Alþýðublaðið - 10.02.1943, Síða 7
Miðvikadagur 3 0. icbrúar 1943.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
| Bærinn í dag. \
Næturlækxúr er Kjartan Guð-
mundsson, Sólvallagötu 3, sími
5351.
Næturvörður er í Reyk.iavikur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
ánsson rithöfundur les smá-
sogu': ,,í sálarháska“ b)
20,55 Árni Friðriksson mag-
ister flytur þætti úr „Férða-
pistlum“ dr. Bjarna Sæ-
mundssonar. e) 21,20 Dóm-
kirkjukórinn syngur (Páll
ísólfsson stjórnar).
21,50 Fréttir. Dagskrárlok.
Leiðrétting.
Nokkrar prentvillur — og sum-
ar meinlegar — voru í blaðinu í
gær í greininni um iPálínu frá
Tröð. Þessar voru helztar: biftist
les: giftist, Austurbæjarbarna
skóla les: Austurbæjarbarnaskóla
Kolbeinsstaðarhreppi les: Kol-
beinsstaðahreppi, var vel séð les:
var vel við, gjarálna les: bjarg-
álna, að leikslokum les: að leiðar-
lokum. Er hér með beðið afsök-
unar á villum þessum.
Hjónaband.
Á laugardaginn voru gefin sam-
an í hjónabai.d ungfrú Svanhvít
'Guðmundsöóttir, Magnússonar skip
stjóra, Skothúsvegi 15, pg Gunnar
Davíðsson (Kristjánssonar tré-
smíðameistara í Hafnarfirði. Síra
Helgi Sveinsson í Arnarpæli gaf
brúðhjónin saman á heimili for-
eldra brúðarinnar, en þar er og
heimili ungu hjónanna.
Anglia,
ensk-íslenzka félagið heldur 8.
fund sinn á starfsárinu að Hótel
Borg næst.komandi fimnitudag 11.
þ. m. kl. S 45.
Sundmót Ægis
verður haldið í Sundhöllinni í
kvöld og hefst það klukkan 8 V2.
Verður keppt á mörgum vega-
lengdum og búizt við, að keppnin
verði mjög hörð.
Frh. af 2. síðu.
E. Hlíðar, Sig. Kristj., Sig. Thor-
oddsen, Þóroddur Guðm.. Áki
Jak., Barði Guðm„ Einar Olg.,
Emil Jónss., Gunnar Thor. og
Jóhann Jósefsson.
Hjá sátu: Jak. Möller, Stef.
J. Stef. og Jón Sig.
Þá fór fram naínakall um
breytingartill. Stefáns og Áka
og var hún samþykkt með 16
atkv. gegn 12.
Já sögðu: Stefán Jóh. Stef.,
Áki Jak., Sigfús Sigurhj., Sig.
Bjarnason, Sig. Guðnason, Sig.
Hlíðar, Sig. Kristj., Sig. Thor.,
Þóroddur Guðm., Einar Olg.,
Emil J., Gunnar Thor., Jón
Pálm., Ól. Thors, Lúðv. Jós.
Nei sögðu: Páll Þ., P. Ott.,
Sig. Þ„ Skúli G„ Svbj. Högn.,
Bj. Ásg„ Eyst. J„ Gísli G„ Ing.
J., Jör. Brynj., Páll Zóph. og
Jóh. Jós.
Hjá sátu: Gísli Sv„ Jak. Möll-
er og J. Si^.
Breytingartillaga kom fram
frá félagsmálaráðherra, svo-
• hljóðandi:
„Við 3. gr. frv. 2. málsgr. orð-
ist svo:
Þegar alveg sérstaklega stend
ur á, svo sem þegar um er að
ræða alþingismenn og nemend-
ur í föstum skólum, getur húsa-
leigunefnd veitt undanþágu frá
upphafsákvæði þessarar greinar
um tiltekinn eða ótiltekinn
tíma.“
En upphafsákvæði greinarinn
ar, sem um getur í brt., er þann-
ig:
„Leigusala (framleigusala) er
óheimilt að leigja öðrum en
heimilisföstum innanhéraðs-
mönjium íbúðarhúsnæði, og eru
slíkir leigusamningar ógildir.“
Breytingartill. félagsmálaráð-
herra var samþykkt með 24 at-
kv. gegn 2.
