Alþýðublaðið - 19.03.1943, Side 4

Alþýðublaðið - 19.03.1943, Side 4
ALÞÝÐUBLAÐID Pbstudagur 19. marz 1943. 4 - * (ttþigðnblaMð Útgefandí: Alþýðuflokknrinn. Bltstjóri: Stefán Pétursson. Eitstjóm og afgreiðsla í Al- þýSuhúsinu við Hverfisgötu. Simar ritstjórnar: 4901 og 4902. Símar afgreiðslu: 4900 og 4906. VerS í lausasölu 40 aura. Alþýðuprentsmiðjau h.f. Henniioarstarfsemi nira jafoaðar- manna. DAGBLÖÐIN hér í Reykja- vík hafa undanfarna daga rætt nokkuð um afstöðu okkar Islendinga til erlendra manna, sem nú gista í landinu ásamt okkur, sem eigum landið. Ýmsar skoðanir hafa komið fram í því sambandi. Sumir virðast gleyma því, að við erum aðeins lítil þjóð, — ein hin minnsta og fámennasta þjóð í heimi, og halda að við. getum þess vegna sleppt öllu taum- haldi á því, sem heitir þjóðerni og íslenzkur menningararfur. Hins vegar eru sem betur fer uppi raddir, sem,hvetja til þess, sem rétt er og skynsamlegt í þessum málum. Kyndill, blað ungra jafnaðar- manna, er eitt þeirra blaða, sem kvatt hefir sér hljóðs í því skyni að bjarga reykvíkskum og íslenzkum æskulýð frá þeim hættum, sem nú vofa yfir. Þar hefir verið bent á það bjargráð meðal annars, að reist verði störhýsi hér í höfuðstaðnum, er veiti húsaskjól þjóðlegri og þroskandi starfsemi með æsku- lýð bæjarins. Nauðsyn þessá máls er aug- ljósari en svo, að um þurfi að tala fremur en gert hefir verið hér í blaðinu og í Kyndli. Öll slík viðleitni er virðingarverð, hvaðan sem hún kemur. Það er augljóst, að æskulýður Reykjavíkur, sá, sem eitthvað hugsar um framtíð sína og ís- lenzku þjóðarinnar, gerir sér ljóst, hve hættulegt ástand rík- ir nú í landinu. Samband ungra jafnaðarmanna, Ungmennafélag Reykjavíkur og ýmis stjórn- málafélög ungra manna hafa gert byggingu æskulýðshallar í Reykjavík eitt af baráttumál- um sínum. Það er gleðilegt, að á þessum tímum vanda og upplausnar skuli æskulýðsstarfsemi ungra jafnaðarmanna aukast og dafna svo sem raun er á orðin. Fyrir nokkrum mánuðum hófu þeir að nýju útgáfu blaðs síns Kyndils, sem berst fyrir fram- faramálum alþýðuæskunnar. Og fyrir nokkrum dögum kom „Kyndiir' út í nýrri og stækk- aðri útgáfu, og bendir það til þess, að íslenzkum æskulýð hafi fallið vel þær þjóðfélagsskoðan- ir, sem blað ungu jafnaðarmann anna boðar. íslenzkur æskulýð- ur virðist ætla að standast þá raun, sem margir óttast að muni stofna íslenzku þjóðerni í hættu. í stað þess að láta blekkj ast af stríðsáróðri stórþjóðanna, eins og þeim, sem Morgunblaðið birti s.l. sunnudag, hefur íslenzk alþýðuæska nýja sókn fyrir því að tryggja framtíð íslenzks þjóðfrelsis og sjálfstæðs hugs- unarháttar. Tillaga um byggingu æsku- lýðshallar í Reykjavík hefir þegar komið fram á alþingi. Þess er að vænta, að allir flokk- ar sjái sóma sinn í því að Ijá slíku menningarmáli fylgi sitt. *■** ðnnur grein Arngrims Kristjánssonar: Folkið og lanðið. IFYRSTU GREIN minni um þetta efni hafði fallið niður úr einni málsgrein, og auk þess var ruglað línum, svo efni hennar var lítt skiljanlegt. Óbrengluð er málsgreinin