Alþýðublaðið - 02.07.1943, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 02.07.1943, Blaðsíða 4
Föstudagur 2. júlí 1943- ALÞYÐUBLAÐIÐ j^tjnjðnbUðtð Útxetandl: Alþýðuflokfenrlnn. BiUrtjórl: Stefán Fétnrss'on. Rltstjóm og afgreiðsla í Al- þýðuiiúsinu við Hverfisgötu. Símar ritstjórnar: 4901 og 4902. SUnar afgreiðslu: 4900 og 4808. Verð í lausasölu 40 aurs. Albýöuprentsmiöj an h.f. Ósigur atvinDumála- rððberrans. ÞVÍ mun verða fagnað, ekki sízt >á meðal sjómanna og útgerðarmanna, að það hefir nú loksins orðið ofan á, að síldar- verksmiðjur ríkisins skuli kaupa bræðslusíldina í sumar föstu verði fyrir 18 krónur málið eins og í fyrra og eins og einkaverksmiðjurriar hafa einnig ákveðið að gera í sumar. Sjómenn og útgerðarmenn máttu sannarlega ekki við því, að bræðslusíldarverðið yrði lækkað frá því í fyrra, samtímis því sem dýrtíðin og með henni allur útgerðarkostnaður, hefir vaxið stórkostlega.. Og það er á- kaflega erfitt að sjá, hvernig síldarverksmiðjur ríkisins hefðu heldur mátt við því, að bjóða lægra verð fyrir bræðslusíldina og gera sig á þann hátt ósam- keppnisfærar við þær. Það verður yfirleitt að teljast stór- furðulegt, að atvinnumálaráð- herranum skyldi detta annað eins í hug og að það skyldi kosta þrálát átök og íhlutun þriggja stjórnmálaflokka, að fá hann ofan af slíkri fásinnu. Framkoma atvinnumálaráð- herrans í þessu máli er yfirleitt alveg einstakt hneyksli. Hann byrjar á þeim sjálfbyrgings- skap, að brjóta hefðbundnar venjur um ákvörðun bræðslu- síldarverðsins og hafa að engu tillögur meirihlutans í stjórn síldarverksmiðja ríkisins, sem raunverulega hefir alltaf ráðið því. Hann ákveður upp á sitt eindæmi, að lækka bræðslu- síldarverðið frá því í fyrra, þó að bersýnilegt sé, að sjómenn og útgerðarmenn þola ekki slíka lækkun og engin ástæða sé til hennar.Og 'svo blint kapp legg- ur hann á það að geta rýrt kjör sjómanna og útgerðarmanna til þess að undirbúa almenna kaup- lækkun, að hann skirrist ekki við að stofna síldarverksmiðj- um ríkisins sjálfum í hættu með því að fyrirskipa þeim að greiða lægra verð fyrir bræðslu síldina en einkaverksmiðjurnar og gera þær á þann hátt ósam- keppnisfærar! Hann lætur sér ekki segjast, þótt meirihlutinn í stjórn síld- arverksmiðj^ ríkisins vari við slíku gerræði og einræðis- brölti. Hann hefir einnig mót- mæli sjómanna og útgerðar- manna að engu. Það er fyrst, þegar sýnt er orðið, að ekki nema einn fjórði hluti þeirra skipa, sem við var búizt, vilja skipta við síldarverksmiðjur ríkisins upp á þau kjör, sem hann hefir ákveðið, og þrír stjórnmálaflokkar hafa skorizt í leikinn til þess að afstýra al- varlegri afleiðingum af oflát- ungsskap atvinnumálaráðherr- ans, að hann loksins sér að sér. Og endirinn er sá, að hann verð- ur að taka allt aftur, sem hann er búinn að segja og gera í mál- inu, og fallast (i það, sem hann í sjálfbyrgingsskap sínum þver- tók fyrir að samþykkja í upp- hafi. Þess munu fá dæmi, að ráð- Frih. á 6. síðu. ' Önnur grein Jóns Blöndals: Hið raunverulega sjálf- stæðismál. ÞÓ AÐ VIÐ leggðum ekkert upp úr þeim tímahúndnu böndum, sem eru á frjálsræði okkar vegna hernámsins