Breytingartillögur allsherjar-
nefndar voru yfirleitt samþykkt
ar, og loks frumvarpið sjálft
svo breytt samþ. með 23 atkv.
gegn 2 og sent efri deild.
Revyan
„Nú er það svart, tnaður,“ var
sýnd í 50. sinn síðastliðinn mánu-
dag. Var húsfyllir eins og verið
hefir síðan revyan hóf göngu sína,
og mikill fögnuður áheyrenda.
Næst verður revyan sýnd annað
kvöld, fimmtudag.
Aðalfnndnr Breið-
firðisgafélagsiBS i
fyrralvðld.
Búnaðarþingið
var sett síðastliðinn laugardag í
Baðstofu iðnaðarmant'a og verða
fundir þess haldnir þar meða.n það
stendur yfir. Formaður Búnaðarfé-
lags íslands, Bjarni Ásgeirsson,
setti þingið. Að þvi búnu minntist
Jón Hannesson í Deildartungu
tveggja látinna bænda, sem áttu
lengi sæti á Búnaðarþingi, en loks
var kosin kjörbréfanefnd.
Góður gestur
heitir myndin, sem Tjarnarbíó
sýnir núna. Aðalhlutverkin leika
Bette Davis, Ann Sherilan, Monty
Woolly og Richard Travis.
Myndin,
sem Nýja Bíó sýnir, heitir Töfr-
ar og trúðleikarar. AðalhIutvérkin
leika Henry Fonda, I.lnda Darnell
og' Dorothy Larnour.
Skíðadeild Ármanns
heldúr aðalfund sinn á Amt-
mannsstíg 4 í kvöld kl. 8,30. Áríð-
andi er að félagsmenn mæti, þar
sem mörg mikilsvarðandi mál eru
á dagskrá.
Eldbússíúlki
og
afgreiðslustúlka
óskast nú þegar.
Hettt & Kalt.
450 manns ern nO i iélaginu
ÐALFUNDUB Breiðfirð-
ingafélagsins var haldinn
á niánudagskvöld, Auk venju-
legra aðalfundarstarfa var rætt
um ýmiis iframfara- og hags-
munamál breiðfirzkra héraða.
Meðal annars var rætt um
Reykhóla, en það er eitt að
helztu áhugamáluim héraðsins,
að þetta forna höfuðból verði
hafið til vegs og virðin'gar að
nýju.
Hálft fimmta hundrað félaga
eru nú í Breiðfirðingafélaginu.Á
síðasta ári hélt það sex .skemmti
og kynningarfundi og þrjár
skemmtiferðir ’ voru farnar á
vegum fél. ífeumar. Loks gekkst
það fyrir úitvanpskvöldi og hólt
150 gömlum Breiðfirðingum
samsæti.
Formaður félagsins hefir
Guð.mundur JÓhannession verið
frá upphafi, og stjórnar iþví með
miklum dugnaði og lagni.
Með'stjórnendur voru kosnir
Snæbjörn G. Jónsson, Guðibjörn
Jakobsson, Davíð Grimsson og
Jóhann Jónasson. Til vara: Jó-
hannes Ólafsson, Óskar Bjart-
marz og Elías Kristjánsson.
Orðsending'
til AlþýSuflokksfólks í Hafnar-
firði. Flokksfélögin halda árshátíð
sína n.k. laugardag. Skemmtunin
verður auglýst nánar hér í blaðinu
á morgun. Félagar! Tryggið ykkur
miða í tíma, áður en þeir verða
uppseldir:
larðarför mannsins míns o,g föður okkar
ÞÓRÐAR BRYNJÓLFSSON AR
fer fram frá Frikirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 1
þ. m. kl. 2 e. h. ,
Guðfinna Jónsdóttir og börn.
