Alþýðublaðið - 01.10.1943, Side 7

Alþýðublaðið - 01.10.1943, Side 7
Föstudagur 1. október 1943. AL&YÐU&L/KÐI& Bœrinn í dag.\ Næturlæknir er í Læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er i Iðunnarapó- teki. ÚTVARPIÐ: 20.30 íþróttaþáttur í. S. í. 20.45 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 13 í C-dúr eft- ir Mozart. 21.00 „Úr handraðanum" (Sveinn Sigurðsson ritstjóri.) 21.20 Symfóníu-tónleikar (pl'ötur) Tónverk eftir Brahms: a) Píaón-konsert nr. 2. b) Sorgarf orleikur inn. 22.20 Fréttir. Berklavöm biður alla þá, sem ætla að aðstoða við söluna á sunnudaginn kemur að koma til viðtals í Lækjargötu 10 B, skrifstofu S. B. S. kl. 8% í kvöld. Hjónaband. Ungfrú Lilly Knudsen og Þór- hallur Ásgeirsson, sendiráðsfull- trúi í Washington, verða gefin saman í hjónaband á sunnudaginn kemur, 3. október. Utanskrift þeirra um helgina er: 931—82nd Street, Brooklyn, New York. Gagnfræðaskóli Reykvíkinga verður settur í baðstofu Iðnaðar- manna í dag 1. október kl. 2 e. h. íþróttaskólinn tekur til starfa í dag. Rýja 6 nanaa nefnd- in er byrjað að starfa Steingrfiflur Steinpörsson Iíos- inn formaður hennar. "WÆ I N N Ý J A 6-manna ■0- nefnd er byrjuð að starfa, og hélt hún fyrsta fund sinn í fyrradag. Á fyrsta fundinum var Steingrímur Steinþórsson kjör- inn formaður nefndarinnar, en Hermann Guðmundsson rit- ari. Auk þeirra éiga sæti í nefndinni: Sæmundur Ólafsson, Þóroddur Guðmundsson, Jón Hannesson, Pétur Bjarnason. Nefndin mun halda áfram störfum sínum viðstöðulaust. Drjár Ijóðabœkir eftir saiea höinnd. Kolbeio Högsason, fyrruoi bónda i Kollaíirði. SEXTUGUR MAÐUE, sem aldrei hefir gefið neitt út eftir sig, en er þó fyrir löngu orðinn þjóðkunnur fyrir ljóð sín og lausavísur, sendir frá sér (á forlagi Ísafoldar- prentsmiðju) þrjár ljóðabækur, sem allar eru um 500 blaðsíður að stærð. Þessi maður er Kolbeinn Högnason, sem í áratugi hefir verið bóndi í Kollafirði, en hætti búskap í haust og flutt- ist hingað til Reykjavíkur. j Þessar ljóðabækur heita „Kræklur“, „01nbogabörn“ og „Hnoðnaglar“. í ,,Kræklum“ •sueq ansiAesnex nao „uinjgou og ,,01nbogabörnum“ eru hin lengri kvæði hans, en í „Hnoð- Þeir samlagsmenn, sem réttinda njóta í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur og óska að skipta um lækna frá næstu ára- mótum, snúi sér til skrifstofu samlagsins, Tryggvagötu 28, fyrir 1. nóv. n.k., og liggur þar frammi listi yfir lækna þá, sem valið er um. Læknaskipti geta því aðeins farið fram, að samlags- maður sýni skírteini sitt, og skírteini beggja, ef um hjón er að ræða, enda verða þau að hafa sömu lækna. Sjúkrasamlag Reykjavíkur. 10 mípófna ferðir hefiast í dag. Frá kl. 13 á Njálsgötu, Gunnarsbraut og Sólvelli. : Ferðir á Njálsgötu og Gunnarsbraut frá kl. 7.04 til kl. ■ 13 á 12 mínútna fresti. Frá kl. 13 til 24 á 10 mínútna, fresti. S Ferði á Sólvelli frá kl. 7—13 á 12 mínútna fresti. Frá $ kl. 13 til 24 á 10 mínútna fresti. ■ \ Strætisvagiiar Reykjavikur h.f. ■ víðkunnasta vísindamanna og fjölhæfasta rithöfund þjóðarinnar. Fæsf r nýtízku skinnbaeidi. SKOLARNIR Frh. af 2. síðu. Gagnfræðaskóli Reykjavíkur verður settur mánud. 4. þ. m. Er ekki hægt áð setja skólann fyrr vegna aðgerða á skólahús- næðinu. En þar dvöldust í sum- ar verkamenn í hitaveituvinn- unni. — Skólann sækja á kom- andi vetri fast að 300 nemend- ur eins og undanfarna vetur. En um 100 nemendur hafa orðið frá að hverfa vegna skorts á húsnæði. Stýr\rr'r’'~ — -^ólinn verður settur kl. 2 í dag. Um 70 nem- endur sækja skólann. Verzlunarskólinn verður sett- ur í Kaupþingssalnum kl. 2 í dag. Skólann sækja í vetur um eða yfir 300 nemendur. Er það svipuð aðsókn og í fyrra. Fleiri nemendum getur skólinn ekki tekið á móti. Kennsla í lærdóms deild skólans, sem er