Alþýðublaðið - 04.03.1943, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 04.03.1943, Blaðsíða 8
ALÞYÐUBLAÐIÐ Fimmtudagur 4» marz 1943. TIARNARBIÖH Æringl. (Frökin Vildkatt) Sænsk söngva- og gamanmynd. Marguerite Viby Ake Söderblom AUKAMYND: Frá orrustunni um Stalin- grad (rússnesk mynd) Sýning kl. 5, 7 og 9, KONA jorstjórans kom í heimsókn í skrifstofuna til manns síns og leit heldur óhýru tmga til vélritunarstúlkunnar, ungrar og ískyggilega laglegrar stúlku. „Og þú sagðir, að vélritunar- stúlkan þín væri eldri kona,“ sagði hún ásakandi við mann sinn. Forstjóranum varð orðfall um stund, en kom svo með skýringuna: „Já, hún var lasin í morgun, gamla hróið, og sendi dóttur- dóttur sína í staðinn sinn.“ * FORSJALL DRENGUR. ¥ ÍTILL strákur var að leika sér að því að velta gjörð á götunni. Allt í einu hentist gjörðin með miklum krafti inn í garð nokkurn og mölbraut stór an eldhúsglugga á neðstu hæð. Húsfreyjan kom út, heldur en ekki gustmikil til þess að svip- ast um eftir þeim, sem velti gjörðinni. Hann kom óðara á vettvang. „Fyrirgefðu, að ég skyldi brjóta gluggann hjá þér“, sagði hann, „hann pabbi kemur rétt strax til að gera við hann“. Og þama kom maður á eftir drengnum, ekki bar á öðru. Mað urinn fór strax að gera við gluggann, en strákur hljóp þurtu með gjörðina sína. Þegar viðgerðinni var lokið, sagði maðurinn: „Þetta kostar tólf krónur, frú mín góð“. „Tólf krónur!“ hrópaði kon- an. „En það var sonur yðar, sem braut gluggann. Drengurinn með gjörðina. Þér eruð faðir hans, er það ekki?“ Maðurinn hristi höfuðið. „Eg hefi aldrei séð þennan strák áður, sem betur fcr“, svaraði hann. „Hann kom hlaup andi í smiðjuna til mín og sagði mér, að móðir hans þyrfti að fá gert við glugga. Þér eruð móðir hans, er ekki svo?“ Konan gat ekki cinu sinni hrist höfuðið og hún átti ekki orð til í eigu sinni, eins og kerl- ingarnar segja. auða húsi, Hendrik dauður og Sannie farin, en húsið var eins og það hafði áður verið, jafn- vel héngu fötin þar enn til þerr- is á sama stað og þau höfðu ver- ið látin. Þarna voru rúmin, sem þau höfðu sofið í, þarna héklc köngullóarvefurinn niður úr rjáfrinu. Þarna lágu tóbakslauf og hálf sauðargæra, sem farið var að slá 'í fyrir löngu. Hún gekk að glugganum, tók slámar frá, lét þær detta á gólf ið og opnaði hlerana. Bækurnar, sem hún var að leita að, lágu á syllu í einu horn- inu. Anna de Jong skimaði snöggv ast um herbergið en gekk því næst út, fegin því að þurfa ekki að dveljast lengur í herbergi, sem geymdi svo margar dapur- legar minningar. Hún hugsaði um þær máltíðir, sem hún hafði neytt hér, meðan Sannie sat þögul, en Hendrik lét dæluna ganga, gumaði og gambraði, en kynblendingsþerna stóð hjá og veifaði vendi úr taglhári villi- dýrs, til þess að fæla flugurn- ar frá matnum, sem verið var að borða. Með sálmabókina og helgi- siðabækurnar undir hendinni fór hún út í sólskinið og laut niður, til þess að berja burtu flugurnar, sem skriðu upp eftir fótleggjum hennar. Hún vissi, að biblían myndi liggja úti í vagninum, sem stóð í fáeinna faðma fjarlægð frá húsinu. Allt í einu fór um hana ónota hrollur og hún óskaði þess, að hún væri komin heim. Það leyndist einhver ógn í þessu húsi hér undir hlíðinni. Það var eins og jafnvel stein- arnir vissu, hvað hér hafði gerzt og væru að reyna að tala. Þeg- ar hún ætlaði að