Alþýðublaðið - 15.04.1943, Page 2

Alþýðublaðið - 15.04.1943, Page 2
s ALÞYÐUBLAÐIP Fimmtudagrur 15. aprð Styrkjunum til skálda og rithofunda úthlutað. Samtals kr. 62 800, sem skipt var á milii 33 skálda JÁRUPPHÆÐ þeirri, J sem Menntamálaráð veitti til skálda og rithöf- unda, hefir nú verið úthlutað af þar til kjörinni nefnd hins íslenzka rithöfundafélags, en í henni áttu sæti Barði Guð- mundsson, Kristinn E. Andrésson og Magnús Ás- geirsson. FjárupphæSin var samtals kr. 62 800 og skifti nefndin henni þannig milli höfundanna: 5000 krónur hlaut Halldór Kiljan Laxness. 3600 krónur hlutu: DavíS Stefánsson frá Fagra- skógi, Guðm. Gíslason Hagalín, Gunnar Gunnarsson, Krist- mann Guðmundsson, Tómas Guðmundsson. Þórbergur Þórð arson. 3000 krónur hlutu: Guðmundur Friðjónsson á Sandi, Guðmundur Kamban, og rithöfunda. Jóhannes úr Kötlum, Magnús Ásgeirsson. 2400 krónur hlaut Steinn Steinarr. 1800 krónur hlutu: Guðm. Böðvarsson, Guðin. Danielsson, Jakob Thorarensen, Ólafur Jóhann Sigurðsson. 1500 krónur hlutu: Theódór Friðriksson, Þórunn Magnúsdóttir. 1000 krónur hlutu: Elinborg Lárusdóttir, Guð- finna Jónsdóttir frá Hömrum, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Gunnar Benediktsson, Jón Magnússon, Kristin Sigfússd., Unnur Bjarklind. 800 krónur hlutu: Óskar Aðalsteinn Guðjóns- son, Sigurður Helgason. 500 krónur hlutu: Guðmundur Frímann, Hall- i dór Helgason, Jón úr Vör, Jón Þorsteinsson á Arnarvatni, Sig- urður Jónsson á Arnarvatm Stefán Jónsson. Geðvelkralæknir látlnn athnga Gottfredsen. —.—..»■■■-.... ÁOur en sakamál verOur hOfOaO gegn honum fyrir landráOahrof. Tiiraun hans til að bera i bætifláka fyrir sig mistókst. GEÐVEIKRALÆKNINUM dr. Helga Tómassyni hefir verið falið að rannsaka Andreas Gottfredsen og gefa úrskurð um andlegt heilbrigði hans. Jafnframt hefir dómsmálaráðuneytið fyrirskipað málshöfðun gegn honum fyrir brot á 10. kapitula hegningarlaganna (landráðakapitulann). Landráðakapítulinn er svo- hljóðandi: „Hver, sem opinberlega í ræðu eða riti mælir með því, að erlend ríki byrji á fjand- samlegum tiltækjum við ís- lenzka ríkið eða hlutist til um málefni þess, svo og hver sá, er veldur hættu á slíkri íhlutun með móðgunum, líkamsárás- um, eignaspjöllum og öðrum athöfnum, sem líkleg eru til að valda slíkri hættu, skal sæta varðhaldi eða fangelsi allt að 6 árum. Ef brot þykir mjög smávægilegt má beita sektar- hegningu.“ Andreas Gottfredsen játaði þegar eftir að hann hafði verið handtekinn að hafa slcrifað greinina í „The Fishing News“ i Aberdeen. Hinsvegar neitaði hann þá að hafa sent greinina beint til blaðsins. Kvaðst hann hafa sent hana til firma nokkurs í Aberdeen, án þess að hann hefði ætlazt til þess að liún yrði birt í blöðum — og kvað sér því birting greinarinnar vera óviðkomandi, — enda hefði hún verið birt að sér for- spurðurn. Rnnsóknarlögregl. hóf þeg ar rannsókn á þessu atriði máls- ins og naut aðstoðar í því efni íslenzku sendisveitarinnar í London. Var spurst fyrir um þetta hæði hjá blaðinu „The Fishing News“ og firmanu, sem Gottfredsen hafði nefnt. Rit- stjórn blaðsins upplýsti, að hún hefði fengið greinina senda beint frá Reykjavík, án nokk- urraríhlutunar firmans og firm að neitaði að hafa átt nokkurn Iilut að málinu. Þegar gögn um þetta lágu fyrir, voru þau lögð fyrir Gott- fredsen. Játaði hann þá að hafa sent blaðinu greinina en þó kvaðsl hann jafnframt