Alþýðublaðið - 19.03.1943, Síða 7

Alþýðublaðið - 19.03.1943, Síða 7
Föstudagur 19. marz 1943.. ALÞYÐUBLAÐIÐ Bærinn í dag. | Næturvörður er Bjarni Jónsson, Keynimel 58, sími 2474. Næturvörður er í Iðunnar-Apó- teki. ÚTVARPIÐ: 12.10 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl. 19.00 Þýzkukennsla, 1. fl. 19.25 Þingfréttir. < 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpssagan: Kristín Svía- drottning, IX. (Sig. Grímsson lögfræðingur). 21:00 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 15 í B-dúr eft- ir Mozart. 21.15 Erindi: Sálarlíf kvenna, II. (dr. Símon Jóh. Ágústsson). 21.40 Hljómplötur: ísl. sönglög. 21.50 Fréttir. 22.00 Symfóníutópleikar (plötur): Symphonie fantasipué eftir Berlioz. 22.50 Dagskrárlok. Normannslaget í Reykjavík hélt nýlega félags- fund, þar sem m. a. var rætt um hátíðahöld í tilefni af þjóðhátíð- ardegi Norðmanna 17. maí. Kosin var undirbúningsnefnd og eru í henni formaður félagsins, Thomas Haarde, verkfræðingur, sendi- herrafrú Esmarch, Friid blaðafull trúi, Carl Stenersen, höfuðsmað- ur og F. E. Andresen, sendiherra- ritari. Auk þess var ákveðið að halda minningarguðsþjónustu 9. apríl, en þann dag fyrir þrem ár- um gerðu Þjóðverjarnir innrás sína í Noreg. Húsbruni í Hornafirði. Nýlega kviknaði í ibúðarhúsi í Höfn í Hornafirði og brann þak þess ,en innanstokksmunir munu hafa skemmsi af eldi og vatni. Á- litið er, að kviknað hafi út frá reýkháfi. Hjónaband. S.l. laugardag voru gefin saman í hjónabnd af síra Jóni Thorrensen þau Sigríður Jónsdóttir, sauma- konaj og Guðm. E. Breiðfjörð, tré- smiður, bæði til heimilis á Shell- vegi 2. Klemens Kristjánsson: KAjRTÖFLURNAR. Frh. af 2 .síðu. hernaðarframleiðslu. Hefðum við sannarlega átt að geta orð- ið okkur sjálfum nógir á þessu sviði og jafnvel getað miðlað öðrum, þó að íifugt sé. En ef til vill vilja menn afsaka sig með því, að vinnuafl okkar Ísíend- inga hafi einnig verið tekið til hernaðarþarfa og því hafi orðið minna úr framleiðslu nauð- synja í lancþnu ,en efni stóðu annars til. — Félagslíf — SeÐtimatundur í kvöld kl. 8 Vs- Deildarforseti flytur erindi. Utanfélagsmenn velkomnir. Knattspjrrnumenn Vikings. Knattspvrnuæfingar innan húss hefjast í húsi Jóns Þor- steinssonar sunnud. 21. þ. m. 3. og 4. flokkur sunnudaga kl. 2—3 og meistaraflokkur 1. óg 2. flokkiir þriðjudaga, fimmtu- daga og föstudaga ld. 10—11. Þess er vænzt að menn byrji nú þegar að æfa. Stjórnin. Glas lœknir eftir Hjalniar Sðderberg. 920-1940 7 Saga s-mábýlis 1920—40 ejtir Hákon Finnsson bónda í Borgum. Útgefandi Búnað- arfélag íslands, prentað á Ak- ureyri í prentverki Odds Björnssonar, 1943. 138 bls. BÓK ÞESSI er sérstæð í sinni röð, því að hún fjall- ar um það efni, sem ekki hefir venja verið að skrifa bækur um. Hún segir frá baráttu efnalítils bónda, bónda, sem sannar í verki, að bókvitið er hægt að láta í askana, ef það er réttilega hagnýtt, þ. e. að sameina þetta tvennt: hugsun byggða á þekk- ingu og verklega framkvæmd þeirrar vinnu, sem þurfti til að byggja upp og rækta niður- nídda jörð. Bókin skiptist í 7 kafla, auk formála eftir Ragnar Ásgeirsson ráðunaut, og eru þar rakin helztu æviatriði bókarhöfundar. Kaflár bókarinnar fjalla um: 1. Forsaga og tildrög, segir þar frá tildrögum þess að Há- kon keypti Borgir og flutti þangað. 