Alþýðublaðið - 25.09.1943, Blaðsíða 6
ALÞVðUBLAÐIÐ
Laugardagur 25. sept. 1943.
Tilkynning frá Alþýðusambandi íslands.
Námskeið
Alþýðusambands íslands fyrir meðlimi sambandsins, hefst
í Reykjavík 2. nóvember n.k. — Umsóknir sendist skrif-
stofu sambandsins fyrir 25. okt. n.k.
Alþýðusamband íslands.
Vörubílaeigendur.
Höfum fengið ágætis tegund (Gar Wood)
vökvasturtur.
HEILDSALAN H. F.
Túngötu 6.
Símar 5355 og 4126.
Stúlkur vantar á Hótel Borg.
Góð kjör. Herbergi getur komið til greina.
Upplýsingar í skrifstofunni.
UANNES A HORNINU
Frh. af 5. síðu
fólkið niður á við til hinna frum-
stæðari dýra.“
RUNKI í RAUÐHÓLUM skrifar
í dag: ,,Ég skrapp upp að Baldurs-
haga í bráðabýtið í morgun í veg
fyrir Alþýðublaðið til þess að sjá,
hvernig kollega mínum á mennta-
málasviðinu, Hannesi á Horninu,
hefði tekizt að ráða fram úr hug-
dettum þeim löllum og ýmislegum
málfræðiskellum, er ég sendi hon-
um í kunningjabréfi mínu hérna á
dögunum til þóknanlegrar athug-
unar, og sá ég þá, að smávegis
kórvillur höfðu komizt þar að í
prentsmiðjunni, línurugl og þess
konar, sem Hannes minn mun þó
ekki hafa átt neina sök á, því
„þeta getur komið fyrir á allra
beztu bæjum“, . eins og karlinn
sagði.“
„AÐ ÞESSU SINNI vildi ég að-
eins drepa á (það á þó ekki að
vera nein ádrepa) eitt orð, sem
ekki komst að í síðustu hugdettum
mínum sökum þess, að það þurfti
nokkurra skýringa við og útlist-
unar, svo treggáfuðum mönnum
tækist að finna út (útfinning mundi
það verða nefnt á voru máli) hvað
það þýðir. — Annars er útfinning
ekki lakari en útþynning, uppfinn-
ing, útsynningur eða útræna, hjá-
ræna o. s. frv., svo að þetta er eitt
hið bezta nýyrði, sem ég hefi fund-
ið nýlega, og er allur réttur áskil-
inn með notkun þess). Já, — þetta,
sem ég nú vildi benda á, er það,
að meðal hinna meiri háttar
sjávardýra er hvalstegund ein, er
gómskella heitir — bætist þá enn
ein skellan við! — og var hún svo
herkæn, að hún lætur neðri skolt
sinn nema við yfirborð sjávarflat-
arins, en efri skoltinn lætur hún
standa lóðrétt upp úr sjónum.
Verði \nú einhverjum það á, að
ráa báti sínum eða skipi yfir neðri
skoltinn, skellir hún þeim saman
og gleypir svo - „heila dótið“,
„menn og mús“.
„EN SVO HEFIR og orð þetta
víðtækari þýðingu: Það er oft
notað til þess að sýna munnferðið
(er þetta ekki nýyrði?) á' þeim,
sem skrafa mikið (sbr. skerrjála
eða skrafskjóða, sem einhver var
að fræða oss um í útvarpinu í
fyrra og taldi það víst þá, að eng-
ínn skildi). Ekkert leiðrétti hann
þó af þessu né skýrði, þótt þess
væri full þörf.“
„EFTIR ÞESSU virðist mér því,
að gómskella og skerrjála geti
táknað eitt og hið sama, og svona
getur það verið um ýmsar dettur
og skellur, eins og áður var að
vikið í hinni fyrri vísindalegri rit-
gerðinni, sem aðeins var byrjun,
en engin endalok, á hugdettum
mínum. Nógu er af að taka, og
það veitir ekki af, þótt fjólurnar
séu tíndar upp úr öllum arfanum
og illgresinu, sem hinir spreng-
lærðu garðyrkjufræðingar vorir
hafa sáð í hinn frjósama málfræði-
matjurta gróðrarreit vorn.“
„FJÓLURNAR kvað mega
rækta í jurtapottum heima hjá sér,
og verða þær þá einna fallegastar,
einkum ef að þeim er borin ein-
hver stjórnmálamykja, en hana er
ekki að finna hérna í Hólunum
hjá mér, síðan þeim var umturn-
að og velt niður í vegina hér í
kring.“
Illa farið með
gott mál.
