Alþýðublaðið - 15.04.1943, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 15.04.1943, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. apríl 1943. ALÞYÐUBLAÐIÐ s . FESTIÐ á ykkur fallhlífam ar! hrópaði hrópaði flug- liðsforinginn í hljóðnemann, og samstundis varð uppi fótur og fet í skálanum, þegar fallhlíf- ar hermennirnir voru að festa fallhlífarnar hver á annan. Úti á steinsteyptum flugvellinum drundi í flugvélunum, svo sem í kveðjuskyni, þegar við tíu sam an, hlupum á eftir foringja okk ar og kennara í áttina til þeirra. Þegar ég var að klifra upp í flugvélina, hafði ég það ljóslega á vitundinni, að þetta var aðeins í annað sinn, sem ég kom upp í flugvél. Ég hafði fáeinum dögum áður verið tutt ugu mínútur á flugi, en nú átti ég að stökkva út úr flugvél í mörg hundruð feta hæð. Ein- hvern veginn var mér ekki rótt innanbrjósts. Nú vorum við allir tíu komn ir upp í flugvélina og allt var tiibúið. Hinn rólyndi flugliðs- foringi og kennari okkar, gekk frá einum til annars til þess að athuga, hvort traustlega væri búið um fallhlífarnar. — Tilbúnir! hrópaði kennar- inn og rödd hans gnæfði yfir vélardyninn. Allt í einu hækk- uðu drunur flugvélarinnar og hún rann eftir vellinum, hrist- ist ónotalega fyrst, en jók svo hraðann og var þá ekki eins höst, og eftir örskotsstund fann maður, að flugvélin var kom- inn á loft og ónotatilfinning fór um magann. Þar sem ég sat hálfboginn í klefanum, gat ég séð yfir næsta mann og út um glugga ofan í hyldýpið, þar sem ég átti að svífa niður eftir ofurlitla stund. Fyrir neðan sáust græn engi, tré og gerði, byggingar, sem voru eins og brúðuhús úr lofti að sjá og örsmáir deplar á hreyf ingu og skyldi maður naumast ætla, að það væru dauðlegar verur. — Ekki er vert að horfa niður aftur, sagði ég við sjálf- an mig — annars mistekst þér stökkið. Ég svipast urn í klefanum og sé númer eitt og tvö, sem sitja við dyrnar, tilbúnir að stökkva, þegar skipunin kemur. Kénn- arinn stendur yfir þeim, róleg- ur á svip, og rabbar við þá, eins og ekkert sé um að vera. Vélarskröltið drynur í eyrum og ég verð. að styðja mig við gólfið, svo að ekki verði eftir því tekið, hversu kvíðafullur ég er og órólegur. Ég horfi framan í lcennarann og reyni að átta mig á því, hvert hann sé að horfa. Hann starir á peruna í loftinu, þar sem ljós merkih eru gefin. Hann er að bíða eftir rauða Ijósinu með mikilli eftirvæntingu. Enginn talar, enginn hreyfir sig, nema númer eitt, sem færir sig nær dyrunum, þegar kennarinn kink ar kolli til hans og tekur fastar í snúruna á fallhlífinni. Á hverri stundu megum við nú búast við því, að merkið verði gefið. En siðustu sekúnd- urnar virðast heil eilífð og loks Andinn frá 1776. Bandaríkin hlufuífrelsi sitt og sjálfstæði árið 1776. Síðan Bandaríkin fóru í stríðið er oft talað þar um endurvakningu andans frá 1776 og margt gert til þess að minna á hann. — Myndin er frá hátíðahöldum í New York og er kvennahljómsveit að leika frelsissöngva Bandarikjamanna frá dögum frelsisstríðsins. Fyrsta fallhlífarstökkið EFTIRFAKANDI grein, sem er eftir E. G. Stef- ens, fjallar um það er höf- undurinn stéypti sér í fyrsta skipti út úr flugvél og sveif til jarðar í fallhlíf. þegar rauða ljósmerkið, sem við höfum beðið eftir með eftir- væntingu, er gefið, hrökkvum við í hnút. En númer eitt er við búinn og á auga bragði bregð- ur hann við, stingur fótunum gegnum opið,- reigir höfuðið aft- ur, til