2. kafli er um hvernig um- horfs var á nýja býlinu, og er þar lýst jörðinni og þeim mann- virkjum, sem þar voru fyrir, og hvað heyjaðist fyrsta búskapar- árið. Þar er og sagt frá ,,svip- unni“, þ. e. áætlun, er Hákon gerði ’um þau verk, er næst lágu fyrir að koma í fram- kvæmd. Hann vann samkvæmt áætlun, og er það eitt af því, sem víða vantar, og mætti vera til fyrirmyndar. Að hugsa fyr- ir fram, en ekki eftir á, hygg ég að sé rétta leiðin, og þessa leið hefir þessi frumbýlingur notað öðrum fremur, það er jafnvel ekki sízt vegna þess, hve auð- velt honum reyndist að koma því í verk, sem horfir til fram- fara í búskap hans. 3. kafli er um ræktunina. Er þar allýtarlega sagt frá fram- kvæmdum hans í ræktun, girð- ingum, þ. á m. lýst umbúnaði um hlið á girðingum, þar er og sagt frá túnræktinni á býlinu, sem hefir vaxið úr 85 hesta töðufeng fyrsta árið í 400 hesta, garðræktinni, sem samkvæmt á- ætlun óx úr fáum tunnum í 150 tunnur af kartöflum haustið 1939. Hefir hann verið braut- ryðjandi í sínu héraði hvað garðræktina snertir, og ekki hvað sízt stutt að því hvað mik- ið kartöfluræktin hefir vaxið í þessu héraði á undangörnum ár- um. Kornrækt hefir Hákon reynt og heldur henni við, þó í smáum stíl sé, en aðstæður vantað til að láta hana vaxa á borð við garðrækt og túnrækt. 4. kafli er um vegagerð og afköst hans í þeim efnum. 5. kafli er um byggingarnar, en Hákon hefir byggt öll úti- hús og íbúð frá grunni fyrstu 15 búskaparárin á Borgum og hefir gert þetta í smááföngum, en ekki í einu kasti eins og því miður hefir víða verið gert. Át- hyglisvert er hvað mörgu er haganlega fyrirkomið bæði um framkvæmd verkanna, stíl og fyrirkomulag bygginganna, en því er öllu ýtarlega lýst í þess- um kafla, og gæti að ýmsu ver- ið til athugunar þeim, sem við þessi mál fást. Með því að planleggja ræktunina og láta hana gefa áætlaðan arð tekst Hákoni að byggja vel upp býlið sitt, án þess að ofbjóða fjár- hagnum, því lántökuleiðin virt- ist honum ófær. Síðast í þess- um kafla eru skýrslur um alla vinnu og aðkeypt efni, er farið hefir í að koma byggingunum upp. Samtals hafa þær kostað kr. 19 480,37. Þar af er heima- vinna kr. 8091,10, eða rúmar 11 þús. kr., sem hefir verið að- fengið, vinna og efni. Sýnir þetta vel hve mikið er hægt að lina í kostnaði við byggingar, ef þær eru íramkvæmdar smám saman og hægt að vinna að þeim á veturna og samhliða öðrum störfum, en, þá þarf að planleggja, en það er það, sem Hákon hefir gert. 6. kafli er hugleiðingar um ýmislegt viðkomandi bygging- um og fl. og bókasafn hans, því Hákon er bókamáður og hefir skilið þann sannleiká, að blind- ur er bóklaus maður, og af bók- um má fá hagnýta þekkingu í lífsbaráttunni, vel’að merkja þó, að þær séu þá um þau efni, sem varða þann verkahring, er mað- urinn hefir helgað sér. Mun það ekki altítt, að bændur eigi jafn- mikið blaða- og bókasafn auk skrifuðu handritanna, sem hafa sína sögu að segja eins og hið prentaða mál. Síðasti og 7. kafli bókarinnar er um fjárhaginn frá 1921—’40 yfir búskapinn á Borgum, og gengur þar að vísu dálítið í öld- um. Á þessum 20 árum, sem yf- irlitið tekur yfir, eru 4 ár með halla, en 16 ár hallalaus. Virðist mér að byggingarkostnaður sé talinn í gjöldunum, og er þá eigi að undra þó halli verði þau árin, svo niðurstaðan er í raun og veru betri en reikningarnir sýna. Ég hefi þá skýrt í stórum dráttum frá efni þessarar bók- ar og tel hana að mörgu athygl- isverða, því hún skýrir frá raun- veruleika 