Tíminn - 22.12.1963, Page 8
felldir niður fram til 16. janúar
Fundir Alþingis
Lokaafgreiðsla fjárlaga, at-
kvæðagreiðsla eftir 3. um-
ræðu, fór fram í sameinuðu
Alþingi í gær. Niðurstöðu-
tölur frumvarpsins hækkuðu
verulega í meðförum þingsins
og urðu nærri 2.7 milljörðum
króna. Nær allar breytinga-
tillögur stjórnarandstöðunnar
til leiðréttingar og úrbóta
voru felldar, margar þær mik
ilsverðustu að viðhöfðu nafna-
kalli. Hér á eftir verður reynt
að gera stuttlega grein fyrir
helztu atriðum frumvarpsins
og breytingatillögum við það.
2. umræða um fjárlagafrum-
varpið hófst mánudaginn 16. des.
en breytingatillögur flestar höfðu
verið lagðar fram á laugardag.
Fjárveitingarnefnd hafði þríklofn-
að um málið, og komu fram 3
nefndarálit. Allar tillögur um
breytingar á útgjaldaliðum frum-
varpsins voru þó fluttar af nefnd-
inni sameiginlega en 1. minni-
hluti, fulltrúar Framsóknarflokks-
ins, svo og 2. minnihluti, áskildi
sér rétt til að flytja og fylgja
breytingatillögum við einstaka
liði frumvarpsins og einnig hinar
sameiginlegu tillögur nefndar-
innar.
Halldór E. Sigurðsson hafði
framsögu fyrir nefndaráliti 1.
minnihluta fjárveitinganefndar,
en auk hans eru fulltrúar Fram-
sóknarflokksins í nefndinni þeir
Halldór Ásgrímsson og Ingvar
Gíslason en Hjörtur E. Þórarins-
son ritaði undir nefndarálitið, en
hann sat á Alþingi alllengi í fjar-
veru Ingvars Gíslasonar. í nefndar
álitinu var stuttlega gerð grein
fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar og
þeim afleiðingum, sem hún hefur
haft. Árangurinn af stefnu ríkis-
stjórnarinnar hefur orðið allt ann-
ar en í upphafi var boðað að hann
yrði. Ríkisstjórnin hefur sífellt
verið að taka stærri og stærri
hluta af tekjum fólksins í land-
inu til ríkisins. En hvernig hefur
ríkisstjórnin komið því við að
taka svo stóran hluta af tekjum
fólksins? Um það segir orðrétt
þetta í nefndarálitinu:
„Gengi íslenzku krónunnar hef-
ur hún fellt tvisvar. Nýr sölu-
skattur hefur verið lagður á flest-
ar neyzluvörur almennings og
ýmsa þjónustu, söluskattur í inn-
flutningi verið meira en tvöfaldað-
ur. Innflutningsgjöld, sem á voru
lögð vegna atvinnuveganna, en
niður áttu að falla með gengis-
breytingu, gerði ríkisstjórnin að
föstum tekjustofni ríkissjóðs við
afnám útflutningssjóðs. Benzín-
skattur var hækkaður verulega án
þess að það fé yrði látið ganga til
vegagerðarinnar, sem hafði þó
sannarlega þörf fyrir aukið fé til
framkvæmda. Útflutningsgjald af
sjávarafurðum var stórlega hækk-
að, sérstakt gjald á lagt til ríkis-
ábyrgðasjóðs.
Þessa upptalningu um leiðir rík-
isstjórnarinnar til að afla tekna
munum við láta nægja, að því við-
bættu, að flestum eldri tekju-
stofnum ríkissjóðs hefur hún hald-
ið mikið til óbreyttum, þar sem
aukin dýrtíð hefur að mestu leyti
eytt þeim breytingum, sem gerðar
voru á tekjuskattinum til lækk-
unar 1960.