hafa sent firmanu afrit af henni — og hefur firiuað staðfest það atriði. Eftir þessum upplýsingum Iiefir verið heðið. En eftir að þau voru upplýsl var ákveðið að höfða mál gegn honum, en láta áður fara fram rannsókn á andlegu ástandi Gottfredsen. Íþróttaíélag Iivenna. Þær félagskonur, sem ætla að dvelja í skála félagsins yfir pásk- ana, tilkynni það í hattabúðina Höddu, sími 4087 fyrir kl. 12 á hádegi n.k. laugardag. Skíða- kennsla fer fram bænadagana og laugardaginn fyrir páska. Þær, sem njóta vilja kennslunnar, — taka það fram um leið og þær tilkynna dvöi í skólanum. Lengsta þing f siSgu alþingis hingað til. Hinu reglulegu þiigi verður sennilega frestað fyrir páska. RÍKISSTJÓRI sleit aukaþinginu kl. 3 síðdegis í gær og var athöfninni útvarpað, eins og þingsköp mæla fyrir. Er þetta lengsta þing í sögu alþingis hingað til. / í dag kl. 1 e. h., verður reglulegt alþingi sett samkvæmt lögum þeim, sem samþykkt voru á aukaþinginu um sam- komudag reglulegs alþingis í ár, og hefst þingsetningin með guðsþjónustu.En búizt er við að því verði frestað fyrir páska Stjórain sættir sig við afgreiðsln dýr- tiðarlagafrum- varpsins. Yfirlýsing íorsætisráðherra í fyrrinótt. Þlngslitaræða Har- alds Gnðmundssonar Áður en aukaþinginu ýar slitið flutti forseti sameinaðs þings, Haraldur Guðmundsson, eftirfarandi ræðu: „Herra ríkisstjóri. Háttvirtir alþingismenn. Þessu alþingi er nú lokið. — Það er hið 61. löggjafarþing og 16. aukaþing, en 76. samkoma frá því er alþingi var endur- reist. Frá stofnun alþingis eru á þessu ári liðin 1013 ár, en 2 ár frá því æðsta vald í málefnum þjóðarinnar var falið íslenzk- um þingkjörnum ríkisstjóra. Aldrei fyrr hefir alþingi átt jafn langa setu og aldrei haldið svo marga fundi sem nú. Þyk- ir mér rétt, að venju, að drepa nú á nokkur þeirra mála, er afgreidd voru á þinginu. Alþingi samþykkti til fulln- aðar frumvarp til stjórnskiþun arlaga um breytingar á stjórn- arskrá ríkisins, og er sam- kvæmt því heimilt að ákveð^i með samþykkt eins þings að gera þær breytingar á stjórn- arskránni, sem leiðir af sam- bandsslitum við Danmörku og því, að íslendingar taka, með stofnun lýðveldis, til fullnustu í sínar hendur æðsta vald í málefnum ríkisins, enda komi til samþykki meiri hluta allra kosningabærra manna í land- inu við leynilega atkvæða- greiðslu. Af lögum um félagsmál skulu þessi nefnd: Lög um or- lof, merkilegt nýmæli í ís- lenzkri löggjöf og þýðingar- mikið, lög um að auka við stríðsslysatrygginga, breyting- ar á lögum um' alþýðutrygg- ingar, um nokkuð aukin fram- lög til sj úkratrygginga, og ný lög um húsaleigu í stað eldri laga um það efni. Ennfremur var ákveðið í lögum um dýr- tíðarráðstafanir sérstakt 3 milljón króna framlag til efl- ingar alþýðutryggingunum. — Fjárlög þau, sem Alþingi af- greiddi fyrir yfirstandandi ár, gera ráð fyrir, að útgjöld rík- isins verði um 65 milljónir króna. Er það nærri þreföld upphæð á við hæstu fyrri fjár- lög, þó er upphæð þessi tveim tugum milljóna króna lægri en tekjur ríkissjóðs reyndust á síðastliðnu ári. Höfuðverkefni þessa þings var að gera ráðstafanir til þess að stöðva og lækka dýrtíðina °g Uyggja atvinnurekstur í landinu. Mestum hluta af tíma þingsins hefir verið varið til þess að leita úrræða í þessum málum. Voru afgreidd þrenn lög varðandi dýrtíðarmálin: Breyting á lögum um dómnefnd í verðlagsmálum, lög um verð lag og lög um