Alþýðublaðið - 02.07.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 02.07.1943, Blaðsíða 3
Föstudagur 2. júlí 1943. ALÞYÐUBLAÐIÐ ðlafur krónprinz, hið vin sæla konnngsefni Norð- manna fertngnr i OLAFUR KRÓNPRINS hinn vinsæli ríkiserfingi Norð- manna verður fertugur í dag í tilefni af afmælinu hefir Tbirzt grein í ,.Norsk Tldend“, málgágni norsku stjórnarinnar í London, sem hér fer á eftir. Ólafur krónprins heldur 40 ára afmæli sitt hátíðlegt með föður sínum, Hákoni Noregs- konungi, norsku stjórninni í London og Norðmönnum þeim sem berjast utan Noregs fyrir frelsi lands síns, en í fjarvist- um við f jölskyldu sína og norsku þjóðina. Allir Norðmenn munu minn- ast Ólafs Kronprins, hins verð- andi konungs Noregs á þessum degi. Ólafur krónprinz hefir ásamt föður sínum riaeira en nokkur annar maður í sögu Noregs verið tákn sameiningarinnar í frelsisbaráttu Norðmanna. Ólafur krónprinz hefir vaxið upp með blómaskeiði norsku þjóðarinnar, þó nú hafi syrt að í bili, en það mun tengja hann þjóð sinni órjúfandi böndum. Uppeldi hans hefir verið í sama anda og annarra sona norsku fósturjarðarinnar. — Hnn fékk virðingu og ábyrgð- artilfinningu gagnvart hinu sanna lýðræði. Frá því hann komst til manndóms hefir hann tekið þátt í stjórnarstörfum með föður sínum og gegnt þeim í fjarveru hans og í gegn um þau störf hefir hann öðl- azt skilning á störfum konungs sem bundinn er stjórnarskrá, eins og konungur Noregs er nú á dögum. Þegar óhamingjan skall yfir Noreg, skipaði Ólafur krón- prinz sess við hlið konungsins og ríkisstjórnarinnar. Ólafur krónprinz tók þátt í bardögunum við innrásarher- inn, sem liðsforingi í norska hernum, og varð þátttakandi í þeim sársaukafulla atburði, að sjá strendur- Noregs hverfa úr augsýn hinn dimma dag, 7. júní 1940. Frá þeim degi hefir Ólafur krónprinz staðið í fylkingar- brjósti í baráttu Norðmanna utan Noregs fyrir að endur- heimta frelsið. Hann hefir talað máli Nor- ,egs bæði í Bretlandi og Banda- ríkjunum og notið í þeim efn- um góðrar aðstoðar konu sinn- ar, Mörtu, krónprinzsessu. Heimsoknir Ólafs krónprinz til hersveita Norðmanna hafa örvað mjög bardagahug þeirra, og með útvarpsræðum sínum til Noregs hefir hann vakið trúna hjá hinum stríðandi ætt- jarðarvinum heima í Noregi, og tengt þá hinum stríðandi Norðmönnum utan Noregs. í dag senda allir Norðmenn Ólafi krónprinz beztu árnaðar- óskir sínar og þakka honum fyrir hans mikla skerf til frels- isbaráttu Norðmanna. Bretar sðkkva 4 skip om London í gærkveldi. BREZKIR KAFBÁTAR hafa enn sökkti 4 skipum á Miðjarðarhafi. Var eitt þessara skipa stórt herflutningaskip, var það hæft 3 tnndurskeytum og sökk að nokkrum mínútum liðnum. Hitt voru 3 flutningaskip og var eitt þeirra mjög stórt. Þrjú ðnnur skip hafa verið löskuð. Kort þetta sýnir Kyrrahafsvíg töðvarnar. Efst á kortinu sjást Aleuteviar. bar sem Banda- ríkjamenn hafa tekið Attuey nýlega. Skammt frá Ástralíu, neðst á kortinu