Alþýðublaðið - 09.05.1943, Page 2

Alþýðublaðið - 09.05.1943, Page 2
r ALÞYÐUBLAÐiÐ Sunnudagur 9. maí 1943, Hætta ú sjónmn veona skipa, sem ern að tnnð nrdnflaveiSnm. ATVINNU- og samgöngu- málaráðuneytið tilkynn- ir í dag hættu við siglingar. Eru skipstjórar allra íslenzka skipa aðvaraðir um að koma of nærri skipum, sem fást við tundurduflaveiðar. Skip, sem fást við tundur- duflaveiðar hafa eftirfarandi merki: Að degi til: Svarta kúlu í siglutoppnum og ráarenda. Að nóttu til: græn ljós, sýnileg á alla vegu, í stað svörtu kúlnanna. Þessi ljós eru sýnd að eins þegar þarf að aðvara skip vpia- þjóðar. Skipstjórnarmenn eru beðnir að lesa tilkynn- ingu ráðuneytisins um þetta efni hér í blaðinu í dag. JatðarfSr Bandaríkjaaannania, sem fórost í flogslysioo för fram i gær. Einhver virðuleg- asta athöfn, sem farið hefir fram í Reykjavík. Þ Fnilírnar íslands ð matvælaráðstefo nnni verða þr r. BANDARÍKJASTj ir boðið ríkistfc |QRN hef- rn íslands að senda .fulltrú^ á ráðstefnu, er hefst í Hot Sjí^sngs, Virginia Bandaríkjunum, pann 18. þ. m., til þess að ræða framleiðslu og dreifingu matvæla að styrjöld- inni lokinn, svo og ýms önnur mál, er miða að eflingu velmeg unnar þjóða almennt. Ríkisstjórnin hefir þakkað boðið og til nefnt sem fulltrúa íslands: Thor Thors sendiherra, formann, Helga Þorsteinsson framkvæmdastjóra Sambands ísl. samvinnufélaga. New York, ! og Ólaf Johnson ræðismann, framkvæmdastjóra innflytj- endasamhandsins, New York. EIR FJORTAN MENN, sem fórust síðastliðinn mánudag í flugslysinu, sem varð Andrews hershöfðingja yfirmanni ameríksku her- sveitanna í Evrópu, að bana, voru jarðaðir hér 1 gær með áhrifamikflli hernaðarvið- höfn. Athöfnin fór fram í tveim kirkjum, hófst klukk- an 9 f. h. í Kristskirkju að Landakoti, þar sem herprest ur stjórnaði kaþólskri út- fararathöfn yfir jarðneskum leifum Paul H. McQueen undirforingja, og var haldið áfram kl. 9,45 í dómkirkj- unni, þar sem kistur hinna þrettán fylltu allt innra svið kirkjunnar. Meðal þeirra, sem báru kist- urnar. má nefna Ohai'les H. Bonesteel liershöfðingja, yfir- mann ameríkska seluliðisins á íslandi. Leland Morris, sendi- herra Bandaríkjanna liér og Bennett flotaforingja í Banda- ríkjaflotanum. En auk heirra báru kisturnar margir tignir menn úr hernum. Viðstaddir voru fulltrúar allra handaþjóðanna, rneðal þeirra hinn nýkomni sendi- herra Breta, Shepherd. Fyrir hönd íslenzlcu þjóðarinnar voru viðstaddir Sveinn Björnsson ríkisstjóri. Björn Þórðarson forsætisráðherra, Vilhjálmur ^ Þór utanríkisráðherra, Björn Ólafsson fjármálaráðherra og Sigurgeir Sigurðsson biskup. Flest sætin hægra megin í Frh. á 7. síðu. Atliöfnin í dómkirkjunni. Við grafreit setuliðsins. U.S. Army Signal Corps tók myndirnar. Bðrnln fara á sninardvalar- heimilin um mánaða mðtin. —-------- UmsókEinm um dvoð handa pelm veitt métfaksð í skéfium kfi. 2—7. T> ORNIN, sem fara í sveit í sumar á vegum sumardvalar- nefndar munu verða flutt úr bænum um næstu mán- aðarmót. Skráning brananna stendur yfir alla þessa viku í Aust- urbæjarskólanum og Miðbæjarskólanum og verður umsókn- um veitt móttaka kl. 2—7 daglega. Alþýðublaðinu harst í gær til- kynning frá Sumardvalarnefnd i|m þetta efni — og segir í henni ennfremur: ,J>að fyrsta er almenning varðar og nú verður unnið að er, að skrásetja börn þau, sem fólk óskar eftir að koma til sumardvalar á vegum nefndar- innar. Verða alla næstu viku opnar skrifstofur í barnaskól- unum i mið- og austurbænum á timabilinu frá kl. 2—7 dag- lega. Er alvarlega hrýnt fyrir fólki sem hyggst að njóta aðstoðar nefndarinnar í þessu efni að gefa sig fram á nefndum tíma- bili, því þeir sem síðar kunna að koma geta tæplega búizt við að unnt verði að sinna þeim. Þegar sýnt er, hve mörg börn koma til skráningar, verður gengið frá samningum við skóla og aðrar stofnanir út um landr, sem nefndin fær til um- ráða fyrir dvalarheimili. Er gert ráð fyrir að staðirnir vérði að mestu hinir sömu og undan- farin ár. Samtímis verðuwráðið starfs fólk til heimilanna. Þá verður skömmu síðar framkvæmd læknisskoðuu á; öllum börnum, sem nefndin ráðstafar, hvort sem þau fara á sameiginleg dvalarheimili eða á sveitabæi. Um leið verð-; ur hörnunum ákvéðinn staður. Verður aðeins að litlu leyti; unnt að taka til greina óskir vandamanna um dvalarstaði, því börnin verða flokkuð á