hraða sér til baka aftur, festi hún fótinn í keðju, sem lá hálf-hulin í gras- inu, sneri undir sér fótinn og féll við. — Dæmalaust erkiflón get ég verið, hugsaði hún meðan hún var að brölta upp á hnén — að ég skyldi ekki muna eftir fest- inni, sem ljónið var bundið með. — Þú ert meidd, húsmóðir, sagði Jakalaas og hljóp til hennar. — Já, ég er meidd, ég get ekki gengið, sagði hún og þreif- aði um fótlegginn. — Hvað á ég að gera? spurði Kaffinn. — Fyrst áttu að ná í stóru biblíuna, sem er í vagni Hend- riks húsbónda þíns. Svo sæk- irðu vatn í brunninn, og meðan ég bý um meiðslið, ferð þú og nærð í hjálp. Farðu til Martin- us bónda og sæktu svo marga Kaffa, að þið getið lyft mér upp í vagninn. Og hlustaðu nú á mig, skelmirinn þinn. Þetta er allt að kenna ótætis ljóninu. Hefði ekkert ljón verið hér, hefði ég ekki dottið. Eg vildi óska, að ég hefði látið Hendrik bónda kreista úr þér líftóruna. Þannig er það alltaf, að geri maður gott, upp sker maður illt. Farðu, heimskingi, sæktu bókina og vatnið og því næst hjálp. Það þarf fjóra sterka menn til þess að bera mig, og ég vil komast heim áður en dimmir. XXVII. KAFLI. 1. Óhapp Önnu frænku hamlaði því ekki, að hún færi til Le- mansdorp, því að, eins og hún sagði, þá gat hún legið á sjúkra- beði í vagni sínum og látið fara þægilega um sig eins og hún væri heima hjá sér. Auk þess var hún sannfærð um, að Kaff- arnir kæmu um leið og þau væru lögð af stað, og þá var bezt að vera ekki á hættusvæð- inu. Auk þess átti hún, ein af hinum allra fyrstu nýbyggjum- ekki að láta svona lítið óhapp á sig fá. Hún lagði því af stað á- samt hinum með Louisu sem þernu og Kaffa sem þjóna. Vagn hennar var næstur á eft- ir vagni mágs hennar og leið- angurinn stefndi í vesturátt til Lemansdorp. Söngur var og hljóðfærasláttur, menn hlökk- uðu til að sjá gamla kunningja og félaga, eignast nýja kunn- ingja og sjá börn sín skírð. Ungir og kátir menn létu hesta sína dansa kringum vagnana, sem eldra fólkið var í, hleyptu skotum úr byssum sínum í kveðjuskyni, ef þeir sáu kunn- ingja eða kunningjakonur, sem voru að rabba um það sín á milli, í hverju þær ættu að vera, þegar hátíðin hæfist. Þannig var haldið áfram eft- ir hinum óslétta fjallavegi. Vagnarnir hristust mjög, því að nú var enginn farangur í þeim, aðeins farþegar, og þeir voru miklu léttari en í leiðangrinum langa. Á kvöldin, eftir að sezt var að, stóðu menn syngjandi við eldinn og léku undir á hin fátæklegu hljóðfæri sín. Marg- ir hópuðust umhverfis þá, sem á hljóðfærin léku. Þetta var helgidagur og hér voru hátíða- höld. 2. Anna frænka hafði haft á réttu að standa um mannfjöld- ann, sem flykkjast myndi að Lemansdorp. Þegar nýbyggjarnir frá Kanaanslandi komu, voru þeg- ar komnir tvö hundruð vagn- ar og stöðugt bættust fleiri og fleiri við. Það þaut í svipuín og skot- BH NÝJA BIO BS * ■ GAMLA BlÖ ■ fitvarp inerika! Algier (The Great American Broadcast) . \i~ „ .