Maðurinn minn
Ólafur Ásbjörnsson, kaupmaður
andaðist í gærmorgun
Vigdís Ketilsdóttir
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að hjart-
kær faðir minn|
Stefán Stefánsson, kaupmaður
andaðipt föstudaginn 5. febr. á heimili sinu Lúðvíks-
húsi Norðfirði
F. h. móður minnar og annarra vandamanna
Sigiún Stefánsdóttir
Styrkjum blaða
utgáfu Vestur-
Íslendinga!
NÝLEGA kom fram á alþingi
frumv^rp til laga þess efn-
is, að ýmsar stofnanir og verzl-
unarfyrirtæki yrðu skylduð til
þess að kaupa vestur-íslenzku
blöðin, Heimskringlu og Lög-
berg. Tilgangurinn er tvenns
konar, í fyrsta lagi að miða að
aukinni kynningu, og í öðru lagi
að styrkja blöðin fjárhagslega.
Er sjálísagt engurn ofsögum
sagt af þörfinni á slíkum stuðn-
ingi, og haldi menn að byrðin
eigi eingöngu að hvíla á herðum
Islendinga vestan hafs, er slíkt
hinn átakanlegasti misskilning-
ur. Við verðum að horfast í
augu við þá staðreynd, að með
hverjum áfatug, sem líður. fer
þeim fækkandi, sem bezt hafa
stutt blöðin og mest finna til
þarfarinnar vestan hafs. Hins
vegar eru þeir allt of margir,
sem njóta góðs af útkomu blað-
anna, til þess að forsvaranlegt
sé, að þau hætti að koma út eða
dragi saman seg'lin. Áður en
varir, mun reka að því, að út-
gáfan ver'ði um megn þeim, sem
að henni stánda, og þá ber Is-
lendingum heima fyrir ótvíræð
skylda til þess að hlaupa undir
baggann. Blöðin eru elztu viku-
blöðin, sem gefin eru út á ís-
lenzkri tungu, og ber því sér-
stök viðurkenning af hálfu þjóð-
arinnar. Þau haíá aldrei verið
gefin út sem gróðafyrirtæki,
heldur af einskærri þjóðernistil-
finningu og' ættjarðarást. Þau
eru tryggðateikn þess hugar,
sem hvorki vill né getur gleymt
sonarskyldum sínum við fjar-
læga móður. Þessi blöð hafa
alltaf verið þjóðarheildinni til
gagns, því að þau hafa verið
einn hinn sterkasti tengiliður,
sem til er, milli íslendinga í
dreifingunni, og með þeirra
hjálp hafa landar vestra fylgzt
með málefnum íslands. Enn má
telja þeim það til gildis, að þau
hafa hvað eftir annað verið not-
uð til þess að afla fylgis ýms-
um málum, sem Vestur-íslend-
ingar hafa unnið að, beinlínis í
þágu íslands.
Þegar frumvarpið barst
menntamálanefnd efri deildar,
var það óðara sent stjórn Þjóð-
ræknisfélagsins hér til umsagn-
ar. 1 stjórnarnefndinni eru
þessir menn: Árni G. Eylands,
forstjóri, Ófeigur J. Ófeigsson
læknir og Valtýr Stefánsson rit-
stjóri. Þessir menn voru sam-
mála flutningsmanni um það,
að hér bæri skylda til að „rétta
hönd til stuðnings góðu máli“.
En þeir stungu upp á annarri
leið til framkvæmda, sem sé að
veita vestanblöðunum þá viður-
kenningu að veita 20 þús. krón-
ur á ári til stuðnings útgáfu
þeirra. Upphæðinni sé skipt
jafnt milli beggja blaðanna, en
nokkur eintök af þeim séu stöð-
ugt send Fræðslumálaskrifstof-
unni, en skrifstofan útbýti þeim
til skóla o. fl. stofnana. Er þar
skemmst af að segja, að þegar
menntamálanefnd fékk þessar
tillögu í hendur, samþykkti hún
Kana í einu hljóði, og þar á
meðal flutningsmaður frum-
varpsins, Jónas Jónsson. Tóku
þeir jpar höndum saman um gott
mál, Jónas Jónsson, Kristinn
Andrésson og Eiríkur Einars-
son, án nokkurs ágreinings.