sést Nýja Guinea þar sem Bandaríkjamenn hafa sett lið á land skammt frá Rabaul. I horninu til hægri er kort af Salomoneyjum, þar sem miklir bardagar standa nú yfir og Bandaríkjamenn hafa tekið nokkrar eyjar. Baodameon ráðast á margar eyjar í S.V. aoar lafa á vaMi ún fSiigvélar skotnas* nidar fjrrir Japðnnm f loftorustum f fyrradag Bandamenn sækja til Saíamaua á Nýju Guineu. LONDON í gærkvöldi. IKVÖLD BARST HERSTJÓRNARTILKYNNING frá aðalbækistöðvum Bandamanna í Ástralíu, þar sem ' sagt er frá því að Bandamenn hafi sett lið á land við vík eina skammt frá Salamaua á Nýju Guineu, þar sem Japanir hafa mikla bækistöð. Sjór var ókyrr þegar Bandamenn settu liðið á land og urðu Japanir ekki liðsins varir fyrr en það var komið á land. Bardagar hafa harnað eftir því sem nær dregur Salamaua. Bandaríkjamenn hafa nú tekið Rendovaey í Saloms- eyjarklassanum. Miklir loftbardagar eiga sér stað stað yfir miðhluta Salomonseyja. Bandamenn hafa nú þeg- ar skotið niður 65 flugvélar fyrir Japönum en misst sjálfir 17 flugvélar. Bandamenn hafa ráðist á Japani á þremur öðrum stöð- um og er litið svo á að hér getið verið um upphafið á meiri- háttar sókn gegn Japönum að ræða. Þegar Bandáríkjamenn réð- ust til landgöngu á Rendovaey sendu Japanir um 100 flugvél- ar af ýmsum gerðum, sprengju, orustu og steypiflugvélar til á- rása á Bandamenn og stóðu loftbardagar yfir frá morgni til kvölds í gær. Aðeins eitt skip Bandamanna var hæft sprengj- um og sökk. Það hafði áður verið búið að setja herliðin á land, sem það flutti. Með töku Rendova geta Bandamenn skotið af fallbyss- um á Munda ,en þar er stærsta flugstöð Japana í nágrenni Guadalkanal. LANDGANGA Á NÝJU- GEORGÍU. Það er nú einnig tilkynnt að Bandaríkjamenn hafi sett lið á land á Nýju Georgíu við Vero, sem liggur um 40 km. frá Mundaflugvellinum og er nú barizt þar af miklum móði og er sagt að bardagarnir gangi Bandaríkjamönnum í hag. Sagt er að Japanir hafi komið upp öflugum víggirð- ingum við Munda. Flugvélar Bandamanna hafa gert miklar loftárásir á Munda óg einnig á Bougainvilleey, — sem er ein Salomonseyjanna og Japanir hafa stóran flugvöll á. ÁTÖKIN Á NÝJU GUINEU Bandamenn hafa að undan- förnu gert miklar loftárásir á Salamaua á Nýju Guineu og þeim hefir að mestu tekizt að hindra birgðaflutnínga til liðs Japana í Salamaua. Markmið Bandamanna heflr lengi verið að hrekja Japani fyrir fullt og allt frá Nýju Guineu og má því búast við körðam átökum þarna, enda var sagt í fréttum í kvöld að Japanir veittu harða mótspyrnu, þó að Bandamenn sæktu nokkuð fram. Bandamenn hafa einnig tek- ið nokkrar eyjar við Nýju Gu- ineu, sem talið er að þeir geti komið sér upp flugvöllum. — Ekki er getið um að japanskt lið hafi verið fyrir á þessum eyjum. Annar eyjaklasinn, sem Bandamenn tóku heitir Trobri- and-eyjar, en hinn Woodlark- eyjar. Þær eru norður og norð austur á Milneflóa. MacArthur stjórnar sókninni á Nýju Guineu, en þessi sókn Bandamanna