•nr-.x'-y Ckarles Boyer Hedy Lamarr Sigrid Gurie Skemmtileg „musik“-mynd ALICE FAYE Börn iinnan 14 ára fá ekki aðgang. Sýnd kl. 5, 7 og 9. * JACK OAKIE JOHN PAYNE Sýnd kl. 5, 7 og t. Framhaldssýning 3—6,30. Landbrabbar á sjó. með GÖG og GOKKE hvellir glumdu við. Uxarnir öskruðu og flugust á af mik- illi grimmd og harðneskju, týnd ust og fundust aftur og ilmur- inn frá mörg hundruð eldstæð- um fyllti loftið þægilegri ang- an . Þarna voru margir sem Anna frænka þekkti og margir sem hún þekkti ekki. Líka voru þeir margir, sem Anna hafði áður þekkt, en komu ekki, og þegar hún spurðist fyrir um þessa fornkunningja voru þeir dánir. Þarna voru líka margir, sem ekki játuðu mótmælaendatrú, en komu þó, til þess að sýna sig og sjá aðra, segja fréttir og fá fréttir. Þetta fólk var auðþekkj anjegt, því að það hélt hinum gömlu siðum, ekki einungis hvað trúarbrögðum viðvék, heldur og í klæðíaburði. Það hélt ekki að sér fötunum með skrautlegu belti, heldur bönd- um, sem brugðið var yfir axl- irnar. Einn gestanna, Andries Bey- ers að nafni, féll Önnu frænku svo vel í geð, að hún horfði a eftir honum í hvert skipti, sem hann gekk fram hjá. Þetta var ungur maður í stuttri treyju úr bláu lérefti með rauðum rönd- um, í eltisskinnsbuxum, sem náðu ekki nema á miðja kálfa. Mp§_g)-o' <XCUl, wrwun&ioÞí TðFRAMAÐDimN I SKéLANUM. þakbrún. Það var fjörutíu feta hæð niður húsagarðinn fyr- ir neðan. Kolbeinn kveikti á vasaljósi sínu og beindi geislanuna á lága handriðið, sem var umhverfis allt þakið. Hann rak £ rogastanz. Greinileg handaför sáust á meyrum múmum, og vefjahöttur Ras Sings blakti þar í golunni. „Hann hefir klifrað yfir og komizt niður, tautaði Kol- beinn „Hann lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna, pilt- urinn! Það er svo sem auðséð á honum, að hann er köttur liðugur, og —“ Kolbeinn rýndi niður náttmyrkrið. Hann grillti aðeins húsagarðinn niðri undir. Hann gat ekki betur séð en lítill maður hlypi yfir garðinn. „Þama fer paufi! Ég geri ekki ráð fyrir að ég eigi eftir að hafa meira af honum.“ Kolbeinn rendi sér niður vatnspípu, sem lá niður úr þakrennunni og komst heilu og höldnu til jarðar.. Grunur hans reyndist réttur. Hann sá ekkert til piltsins. Hann fór að skoða svæðið næst múmum og reyna að finna för drengsins. En þá vissi hann ekki fyrr til en Slick stóð hjá honum. Kolbeinn sagði honum í stuttu máli, hvað fram hefði farið um kvöldið. „Það þarf ekki lengur vitnanna við, Kolbeinn!“ sagði Slick óðamála. „Það er Ras Sing, sem er höfuðpaurinn £ þessu öllu saman .Hann hefur orðið skelkaður, því að hanm hefur fengið pata af því, að þú færir á hælunum á honum, og þess vegna hefir hann smokrað sér út um þakgluggann. Hann hefir einhvem veginn^komið stolnu bikurunum upp um gluggann.“ „Ég er ekki trúaður á það, Slick,“ sagði hann. „Enda er SAGA. SCOCCWY’S PLANIE 6H0T ?OWN... AND THE JAPANESE áTJLL HOLD THE FIELÖ WITH TMEIC? FOCT.' NOW VVE’VE YOU LITTLE FOOL/ ETOP/YOU’LL BE —-3 KILLED/ I ' WE NEED NO PLANE; * X'LL SHOW THEM HOW A 6UERRILLA ACT<=>! ONCE BELOW THE FORT THESE CRENADES WILL DO THE TRICK/ THE carbon-dioxide SMOTHECED THE FICEIN NO. 2 ENGINE/ PUT ABOUT... WE’RE C0IN6 BACK TO THAT FORT/ X’VE 60TA DATE WITH 1 A CERTAIN 6UNNEP?/ T“Z. LOST EVECVrHING AND HILDUR: flugvél Arnar skotin niður og Japanarnir hafa enn vígið á valdi sínu. Allt er tapað .... og Öm! HILDUR: Heyrðu, litli kján- inn þinn: Hættu við þetta! Því það verður ekki til annars en að þú verður drepinn! NAMI (hugsar): Við þurfum engar flugvélar! — Þessi sprengja getur séð fyrir Jap- önunum í víginu. ÖRN: Eldurinn hefir slokknað í hreyflinum. Við förum aft- ur og ráðumst á vígið! Eg trúi ekki öðru, en að þeir þagni!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.