20 ára uppbyggingu smábýlis og búskap þar, gleði, gæfu og óhöppum, og hvernig á hverju einu er tekið. Bókin er létt aflestrar og á ábyggilega erindi til bænda og annarra, sem kynna vilja sér starf bónd- ans á Borgum, því það er fyrir margra hluta sakir merkilegt. Bókin fæst í bókabúðum og hjá Búnaðarfélagi íslands og kostar 12 kr. P. t. Rvík, 10/3 1943. ' Klemenz Kr. Kristjánsson. Innilegar þakkir færi ég öllum sem við andlát og jarðarför heiðruðu minningu konunnar minnar og móð- ur okkar Gaðriliiar Sigríksdóttnr. Sérstaklega þakka ég skipshöfninni á b. v. Smdra. Fyrir mína hönd og dætra minna, Guðm. Þórðarson. Rafmapsmðtorar Vi og l/3 hö (einfasa). Nokknr stykkl óseld. Sérlega hentuglr til smáiðnaðar. BAPTÆKJAV.ERZLUN & VINNIISTOPA LAIGAVEO 46 vHÍMI 5858 Árás og rán. Frh. af 2. síðu. Þreif þá hinn maðurinn þegar töskuna og hljóp upp Arnar- hólstún, en hinn maðurinn hljóp Kalkofnsveg. Keflvíkingurinn, ásamt tveim mönnum, sem þarna voru nær staddir, veittu ofbeldismönn- unum eftirför, en þeir misstu af þeim. Hvarf töskuræninginn inn á Lindargötu. Var lögreglunrii nú tilkynnt pm ránið og fór hún að leita mannanna eftir lýsingu, sem fengizt hafði af ræningjunum. Fann lögreglann þá báða ör- skammri stundu síðar, stánd- andi á horni Hverfisgötu og Ingólfsstræti. Var farið með þá á lögreglustöðiria og meðgengu þeir ofbeldisverkið, eftir dá- litla vafninga. Annar þessara manna heitir Finnbogi Guðmundsson og á heima á Njarðargötu 35. í fyrra ætlaði hann að selja sjóliða á- fengi niður við höfn og tók við peningum fyrir það. Af þessum viðskiptum kom til áfloga með þeim afleiðing- um, að sjóliðinn stakk Finn- boga hnífstungu svo, að hann hann varð óvígur og lá í sjúkra- húsi. Virðast áfengisviðskipti þessa manns vera flest með undarlegum hætti. BANKAMENN MÓTMÆLA. Frh, af 2. síðu- fórnirnar. Til þess að ná settu marki ætlar ríkisstjórnin að svifta launþega 20% af verð- lagsuppbótinni, síðan eiga þeir að greiða hækkandi skatta til þess að stjórnin geti rekið víð- tæka meðgjafastal’fsemi og Ryksugur IMo&ksar stykkl óseloi). Straujárn f|óldl teg. (með eða án hitastillis). Hltapáðar (prfistilltir). Sfigarettukvelkjarar. RAFTÆKjAVERZLUN & VINNUSTOFA liAUOAVBO 4 6 SÍMl 5S5S lækkað með þeirri aðferð út- sÖluverð þeirra vörutegunda, sem verðlagsvísitalan byggist á. M. ö. o. launþegar eiga að greiða hækandi skatta til þess að ríkis- stjórnin geti losað þá við verð- lagsuppbótina. í tilefni af dýrtíðarfrumvarpi stjórnarinnar lýsa bankamenn yfir því, að þeir eru reiðubúnir til þess að taka á sig sinn hluta af þeim byrðum, sem löggjafinn kann að telja nauðsynlegt að leggja á borgarana í þeim til- gangi að lækka verðlag í land- inu. En þó að því tilskildu, að byrðunum sé réttlátlega skipt, með hliðsjón af því hverjir hagnazt hafa á því sjúkdómsá- standi, sem er undirrót verð- bólgunnar. Þegar komið hefir verið á eðlilegu jafnvægi milli stéttanna, er sjálfsagt að laun- þegar og aðrir taki á sig byrð- ar, ef þess gerist þörf. Með tilvísun til þess, sem að framan greinir, vill Samband íslenzkra bankamanna mælast til þess, að hið háa alþingi sam- þykki ekki framkomið. frum- varp um dýrtíðarráðstafanir að því leyti, sem það fjallar um stórfellda og ótímabæra breyt- ingu á lífskjörum launþega.“ V* s s S s S s S s $ s $ * s s t s s s s s s S s V N s s s

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.