Þessar gífurlegu skattaálögur
eru eitt af meginstefnumálum
ríkisstjórnarinnar. Þær eru liður
í framkvæmd þeirrar stefnu að
hafa stjórn á peningamálum þjó£j-
arinnar, sem átti að vera einn
þátturinn í því að draga úr þenslu
í efnahagsmálum. Því hugsar rík-
isstjórnin sér að koma í fram-
kvæmd með því að taka af þjóð-
inni meira í ál'ögum en þörf er
vegna ríkisútgjaldanna og fá þann-
ig verulegan greiðsluafgang. Þetta
hefur henni tekizt síðustu árin í
æ ríkara mæli. Þessi stefna hefur
í framkvæmd leitt til þess, sem nú
skal að vikið.
Enda þótt ríkistekjurnar hafi
vaxið meira en ríkisútgjöldin, svo
sem vikið hefur verið að hér að
framan, hafa útgjöld ríkissjóðs
einnig vaxið gífurlega. Það, sem
þó skiptir mestu máli, er, að
rekstarútgjöld ásamt fjárgreiðslu
til að halda vöruverði, í landinu
niðri, hafa vaxið hvað mest, en
aðstoð við uppbygginguna mun
minna.
Álögustefna ríkisstjórnarinnar
hefur ásamt minni aðstoð ríkis-
sjóðs við ýmsar ríkisstofnanir, sem
átt hefur sér stað á valdatíma nú-
verandi stjórnarflokka, leitt til
þess, að þessar stofnanir hafa orð-
ið að hækka þjónustugjöld sín um
80—100%, svo sem Póstur og
sími, Skipaútgerð ríkisins, Raf-
magsveitur ríkisins, sjúkrahúsin
o.fl. Þrátt fyrir þessar hækkanir
á þjónustugjöldum, hefur rekstur
þessara stofnana gengið mun verr
en fyrr, svo sem hjá ríkisrafveit-
unum, en rekstrarhalli þeirra mun
verða 30—35 millj. kr. á yfirstand-
andi ári. Auk þess hefur hækkun
þessara þjónustugjalda verið veiga
mikill þáttur í vexti dýtíðarinnar,
sem vísitala vöru og þjónustu sýn-
ir að verið hefur um 63% frá
1959, þrátt fyrir verulega aukin
fjárframlög úr ríkissjóði til að
hajda niðri vöruverði."
Ríkisstjórnin hefur miðað tekju-
áætlanir sínar við afgreiðslu fjár-
laga undanfarin ár við það að fá
óeðlilega mikinn greiðsluafgang.
Framsóknarmenn hafa undanfarin
ár bent á þetta án árangurs, og
sagði Halldór E Sigurðsson í fram
söguræðu sinni, að þrátt fyrir það
myndu þeir enn á ný gera tilraun
til að fá tekjuáætlunina hækkaða
í samræmi við fyrri reynslu Hall-
dór gerði síðan grein fyrir breyt-
ingatillögum þeim, sem 1. minni-
hluti nefndarinnar flytti, en um
þær segir þetta í nefndarálitinu:
Sjúkrahús
„Við gerum tillögu um, að
styrkur til byggingar sjúkrahúsa,
sjúkraskýla og læknisbústaða,
hækki um 8 millj. kr. Þó að þessi
hækkun yrði samþykkt, er Jangt
frá því, að fullnægt sé verkefn-
um þeim, sem unnið hefur verið
eða unnið er að í þessum mála-
flokki. Mun meira fé þarf að koma
til, t.d. sérstök fjárveiting til að
greiða áfallinn kostnað, svo að
nota mætti fjárveitingu á næsta
árs fjárlögum til' áframhaldandi
framkvæmda
Hafnarframkvæmdir
Við leggjum til, ,að fjárveiting
til hafnarframkvæmda hækki unj
8 millj. kr. Ekki þarf að lýsa þörf-
inni á hafnarframkvæmdum og
nauðsyn þess, að ríkissjóður greiði
framlag sitt að mestu jafnharðan.
Verði tillaga þessi samþykkt, ger-
um við ráð fyrir, að fjárveitinga-
nefnd skipti fjárveitingunni fyrir
3. umræðu.