dýrtíðarráðstaf- anir, auk laga um innflutning Frh. á 7. síðu. 6 millipinganefnd- ir bosnar síðasta dag pingsins. Þar á meðal nefnd til að nndirbúa verklegar fram- kvæmdir eftir styrjöldina SAMEINAÐ ALÞINGI kaus í gær sex milli- þinganefndir: Þingvalla- nefnd, landkjörstjórn, milli- þinganefnd í sjávarútvegs- málum, milliþingan. verk- legra framkvæmda eftir styrjöldina, nefnd til að gera tillögur um byggingar við Lækjartorg og milliþinga- nefnd í Póstmálum. Fyrst fór fram kosning Þing- vallanefndar (þriggja alþingis- manna) til loka næsta þings eft- ir nýafstaðnar kosningar, að viðhafðri hlutfallskosningu. Þrír listar komu fram og voru á þeim þessi nöfn: A-listi: Haraldur Guðmunds- son. B-listi: Jónas Jónsson. C-listi: Sigurður Kristjáns- son. Voru þessir þrír menn því kosnir í Þingvallanefnd. Þeir - voru allir endurkosnir. Frih. á 7. síöu. |7 UNDUR SÓKNAR- NEFNDAR og presta hér í Reykjavík, sem haldinn var í fyrrakvöld kaus 4 manna nefnd til að athuga og gera tillögur um nýja skip* un útfarasiða, svo að þeir yrðu einfaldari og útfarirnar Ódýrari. — Jafnframt skyldi nefndin í samráði við „Bál- fararfélag íslands“ standa fyrir byggingu kapellu ,lík- geymslu og bálstofu í kirkju- garðinum í Fossvogi. í nefndina voru }>eir kosnir: Lárus Sigurbjörnsson úr Nes- sókn, Kristján Þorgrimsson úr I Laugarnessókn, Ingimar Jóns I YFIRLÝSING forsætis- ráðherra, dr. Björns Þórð- arsonar við lokaafgreiðslu dýr- tíðarlagafrumvarpsius í neðri deild í fyrri nótt, sem lauslega var getið um í blaðinu í gær, hljóðaði þannig: „Eins og skýrt hefir komiS fram við umræður mn dýrtið- armálin í báðum deildum þingsins, mun enginn þing- maður vera ánægður með af- Igreiðslxi þeirra eins og hún sýnir sig nú að vera. i Ríkisstjórnin getur í fyllsta mála goldið samkvæði þessu á liti. En hinir pólitisku erfiS- leikar eru svo miklir innan þingsins, að það hefir ekki megnað að taka dýrtíðarmálin öðrum tökum en raun ber vitni. Stjórnin hefði helst kosið að aðrir tæki nú við franxkvæmd málanna. En henni er ljóst, að synjun af liennar hálfu á þess- ari stundu að hafa framkvæmd ina á hendi, getur skapað á- stand, sem hún ekki vill bera ábyrgð á og ekki verður séS út yfir hverjar afleiðingar hefði. Stjórnin álítur þess vegna, að hún mundi bregðast þeim skyldum, sem hún hefir á sig tekið, ef hún ekki tekur við frumvarpinu og gerir þá til- raun ,sem þar er stefnt að, í þvi trausti, að betri árangur náist en hægt er að gera ráð fyrir eins og nú horfir. — Stjórnin gerir það í því trausti einnig, að ]>að megi firra þjóð- ina nýjum og vaxandi erfiðleik- son úr Hallgrímssókn og Þorst. Sch. Tliorsteinsson úr Dóm- kirkjusókn. En ætlazt er til. aS Frikirkj usöfnuðurinn tilnefni fimmta manninn í nefndina. Þessi nefnd var kosin af afstöðn um mnræðuih og eftir að búið var að saniþykkja eftirfarandi tillögu: „Sameiginlegur fundur sókn- arnefnda og presta í Reykja- víkurprófas Lsdæm i ,haldinn 13. apríl 1943, ályktar að leggja skuli fyrir alla safnaðarfundi í prófastsdæaninu vorið 1943 svo hljóðandi tillögu: „Safnaðarfundurinn iellst á þá ráðstöfun kirkjugarðsstjóm- ar Reykjavíkur, að hefjast Frh. á 7. sWu. um. Byggja hirkjagarðsstjórn og Bál- farafélagið báístofn i sameiningn? — ---*—.— Tillaga um undirbúning málsins og fábrotnari útfararsiði samþykkt á fundl presta og sóknaroefoda.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.