Frh. af 4. síðu.
bandalaginu eins og til þess er
stofnað. Ekki vegna þess, að
það telji ekki, eins og komizt er
að orði í samþykkt, sem gerð
var á nýafstöðnu þingi þess,
nána samvinnu við Alþýðusam-
bandið mjög mikilsverða og
æskilega, héldur vegna hins, að
það telur slíka samvinnu að-
eins hugsanlega „á hreinum
stéttargrundvelli launþegasam-
takanna, óháð öllum pólitísk-
um flokkum“. En auk þess tel-
ur það þátttöku af sinni hálfu
í þeim samtökum, sem fyrir-
huguð eru, ekki geta komið til
greina, nema samkomulag yrði
gert um stefnu þeirra milli þess
og Alþýðusambandsins.
Eins og sjá má á þessum und-
irtektum opinberra starfs-
manna, blæs ekki byrlega fyrir
hinu fyrirhugaða bandalagi
hinna vinnandi stétta; enda er
það varla von eftir að komm-
únistar eru með flokkspólitísk-
an ávinning fyrir augum búnir.
að falsa hugmynd þess eins og
hér hefir verið lýst. Þeir hafa
sannarlega haft lag á því að
spilla fyrir góðu málefni.
Soffia Ingvarsdóttir:
Kvennaheimilið Hailveiprstaðir.
ÞAÐ er alllangt síðan nokkr-
ar framtakssamar konur
vöktu athygli á því, að brýn
þörf væri á, að hér í Reykjavík
risi upp dvalarheimili og gisti-
hús fyrir aðkomukonur. í þeirri
stofnun ættu jafnframt að vera
salarkynni fyrir fundi og sam-
komur hinna ýmsu kvenfélaga
bæjarins.
Sókn þessa góða máls hefir
verið helzt til hægfara. Þó er nú
ýmislegt búið að gera þessu
máli til undribúnings og ber
það að þakka.
Kvennaheimilið Hallveigar-
staðir h.f. var fyrst stofnað til
fjáröflunar í þessu skyni og
öfluðust með hlutabréfasölu
rúmar 43 þús. kr. Enn fremur
á félagið nú til umráða tvær
af glæsilegustu byggingarlóð-
um bæjarins. Þessar lóðir eru
samliggjandi og takmarkast ai
Öldugötu, Túngötu og Garða-
stræti. Auk þess er til í Hall-
veigarsjóði um 50 þús. kr. Nú
síðast hefir stjórn Kvenna-
heimilisins Hallveigarstaðir h.
f. leitað samstarfs við kvenfélög
bæjarins. Hafa formenn þeirra
flestra skrifað undir áskorun
til alþingis um að veita á fjár-
lögum 1944 styrk til byggingar
Hallveigarstaða, sem notaður
yrði þegar batnar í ári með
byggingarefni.
Kvennaheimili eru okkur
mörgum að góðu kunn. Þau
tíðkast í ýmsum borgun ná-
grannaþjóða okkar og þyrftu
Hallveigarstaðir sízt að vera
eftirbátur þeirra hvað notagildi
og fyrirkomulag snertir
Hér á landi eins og annars
staðar streyma ungar stúlkur
til náms og dvalar til höfuð-
borgarinnar. Það væri góð
trygging umhyggjusömum for-
eldrum, er senda dætur sínar
frá sér, ef þeir vissu, að þær
gætu átt athvarf í slíkri stofn-
un undir reglubundinni umsjá,
en þyrftu ekki að láta tilviljun
ráða hvar þær koma til með að
búa.
Hér er mikill hörgull á við-
unandi og viðráðanlega dýrum
gististöðum. Mikill fjöldi
kvenna utan af landi sækir
höfuðborgina tíma og tíma bæði
til að leita hér sérfróðra lækna
og ýmsra annarra erinda vegna.
’Þessum konum myndi þykja
slíkt kvennaheimili ákjósanleg-
ur samastaður. Húsmóðir að
austan og húsmóðir að vestan
hafa' gott af því að kynnast og
tala saman. Innan þeirra verka-
hrings gera vart við sig sam-
eiginleg vandamál.
Síðast en ekki sízt hefir það
mikla þýðingu fyrir kvenfélög-
in hér í Reykjavík, að þau geti
fengið samastað fyrir fundi
sína og samkomur. Það hefir
þráfaldlega sýnt sig, að kven-
félög hafa verið frumkvöðlar að
ýmsum menningar- og fram-
faramálum. Það er því í engu
ómerkt að styðja félagslíf
kvenna. Meðlimir hinna ýmsu
kvenfélaga og kvenfélögin í
heild ættu því að ganga vel
fram og styðja mál Hallveigar-
staða bæði í orði og verki.