íþróttasjóður
Við gerum þá eina tillögu um
hækkun á 14 gr. fjárlagafrv., að
framlag til íþróttasjóðs hækki um
2 millj. kr. og verði 5 millj. Þörfin
er miklu meiri, en eðlilegt er að
fara þá leið í áföngum að full-
nægja greiðsluþörf sjóðsins.
Jarðræktarvélar
Þar leggjum við til hækkanir á
3. vél.
nokkrum gjaldaliðum. Er þar
fyrst til að taka, að framlag til
kaupa á jarðræktarvélum rækt-
unarsambandanna hækki í 4 millj.
kr. Höfum við tekið upp tillögu
þá, er vélanefnd ríkisins gerði um
fjárveitinguna og rökstuddi mjög
rækilega. Verður ekki komizt hjá
því að veita þessa fjárhæð, ef rík-
ið ætlar ekki algerlega að van-
rækja aðstoð sína við þessa starf-
semi.
Þá leggjum við til, að liðurinn á
16. gr. A til stuðnings við bygg-
ingu mjólkursamlaga hækki um
0,5 millj. kr. Er hér um l'itla jfár-
hæð að ræða, en þörf á því að
hreyfa þetta mál, þótt í litlu sé.
Einnig leggjum við til, að gerðar
verði lítils háttar hækkanir á
tveim liðum til sandgræðslu. Að-
stoð við sandgræðsluna rökstyður
sig sjálf.
Við höfum í tillögum okkar nú
sem í fyrra, tekið upp hækkun til
haf- og fiskirannsókna um 1 millj.
kr. Nauðsyn þess máls efar eng-
inn.
Iðnlánasjóður
Tillögu gerum við um, að fram-
lag ríkisins til iðnlánasjóðs hækki
um 1 millj. kr. Fjárþörf vaxandi
iðnaöar í landinu er mikil. og er
þessi hækkunartillaga okkar nán-
ast viðurkenning á þörf hans og
yfirlýsing um vilja okkar til að
styðja gengi hans, frekar en fjár-
hæðin skipti verulega sköpum.
Raforkuframkvæmdir
Sú tillaga okkar, sem veldur
mestri hækkun, er um framlag til
nýrra raforkuframkvæmda. Mun
hún þó vera einna fjærst því, að
fullnægja þörfum. Fyrr í nefndar-
áliti okkar höfum við sýnt fram
á, hvað ríkið ætti að leggja til
nýrra raforkuframkvæmda, ef þær
hefðu fylgt hlutfallslegri hækkun
fjárlaga frá 1958. Enda þótt til-
laga okkar verði samþykkt, verð-
um við langt frá því takmarki, en
nokkuð væri að gert. Hvort sem
tillaga okkar verður samþykkt eða
eigi, verður ekki hjá því komizt
að mæta þörf ríkisrafveitanna meö
aukinni fjárveitingu. Ekkert mál
nema bættar samgöngur brennur
eins heitt á fólkinu, sem hefur
ekki rafmagn, eins og rafmagns-
málið. Hér verður að gera stór-
átak. Rafmagn verður að koma á
hvert byggt býli fyrr en síðar.
Jarðhitasjóður
Eitt af stórmálum okkar íslend-
inga er að hagnýta okkur þær
auðlindir, sem við eigum í jarðhit-
anum. Til þess að það megi tak-
ast, verðum við að verja verulegu
fjármagni í jarðhitarannsóknir og
jarðhitaleit. Við gerúm að tillögu
okkar, að framlag til jarðhitasjóðs
verði hækkað um 10 millj. kr.
Ekki orkar það tvímælis, að fjár-
hæð þessari yrði vel varið, ef
samþykkt yrði.
Vatnsveitur
Miklar framkvæmdir eiga sér
stað við vatnsveitur og ríkissjóður
þegar orðinn á eftir um framlag
sitt samkvæmt lögum. Á Alþingi
því, sem nú situr, höfum við
Framsóknarflokksmenn flutt frv.
um breytingar á lögum um vatns-
veitur. Við gerum okkur vonir um,
að það nauðsynjamál nái fram að
ganga á þessu þingi. En hvað sem
því líður, er mikil nauðsyn á að
fá fjárveitingu hækkaða svo sem
við gerum tillögu um.
