Alþýðublaðið - 04.03.1943, Page 6
6
ALÞYÐUBLAPIÐ
Ftmmtudagar 4. marz 1943.
Sjóiiði ogjdansmær.
s
k
k
Rita Hayworth, sem er kunn leikkona og dansmær, sést hér á
myndinni vera að kenna sjóliða nýjan dans á „Stage Door Can-
teen“ í New York, sein er helzti skemmtistaður amerikskra lier-
manna þar í horginni.
HANNES Á HORNINU
Frh. af 5. síðu.
kaupa þessar vörur, sem eru taæði
ljúffengar og auðugar af fjörefn-
um. Ný lifur gengur næst lýsi að
þessu leyti, og svo er sagt, að
hrogn séu svo auðug af C-vitamin-
um að þau standi ekfci að baki
sítrónum".
„NÚ ERU ÖLL . líkindi til þess,
að fjöldi bæjarbúa lifi við alvar-
legan skort á fjörefnum. Mjólkin
hefir lengst af haldið lífinu í fólk-
inu, en nú mun hún víða af skorn-
um skammti í dýrtíðinni og auk
þess léleg og langt sótt. Og ekki
bætir smjörið verulega úr þessum
vandræðum. Það er sparað og mis-
jafnlega gott, og svo er sagt, að
vetrarsmjörið sé fjörefnasnautt".
„ÚR ÖLLU ÞESSU mætti bæta
til mikilla muna, ef nóg væri á
bóðstólnum af lifur og hrognum
fyrir skaplegt verð. Lýsi getur
ekki komið í stað lifrarinnar. Eng-
in húsmóðir getur borið það á borð
fyrir heimilisfólkið, því að fáir
mundu við því líta ótilneyddir, þótt
börnin séu látin taka það inn. Auk
þess hlýtur lifrin óbrædd að vera
ódýrari en lýsið. Mér er spurn: Því
er verið að svifta bæjarbúa þess-
um hollu og algengu matvælum,
og iþað á dýrtíðartímum, þegar
fjörefnaskortur vofir yfir öllum al-
menningi?“
EG TALAÐI VIÐ frægan fisk-
sala í gær og spurði um þetta
hrogna og lifrarleysi. Hann sagði
meðal annars: Hregn háfa fengist
við og við. Við höfum aðeins tvisv-
ar sinnum fengið lifur. En það er
bókstaflega ekki. hægt að flytja
hana hingað af Suðurnesjum. Hún
eyðilegst á leiðinni, kremst öll
sundur og er ekki boðleg. Vegirnir
eru svo vondir og bifreiðarnar
skekjast allar og hossast. Héðan
úr Reykjavík róa engir bátar. Ef
þeir gerðu það þá mundum við fá
lifur handa fólkinu.
' Hannes á hornind.
Ávarp til Breiðflrð-
inga.
SAMBANDSFUNDUR breið
firzkra kvenna, er hald-
inn var í Stykkishólmi s. 1. vor,
ákvað meðal annars að sett yrði
á stofn við Húsmæðraskólann
að Staðarfelli myndasafn, til
minningar um látnar breiðfirzk
ar konur.
Myndunum, sem helzt séu í
kvartarkarstærð, skal fylgja
stutt en greinilegt æviágrip
þeirra kvenna, sem þær eru af
og hæfileg greiðsla til innrömm
unar. Það skal tekið fram, að
ekki verður farið í manngrein-
arálit með val mynda í safn
þetta, þar eð margar konur, sem
hljótt hefir verið um, eiga einn-
ig sína sögu, hvorki ómerka né
þýðingarlitla fyrir þjóðfélagið.
Breiðfirðingar! Nú gefst yður
kostur á að geyma framtíðinni
minningar um mæður yðar,
ömmur og aðrar látnar breið-
firzkar konur, sem yður eru
kærar. Vil ég, sem þessar línur
rita, skora á yður að bregðast
vel við þessu máli og með full-
um.skilningi, þar eð yður gefst
ekki einungis tækifæri til þess
að sýna virðingarvott látnum
vinum, heldur og gjörið þér
sagnfræði, mannfræði og ætt-
fræði seinni tíma stóran greiða
með því að styðja þetta mál-
efni.
Myndunum veita móttöku:
Frú Kristín Jónsdóttir, Sandi,
frá Sesselja Konráðsdóttir,
Stykkishólmi, frú Jófríður
Kristjánsdóttir Furúbrekku
Staðarsveit, frú Steinunn
Hjálmarsdóttir Reykhólum og
undirrituð.
i Ingibjörg Jóhannsdóttir,
i ■
Staðarfelli.
Vaxaidi áfaugi onga fólks-
ins á skíAaípróttinni.
Mifcil pátftaka í skíðamóti Reykja
víkur um síðustú helgi.
SKÍÐAMÓT REYKJAVÍK-
UR, sem fram fór í Skáia-
felli á laugardag og sunnudag.
er stærsta Reykjavíkurmótið,
sem fram hefir farið.