og styrjaldarinnar, þá þarfnast ísl. þjóðin einskis frekar hedur en að vakna til skilnings á því, hvað er hennar raunverulega sjálfstæðismál og hver hætta vofir yfir henni, ef hún lætur hallelújamennina frá Þing- vallasamkundunni leiða athygli sína frá þeim voða, sem hún er stödd í með innaptómu glamri um nauðsyn þess að koma nú þegar á einhverju pappírssjálf- stæði. Menn segja: Eru ekki Bretar og Bandaríkjamenn að berjast fyrir rétti smáþjóðanna, hafa þessi stórveldi ekki lýst því yfir að þau muni virða sjálfstæði íslands eftir stríðið? Ég vil engan veginn gera lít- ið úr þessum loforðum stórveld anna, en held að það sé Samt næsta léttúðugt að treysta á þau einvörðungu og í blindni. Ég hef hið mesta traust á Roose- velt Bandaríkjaforseta, sem er sennilega einn af víðsýnustu og vitrustu stjórnmálamönnum nú tímans. En valdaaðstaða Roose velts virðist ekki sérlega örugg, nú þegar gengur honum erfið- lega að koma fram vilja sínum í þinginu og hjá mörgum and- stæðingum hans kveður við talsvert annan tón í utanríkis- málunum, sérstaklega hvað snertir smáþjóðirnar og full- veldi þeirra. Og hversu oft hafa ekki loforð stórveldanna verið aðeins „pappírssneplar“ þegar til átti að taka, eins og Beth- mann Hollweg, kanzlari Vil- hjálms Þýzkalandskeisara, orðaði það, ef stórveldin hafa séð sér hag í því að gleyma loiforðum sínum. Og athugum lítillegh aðstöðu okkar og Bandaríkjanna, sem ráða yfir landi okkar sem stend ur. Bandaríkin hafa fleiri milljónir íbúa heldur en ísland þúsundir, m. e. o. þau eru um það bil þúsund sinnum stærri þjóð en Islendingar. Segjum að þessi risaþjóð telji hagsmunum sínum og öryggi betur borgið með því að hafa að engu óskir þessa litla þjóðarkrílis um sjálf stæði og fullveldi. „Rétt eða rangt, það er föðurland mitt“, sem á hlut að máli, sagði fræg- ur enskur forsætisráðh. og mál- ið var afgert frá hans sjón- armiði. Og verður ekki réttur 120 þúsund manna léttvægur, þegar hann er borinn saman við raunverulega hagsmuni jafn margra miljóna, í hugum þeirra, sem ábyrgð bera á örlögum milljónanna? Þegar við hugleið um þetta og athugum þær stað- reyndir um hernaðarlega þýð- ingu íslands, sem fram hafa komið í þessu stríði, þá ætti að liggja í augum uppi sú hætta, sem við erum í og hversu áríðandi það er að athuga gaum gæfilega hverx það spor, sem við stígum í sjálfstæðismálinu. Og augljósast af öllu er það að vegna öryggis okkar þörfnumst við fleiri vina en stórveldanna þó við óskum einskis frekar, en að öðlast virðingu þeirra og vináttu. Eitt af aðal skilyrðun- um til þess að við getum haldið áfram að vera sjálfstæð þjóð, er það, að okkur takist að vera efnalega sjálfstæðir, að við sé- um menn til þess að stýra fjár málum okkar og atvinnumál- um. En á þessu sviði hefir okk- ur sorglega brostið manndóm undanfarin ár, þrátt fyrir ó- venju góð ytri skilyrði. Hvergi. nokkurstaðar þar sem til hefir frétzt hefir dýrtíð og verðbólga orðið jafnmikil og hér undan- gengin stríðsár. Enn er tími til að bæta að verulegu leyti úr þeim glappaskotum, sem gerð hafa verið, ef þjóðin og full- trúar hennar hafa vit á því að snúa bökum saman í baráttunni