Á morgun, sunnudaginn 26.
sept., verður hér merkjasala til
ágóða fyrir hið væntanlega
kvennaheimili. Kvennaheimilið
Hallveigarstaðir á að bera eins
og kunnugt er nafn Hallveigar,
konu Ingólfs Arnarsonar. Án
efa vilja allir Reykvíkingar
sýna minningu hinnar fyrstu
reykvísku húsfreyju þann sóma
að kaupa merki dagsins og gera
þannig sitt til að Hallveigar-
staðir fái sem fyrst risið upp
og með sem mestum sóma.
Soffía Ingvarsdóttir.
S
DAGSBRÚN.
Félagsfundur
verður haldinn sunnudaginn 26. september nk. kl. 4 sd.
í Iðnó.
DAGSKRÁ:
1. Erindi: Atvinnuhorfur eftir stríð: Sigfús Sigurhjartarson ^
aljþingismaður.
2. Félagsmái: Atvinnuhorfur í vetur, næturvinnan við
höfnina o. fl.
3. Dýrtíðarmálin og starf sex-manna-nefndarinnar: Þor-
steinn Péturssou og Þóroddur Guðmundsson. alþingism.
Verkamenn, fjölmennið og mætið stundvíslega.
St jórnin.
AU6IÝ5IÐ I ALÞÝDUILAÐINU
Áuglfsing
um hámarksverð.
Með tilliti til árstíðarsveiflna á verði eggja hefir Við-
skiptaráðið ákveðið eftirfarandi hámarksverð á eggjum frá
og með 25. september 1943.
í heildsölu ...... Kr. 14,60
í smásölu ........ kr. 17,20
Með auglýsingu þessari er úr gildi fallin tilkynning
Viðskiptaráðsins um hámarksverð á eggjum, dags. 30. apríl i
síðastliðinn. ^
Reykjavík, 24. sept. 1943.
Verðlagsstjórinn.
s
s
s
s
S
'V;.
FlmmtuB idag:
Frfi Gnðrún Sigirðar-
dóttir Hofsvallag. 20
ÞAÐ er ekki vegna þess,
Guðrún mín góð,
ég grátlega finn og skil,
að eg er ei fær um að yrkja það
ljóð,
er unnið hefirðu til.
En til þess fór ég að byrja
braginn,
að bjóa þér: góðan daginn.
Þín æfisól heldur úr hádegis-
stað,
en hvergi er á lofti ský.
Þótt ártalið væri — ég veit
ekki hvað,
þú værir jafn ung fyrir því.
Æskuna berðu á brá og í orðum
og brosið er hlýtt eins og
forðum.
Þú valdir ung þinni orku svið
og ei er það tilviljun nein,
áð þú hefir kosið að leggja því
lið,
er læknar hin sárustu mein.
Haf þökk fyrir allt, er þú veittir
í verki
til vegs fyrir Reglunnar merki.
Haf þökk fyrir samúð og hlýja
hönd,
er hefir þú smælingjum rétt.
Haf þökk fyrir vilja og
„vakandi önd“,
er vannstu í hag þinni stétt.
Haf þökk fyrir ástúð og
umhyggju þína,
er angruðum vildir þú sýna.
Að síðustu þakka ég svo fyrir
mig,
fyrir sérhverja hlýja stund.
Mér var það gróði að þekkja
þig
og þína göfugu lund.
Hvað vel er unnið þín sýnir
saga.
Sæl vertu alla daga.
Guðrún Árnadóttir
frá Oddsstöðum.
Grein Clappers.
Frh. af 3. síðu.
aðstoða ekki við endurvopn-
un Þýzkalands eða annarra
árásarþjóða með því að selja
þeim efni, sem mnu verða
neituð þeim annars staðar.
í SKÝRSLU SINNI gaf Roose-
velt í skyn, hve mikið þarf til
þess, að vinna sigur í nútíma
hemaði. Sem betur fer fyrir
frjálsa menningu, þá eru okk-
ar megin í baráttunni jafn
voldugar iðnaðarþjóðir og
Rússland, Stóra-Bretland og
Bandaríkin. Án þeirra væri
ástandið í Svíþjóð, Sviss,
Tyrklandi, Spáni og meðal
fjölda annarra þjóða ef til
vill enn verra en í Danmörku
nú se mstendur.