tveir bekk ir, hófst um miðjan september- mánuð. Þetta er fyrsta starfsár lærdómsdeildarinnar. Að öðru leyti starfar skólinn í 4 bekkj- um, auk undirbúningsdeildar. |Kaupum tasknr hæsta verði. < v 'HúsgagnaviDnustofan ) Oaldursgötu 30. \ UMFERÐAMÁLIN OG SETULIÐIÐ Frh. af 2. síðu. því biðja blöðin um aðstoð í því efni. Þá skýrði majór Fischer frá ýmsum breytingum, sem væru í þann veginn að koma til fram- kvæmda í umíerðamálum hers- ins og ekki hefir verið skýrt frá hér að framan. Ákveðin er sér- stök umferðaleið fyrir strætis- vagna og stóra herflutninga- vagna setuliðsins. Skulu þeir fyrst og fremst fara þessar göt- ur: Skúlagata, Barónsstígur, Hringbraut og Bræðraborgar- stígur. Er mælzt til þess að ís- lendingar hafi þetta í huga og hagi sér samkvæmt því. Key hershöfðingi hefir fyrir- skipað þessar nýju reglur í þeirri von, að þær mættu verða til þess að draga úr slysúm og árekstrum. Hernaðaryfirvöldin draga ekki úr því, að oft sé að finna sök hjá hinum erlendu bifreiðastjórnum þegar árekstr ar eða slys verða, en því megi íslendingar hins vegar ekki gleyma, að sökin liggi ekki sjaldnar hjá þeim sjálfum og sé því ákaflega nauðsynlegt að báðir aðilar vinni saman í ein- drægni að þessum málum, svo að árekstrum og slysum fækki. Bæði borgarstjóri og lög- reglustjóri tóku undir þessi um- mæli, enda virðist sjálfsagt, að allt sé gert, sem mögulegt er, til þess að hafa sem nánasta samvinnu í þessum málum, er snerta svo mjög öryggi béggja jafnt. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför konunnar minnar, Guðnýjar Sigurðardóttur. Fyrir mina hönd og annarra aðstandenda. Steingrímur Steingrímsson. TUkynnlng n hámarksverð. Viðskiptaráðið hefir ákveðið að gildandi hámarksverð á benzíni og olíum skuli á hverjum stað lækka sem hér segir: Benzín um kr. 0,06 pr. líter. Ljósaolía um kr. 85,00 pr. tonn. Hráolía um kr. 90,00 pr. tonn. Lækkun þessi kemur til framkvæmda frá og með 1. okt. 1943. Reykjavík, 30. sept. 1943. Verðlagsstjórinn. * s s s s s s s s s * s s s s s s s s s s s s Ráðuneytið hefir ákveðið, að smásöluverð á kartöflum skuli ekki vera hærra frá í dag að telja en kr. 1,00 hvert kílogr. í smásölu og er verðið miðað við góða og óskemmda \ vöru. Jafnframt hefir Grænmetisverzlun ríkisins verið falið að kaupa eða semja við aðra um að kaupa þær kartöflur, sem framleiðendur í landinu kunna að vilja selja, á þeim stöðum og tíma og fyrir það verð, sem hún ákveður. Til við*Ioótar því verði verður síðar greidd verðuppbót, sem nemi því, að verðið að henni meðtalinni verði til framleið- enda samsvarandi því, sem vísitölunefnd landbúnaðarfram- leiðslu hefir orðið ásátt um sbr. álit hennar í ágúst síðastl. Það er skilyrði fyrir verðuppbót, að Grænmetisverzlun- inni eða þeim, sem kartöflur kaupa í samráði við hana, sé gert aðvart um það af framleiðendum fyrir 20. október næstkomandi, hversu mikið af sölukartöflum þeir hafi og ætli að selja þessum aðilum. Grænmetisverzlunin getur síðar sett nánari ákvæði um kartöflukaupin, svo sem um vörugæði, móttöku, flutning og fleira. Fela má samvinnufélögum framleiðenda jafnframt Grænmetisverzluninni, að annast á sínum viðskiptasvæðum það sem auglýsing' þessi fjallar um. Tilkynnt verður innan fárra daga hvaða verzlanir kaupa kartöflur í samráði við Grænmetisverzlunina. Ef einhverjar verzlanir eiga nú birgðir af kartöflum og óska að fá verðfall bætt, ber þeim að senda Grænmetis- verzluninni birgðaskýrslu pr. 1. október staðfesta af lög- reglustjóra eða umboðsmanni hans, og verður hún að hafa borizt Grænmetisverzluninni fyrir 20. október næstkomandi. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 30. september 1943. ÁUGLÝSIÐ I ALÞÝÐUBLAÐINII

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.