gegn dýrtíð og verðbólgu í stað þess að stofna til illdeilna og- flokkadrátta um mál, sem litlu skipta á þessari stundu. En það, sem er mest aðkall- andi, er þó að snúa til öflugs viðnáms gegn þeim þjóðernis- legu hættum, sem stafa af her- náminu. Það viðnám má á eng- an hátt mótast af andúð á þeim einstaklingum, sem í landinu dvelja, það á einfaldlega að vera sjálfsbjargarviðleitni vor til þess að bjarga tungu og menningu frá glötun. En höfum við ekki staðist samskonar raun í mörg hundr- uð ára baráttu við erlend yfir- ráð? Vissulega en þó hefir tung an oft verið hætt komin. Aldrei hafa þó verið búséttir nema nokkur hundruð Danir á íslandi Nú eru sennilega fleiri útlend- ingar en innlendir menn; meiri hluti þess efnis, sem útvarpað er af stöðinni í Reykjavík á íslenzkri bylgjulengd er á ensku. Samt vildu sumir ís- lendingar. þ. á. m. Mgbl., veita hernámsþjóðunum enn víðtæk- ara vald yfir útvarpinu. Kvik- myndahúsin sýna eingöngu amerískar myndir o .s. frv. Sem dæmi um hið fádæma andvaraleysi í þ'essum efnum má nefna fyrrum getin skrif í Mgbl. um aukin kynni við setu- liðið og samskonar tilraunir for- manns Framsóknarflokksins til þess að fá utanríkismálanefnd og flokkana til þess að bei-ta sér fyrir viðlíka kynningarstarf- semi. Þó ótrúlegt megi virðast, þá eru til menn hér á landi, sem sjá ekkert veglegra hlutskipti fyrir íslenzku þjóðina í framtíð inni en að vera einskonar við- hengi hinna enskumælandi þjóða, máske ein ný stjarna í i Bandaríkj afánanum. Slíkir menn eru sem betur fer hreinar , undantekningar og hafa enn þá vit á að hafa lágt um sig. j En hitt hlýtur að vekja furðu ' þegar mikilsmegandi stjórn- j málamenn eins, og formaður | Framsóknarflokksins skrifa á j þann hátt, sem hann gerir í Degi 24. júní. Þar segir m. a. „Þjóðin slítur hin gömlu kúgunarbönd við Norðurlönd (hér er ekki talað um Dan- mörku eina. Ath. J. Bl.) og skapar með festu í framkomu og heiðarlegum viðskiptum föst kynningarbönd við bæði engilsaxnesku stórveldin, sem ráða í lofti og legi yfir Atlantsháfinu, og eru einu þjóðirnar í veröldinni, sem geta verndað ísland og trúa á frelsi og mannréttindi, eins og íslenzka þjóðin hefir gert í þúsund ár.“ (Leturbr. mín- ar). S Unglingar óskast til að bera Alþýðublaðið til kaupenda nú þegar. \ Aíþýðublaðið, s Sími 4900. \ Anglýsinpr, sem birtast eiga J Alpýðublaðinu, verða að vera komnar til Auglýs- ingaskrifstoíunnarí Alþýðuhúsinu, (gengið inn frá Hverfisgötu) fjrir ki. 7 að kvöldí. Slml 4908. Þegar athugnð eru svona skrif og jafnframt að hér er starfandi heill stjórnmálaflokk- ur, sem vinnur að því leynt og ljóst að koma okkur undir á- hrifavald þriðja stórveldisinsP fer sannarlega að vera ástæða til þess fyrir íslenzku þjóðina að vera á verði í sjálfstæðismáli sínu; ekki fyrst og fremst því, hvort hinum formlegu tengsl- um við Dani, sem allir eru sam- mála um að beri að slíta, verði slitið ári eða nokkrum mánuð- um fyr eða síðar, heldur miklu fremur gegn áhrifum stórveld- anna og áróðursmönnum fyrir málstað þeirra,* sem þegar era til vor á meðal. (Þriðja grein eftir Jóm Blöndal um þessi mál birt- ist í blaðinu á