Alþýðublaðið - 19.03.1943, Side 6

Alþýðublaðið - 19.03.1943, Side 6
6 FLIK-FLAK ERBEZT Hið fljótvirka FLIK-FLAK sápulöður leys- ir og fjarlægir öll óhreinindi á stuttri stundu. Fínasta silki og óhreinustu verkaraanna- föt. — FLIK-FLAK þvær allt með sama góða áraftgri. Látid FLIK-FLAK pvo fyrir yður. HVAÐ SEGíJA HIN BLÖÐIN? ALÞÝÐUBLAÐIÐ Blekkingar Gaðmnndar Jðnsson- ’ ar í Nesi nm Frh. af 4. síðiu. vegna virðist rétt að rifja upp for- sögu þessara mála í aðaldráttum. ítússar sýndu það með innlimun baltisku landanna, sundurlimun Póllands og árásunum á Finnland og Rúmeníu, að þeir virtu frelsi og sjálfstæði smáþjóðanna engu betur en Þjóðverjar. Þessi afstaða þeirra kom einnig greinilega fram í því, að þeir ráku sendiherra Noregs, Hollands og Belgíu frá Moskvu nokkru eftir að Þjóðverjar höfðu lagt þessi lönd undir sig. Það var öll samúðin, sem Rússar sýndu þessum undirokuðu smáþjóðum. Það er rétt, að Riússar berjast nú vel og vasklega gegn þýzku nazist- unum. En þeir gera það vegna sjálfra sín, en ekki vegna frelsis smáþjóðanna eða andúðarinnar á nazismanum. Þeir hafa sýnt það eins greinilega og verða má í þess- ari styrjöld, að afstaða þeirra til smáþjóðanna er hin sama og Þjóð- verja. Þess vegna eiga þær ekki neins halds og trausts að vænta þar sem Rússar eru. Hlutur þeirra yrði hinn sami og baltisku smá- þjóðanna, ef Rússar einir bæru hærra hlut í styrjöldinni. Menn mega því ekki láta þann áróður blekkja sig, að Rússar heyi þessa styrjöld vegna smáþjóðanna eða andúðarinnar á fasismanum. Þeir, sem slíkan áróður flytja, eru aðeins blindaðir dýrkendur rúss- nesku kommúnistastjórnarinnar og eru ekki neins trausts maklegir hjá þeim þjóðum, er þeir teljast til. Ekkert væri hættulegra en að skraf slíkra manna hefði einhver áhrif á afstöðu smáþjóðanna. Smáþjóðirn- ar eiga að marka afstöðu sína til Rússa eftir raunverulegum verkum þeirra, en ekki eftir skrumi leigu- þjóna þeirra. Fyrir Norðurlanda- þjóðirnar er árásin á Finna ekki lærdómsríkasta dæmið í þeim efn- um, heldur öllu heldur brottrekst- ur norska sendiherrans frá Moskvu eftir að Þjóðverjar voru búnir með níðingslegum hætti að undiroka þessa hraustu smáþjóð.“ ÞaS éru, eins og menn sjá af þessum ummælum, fleiri en AlþýSublaSið, seiii taka Búss- landstrúboSi kommúnista meS töluverðum efasemdum. Svar vlð sídari grein UT AF NEFNDRI GREIN vil ég taka fram eftirfar- andi atriði: 1. G. J. segir: ,,Hvað orðið hefir af bréfi því, sem skrifað var á Hveragerðisfundinum veit ég ekki. í mínar hendur kom það aldrei, svo að ég get enga ábyrgð á því borið“. 30. maí 1941 segist hann hafa skrif- að undir það. í hvers höndum var það þá? Hann virðist ekki vita hver hafi samið bréfið, ekki heldur hver hafi skrifað það, né í hvers hondum það hafi verið, og ekki heldur, hvað var gert við það. Ekki er óhugsandi að sá, sem hefir vélritað vott- orð Sigurðar Þórðarsonar frá Hlíðarenda geti gefið einhverj- ar upplýsingar um bréfið. Vill ekki G. J. upplýsa hver það gerði? 2. Ef G. J. heldur að ég rang- færi fundargerð og tillögu, sem samþykkt var á fundinum að Hrauni í Ölfusi 17. júní 1935, þá getur hann leitað sér upp- lýsinga um það, því að fundar- gerðin mun vera til í skjala- safni Árnessýslu og er því senni lega hægt að fá sannanir þar, um það atriði. 