Alþýðublaðið - 07.08.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 07.08.1943, Blaðsíða 3
3 ILaugardagur 7. ágúst 1943. ALÞYÐUBLAÐIÐ Bandamenn fylgja eftir sigrum sinum: last I Kha irkov, 8, 1 terii Þeir lögðu á ráðin. 1 Eisenhower yfirhershöfðingi Bandamanna í Norður-Afríku og Cunningham yfirflotaforingi Bandamanna á Miðjarðarhafi, eru þeir tveir menn, sem mest hafa lagt á ráðin um innrás Bandamanna á Sikiley. Fóru þeir til Malta og stjórnuðu inn- rásinni á Sikiley þaðan. Myndin hér að ofan er tekin af þeim þegar þeir koma frá borði á herskipi því, sem þeir voru um borð í þegar þeir fylgdust með árás flotans á Pantellariu áður en eyjan gafst upp. BandarikjameDn faka Mnnda á Nýjn Georgiu. MACARTHUR yfirhershöfðingi Bandamanna á Kyrra- hafjSívígstöðvumam tilkynnti í dag að Bandaríkja- menn hafi tekið Munda á Nýju-Georgiu. Hinn þýðingar- mikli flugvöllur þar væri í höndum Bandamanna. Sókitin byrjaði fyrir 3 dogum. Þjóðverjar bíða mikið afhroð á und anhaldinu tii Bry- ansk; RÚSSAR gáfu út aukatil- kynningu í kvöld, þar sem sagt er að herir þeirra hefðu hafið sókn til Kharkov fyrir þremur dög- utn og fyrsti árangur þeirrar sóknar hafi verið fall Byelgo rod, sem sagt var frá í gær. Rússar sækja fram á 75 km breiðri víglínu og hafa sótt fram á þessum þremur dögum 25—60 km. Rússar hai'a tekið járnhrautarbæ, sem er aðeins 40 km frá Kharkov'. í þessari sókn hafa Rússar alls tekið 150 bygða staði eru sumir þeirra þýð- ingarmiklar samgöngumið- stöðvar. Þá minnast Rússar í herstjórn artilkynningu sinni í kvöld á sókn þeirra til Bryansk en þang að hörfa þýzku herirnir, sem voru hraktir frá Orel. Segja Rússfir hafa sótt þarna fram um 6—10 km í gær og tekið mikilvægan járnbrautarbæ nokkuð fyrir norðvestan Orel um 100 km. frá Bryansk í öðrum fréttur frá Moskva er sagt frá því að þýzku her- irnir sem hörfa frá Orel til Bry- ansk veri fyrir gífurlegu her- gagnatjóni og megi hvarvetna sjá á undanhaldsleið þeirra urmul eyðilagðra hergagna og brennandi skriðdreka og bif- reiða. Þjóðverjar verða einnig fyrir miklu manntjóni á flótta sínum því Rússar sendi fram léttvopnaðar hersveitir, sem ráðist á þær frá hlið og krói inni einstakar herdeildir og hafi þeir tekið þúsundir þýzka fanga, sem enn hafa ekki verið kastað tölu á. Þá lýsa fréttaritarar í Rúss- landi því hvernig Rússar tókn Byelgord í gær. Fyrst hafi þeir sent fram könnunarflokka til þess að kanna varnir Þjóðverja. Síðan hafi verið sendar fram hersveitir tíl þess að rjúfa skörð í jarðsprengjusvæðin. Síðan hafi stórskotaliðið hafið skót- hríð á borgina og áhlaupa flokk ar ruðst fram. Þjóðverjar gáfu í dag út skýrslu um gífulegt manntjón Rússa í sókn þeirra á Orel og Byelgorodvígstöðvunum að und anförnu. Rússar svörðu þessari skýrslu Þjóðverja í kvöld með því að birta skýrslu um manntjón Þjóð verja og er þar sagt að 110 þús- und Þjóðverjar hafi fallið í bardögunum á rúmum mánuði og 12418 teknir til fanga hinns- vegar segjast Þjóðverjar hafa tekið yfir 6® þúsund rússneska