var undirbúin fyrir tveimur mánuðum af þeim MacArthur og Halsey, flotaforingja, segir í fréttinni. Loftárásunnnn i fyrra- dag befut gegn iSihifey. London í gærkveldi. FLJÚGANDI VIRKI réðust á Palermo á Sikiley í gær. Fluffu þau í eina klukkustund yfimtoprginni, án þess að mæta nokíalfrTÍ mótspyrnu og vörp- uðu niður milclu sprengju- magni, þ. á. m. tveggja smá- lesta sprengjum. Þá var einnig ráðizt í gær og í fyrrinótt á fjóra helztu ílugvelli eyjarinnar. Sagt er frá því í fréttum frá Norður-Afríku, að skipalestir Bandamanna sigli nú stöðugt um Miðjarðarhafið og komi nú Suezskurðurinn aftur að full- um notum. Með þessu stytta Bandamenn siglingaleið sína til Aústurlanda um þúsundir km. Biraal Teriar áfram yfir rnaðnr fraaska lariar- " - - .. ;■ Mríím bersins. LONDON í gærkvöldi. CHURCHILL FLUTTI ræðu í neðri málstofu brezka þingsins í dag, þar sem hann m. a. gerði að umræðuefni af- stöðu Breta til frönsku þjóð- frelsisnefndarinnar í Algier. Hann kvað Breta og Banda- ríkjamenn hafa orðið sammála um, að það væri ekki rétt eins og sakir stæðu að skipta um yfirmenn yfir franska hernum í Norðulr-Afríku. Hafi Eisen- hower hershöfðingi fyrir hönd þeirra tilkynnt de Gaulle og Giraud þetta fyrir alllöngu síð- an. Þetta hafi verið gert af hernaðarlegum ástæðum. Hins- vegar hafi Bandamenn ekki viljað skipta sér af innri stjórn málum Frakka. Churchill sagði, að brezka stjórnin tæki hvorki afstöðu með de Gaulle eða Giraud. — Hún hefði sömu afstöðu til allra meðlima frönsku þjóð- frelsisnefndarinnar. DE VALERA hefir verið endurkosinn forseti Irlands Flokkur hans hefir ekki hrein- an meiri hluta en talið var að verkamannaflokkurinn mundi styðja hann. Bandarlkjamenn senda flefa tli Martlnlqne. Landstjóri Vichistjórnarinnar biðst til víkja vegna yfirvofandi uppreisnar. ------*------ LONDON í gærkvöldi. CORDELL HULL UTANRÍKISRÁÐHERRA Banda- ríkjanna hefir staðfest þá frétt að Robert landstjóri Vichystjórnarinnar á Martinique hafi biðið Bandaríkja- stjórn ásjár vegna yfirvofandi uppreisnar á eynni. Bíðzt hann til þess að láta af landstjóraembættinu, en vill fá Bandaríkjamenn til þess að senda lið til eyjarinnar til þess að stjórnarskiptin geti farið fram á friðsamlegan 'hátt. Flotaforingi Bandaríkja- manna á Karibahafi hefir feng- ið fyrirskipun um að halda til Martinique og gera nauðsyn- legar ráðstafanir þar sem flota- og utanrfkismálaráðuneyti Bandaríkjanna munu leggja honum fyrir. Eins og kunnugt er, hafa Bandaríkin fyrir nokkru slitið stjórnmálasambandi við Mar- tinique regna framkomu Vic- hy landstjórans þar. íbúar eyj- arinnar eru andvígir Vichy stjórninni og hafa því verið á öndverðum meiði við fram- komu landstjórans. Það er talið víst, að Mar- tinique, sem er eina franska nýlendan, sem enn er undir yf- irráðum Vichystjóranarinnar verði nú sett undir stjórn frönsku þjóðfrelsisnefndarinn- ar í Algier.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.