Alþýðublaðið - 01.10.1943, Síða 3

Alþýðublaðið - 01.10.1943, Síða 3
Föstudagur X. október 1943, Rickenbacker nm rússneska flngberinn EDWARD V. RICKEN- BACKER kapteinn bar mikið lof á rússnesku flugmenn ina er hann kom aftur heim úr för til vígstöðvanna, en á ferðalagi sínu dvaldist hann 21 •dag í Rússlandi. Rickenbacker komst þannig að orði, „að rússnesku flug- mennirnir væru frábærir flug- menn“, en Rickenbacker var sjálfur flugmaður í síðustu styrjöld, rataði í ýmis ævintýri og gat sér mikinn orðstír fyrir margar hetjudáðir. Hann lét þess getið, að sér hefði gefizt þess kostur að kynna sér loftvarnir Moskv'a og kvaðst skilja vel, hvers vegna Þjóðverjar hefðu ekki gert loft- árás á hana árlangt. Hann sagði: „Flugvéla- og loftvarna- .styrkur Rússa er ótrúlega stór- fenglegur. Flugvélar og ýmis konar hergögn frá Bandaríkj- unum eru mikils metin í Rúss- landi, enda kunna Rússar vel með tæki þessi að fara.“ Hann réðist til farar þessarar sam- kvæmt tilmælum Henry L. Stimsons hermálaráðherra. I| gerð fEotninga- skipa i D. S. L f ÍTIL flutningaskip eru nu smíðuð x tugatali í skipa- smíðastöð nokkurri í suðurhluta Bandaríkjanna, segir í fregn frá Washington. Upphaflega var svo til ætlazt, að skipasmíða- stöð þessi byggði “Liberty“- skip. Liggja nú fyrir heiðnir um hundrað flutningaskip þess- arar tegundar og á að hleypa að aneðaltali tveimur af stokkun- um þriðja hvem dag. Þetta verða fyrstu skipin af þessari stærð, sem enn hafa verið framleidd til styrjaldar- nota. Skipin verða 51,80 metr- ar að lengd með 2,45 metra ölduskurði og 500 smálesta þurðarmagni. Á að nota skip þessi til þess að flytja hergögn til hafna, sem eru of grunnar til þess að við verði komið venjulegum flutningaskipum. Loftárás á Bockum. llnnio á stoðvar Þjóðverja í Frabblandi og Níðurlðndnm. BREZKAR flugvélar fóru til árása á meginlandið í fyrrinótt og heindu einkum sókn sinni gegn Ruhrhéraðinu. Mest árásanna var gerð á Bockum, einhverja mestu kola- og járnframleiðsluborg Þýzka- lands. f Bockum eru tmnin 30% kola þeirra, sem unnin eru í Ruhrhéraðinu. í Bockum eru einnig miklir olíugeymar, og iðnaðarframleiðsla fer þar fram í stórum stíl. f júnímánuði s.l. voru 700 byggingar í Bockum lagðar í rústir í loftárás Breta. Aðrar brezkar flugvélar fóru til árása á stöðvar Þjóðverja í Frákklándi og á Niðurlöndum. ALÞYOUBiLAÐIÐ 3 • Rússar halda áfram sókninni í Hvíta Rússlandi. Sækja þeir þar fram í.þrem fylkingarörm- um sem fyrr og stefna til borg- anna Vitebsk, Orsha og Mohilev sem hafa verið takmörk sóknar þeirra í Hvíta Rússlandi frá því að hún hófst. Voru hersveit- ir þeirra í gær um 60 km frá Orsha og um 40 km frá Mohilev Er framsókn Rússa á þessum slóðum því hröð, því að víð- áttur eru miklar í Rússlandi, svo sem alkunna er, og auk þess torsótt, því að, þýzki herinn verst af mikilli hörku. Rússnesku hersveitirnar hafa einnig bætt aðstöðu sína við Gomel. Hafa þær brotizt yfir Sojfljótið, sem er mikil þverá Dniepr, norður af borginni. Rússar leggja mikla áherzlu á sókn sína til Gomel, enda er hún mjög mikilvæg borg, og tefía fram miklum mannafla og hergögnum í átökunum þar. Lokaorrustan um Kiev er nú hafin. Hafa hersveitir Rússa náð á vald sitt eyju í Dniepr- fljóti gengt Kiev og halda uppi ægilegri stórskotahríð á horg- ina. Hafa þeir hrakið hersveit- ir Þjóðverja allar af austur- bakka fljótsins og leggja nú ofurkapp á að komast yfir það og ná Kiev hið fyrsta á vald sitt. Kremenehug, sem skýrt var frá í gær, að Rússar hefðu brotizt inn í, er nú öll á váldi þeirra. Voru bardaganir um þá borg mjög harðir og veittu Þjóð verjar þar harfengilegt viðnám. Rússar hafa mjög tamið sér þá herstjórnaraðferð í sókn sinni að undanförnu að umkringja borgir þær, er þeir hugðust taka áður en þeir réðust til atlögu við þær. En í orrustunni um Kremenchug breyttu þeir ‘um sið. Hófu þeir fyrst ægilega stórskotahríð á borgina og tóku hana því næst með snöggu og öflugu áhlaupi. Brutu þeir varn ir Þjóðverja þar á skömmum tíma og náðu gervallri borginni á vald sitt. Kremenchug er mjög mikilvæg borg og stendur við Dneipr nær miðrar leiðar mill- um Kiev og Dniepropetrovsk. Sókn Rússa á ströndum Gerðu þær mikinn usla í atlög- um sínum. Aðeins átta hinna brezku flugvéla áttu ekki aftur- kvæmt til stöðva sinna. Q ÓKN rússnesku hersveit 'K-' anna í Hvíta Rússlandi miðar vel áfram og beinist sem fyrr að Vitebsk, Orsha og Mohilev. Rússar hafa brotizt yfir Sojfljótið norð- ur af Gomel og sækja þar fast fram. Lokaorrustan um Kiev er hafin og halda Rússar uppi ægilegri stór- skotahríð á borgina úr eyju í Dniepr. — Kremenchug er öll á valdi rússneska hersins, og var hún tekin með snöggu áhlaupi. Miklir bardagar eru háðir um Meli topol við Azovshaf. 