Frh. á 7. síðu. Nerkiieg sýning vefiBin Brltish Conasil Verður í Sýnmgarskáíanum snemma í iúní. B RITISH COÚNSIL mun gangast fyrir merkilegri sýningu í Sýningarskála Mynd- listarfélagsins í byrjun júní- mánaðar. Þar verða sýndar enskar bækur margskonar ,eir- stungumyndir og ljósmyndir. Mr. John Steegman, kennari í National Portrait Gallery í Lundúnum, mun stjórna sýn- ingunni. Dr. Cyril Jackson skýrði full- trúum blaða og útvarps frá þessu í gær. Enú er ekki ákveð- ið hvenær sýningin hefst, en sennilega verður það 1. júní, og er gert ráð fyrir, að sýningin standi yfir í tíu daga. Dr. Jackson sagði, að áform- hefði verið þegar í fyrra- að haust að halda bókasýningu og var ákveðið að hið fræga skáld T. S. Eliot skyldi setja sýning- una, halda nokkra fyrirlestra og lesa upp skáldverk. Sýningu þessari varð að fresta vegna sjúkleika Eliots, og það er ekki fyrri' en nú, að hann ér svo hress, að hann geti tekizt ferð á hendur hingað. En síðar var ákveðið að Mr. John Steegman kæmi til íslands til að flytja erindi um enskar eirstungur og var þá talið rétt að sameina þessar sýningar. Mr. Steegman er nýkominn heim frá Spáni og Portúgal þar Frfa. á 7. sáöu. l.-maí nefadar- fnndur. L OKAFUNDUR 1. mai- nefnd.arinnar er í dag kl. 4 stundvíslega í skrif- stofu Alþýðusambandsins í Alþýðuhúsinu 6. hæð. Kirkjnnnar menn stofna nýtt biað KIRKJUBLAÐIÐ, nýtt blað, hóf göngu sína I gær. Útgefandi og ábyrgðaí- maður þess er Sigurgeir Sig- urðsson biskup. í þessu fyrsta tbl. eru margar greinar um kirkjunnar mál. í ávarpsorðum til íslendinga, sem biskupinn skrifar, segir meðal annars: „Kirkjublaðið, sem í dag hef- ur göngu sína, helgar sig, eins og nafnið bendir til, fyrst og fremst þjónustu íslenzkrár kristni og kirkju. Það kveður sér hljóðs í þeirri sannfæringu, að þess sé nú þörf fremur en nokkru sinni áður á Íslandi, að rödd kristinnar kirkju heyrist, og að þjóðin Ijái þeim boðskap athygli, sem mestur, beztur og fegurstur hefir fluttur verið f þessum heimi, þeim boðskap, er heilög kirkja flytur þjóðun- um. Öllum hugsandi mönnum , þessu landi kemur saman um. að íslenzka þjóðin sé í hættu stödd. Breytingar á högum hennar, á aðstöðu hennar til annarra þjóða og í hennar eigin þjóðlífi, hafa á skammri stund orðið svo stórfelldar og örar, að þess er naumast að vænta, að þjóðin hafi enn áttað sig. Vér eigum ekki aðeins við ytri hættur að stríða í þessum óðfluga straumi breytinganna. Vér eigum engu síður við innri hættur að etja. Það er hætta á að þjóðinni verði glapin sýn, er svo mrgt nýstárlegt gerist og margt ber fyrir augu, sem vér aldrei áður höfum Útið. Það er hætta á siðferðilegu, menning- arlegu og fjárhagslegu hruni, ef vér erum ekki á verði og gæt- um ekki að oss í tíma. Það get- ur orðið hætta á, að þjóðernis- tilfinning vor sljóvgist, og; að vér í þeim skilningi glötum ýmsu af því, sem vér eigum. dýrmætast og helgast. Kirkju- blaðið vill af öllum mætti vinna gegn því, að svo fari. Það vill halda merki íslenzks þjóðernis og íslenzkrar menningar sem hæst á lofti. Það vill eiga þátt í að vekja og glæða ást þjóðar- innar til landsins, og mihna stöðugt á, að vér eigum eitt allra bezta og fegursta landið í þessum heimi.“ Bikisstjörnin leltar að mðnn nm i mjólknrsðlnnefiid! Erfiðleikar vegna breytinga sem hafa orðið við tilnefningu fulltrúa. SÍÐAN 1. maí hefir Mjólk ursamsalan í Reykjavík verið svo að segja stjórnlaust fyrirtæki. Þann dag var út- runnið stjórnartímabil mjólk ursölunefndarinnar og þá átti ríkisstjórnin að hafa skip að nýja mjólkursölunefnd, en hún er yfirstjórn samsölunn ar. Nú er kominn 9. maí — og engin mjólkursölunefnd hef- ir verið skipuð. Virðast ein- hverjir erfiðleikar vera á því innan ríkisstjórnarinnar að koma þessari nefnd saman. Þetta er því furðulegra, þar sem svo mikið lá á fyrir 10 dögum, að ríkisstjórnin gaf sjtjórn Alþýðusambands íslands að eins 30 mínútna frest m að hafa lokið tilnefningu á full- trúa sínum í nefndina. Alþýðu- sambandsstjórnin vildi ekki gera ríkisstjórninni erfitt fyrir í þessu vandamáli og tilnefudi fullírúa sinn, áður en frestur- inn var útrunninn og varð fyr- ir valinu Jón Brynjólfsson. Þá kaus bæjarstjórn Reykja víkur á síðasta fundi sinuin sinn fulltrúa. Var Sigurður Guðna- son, formaður Dagsbrúnar kos Frh. á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.