3. G. J. vill ekki kannast við, að hann hafi krafizt þess vorið 1935, að sandgræðslugirðingin yrði sett í Bjarnarvík, en samt fékk ég bréf frá forsætisráð- herra vorið 1935 um, að það ætti að girða á þann stað, og mun það bréf hafa verið byggt á kröfu G. J. Eg áleit ógerlegt að girða þar eins og ég hefi áð- ur gert grein fyrir, og tjáði for- sætisráðherra það. Nú segir G. J. í nefndri grein: ,,Eg hefi aldrei viljað girða í Bjarnar- vík, af þeirri einföldu ástæðu, að þar er ekki hægt að festa girðingu“. Þarna staðfestir hann sjálfur, að sá staður, sem hann upphaflega heimtaði að fá girðingu á, var óhæft girð- ingarstæði, og auk þess skilið eftir stórt sandfokssvæði, sem sandhætta stafaði frá á byggð í Selvogi, ef þar hefði verið girt. 4. Um sölutilboð sitt, sem hann gerði forsætisráðherra 27. júní 1935, segir G. J.: „Rök Gunnlaugs um það, að ég hafi selt landið af frjálsum vilja, er áþekkt því, ef einhver héldi því fram, að Árni lögmaður hefði af fúsum vilja undirskrifað á- nauðarsamninginn í Kópavogi 1662.“ 30. maí 1941 segir G. J.: ,,Að þú fékkst ekki að taka allt landið, var að þakka því, að Hermann ráðherra 'var bæði vitrari og betri maður en þú.“ Þessi ummæli G. J. virðast mér benda til þess, að ólíkar hafi verið aðferðir forsætisráðherra við G. J. þeim, sem höfuðsmað- ur beitti við Árna Oddsson í Kópavogi 1662, og eru slíkar ásakanir ekki svaraverðar, að kúgunaraðferðir hafi verið þær sömu. Hitt er annað mál, að ég vildi taka allt sandfokssvæðið, en ég hafði enga aðstæðu til þess, því að það var forsætis- ráðherra, sem réði. Auðvitað hefði mér aldrei komið til hug- ar að kúga G. J., hvað sem Guð- mundi þóknast að tala fagur- lega um þá hluti!! Þessi! kúgunarsaga G. J. er sýnishorn á því, með hvaða endemum hann flytur mál sitt. Það er á vissan hátt ekki ólíkt á ,,0pið bréf“ 30. maí 1941, er * því, sem hann segir í niðurlagi I frumvarp hans hafði dagað uppi: „Þetta mál var sótt með sann- leik, en varið með lygum. Því var von það félli. Það er í sam- ræmi við aldarandann.“ Það léynir sér ekki, hvaða hans f AlþýðublaOinn. FTIR'FARANDI GREIN, sem barst Alþýðuiblað- inu frá sandgræðslustjóra sama daginn og atkvæða- greiðslan fór fram um Sel- vogsmálið í neðri deild al- þingis. En þar sigraði eins og frá hefir verið sagt, hinn góði málstaður sandgræðsl- unnar, með því að það var fellt að heimila sölu á þeirri spildu úr Neslandi í Selvogi, sem deilan. hefir staðið um. leið G. J. telur sigursælasta við málflutning, ef nokkuð má marka orð hans. Það kann vel að vera, að honum reynist lyg- in sigurvænlegust og eru þá skiljanleg ummæli hans, jafn- mikill kappsmaður og hann er í því, að hafa fram sitt mál, með þeim meðulum, sem hann telur líklegust til sigurs. Þá lífs- skoðun, að lygin sigri og sé það í samræmi við aldarandann, má hann eiga fyrir mér. Því miður velta málalokin ýmist á réttu eða röngu, en bet- ur felli ég mig við það, sem Þorsteinn Erlingsson kveður um það mál, en kenningu G. J. Þ. E. segir: „Ég trúi því, sannleiki, að sigurinn þinn að síðustu vegina jafni; og þér vinn ég, konungur, það sem ég vinn og því stíg ég hiklaus og vonglaður inn í frelsandi framtíðar nafni.