5. herinn oálgast Napoli óðum. Sékis 8. hersiras ©n fiughersiras heldus* áfrusra. pT HERINN sækir fram á Napolisléttunni og nálgast borgina óðum. Síðasta vamarvirki Þjóðverja sunn- an við Napoli er við Vesúvíus, og er þar nú barizt af mikilli hörku. Áttundi herinn hefur enn sótt fram á austurströnd- inni og hefur tekið þar bæinn Monfredonia. Eisenhower og Badoglio sátu ráðstefnu saman í gær. Loftsókn banda- manna á Italíu og Korsíku heldur áfram með ágætum árangri. VIÐ NAPOLI Fimmti herinn sækir fram eftir Napolisléttunni og nálgast borgina óðum. Þó verjast Þjóð- verjar enn við Vesúvíus og sækja bandamenn fast að stöðv- um þeirra þar eftir að hafa náð Pompeii á vald sitt. Eru stöðv- ar Þjóðverja við Vesúvíus síð- asta virki þeirra sunnan við Napoli. Hins vegar eru varnar- skilyrði þar góð, enda verst þýzka liðið mjög vasklega. Bandamenn tefla fram miklu liði í átökum þessum og virð- ast leggja ofurkapp á sóknina til Napoli. Var talið í gær- kveldi, að fimmti herinn hefði treyst aðstöðu sína vel á þess- um slóðum í gær. Azovshafs miðar vel áfram, óg eru nú miklir bardagar háðir um Melitopol, sem stendur við I járnbrautina millum Sevasto- I pol og Zaporoshe. Veita Þjóð- verjar þar öflugt viðnám, enda er þeim ókleift að koma liði sínu brott frá Krímskaga, ef Rússum tekst að ná borg þeirri og járnbraut á vald sitt. Taka Napoliborgar mun reyn ast mikilvægur sigur fyrir bandamenn í sókn þeirra á ít- alíu. Að sönnu hafa Þjóðverj- ar nær lagt borgin í rústir — einkum höfn hennar eins og getið hefir verið í fregnum að undanförnu. Hins vegar hefir löngu sannazt, að vinnuflokkar herja bandamanna eru í senn skjótvirkir og gagnvirkir. Hafa þeir lokið viðgerðum á höfn- um borgá, er bandamenn hafa náð á vald sitt, á ótrúlega skömmum tíma, þrátt fyrir miklar skemmdri. Bandamenn munu telja sig það miklu skipta að hafa sem bezt not af Napolihöfn og leggja því áreið- anlega mikla áherzlu á endur- bætur hennar, er þeir hafa tekið borgina. Á AUSTURSTRÖNDINNI Áttundi herinn heldur áfram sókn sinni á austurströndinni eftir töku Foggia og héfir tekið bæinn Manfredonia, sém er um 22 km. frá Foggia. Leggur hann mikla áherzlu á að treysta aðstöðu sína á þessum slóðum sem bezt. Þjóðverjar láta hvar- vetna undan síga á vígstöðvum þessum, en undanhald þeirra er skipulagt og viðnám þeirra hið vasklegasta. Beita þeir mjög stórskotaliði sínu í bardögun- um og einnig til þess að endur- skipuleggja hersveitir sínar og veita þeim sem bezta hlíf á undanhaldinu. AÐRAR FREGNIR Eisenhower og Badoglio sátu verja borið mikinn árangur. ráðstefnu saman í gær. Er tal- ið, að þeir hafi rætt um hern- aðinn gegn þýzku hersveitun- um á Ítalíu og sókn banda- manna þar á næstunni. Veðurskilyrði voru mun hag- felldari á Ítalíu í gær en verið hefir undanfarin dægur. Heldur flugher bandamanna hvarvetna uppi öflugri sókn, en þýzks flugliðs gætir þar ekki, svo að talizt geti. Hafa loftárásir bandamanna á stöðvar Þjóð- Fréttaritarar, sem dveljast með hersveitum bandamanna á Ítalíu, kveða þannig að orði, að hin sex daga orusta um fjöllin á Salernovígstöðvunum hafi verið mjög hörð. Segja þeir, að þýzkir fangar, einkum hermenn úr Hermanns Görings herfylk- inu fræga, hafi verið mjög þjakaðir og örmagna á líkama og sál. Á tímabilinu 8.—20. sept. féllu, særðust og týndust 5211 hermenn af liði Breta á Ítalíu, og Stimson hermálaráð- hei’ra hefir tilkynnt, að 3500 hermenn hafi fallið, særzt og týnzt af liði Bandaríkjamanna á Ítalíu á fjórum dögum, þegar bardagarnir þar voru grimm- astir. Sókn bandamanna á Ko’rsíku miðar vel áfram og hefur flug- herinn sig þar einkum í frammi. Franskur flugher tekur nú þátt í bardögunum þar, og skutu franskir flugmenn niður sex þýzkar flugvélar yfir Korsíku í gær. Mynd .þessi er frá Sikiley hinni fögru og sögufrægu eyju, sem bandamenn gerðu innrás í, er þeir hófu sókn sína gegn ítalíu. Hér sjást íbúar búast á brott, enda var baráttan um eyjuna hörð og hlutur íbúanna í borgum þeim, sem um var barizt að vonum slæmur

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.