þess að geta horft á fram rétta hönd kennarans og bíð- ur. Skyndilega hverfur rauða ljósið og grænt ljós birtist í staðinn, kennarinn bregður hendinni niður og hrópar: — Af stað! Á svipstundu hverfur númer eitt niður um opið, svíf ur niður geiminn og nú heyrist málmhljóð aftarlega í flugvél- inni, þegar línan er gefinn út, sem er ,,björgunarlína“ fallhlíf arhermannsins, unz fallhlífinn hefir þanizt út. Mér verður það OrðseadiRð frá Alpýðubiaðian. Útsölumenn blaðsins eru vinsamlega beðnir að gjöra skil f.yrir fyrsta ársfjórðung þessa árs, sem allra fyrst. ALÞÝÐUBLAÐIÐ Glas læknir fæst i næstu bókabúð. á að hrökkva við, unz mér verð ur það ljóst, að þetta er ekki annað en björgunarlína númer eitt. Meðan á þessu stendur hrópar kennarinn: — Númer tvö, til- búinn! Og annar maður svífur niður um opið . Þetta fyrsta stökk er fram- kvæmt af mikilli varkárni. Flug vélin verður að svífa í hring. áður en númer þrjú og númer fjögur eru látnir stökkva. Þann ig verður að fljúga í þrjá hringi, áður en, númer átta er látinn stökkva, svo að ég get hvílt mig enn um stund. Svo kemur rauða ljósið á ný. — Númer þrjú, til- búinn! Númer fjögur, tilbújnn! Hvað eftir annað bregður kenn arinn hendinni niður og hróp- ar: — Stökkvið. Enn þá eitt hringflug, rauð ljós og græn ljós og númer fimm og númer sex eru farnir. Svo kemur röðin að mér. Ég færi mig nær opinu og horfi niður á sléttan völl með trjám umhverf is. Þar eiga stökkmennirnir að koma niður. Ennfremur sé ég grá hús og kannast við þorpið. Lengra í burtu sé ég vatn í stórum skemmtigarði. Rétt á undan mér er númer sjö að stinga fótunum niður um gat- ið, og þegar hrópað er. — Stökktu! tauta ég fyrir munni mér: — Góða ferð, Toff. En orð in heyrast ekki. Loks er röðin komin að mér, og á síðustu sekúntunni er allt ljóst fyrir mér, líkaminn hlýðir eins og ósjálfrátt skipunum kennarans,' þessum skipunum, sem maður hefir orðið æfður í að fara eftir undanfarna daga. Fætur og hné saman, lítið eitt boginn í hnjáliðunum, hendurn ar niður með síðunum, höfuðið sveigt aftur (vertu nú rólegur, númer átta). Hugsaðu þér bara, að þú sért á æfingavellinum og þurfir ekki að stökkva nema sex fet ofan á mjúka ábreiðu. Það er nú allt og sumt. Þeir, sem reynt liafa, segja, að þetta sé ofurauðvelt. — Númer átta, tilbúinn! Stökkvið! Og ég renni mér nið ur um opið og svalur gusturv leikur um míg. „Björgunarlín- an“ rennur út og ég hossast of urlítið, eins og mér sé hampað af risahöndum. Ég hefi á vit- undinni, að fæturnir snúi upp, en svo kemst ég á réttan kjöl aftur. Ég sé snöggvast glytta í flugvélina, en ekki get ég átt- að mig á því, hvort hún er fyr- ir ofan mig eða neðan. Svo þenst fallhlífin út og fallhraðinn mink ar. Skyndilega verður þögn og kyrrð og friður ríkir umhverfis mig. Ég teygi upp handleggina og gríp í snúrurnar, til þess að ná betur jafnvægi. Þarna fyrir ofan mig er silkiseglið, sem heldur mér svífandi með jöfn- um hraða glithvítt í sólskininu og þessi veröld þagnarinnar er unaðsleg. Ég er aleinn í þessari veröld — aðeins ég og fallhlíf- in — og maður svífur í sællá leiðslu. Mig langar til að syngja, blístra, baða út höndum og hrópa. Ég er einn og svíf. Einn? Ekki alveg.. Að neðan heyri ég rödd varðmannsins, sem kallar í hátalarann: — Hver fjandinn er þetta, númer átta? Vitið þér ekki, að þér ætlið aS lenda á bakið? Snúið yður vio, númer átta! Snúið yður við. Eins og ósjálfrátt tek ég hin