þannig: .... Engum kemur þó til hugar að halda því fram, að þessi formsamþykkt hafi megn- að, að hugsjón sú, er liggur til grundvallar fyrir kröfunni um 8 stunda vinnudag til handa verkamönnum sé í framkvæmd í þessu landi, eða með henni hafi verið fullnægt hinni rétt- látu kröfu verkamannsins, kröf- unni um nægan lífeyri fyrir 8 st. vinnu, um heilbrigð og fjöl- þætt skilyrði, svo honum sé auðið að lifa menningarlífi þann tíma sólarhringsins, er hann með þessum breyttu lífs- Káttum þarf ekki að verja til vinnu og hvíldar. III. Þá liggur næst fyrir að yfir- vega hverjir möguleikar eru fyrir hendi, að óbreyttum að- stæðum, til þess að fólk fái not- ið þess, er ég kalla notalegrar og hagfelldrar fyrirgreiðslu, er það tekst á hendur hópferð til einhvers fyrirhugaðs ákvörðun- arstaðar til lengri eða skemmri dvalar, sér til hressingar, hvíld- ar, fróðleiks eða skemmtunar. í þessu sambandi er bæði ljúft og skylt að geta fyrst hins já- kvæða í þessu efni, sem fyrir hendi ef, og á ég þá sérstaklega við stofnun og störf Ferðafélags íslands. Ferðafélag íslands er stofnað 27. nóv. 1927. „Tilgangur fé- lagsins er að stuðla að ferðalög- um á íslandi og greiða fyrir þeim“, eins og segir í 2. grein félagslaganna. Tilgangi sínum hugðist félagið að ná með því: „Að vekja áhuga lahdsmanna á ferðalögum um laridið, sérstak- lega þá hluta, sem lítt eru kunn- ir almenningi, en eru fagrir og sérkennilegir, til þess gefur það út ferðalýsingar um ýmsa staði, gerir uppdrætti og leiðarvísa.“ Þá setti félagið sér í upphafi það markmið að byggja sælu- hús í óbyggðum, og að f jallvegir yrðu ruddir og varðaðir. Enn segir um markmiðið: „Félagið gerir eftir föngum ráðstafanir til þess, að meðlimir þess geti ferðast ódýrt um landið.“ Ilvernig hefir nú til tekizt um framkvæmdir í þessu efni? Mér dylst það ekki, að í ýmsum at- riðum mega forgöngumenn Ferðafélagsins vel við una. Stofnendur og þeir, er með stjórn félagsins hafa farið á hverjum tíma, hafa unnið vel og markvisst samkvæmt upp- runalegum tilgangi félagsins og ætlun, enda hafa þeir rækt störf sín af dugnaði og ósérplægni. Landkynning eða fræðslustarf- semi þess hefir jafnan tekizt með ágætum, enda eru Árbæk- ur félagsins með vinsælustu og merkustu bókum, er út koma árlega. Að byggingu sæluhúsa í ó- byggðum hefir verið unnið af miklum dugnaði, enda hefir þegar áunnizt stórvirki, miðað við hinn stutta starfstíma. Á hverju ári hefir félagið gengizt fyrir mörgum lengri og skemmri hópferðum, og hafa þær jafnan verið vinsælar og frekar ódýrar, er tekið er tillit til allra aðstæðna. Annars var það, eins og áður er hér drepið á, eitt af aðal- markmiðum forgöngumann- anna, að félagið gæti efnt til ódýrra ferðalaga meðal félaga sinna. Hér er þó jafnan við ramman reip að draga. Félagið hefir eðlilega hvorki bein eða óbein áhrif á gildandi verðlag í landinu á hverjum tíma, á far- gjöld eða greiða. Um þetta at- riði segir fyrsti forseti félags- ins, Jón Þorláksson, í grein, er hann lætur fýlgja frásögninni af stofnfundi (í Árbók félagsins 1928): „Félagið á fyrst og fremst að vera leiðbeinandi milliliður á milli ferðamanna annars vegar og atvinnurek- enda í þeirri grein hins vegar.