Alþýðublaðið - 03.10.1943, Page 3
Sunnudagur 3. október 1943.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Hin amerísku
S
S
s
s
;sem nú er byrjuð að gera árásir á borgir Suður-Þýzkalands og Austurríkis frá Norður-Af-
ríku. Myndin sýnir fljúgandi virki á æfingaflugi yfir Englandi
Sum þeirra láta eftir sig gufustróka í loftinu.
Eftir sigurinn við Napoii:
5. herinn veitir Þjóðverjum
eftirför norður að Volturno.
Clark hershöfðingi kominn til
Napoli, viðreisnarstarfið hafið.
5HERINN hefir þegar hafið sókn sína í norður frá Napoli.
• Clark hershöfðingi hélt innreið sína í borgina í gær. End-
urhótastarfið í Napoli er þegar hafið og fagna íbúarnir banda-
mönnum innilega.
8. herinn hefir tekið bæina Lucera og San Severo. Er talið
að 5. og 8. herinn muni innan skamms ná saman við Volturno-
ána, þar sem Þjóðverjar hafa tekið sér nýja varnarstöðu.
Badoglio nyadar
iiýja stjéra.
Sforza greifi fer horðum
um hann.
TILKYNNT var í gær í
fregnum frá bækistöðvum Eis-
enhowers hershöf ðing ja, að
mynduð hefði verið ný ríkis-
stjóm á Ítalíu. Badoglio er for-
sætisráðherra hinnar nýju rík-
isstjórnar. Ókunnugt er um
nöfn annarra ráðherra.
Fregnir frá New York í gær
greindu frá ummælum Carlo
Sforza, sem nú dvelst í Banda-
ríkjunum, er hann lét falla í
tilefni skipunar hinnar nýju
ríkisstjórnar á Ítalíu. Lét hann
svo um mælt, að hann myndi
aldrei taka sæti í ríkisstjórn,
sem mynduð væri af Badoglio
eða nokkrum öðrum þeirra,
sem átt hefðu minnstu sam-
skipti við fasista, enda kvaðst
hann þá mundu bregðast
trausti milljóna manna á ítal-
íu.
Carlo Sforza greifi vár fyrr-
um utanríkismálaráðherra ítal-
íu. Hann er einhver þekktasti
stjórnmálamaður ítala, þeirra
er störfuðu fyrir valdadaga
Mussolini og enn eru lífs.
firaziaui narskðlkir
yfirher$höfði8gi
Mnssoliois.
ERLÍNARÚTVARPIÐ
skýrði frá því í gær, að her
stjórn hins ítalska liðs, er berð-
ist með Þjóðverjum á Ítalíu og
lyti hinni nýju stjóm Musso-
linis, hefði verið falin Graziani
marskálki.
5. herinn hefir enn bætt að-
stöðu sína með sókn í norður
frá Napoli og höggvið þungt til
þýzku herjanna, sem þar eru á
undanhaldi. Hægri fylkingar-
armur lians hefir einnig sótt
fram norðan við Avellino. Býst
hann nú til að ráðast yfir Vol-
turno-ána, en þar hafa Þjóð-
verjar tekið sér nýjar varnar-
stöðvar. Veita þýzku hersveit-
irnar þó öflugt, viðnám á þeim
slóðum og munu leggja ofur-
kapp á að verja virki sín þar.
Mark W. Clark hershöfðingi,
yfirmaður 5. hersins, hélt inn-
reið sína í Napoli síðari hluta
dags í gær. Napolibúar hafa
fagnað her bandamanna mjög,
og eru viðtökur þeirra sagðar
enn fagnaðarríkari en þær, sem
bandamenn áttu að mæta í
Tunis, sem þó þóttu eindæmi.
Napolibúar hafa orðið að horfa
upp á það, að Þjóðverjar
fremdu hin ægilegustu spjöll á
hinni fögru borg þeirra og bera
því að vonum mjög þungan
hug til þeirra.
íbúarnir í Napoli reyndu að
gera allt, sem þeim var auðið
til þess að koma í veg fyrir
skemmdastarfsemi Þjóðverja
með því að slökkva elda og
koma birgðum undan og varð
þeim nokkuð ágengt. Vinnu-
flokkar bandamanna hafa ,þeg-
ar hafizt handa um viðreisnar-
starf í Napoli og byrja á því.að
ná upp skipum, sem sökkt hef-
ir verið á höfninni þar.
Framsókn 5. hersins til Na-
poli var svo hröð, að Þjóðverj-
um tókst ekki að koma öllum
hergögnum sínum undan og
jafnvel ekki að eyðileggja þau.