Mótið átti að hefjast fyrra
sunnudag. en varð þá að fresta
því vegna óhagstæðs veðurs.
Á laugardaginn kl. 4,30 hófst
mótið með keppni í göngu. Veð-
ur var þá all hvasst á útsunnan
með bleytu hryðjum. Göngu-
garparnir smurðu skíðin með
blautsnjóklístri.. Brautirnar
voru tvær. 8. km. fyrir yngri en
19 ára, en 12 km. fyrir eldri en
19 ára. Yegna stormsins urðu
þær að vera styttri, en annars
hefði orðið. Þátttakendur voru
alls 17. Tólf í eldri flokknum,
en fimm í hinum yngri.
Urslit í þessum flokkum
urðu:
1. Georg Lúðvíksson, KR 1
klst. 13 m. 06 sek. 2. Björn
Blöndal, KR 1 klst. 14 m. 52
sek. 3. Hörður Björnsson, ÍR 1
klst. 17 m. 56 sek.
Og í yngri flokkum (12—19
ára);
1. Haraldur Björnsson, KR,
44 m. 16 sek. 2. Jóhann Eyfells,
ÍR, 45 m. 16 sek. 3. Hörður Haf-
liðason, Á, 46 m. 16 sek.
Hér var einnig keppt um bik-
arinn „Bláiborðinn“, og vann
sveit K.R. hann í annað sinn. I
sveitinni voru Georg Lúðvíks-
son, Björn Blöndal, Hjörtur
Jónsson og Björn Röed.
Á sunnudagsmorgun, þegar
skíðafólkið vaknaði var komið
allgott veður.
Brunið hófst frá tindi Skála-
fells kl. um 12 á hádegi. Hæð
Skálafells er 771 m. Brun braut-
in lá suðaustur af Skálafelli eða
rétt fram hjá K.R.-skálanum og
niður á sléttuna. Hæðarmis-
munur um 390 m., lengd um 2
km. Skíðafærið var harðfenni
og nýfallinn foksnjór á víxl,
rennsli mjög gott.
Á, B og C-flokkar fóru allir
sömu braut. C-flokkur fyrst þá
B og seinast A-flokkur. Alls
voru keppendur 63, 47 í C-
flokki, 12 í B og 4 í A-flokk.
Veðrið versnaði allmikið á með
an B og A-flokkar fóru, fengu
því A og B menn yfirleitt verri
tíma en C-menn.
Urslit urðu þessi:
A-flokkur (4 keppendur): 1.
Gísli Ólafsson, Iþrf. Hásk., 2 m.
11,4 sek. 2. Magnús Árnason,
ÍH, 2 m. 31,8 sek. Björn
Blöndal, KR, 2 m. 42,8 sek.
B-flokkur (10 keppendur): 1.
Haraldur Árnason, ÍR, 1 m.
58,8 sek. 2. Haukur Hvannberg,
ÍH, 2 m. 13,6 sek. 3. Björn Þor-
björnsson, ÍR, 2 m. 45,0 sek.
C-flolckur (38 keppendur): 1.
Björn Röed, KR, 1 m. 43,8 sek.
2. Sigurjón Sveinsson, ÍH, 1 m.
49,9 sek. 3. Skarphéðinn Jó-
hannsson, Á, 1 m. 53,0 sek.
Meðalhraði fljótasta manns x
bruninu (Björn Röed, KR) var
um 70 km. á klst.
Svigið hófst kl. 2 e. h. með
keppni í A-flokki. Svigbraut-
irnar voru allar skammt vestur
af skálanum, þar sem fellið er
brattast. Svigbraut A-flokks
var um 550 m. löng, hæðarmis-
munurinn um 150 m. Brautin
var ein hin mesta sem hér hefir
sést.
Urslit urðu þessi: (samanlagð
ur tími í báðum ferðum.)
A-flokkur (4 keppendur):
Björn Blöndal, KR 108,6 sek.
Magnús Árnason, lH 109,0 sek.
Georg Lúðvíkss., KR 118,8 sek.
B-flokkur notaði A-brautina
lítið stytta eða um 500 m. á
lengd.
Urslit urðu þessi:
Jóhann Eyfells, IR 98,9 sek.
Jón Jónsson, KR, 99,6 sek.
Einar Guðjohnsen, ÍH 101,5 sek.
C-flokkur fékk alveg nýja
braut um '450 m. langa, hæðar-
mismunurinn 90 m.
Úrslit urðu þessi:
Karl Sveinsson, Á, 94,8 sek.
Kári Guðjónsson, KR 97,8 sek.
Haraldur Björnsson, KR 97,8 s.
Svigkeppni kvenna fór fram
samtímis keppni C-flokks og
skammt frá.