“ IV. 'Ég hefi hér gerzt allfjölorður Tilkynning frá loftvansanefnd. Loftvarnaæfing verður haldin, að tilhlutun loftvarnanefndar og stjórnar setuliðsins, ein- hvern daginn frá 21.—27. marz, að báðum dögum meðtöldum, milli kl. 20 og 24. Allir einstaklingar og stofnanir, á svæðinu fyrir sunnun línu, sem dregin er frá vestri til austurs, miðja vegu milli Akraness og Borg- ness, og fyrir vestan línu, sem dregin er frá norðri til suðurs, skammt fyrir austan Vik í Mýrdal, eru beðnir að sýna fulla samvinnu, með því, að taka þátt í æfingunni. Menn eru varaðir við þvi, að loftvarnamerki, sem kunna að verða gefin 'á [hinu ofan- greinda tímabili, þurfa ekki nauðsynlega að gefa það til kynna, að æfing sé að hefjast. heldur gæti verið um að ræða raunverulega aðvörun um loftárás. Loftvamanefnd. um Ferðafélag íslands, en það er af þeim sökum, að störf þess eru svo að segja einu jákvæðu öflin í þessu landi, er greiða fyrir. því að almenningur fái notið landsins og fegurðar þess í hvíldar- og frístundum. En þótt starfsemi þessa félagsskap- ar sé allra góðra gjalda verð, eins og hér hefir verið bent á, megnar það þó ekki að leysa þau vandkvæði, er fyrir hendi eru, þegar um námsferðir, skólaferðir og orlofsferðir verkamanna er að ræða, og skal nú að nokkru vikið að hinum helztu hindrunum, sem í vegi eru. Orlofsferðir og skólaferðir nemenda þurfa fyrst og fremst að vera ódýrar. Hvort heldur sem um er að ræða fargjöld eða greiða, mætfr okkur sú staðreynd, að hvorttveggja er rándýrt. Þótt hér sé þannig komizt að orði, skal engum sér- stökum legið á hálsi í þessu efni. Þetta hvorttveggja er háð gildandi lögmálum um atvinnu- rekstur yfirleitt. Fargjöld og greiði eru því háð sjóharmiði atvinnurekandans um ágóða og er ekkert út af fyrir sig um það að segja. Tuttugu og tveggja manna bifreið kostaði 85—90 kr. á dag ^fyrir stríð. Nú kostar sami far- Anglýsingar, sem]birtast eiga í Alþýðublaðinu, verða að vera komnar til Auglýs- ingaskrifstofunnari Alþýðuhúsinu, (gengið inn frá Hverfisgötu) tyrlr kl. 7 ai kviliL Sfml 4906. arkostur 600—650 kr. á dag. Skólaferðir, svo góðar sem þær eru, verða því af þessum sökum einurn að teljast óframkvæman- legar. Greiði hefir hækkað til- svarandi, og er ekki hægt í því efni að gera upp á milli ein- stakra landshluta né bæja eða byggða. Það, sem hér þarf því að gera, er í stuttu máli að leysa náms- ferðir og orlofsferðir verka- manna undan okri þeirra manna er hafa það að atvinnu, að selja fargjöld og greiða. Eða með öðrum orðum, það þarf að gefa þessu fólki kost á að ferðast um landið, án þess að það sé háð þessum atvinnustéttum, og skal í næstu grein vikið að því hvernig það má verða. Tfo JÓÐÓLFUR birti á mánu- ** daginn ritstjórnargrein, sem nefnist „Umbætur eða bylting.