fanga á þessum tíma. Sænska kafbátnnto lllven náð npp. STOKKHÓLMUR. ÆNSKA útvarpið sagði ný- léga, að sænska kafbátn- um Ulven, sem sökkt var í apr- íl síðastliðnum, hafi nú verið náð. Minningarathöfn var hald in í Gautaborg um hina látnu sjómenn að viðstöddum vanda- mönnum og yfirmönnum sjó- hersins. Útvarpið sagði enn fremur, að sérfræðingum hefði einnig • tekizt að finna orsök slySsins. Kafbáturinn rakst á tundur- dufl. Rannsókniu í apríl síðast- liðnum leiddi í ljós að Þjóð- verjar hafa lagt tundurduflum í sænskri landhelgi, þar sem „UIven“ sökk. Útvarpið vitnar í dagblaðið Social-Demokraten í Stokk- hólmi, þar sem það segir að Þjóðverjar hafi ekki varað sænska sjómenn við að koma á tundurduflasvæðið, sem brýtur í bága við alþjóðalög. Enn fremur vitnar það í Social-Demokraten og segir, að svar Þjóðverja við mótmælum Svía í apríl síðastlðinum færi heim sanninn um það, að tund- Bardagarnir á Nýju Georgiu byrjuðu 30. júní s.l. og hafa að minnsta kosti 1700 Japanir þegar fallið í þeim bardögum. Nokkrir einangraðir herflokkar Japana verjast enn á eynni, en herforingjaráð Japana er fíúið í burtu til annarrar eyjar. Með töku Munda fá Banda- menn þý,ðingarmikla bækistöð á suðvestur Kyrahafinu. Geta þeir auðveldlega gert þaðan loftárásir á aðalbækistöð Jap- ana á því svæði, Rabaul á Nýja Bretlandi. Göbbels hefir skýrt írá því að konur og börn hafi verið flutt frá Berlín vegna ótta við loít- árásir á borgina. • * * Göring hefir verið í Ham- borg til þess að kynna sér á- standið í borginni. Kom beint frá bækistöðvum Hitlers á austurvígstöðvunum. urduflum hafi verið lagt fyrir utan hina þriggja mílna land- helgi Svía og rekið inn fyrir hana. Social-Demokraten gerir athugasemd við þetta og segir: „Þetta getur ekki staðizt með tilliti til stöðu strandarinnar og vindsins.“ Miklar loftárásir gerðaráborgina Bandamenn tóku tvo bæi í fyrradag. 8HERINN fylgir eftir • flótta þjóðverja eftir strandveginum frá Catania til Messina og á eftir ófarna um 75 km til þeirrar borgar. Hersveitir 8. hersins, sem sækja fram innar í landinu og tóku Paterno hafa nú 18 km af veginum, sem ligg- ur meðfram Etnaf jalli á valdi sínu. Á miðvígstöðvunum þar sem 7. her Bandaríkjamanna og Kanadamenn sækj fram mæta þeir mjög harðri mótspyrnu Þjóðverja, þeir sóttu þó nokkuð fram s. 1. sólarhring og tóku bæinn Misterbiðano. Harðast er barist við bæinn Troina, þar sem Bandaríkjamenn sækja gegn Þjóðverjum. Eru þer um 10 km frá þeim bæ. 8. herinn hefir tekið Galliano. Bandamenn hafa s. I. sólar- hring gert mjög harðar loftár- ásir á Messina. Wellington flug- vélar gerðu næturárás á ýms hernaðarmannvirki í borginn, fljúgandi virki gerðu loftárás í björtu á borgina og beindu ár- ásum sínum aðallega gegn höfn inni. Var nokkrum skipum sökkt og mikið tjón varð á ýmsum hafnarmannvrkjum. Eru þetta taldar mestu loftárásrnar sem Bandamenn hafa gert á Messina til þessa. Lithning flugvélar fylgdu virkjunum en' Þjóðverj- ar sendu engar orustuflugvélar fram og loftvarnarskothríð