæma lög-
in að þessu leyti.
Þróun þessara mála hefur
vpgast sagt farið alvarlega úr
skeiðis síðustu árin. Sem dæmi
um samdrátt í íbúðabygging-
um fjögur síðustu árin, í sam-
anburði við fjögur næstu ár
þar á undan, má nefna eftirfar
andi um töiu íbúða, sem byrjað
hefur verið að byggja tilgreind
ár:
1955 1959 Fækkun
tii ’58 til’62
553 331 222-40%
1028 834 194-19%
1852 1289 563-30%
3549 2122 1427-40%
Sveitir
Kauptún
Kaupst.
Rvík
Samt. 6982 4576 2406-34%
Víða hefur húsnæðisleysið
komið í veg fyrir stofnun heim
ila, einnig staðið í vegi fyrír
því, að menn geti notið heppi-
iegra atvinnuskilyrða, og aug-
ijóst er að sívaxandi húsnæðis-
kostnaðu/ gerir óhjákvæmileg-
ar kröfur um hækkuð laun.
Hér er um þjóðfélagsvanda
mál að ræða, sem þolir ekki
bið, en þarf að ráða bót á hið
fyrsta, og í þeim tilgangi er til'-
laga þessi flutt.
hÉRAÐSFUNDUR
Framhald af bls. 19.
Hveragerði tekur eftirfarandi
fram: — Með tilliti til þess, 'að
við Laugarvatnsskóla dvelur fjöl-
mennur hópur æskufólks og á
margt af því að fermast að lok-
inni skólavist, en hins vegar er
þar engin kristindómsfræðsla og
enginn fermingarundirbúningur,
skorar fundurinn á kirkjustjórn-
ina að sjá skólunum þar fyrir full-
nægjandi prestsþjónustu og veita
presti fullnægjandi starfssskilyrði
þar. Vill fundurinn jafnframt
benda á þann möguleika, að prest-
setur Mosfellsprestakalls verði
flutt að Laugarvatni, eða Laugar-
vatn njóti sérstakrar prestþjón-
ustu.
Þess má geta til skýringar á síð-
ari ályktuninni, að prestssetrið að
Mosfelli er orðið svo hrörlegt, að
prestur getur ekki setzt þar að
sinni. Mun því séra Ingólfur sitja
utan prestakallsins fyrst um sinn,
að Torfastöðum í Biskupstungum.
í fundarlok bauð prófastur öll-
um fundarmönnum til kvöldverðar
að Hótelinu í Hveragerði.
Sextugur
Framhald af 7. síðu.
komu og framúrskarandi Ijúfur
við að mæla, ágætur ræðumað-
ur á fundum og á mannamótum,
irábærlega ve: að sér um öll
héraðsmál, og honum hefur tek
izt að vinria þannig að fram-
gangi mála á Alþingi fyrir kjör
dærriið, að menn trúa því, að
ekki verði betur gert.
Til forna var talið rétt að
ráða fram úr flóknum vandamál
um að beztu manna yfirsýn.
í Norður-Þingeyjarsýslu munu
flestir telja Gísla Guðmundsson
skipa vel sitt sæti í sveit þeirra
manna, er slíkt ber að höndum.
Er þetta eitt atriði enn, og ekki
veigalítið, sem rennir stoðum
undir framansagt um tiltrú
Gísla og vinsældir.
Kona Gísla er Margrét Árna-
dóttir frá Gunnarsstöðum í Þist-
itfirði, hin ágætasta kona. Hef-
ur hún staðið með manni sinum
í blíðu og stríðu og veitt hon-
rm ómetanlegan styrk til starfa.
En mesta aðdáun mun þó vekja
skapfesta hennar og óbilandi
þrek, er hún hjúkraði manni sín
um sjúkum í heimahúsum árum
saman og með þeim gleðilega
árangri, að hann endurheimti
heilsu sína, aðdáun, sem aldrei
gleymist þeim, er að þeim
standa, eða til þeirra þekkja.
Heimili þeirra hjóna í Reykja
vík hefur jafnan staðið opið
Norður-Þingeyingum, og er þar
gott að koma. Hafa líka margir
komið þar og sumir enda dvalið
lengri eða skemmri tíma og not-
ið hlýju og umönnunar þeirra
hjóna.
Þau Gish og Margrét eiga
eina dóttur barna, Kristinu'. —
Hún er stúlka dugmikil og skarp
greind. Hefur hún nýlega lokið
kandidatsprófi í læknisfræði og
má mikils af henni vænta í
framtíðinni á því sviði.
Og á morgun. 2. des., er Gísli
Guðmundsson sextugur. Hann
er nú heilsugóður, ræður yfir
mikilli þekkingu á þjóðmálun-
um, hefur og öðlazt mikla lífs-
reynslu og hefur mikla tiltrú í
héraði og utan, svo að mikils má
af honum vænta.
Veit ég, að margt Norður-Þing
eyinga tekur undir með mér, er
ég færi honum í línum þessum
miklar þakkir fyrir giftudrjúg
störf í þágu fæðingarhéraðs
síns og þjóðarinnar allrar og
óska honum og fjölskyldu hans
allra heilla í tilefni þessa dags.
Sigurður Björnsson.
Skák
hvítur getur nú aðeins valið á
milli ófullnægjandi úrræða. Þar
sem hvítur gat ekki varið c-peðið
sitt var hann neyddur til að losa
um tvípeð svarts og fær hann
brátt að Xenna á sóknarmætti
svörtu stöðunnar).
18. —exd4; 19. Bg5, d3; 20
a3
(Hann reymr að klóra í bakkann
af bezta megni).
20. —, Ilxc2; 21. axb4, Db6
(Eftir 21. — HxD væru björgun
arimöguleikar hvíts eitthvað
skárri).
22. De3, Bd4; 23. Df3, Hxf2;
24. Dg4, d2
Hvítur gafst upp.
SJÖUNDA LANDSÞING
Framhald af bls. 20
meira og viðtækara samstarfí þeim
í’l aukins nagræðis og sparnaðar
i framkvotmd ýmissa mála þeirra.
Vill sambandsþingið í því sam-
bandi benda á brunamál, sameign
stærri- vinnuvéla, sameiginlega
gjaldhetmtu sorphreinsun o. m.
fx.“
11. Búfjárhald i kaupstöðum og
kauptúnum
Fyrir tandsþinginu lá frumvarp
til taga um búíjárhald í kaupstöð-
um og kauptúnum, þar sem sveit-
arstjórnum er veitt heimild til að
hanna DÚfjarhald, takmarka það
eða binda það við tiltekið svæði
innan sveitarfélags. Landsþingið
Skrifstofustúlkur
Viljum ráða nokkrar ungar stúlkur til skrif-
stofustarfa strax. Nokkur vélritunarkunn-
átta er nauðsynleg Nánari upplýsingar gef-
ur Starfsmannahald SÍS, Sambandshúsinu.
STARFSMAN NAHALD
Stúlka óskast
Viljum ráða stúlku til starfa eítir hádegi í verzlun
vora í Hafnarstræti 23. — Nánari upplýsingar gef-
ur verzlunarstjórinn.
DRÁTTARVÉLAR H.F.
samþykkti að mæla með frumvarp-
lilU.
Auk framangreindra ályktana
v jru gerðar ýmsar samþykktir um
máiefni samnandsins og kosin
oefnd til aé endurskoða lög þess
og skipulag.
Kísilhreinsun
Skipfing hitakerffa
Alhliða pipulagnir
Simi 17041.
TÍMINN, sunnudaginn 1. desember 1963. —
ð