“ 14. III. 1943. Gunnl. Kristmundsson. * HANNES Á HORNINU Frh. af 5. &íðu heldur vilja berjast á vígvelli við hlið bandaríksku hermannanna en að opna þjóðernisvarnarvirki okk- ar upp á gátt — fyrir vinum okkar. GÆTIÐ AÐ. Það er hætta á ferð- um. Okkur stafar ekki svo mikil hætta af bandaríksku hermönnun- um og áhrifum frá þeim meðan við höldum sjálf saman og ástand- ið er eins og það er í dag. En loftið er lævi blandið. Það stefna að okkur ský úr fjórum áttum. Reynum að varna því að þau myrkvi íslenzkan himin. Hver er það, sem hér á landi vinnur hlut- verk Rinkals gamla í sögunni í Al- þýðublaðinu, galdrakarlsins og svikarans við Kaffana þjóðbræður sína, afstyrmisins, sem með kúnst- um sínum leiðir eigendur landsins undir vopn þeirra, sem vilja ná landinu undir sig? ÞETTA ER svolítil gáta handa ykkur. Ráðningar hennar er ekki að leita í röðum erlendra manna, sem hér dvelja í hernaðarlegri nauðsyn og sér þvert um geð. Ráðningin liggur nær okkur. Rin- kals okkar leikur kúnstir sínar op- inberlega á hverjum einasta degi, bæði leynt og ljóst. Hannes á horninu. Námsfiokkar Reykjavíknr Vegna bilunar á mið- stöð í skólahúsinu fellur kennsla niður í kvöld. Forstöðumaðurinn. Föstudagur 19. marz 1943. Dansskemmtun heldur félagið fyrir meðlimi sína og gesti þeirra að Fél- agsheimilinu í kvöld kl. 10 síðd. Húsinu lokað ki. 11. Dansað uppi. Veitingar á mið- hæðinni. 6 manna hljómsveit leikur. — Félagar vitji að- göngumiða á laugardag kl. 6—7. Skemmtinefndin. Rolbeinn Guðmundsson frá Dlfljátsvatni, fyrram hreppstjóri, 70 ára i dag. KOLBEINN bóndi guð- MUNDSSON frá Úlfljóts- vatni er 70 ára í dag. Hann er fæddur 19. marz 1873 að Hlíð í Grafningi. Snemma bar á góðum gáfum hans og fjölhæfni. Fekk hann gott og heilbrigt uppeldi hjá foreldrum sínum. Var hann hjá þeim, þangað til hann tók við búi þeirra 23ja ára að aldri. Sama árið kvæntist hann Geir- laugu Jóhannsdótt-ur frá Nesja- völlum. Bjuggu þau lengst búi sínu að Úlfljótsvatni. Varð þeim 6 barna auðið. Eru börn- in öll uppkomin og mannvæn- leg, tvær dætur og fjórir synir. Vilborg, dóttir þeirra hjóna er gift Úlv lögfræðingi Jóns- syni, Katrín, gefin Gísla kenn- ara Sigurðssyni; einn sonur þeirra, Guðmundur að nafni, stunÖar algenga vinnu, kvænt- ur Rósu A. Georgsdóttur, Þor- lákur, smiður og bóndi, kvænt- ur Sigríði Gísladóttur; Jóhann- es, smiður, ókvæntur og Arin- björn er á leiðinni að ljúka læknanámi í háskólanum. Kol- beinn og valkvendið kona hans voru gestrisin og góð heim að sækja. Höfðu þau álit þeirra, er til þekktu. Saga Kolbeins er allviðburða- rík, en hér verður aðeins getið nokkurra atburða úr lífi hans. Sveitungar og sýslungar Kol- beins treystu honum manna bezt. Var Kolbeinn hreppstjóri um 20 ára skeið í Grafnings- hreppi. Oddviti var hann í 18 ár og sýslunefndarmaður í 21 ár. Leysti hann af höndum fjöl- mörg störf, ærið vandasöm og ábyrgðarmikil. Var hann jafn- an kvaddur ráða, þegar mikið lá við. Kolbeinn hefir lagt margt á gjörva hönd. Fekkst hann við lækningar um tíma og þótti vel takast. Hann er hagleiksmaður og smiður góður. Fæst hann enn við smíðar, þegar tími vinnst til þess. Kolbeinn hefir verið búsett- ur hér í Reykjavík síðan 1929. Er hann starfsmaður Miðbæjar- skólans, hitar húsið og annast ýmsar viðgerðir. Vinsældum á Kolbeinn hér að fagna eins og austan fjallsins. Heimili Kolbeins er við Þing- holtsstræti 26 hér í borginni. Kolbeinn er hraustmenni og hefir verið heilsugóður um dag- ana. Ber hann árin vel, hress í anda og hóglátur mjög. Vinir hans óska honum og konu hans góðra daga og Guðs blessunar. Hallgrímur Jónsson. Útbreiðið Alþýðnblaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.