Úrslit urðu þessi:
Maja Örvar, K,R 34, 6 sek. Ásta
Benjamínsson, Á 43,7 sek. Ragn
heiður Ólafsdóttir, KR 45,9 sek.
Reykjavíkurmeistarar urðu
því þessir:
Skíðaganga:
Georg Lúðvíksson, KR.
Brun:
Gísli Ólafsson, íþr.fél. Hásk.
Svig kvenna:
Maja Örvar, KR.
Svig Karla:
Björn Blöndal, KR.
Veður var ágætt á meðan
svigkeppnin fór fram, náðist
því yfirleitt ágætur árangur í
sviginu.
Á mánudagskvöld var svo
skemmtifundur hjá Skíðadeild
K.R. Þar voru afhent verðlaun
frá Reykjavíkurmótinu og inn-
anfélags mótinu.
Sandgræðslan
i Selvoginum.
Frh. af 4. síðu.
til þess að gera honum bölvun,
að tilefnislausu og ásettu ráði.
í 45. tbl. ísafaldar f. á. segir
hann: „Voru það vinir Gunn-
laugs og samsærisfélagar, sem
þar áttu hlut að máli“ o. s. frv.
Þetta er óvanalegt þó að rnenn
greini á um mál, og það ekki
alvarlegra atriði, en gróðurinn
í Strandargirðingunni. Ég á
enga samsærisfélaga, þó að
nokkrir góðir menn fylgi mér
að málum.
G. J. sér ekki annað en illt i
fari minu, vegna þess. að ég
held fast við velferðarmál sand-
græðslunnar, og talar um deyð-
andi hönd Gunnlaugs o .s. frv.
af því að vegna sandgræðsl-
unnar keppir að fé hans. Hann
vill eklíi kannast við, að Nes,
bújörð hans, sé i hættu af sand-
foki, þó að sumar hjáMgur
jarðarinnar séu komnar í auðn
af sandfoki, og uppblástur
brjóti túnið. Bærinn Nes er í
svo mikilli hættu af sandfoki,
að þar er ekki gerlegt að byggja
dýrt og vandað íbúðarhús eins
og sakir standa. Á slíkum stað
mundi varla fást t. d. lán, eða
styrkur úr nýbýlastjóði né öðr-
um hliðstæðum stofnunum,
veg'na sandfokshættunnar, ef
fylgt væri lagaákvæðum, því er
það fyrsta skilyrðið fyrir þvi,
Bátsferð
verður til Breiðafjarðar. —
Vörumóttaka í dag til Flat-
eyjar og Stykkishólms og á
föstudag til Sands og Ólafs-
víkur, meðan pláss leyfir.
JU
SMIPAUTC EHÐi
RIMISINS
SSéínrMttir ðskast
Mótorbátur, 15—20 tonna,
óskast leigður til að vera í
ferðum um sunnauverðan
Breiðafjörð 3—4 mánuði,
meðan verið er að gera við
flóabátinn m/b. Baldur.
Tilboðum sé skilað i skrif-
stofu Skipaútgerðar ríkisins
fyrir hádegi n. k. laugardag.
að synir hans allir geti búið þar
í framtiðinni, að sandfokið sé
stöðvað og landið grætt, og
með þvi fáist trygging fyrir að
þar sé óhætt að reisa framtíðar
byggingar, og vinna að ræktun
óg öðrum umbótum. Abraham
bjó i tjaldi, sem hann gat flutt
með sér. Nesbóndinn verður að
haga sér eins oð aðrir, sem búið
hafa á þeim jörðum, sem, sand-
fokið hefir lagt í eyði. Þeir hafa
búið í bæjum, sem þeir hafa
getað rifið og flutt með sér.
Annars stæðu húsin þeirra auð
og yfirgefin hér á auðnum
landsins, líkt og turninn af
fornri steinkirkju á Jótlands-
skaganum, sem var minnis-
merki á sandauðnimn þar, sem
nú er búið að græða. Hvað, sem
öðru líður, þá verður að stöðva
sandfokið i Solvogi.
Ég vil ekki skilja svo við
þetta mál, að ég ekki minnist
á það, sem ég met mest við G. J.
en það er það, að hann hefir
ekkert níðst á sandgræðslu-
svæðinu, sem girt var af Nes-
landi, þ. e. engan hlut átt í þvi
að fé færi i girðinguna, enda
hefir landið verið sæmilega
friðað.
Nú ætti G. J. að hætta að berj
ast við að ná landinu undan
sandgræðslunni — en beita sér
af jafn miklum áhuga fyrir
að vegur verði lagður, sem
fyrst i Selvogi, það er nauð-
synjamál og hagsmunamál,
bæði fyrir hann og hreppsfé-
lagið, og til þess fengi hann
liðsinni margra mætra manna.
Gunnl. Kristmundsson.
DðmHtðsknr! i
' ' s
( Margar tegandir. s
( Yerð frá 32,oo kr. s
Grettisgötu 57.
kaopa