þeirra var heldur veik. Messina er eini hafnarbær- nn, sem Þjóðverjar hafa á valdi sínu, sem þeir gætu notað til þess að flytja her sinn og her- gögn frá yfir til Ítalíu. En litl- ar líkur eru taldar fyrir því að þeim takist það vegna þess að flugher Bandamanna er á stöð- ugu sveimi yfir Messinasundi og hefir sökkt mörgum skipum fyrir Þjóðverjum. Loftárásir hafa einnig verið gerðar á staði Ítalíumegin við Messinasund. Finnsk alþýða práir frið. NEW YORK. TRÍÐSFRÉTTARITARI Associated Press, John H. Colburn, sem nýlega er kom- inn til Stokkhólms frá Finn- landi, segir í frétt, sem hann sendi til New York Herald Tri- bune: „Tveir af hverjum þrem Finnum þrá frið nú þegar. Þýzkir hermenn í Finnlandi nema nú um 80 000. Hersveit- ir þeirra hafa aðsetur sín í Lapplandi, og á Petsamo-land- svæðinu í Norður-Finnlandi, og lítils háttar flugher og flota í Suður-Finnlandi. Raymond Clapper: Loftsðkn mnnknýja Itali til nppgjafar. VEGNA ÞESS AÐ HIN nýja stjórn á Ítalíu notaði ekki tækifærið, sem við gáf- um henni með því að draga úr loft árásum okk- ar á Ítalíu til þess að semja frið liggur ekki annað fyrir Bandamönnum en að hefja miklar loftárásir á landið. Við aðvöruðum ítali með flugblöðum í byrjun fyrstu árásar okkar á Rómaborg. Síðan gerðu flugvélaar árás- ina í björtu án þess að nokk- ur veruleg mótspyrna væri veitt. Frá Sikiley geta Banda menn nú ge^t miklu öflugri loftárásir á Ítalíu heldur en þeir hafa gert frá Norður- Afríku. LOFTÁRÁSIR Bandamanna á Ítalíu hafa nú þegar haft þau áhrif að ítalir vilja gefast upp. Ef ítalir halda þeir geti unnið á tímanum þá er það misskilningur. Eins og Banda menn tilkynntu ítölúm fyrir nokkru geta þeir gefist heið- arlega upp. Vissulega er engin ástæða til þess að veita neinar undanþágur. Ósigur Italíu virðist óumflýjanleg- ur. ÞAÐ KANN AÐ VERA að slag- orð okkar ,,skilyrðislau upp- gjöf“ hafi hrætt suma menn í Róm frá því að fara fram á vopnahlé. Þess vegna hafa Bq.ndamenn notð orðið „heið- arleg uppgjöf“. En ég sé ekki að mikill mismunur sé á þessu. STJÓRN BADOGLIOS hefir það hlutverk að koma Ítalíu út úr stríðinu. Allar fréttir, sem berast frá Ítalíu bera það með sér að ítalir heimta að bundin verði endir á þátt- töku Ítalíu í styrjöldinni og þessar kröfur almennings munu enn vaxa þegar Banda menn hefja loftárásir sínar gegn Ítalíu, sem munu gera Itölum lífið enn erfiðara en Mussolini nokkru sinni gerði þeim það. ÍTALIR ERU HAMINGJU- SAMIR að hafa tækfæri til þess að hverfa aftur til hins frjálsa heims. Hernám Sikil- eyjar hefir verið fagnað af íbúunum þar. Það er þýðingarmikið hvernig haldið er á stjóm- inni meðan verið er að skapa aftur jafnvægi í löndum sem Bandamenn hernema. Eg held að Bandmenn hafi farið rétt að á Sikiley þegar þeir völdu mann eins og Charles Poletti til þess að hafa stjórnina á hendi. Hann er ekki hermaður heldur reyndur embættismaðgur í Ameríku og er sjálfur af ítölskum ættum og talar ítölsku ágætlega.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.