Félagsheimilasjóður
Þá leggjum við til, að upp verði
tekið framlag í félagsheimilasjóð,
10 millj. kr. Mörg sveitarfélög
stynja þungan vegna þess, að fé-
lagsheimilasjóður getur ekki innt
af hendi framlag sitt til bygging-
ar félagsheimilanna vegna fjár-
skorts. Úr þessu verður að bæta
að einhverju leyti á næsta ári,‘ og
því er gerð tillaga um þessa fjár-
veitingu.
Við 20. gr. fjárlagafrv. gerum
við nokkrar brtt. Er þar fyrst, að
við leggjum til að hækka framlag
til bygginga á jörðum ríkisins um
0,8 mill'j. kr. Þörfin er mikil á
aukinni fjárveitingu á þessum lið,
og er því lagt til að bæta lítils
háttar úr henni.
Flugvaliagerð
Til flugvallagerðar leggjum við
til, að veittar verði 18 millj. kr.
Með þessari fjárhæð verður engan
veginn mætt þörfinni, en gerð til-
raun til' að koma lítið eitt til móts
við hana. Sama er að segja um
tillögur okkar til hækkunar á fjár-
veitingu til sjúkraflugvalla.
Þá gerum við tillögu um að
hækka öriítið liðinn um lán til raf-
stöðva. Getur liður sá eigi verið
lægri en við gerum tillögu um
vegna þeirra hækkana, sem orðn-
ar eru á þessum sem öðrum fram-
kvæmdum.
Atvinnubótasjóður
Atvinnubótas j óður hefur sam-
kvæmt lögum 10 millj. kr. fjár-
veitingu. Þegar heildarupphæð
fjárlaga var 800—900 millj. kr.,
var framlag ríkissjóðs til hans á
fjárlögum allt að 15 millj. kr. Á
síðari árum hefur starfssvið sjóðs-
ins verið aukið. Fjárhæðin 10
millj. kr. hefur því ekki nægt til
þess, að sjóðurinn gæti leyst úr
þeim verkefnum, sem hann þarf
að sinna. Á yfirstandandi ári var
lánuð úr sjóðnum fjárhæð, sem
svarar hálfum tekjum hans næsta
ár, ef ekki koma til viðbótartekj-
ur. Hér verður því nýtt fé að koma
til, ef starfsemi sjóðsins á einhver
að verða. Tillaga um þessa fjár-
veitingu er borin fram af brýnni
þörf.
Fiskirannsóknaskip
Þá gerum við að lokum tillögu
teldnn nýr liður, 10 millj. kr. til
um, að á 20. grr fjárlagafrv. verði
smíða á fiskirannsóknarskipi. Hér
er um mikið naúðsynjamál að
ræða, mál, sem þarf að koma í
framkvæmd sem fyrst. Fjárveit-
ing þessi gæti hrundið málum
Framhald á 23. sfðu.
Á ÞINGPALLI
★★ Að lokinni afgreiðslu fjárlaga á fundi sameinaðs Alþingis í gær
tilkynnti forseti, að fundir þingsins myndu ekki hefjast að nýju
fyrr en 16. janúar. Óskaði hann þingmönnum gleðilegra jóia
og góðs nýs árs og góðrar heimkomu. Eysteinn Jónsson þakk-
aði forseta góða samvinnu og óskaði honum og fjölskyldu hans
gleðilegra jóla og farsæls árs. Tóku þingmenn undir þær óskir
með því að rísa úr sætum. 4
★★ Þess má geta, að þegar þingi er ekki frestað með þingsályktun/
en forsetar fella niður fundi, þá hefur ríkisstjórn ekki vald
tii útgáfu bráðabirgðalaga.
8
T í M I N N, sunnudagur 23. desember 1963.