“ Gerir hann þar að umtalsefni hinar háværu raddir um allan heim, sem nú krefjast „betri veraldar“ eftir stríðið, en þeirrar, sem við hingað til höfum átt við að búa. Þjóðólf- ur segir í því sambandi: „Varla verður opnað svo erlent blað eða tímarit, að ekki séu þar fleiri eða færri gfeinar um „betri veröld“ að styrjöldinni lokinni. Og það eru ekki einungis þeir, sem bera skarðan hlut frá borði í lífs- baráttunni, sem sjá umbótaþörfina. Þeir, sem setið hafa sólarmegin, haf líka öðlazt skilning á því, að það verður að jafna kjörin þjóða á milli til þess að koma á varanlegum heimsfriði, og einstaklinga á milli, ef innanlandsfriðiir á að verða trýggður. Líklega er ekki hægt að segja um marga menn í heiminum að þeir „uni glaðir við sitt“, hversu miklum auðæfum sem þeir eiga yf- ir að ráða. Enginn er öruggur. En þeir sem mest hafa að missa haía látið sér skiljst, að betri er hálfur skaði en allur. Hversu sárt sem þeim kann að falla að verða að sjá af óskertri þjóðfélagsaðstöðu fram yfir allan fjöldann, vilja þeir held- ur ganga inn á umbætur, sem að vísu krefjast fórna, en eiga það á hættu að bylting skelli á. Hér á landi hafa fleiri hitt á óskastund síðustu árin en nokkurs staðar ella. Enda er hér minna tal- að um „betri veröld“. En þjóðfé- lagsmeinsemdirnar leynast hér ekki síður en annars staðar, þó ekki sé jafn tilfinnanlegt meðan allt leikur í lyndi. En sá dagur getur runnið ,fyrr en varir, að þeir sem beztrar að- stöðunnar njóta verði að svara þeirri spurningu, hvort þeir vilji heldur fórna miklu fyrir almennar umbætur, eða eiga á hættu að missa allt í þjóðfélagsbyltingu. Byltingamennirnir horfa á það með meinfýsnu kuldaglotti, að bilið breikki milli þeirra, sem bezt eru settir og Hinna, sem harðast verða úti. Hér þarf að komast á varanleg- ur innanlandsfriður. En til þess að svo megi verða þarf að koma í veg fyrir yfirgang eiginhags- munaseggjanna til hægri og bylt- ingaseggjanna til vinstri. Umbóta- menn allra flokka eiga að bindast samtökum í þessu skyni.“ Engum er alls varnað, má segja í sambandi við Jiessi um- mæli Þjóðólfs. Líklegt hefði það ekki þótt, meðan Árni frá Múla var í ihaldsflokknum, að það ætti nokkru sinni fyrir honum að liggja, að koma auga á þá hættu, sem stafar af sam- spili , ,eiginhagsmunaseggj anna til hægri“ og seggjanna til vinstri“ og vara við henni. En það er alveg rétt hjá Árna: „Betri veröld“ verður ekki tryggð eftir stríðið, nema allir umbótamenn landsins leggist á eitt um að skapa hana og gera hæði ílialdsöflin til liægri og byltingartrúboðana, sem þykj- ast vera til vinstri, óskaðlega. * Tíminn gerði nýlega hinn vaxandi Rússlandsáróður kommúnista að umtalsefni, Þar segir meðal annars: „Sigrar Rússa í vetur hafa ýtt undir þann áróður kommúnista víða um heim, að Rússar berjist öðrum fremur fyrir útrýmingu fasismans og frelsi hinna smærri þjóða. Smáþjóðirmar eigi því helzt trausts og halds að vænta þar sem Rússar séu. Hjá þeim, sem lítið hugsa málin, kann þessi áróður að fá nokkum byr, þar sem hann fylgir í kjölfar rússnesku sigurfréttanna. Þess Frli. á 6. sáðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.