Af því s,em hér hefir verið
sagt, má telja víst, að hugmvnd
Jónasar Jónssonar, að styðja
vestur-íslenzku blöðin verði
framkvæmd á þann hátt, sem
stjórn Þjóðræknisfélagsins
stakk upp á, og hann sjálfur
ásamt meðnefndarmönnum sín-
um í menntamálanefnd efri
deildar hefir nú samþykkt.
Fjárveitinganefndin hefir einn-
ig' tjáð sig meðmælta. Það þarf
því alls ekki að gera ráð fyrir
}dví. að alþingi sem heild leggist
á móti tillögunni. Verður hún
auðsjáanlega samþykkt án til-
lits til flokkaskipunar. Er fram-
gangur þessa máls stórkostlegt
gleðiefni öllum þeim, sem eitt-
hvert skyn bera á vestur-íslenzk
málefni. Mér er sem ég sjái lyft
ast brúnina á vinum okkar fyrir
vestan. Ekki fyrst og fremst
vegna peninganna, því að Vest-
ur-íslendingar hafa sýnt, að
þeir meta margt meir en pen-
inga, heldur vegna þess skiln-
ings og vinsemdar, er í þessu
birtist. Og ekki get ég gert að
því, að mér verður líka hugsað
til manna eins og Árna Eggerts-
sonar og síra Rögnvaldar Pét-
urssonar, sem eyddu miklu af
kröftum sínum til framgangs
því máli, sem hér er verið að
styðja. Er tiþbetri leið til þess
að heiðra minningu ágætra
manna en að styðja þær hug-
sjónir, er þeir fórnuðu sjálfum
sér fyrir?
Jakob Jónsson.
Starfsemi K.R.
Frh. af 2. sáðu.
manns sæki æfingar og mun
það hærri tala en hjá nokkru
öðru félagi ihér á landi.
K. R. er fjölmennasta íþrótta
félag ilandsins telur allls um 2000
fólagsmenn, og fjölgar þeim
daglega. Má því búast við að
tala virkra félagaj verði allmiklu
'hærri iþetta ár en í fyrra.
Undanfaið hefir húsnæðis-
skorturinn neytt félagið til að
hætta kennslu í sumum grein-
um. Nú í vetur hefir verið byrj-
að aftur að kenna fimileika kvén
fólks, kennari er Vignir Andrés-
son I ihaust var ráðist í að end-
urreisa kennslu í íslenzkri
glíanu í K. R. Ágúst Kristjáns-
son kennir glímuna og mega
þeir ikallast heppnir, er njóta
kennslu hans, því bæði er bann
áhugasamur og vel að sér um
íþrótt sína. Hafa æfingar verið
vel sóttar og eru í fiokknum
ýmsir, sem líklegir iþykja til af-
reka á iþessu sviði.
Hanknattleikur er æfður bæðd
hjá körlum og konum. Benedikt
Jafcobsson sér um æfingu ihinna
sigursælu ífrjáls-íþróftamanna
K. R. og er ekki að því að spyrja
hvernip þær em sóttar.
Sund og sundkanttleiikur er
ei!nnig æfður og kennir það
hvortveggja Jón Inigi Guð-
mundsson.
Rangæingafélagið
heldur árshátíð sína í Oddfell-
owhúsinu annað kvöld og hefst
hún með borðhaldi kl. 7'/2.
Skiptaf undur
/ í þrotabúi Guðmundar H. Þórðarsonar, stór-
kaupmanns, Grundarstíg 11, verður haldinn
í bæjarþingstofunni í Reykjavík föstudaginn
12. febrúar 1944, kl. 10 f. h. Verður þar gerð
grein fyrir eígnum þeim, sem fram hafa kom-
ið við upþskrift í búinu og teknar ákvarðanir
um meðferð þeirra. Þá verður tekin afstaða
til handveða þeirra, er gjaldþroti hefur sett
einstökum kröfuhöfum og ákvarðanir teknar
um [ýms fyrirtækú er gjalþþroti hefur rekið
með öðrum eða ráðstafað til annara fyrir
gjaldþrot.
Skiptaráðandinn i Reykjavík 9, tebrúar 1934,
Krisfján Kristjánsson.
settur.