morgun). JARNI BENEDIKTSSON vill í ræðu, sem undan- farna daga hefir verið að birt- ast í Morgunblaðinu, ekki við- urkenna, að það sé að brjóta á móti norrænum sambúðarvenj- um, eins og landar okkar í Kaupmannahöfn sögðu í sam- þykkt sinni um sjálfstæðismál- ið nýlega, að ganga formlega frá sambandsslitum við Dani undir núverandi kringunistæð- um og án þess að virða þá við- tals. Bjarni segir, samkvæmt frásögn Morgunblaðsins: „Við skulum einungis líta á síðustu sambandsslitin á Norður- löndum, milli Noregs og Svíþjóð- ar 1905. Þá höfðu Norðmenn oog Svíar átt í áratuga löngum, illvíg- um deilum. Hinn 27. maí 1905 skarst í odda. Þá sagði norska stjórnin af sér vegna ósamkomu- lags við Svíakonurig. í ellefu daga reyndi konungur, hinn ágætasti maður, árangurslaust að jafna á- greininginn eða mynda nýja stjórn. Hinn 7. júní töldu Norð- menn sér eigi fært að bíða lengur, Þá samþykkti stórþing þeirra með samhljóða atkvæðum að sam bandinu við Svíþjóð væri slitið, vegna þess að „konungurinn hefir lýst sér ómögulegt að útvega landinu nýja stjórn og þar sem hin þingbundna konungsstjórn hefir þannig hætt störfum.“ íslendingar höfðu þessa sam- þykkt m. a. til fyrirmyndar 10. apríl 1940. En íslendingar fóru ekki að eins og Norðmenn, að bíða bara í 11 daga eftir því, hvort konungur gæti gegnt þeim störf- um, sem honum er skylt að fara með. íslendingar eru búnir að bíða í þrjú ár og þeir eru reiðu- búnir að bíða í fjögur. Og ætla íslendingar að þessum fjórum árum liðnum fyrst og fremst að bera fyrir sig sömu á- stæðuna og Norðmenn gerðu eftir ellefu daga? Nei. Þeir ætla a5 fylgja þeim tímamörkum, sem sambandssáttmálinn sjálfur, gerður fyrir aldarfjórðungi, ákveður. Segja má, að Norðmenn hafi, gagnstætt Islendingum, farið harkalega að. En hvað hefir frem- ur eflt samvinnu Norðurlanda ens sjálfstæði Noregs?“ í þessum samanburði Bjarna Benediktssonar er um margt þagað til þess, að hann skuli ekki verða að vopni gegn flani Ólafs Thors og félaga hans í skilnaðarmáli okkar við Dani. Svíþjóð var ekki hertekið land, svipt frelsi sínu og í sár- um undir járnhæl erlends her- veldis, þegar Noregur skildi Við hana 1905. Norðmenn áttu stöðug viðtöl við hinn sameig- inlega konung sinn og Svía í Stokkhólmi, svo og viþ sænsku stjórnina fram á síðustu stundu, enda bar enginn þeim það á brýn á Norðurlöndum, að þeir hefðu með framkomu sinni við sambandsslitin brotið gegn norrænum sambúðarvenjum. Og Norðmönnum nægði ekki, að hafa átt drengilegar og ítar- legar viðræður við Svía og hinn sameiginlega konung á undan sambandsslitunum. Þeir sendu auk þess einn sinn þekt- asta mann, Frithjof Nansen, til London til þess að fullvissa sig um álit brezka stórveldisins á því, sem þeir ætluðu að gera. En við, hundrað þúsund sálirn- ar hér úti á íslandi, eigum ekki að þurfa að vera svo hógværir menn. Hvað þurfum við að tala við Dani? Hvað þurfum við að taka tillit til álits fnanna meðal frændþjóða okkar á Norður- löndum yfirleitt? Hvað þurfum við að spyrja Bretland? Nei, það eru nú allt aðrir karlar x krapinu, þeir Ólafur Thors og Frh. á 6. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.