réttu tök. Ég verð að reyna talsvert á mig, en get þó snúið mér við á síðustu stundu. Mér finnst ég ekki svífa leng ur. Ég er ekki nema í þrjátíu feta f jarlægð frá jörðu og græna ábreiðan virðist færast óðfluga nær mér. Rólegur, karl minn, fætur og hné fast saman, gefðu jörðinni gætur. Svona! Ég er kominn niður, steypist koll- hnís, en sprett á fætur aftur, dreg niður fallhlífina, áður en vindurinn nær tökum á henni og flækir hana yfir mér. Ég tek af mér böndin, vef saman fall hlífina, öllu er lokið á svip- stundu. Það er eins og þeir sögðu, þetta er ofur auðvelt. Þverbrotin lögreglusamþykkt. — Bifreiðaöskrin. — Ungur Islendingur skrifar um „ástand“ og æskulýðs- höll, — sem hann telur að muni bæta úr því. ÞAÐ ER EINKENNILEGT hve erfitt gengur að halda uppi reglum í þessum bæ. Og þaS er ekki síður einkennilegt hve það er lengi þolað að reglur séu þver- brotnar. Líkast til er það fyrr- talda afleiðing af því síðartalda. Mér finnst að lögregluyfirvöld geri sig hlægileg með því að setja regl- ur, gefa út fyrirmæli um að þeim skuli hlýtt — og láta þar við sitja. — Við skulum taka dæmi: Fyrir nokkrum árum var lagt blátt bann við því að, bifreiðarstjórar þeyttu horn sín á götum úti. Þessu var fylgt framan af, en nú eru regl- urr.ar þverbrotnar á hverjum degi, já, á öllum tímum sólarhringsins. HVERS VEGNA? Engin meiri nauðsyn er nú á því að þeyta bif- reiðahornin en var meðan það var ekki gert, hinn stutta tíma. Hér er aðeins á ferðinni virðingarleysið og hirðuleysið um reglumar, og hvers vegna er mönnum látið hald- ast uppi að brjóta þær? Á hverri nóttu fara organdi bifreiðar um götur miðbæjarins, um Laugveg- inn, um Hverfisgötuna, yfirleitt um allar götur. Þetta raskar svefn- friði og hvíldartím'a manna. UM ÞETTA hefi ég fengið nokk- ur bréf undanfarið. Þessi org eru bönnuð. Menn mega ekki þeyta lúðra sína, enda er engin þörf á því. Fólk, sem til dæmis pantar bifreiðar, verður sjólft að gæta þeSs að geta tekið bifreiðamar undir eins og þær koma. Ef bif- reiðastöð hefir ekki bifreið, þegar beðið er um hana, er víða sá siöur hafður að hringja í viðkomandi númer þegar bifreiðin leggur af stað. Sjá því allir að sá, sem biður um bifreiðina getur hæglega veriff til taks, þegar hún kemur. ÉG VIL FASTLEGA vænta þesa að lögreglan haldi í heiðri þeim reglum, sem settar hafa verið um þetta, annað er ósæmilegt. Ég held að það ætti að gera gangskör að því að framfylgja lögreglusam- þykktinni út í yztu æsar. Ef það væri gert og þeir menn beittir við- urlögum, sem brjóta hana, þá hygg ég að margt myndi færast i betra horf en nú er hér í bænum. „UNGUR ÍSLEND1NGUR“ skrif ar mér bréf um ástandið. Vi’l hann kenna .yfirvöldunum um það að ýmsar stúlkur týnast í flóöið. Telur hann að ef til dæmis Æsku- lýðshöll rís upp liér, þá sé mikið unnið í áttina til þess að bjarga unga fólkinu, sem nú eltir vafur- loga erlendra einkennisbúninga og annar.legra tungumála.Eg er með Æskulýðshöll, alveg ákveðinn með henni. En ég er ekki svo bjart- sýnn að ég ,telji hana myndi verða kínalífselexír við ástandinu. Það er langt frá því. VILLT LÍF FREISTAR, Og fólki finnst það villt líf að flækjast um nætur í ókumuim danssölum við drykkju og glaum. En villt líf brennir, eyðir eins og eldurinn — og eftir verður svört aska og brunarústir. Það er aska og bruna- rústir hér á götunum um þesssr mundir. Frfc. á t>. síöu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.