Þess er t. d. getið, að banda-
menn hafi náð á vald sitt nokkr-
um járnbrauíarvögnum, sem
höfðu að geyma varahluta í
þýzkar flugvélar.
8. hernum hefir einnig tekizt
að bæta aðstöðu sína á austur-
ströndinni síðasta sólarhring-
inn. Hann hefir tekið bæinn
Lucera, 20 km. norðvestur af
Foggia. Þaðan er greiðfært til
vígstöðvanna við Volturno-ána,
þar sem hægri armur áttunda
hersins er að leggja til atlögu
við hersveitir Þjóðverja eins og
fyrr um getur. Áttundi herinn
hefir einnig náð á vald sitt
bænum San Severo, er stendur
við járnbrautina frá Foggia til
hafnarborganna við Adríahaf,
30 km. norður af Foggia.
Flugher bandamanna á ítal-
íu hefur sig mjög í frammi sem
fyrr. Gerði hann í gær einkum
harðar loftárásir á bæinn For-
mia, sem er um miðrar leiðar
millum Napoli og Rómaborgar.
Þjóðverjar misstu 11 flugvélar
í loftbardögum yfir Ítalíu í gær,
en bandamenn 13.
Hersveitir stríðandi Frakka
og annarra bandamanna hafa
enn kreppt að Þjóðverjum á
Korsíku.
Rássum miðar hæqt áfrai
Þjóðverjar veita hvarvetna öflugt við-
nám á austurvígstöðvunum.
-------4—------
SÓKN RÚSSA miðar hvarvetna hægt áfram og veita Þjóð-
verjar harðfengilegt viðnám. Þó hefur Rússum tekizt að
ná bænum Krichev milli Mohilev óg Gomel, Gera rússnesku
hersveitirnar á þessum slóðum hverja árásina af annari, sem
Þjóðverjar þó hrinda. Engin úrslit eru enn ráðin í orrustunni
um Kiev. Og á svæðinu milli Zaporoshe og Azovshafs verjast
Þjóðverjar hersveitum Rússa af mikilli hörku.’
Rússar hafa sótt mjög hægt
fram í Hvíta Rússlandi síðasta
sólarhring, aðeins náð 15 km.
landsvæði á vald sitt þar sem
þeim hefir orðið bezt ágengt.
Þeim hefir þó tekizt að ná bæn-
um Krichev, sem er milli Mo-
hilev og Gomel, og geisa harð-
ar orustur á þeim slóðum.
Þjóðverjar leggja ofurkapp á
að halda leiðinni milli Orsha og
Gomel, enda væri hersveitum
þeirra norður við Ilmenvatn og
Leningrad hætta búin, ef Rúss-
um tækist að ná henni. Rúss-
nesku hersveitirnar í Hvíta
Rússlandi gera hverja árás-
ina af annarri, en vörn Þjóð-
verja lætur lítt bifast. í Moskva
fréttum í gær var mikil áherzla \
á það lögð, að Rússar gerðu sér
mest far um að treysta aðstöðu
sína í Hvíta Rússlandi sem bezt
og búast vel um á stöðum þeim,
er þeir hafa þegar náð. Regn-
tíminn á þessum slóðum er nú
genginn í garð, og er landið því
mjög torfært.
Orustan um Kiev heldur enn
áfram, án þess að til úrslita hafi
enn dregið. Rússar halda uppi
stórskotahríð á borgina sem
fyrr, en Þjóðverjar veita harð-
fengilegt viðnám.
Miklir bardagar eru háðir á
svæðinu milli Zaporoshe og Az-
ovshafs. Leggja Þjóðverjar
mikið kapp á að hindra, að
Rússar brjótist þar í gegn, enda
væri þá lið þeirra á Krím í
bráðri hættu. í orustum við Az-
ovshaf töldu Rússar sig hafa
eyðilagt 79 skriðdreka og skot-
ið niður 59 flugvélar fyrir
Þjóðverjum í gær.
Fð danskir fiyðing-
ar griðland í Svi-
HJéð?
Sænska stjórnin býOst til
að taka við Ðeim.
'T' ILKYNNT var í fregnum
frá Lundúnum í gær, að
sænska stjórnin hefði boðizt til
þess að taka við ölum dönskum
Gyðingum, meðan Danmörk
væri hernumin.
Áður hafði þess verið getið í
fregnum, að Þjóðverjar hefðu
hafið miklar ofsóknir gegn
Gyðingum í Danmörku eins og
öllum þeim löndum öðrum, er
þeir hafa náð á vald sitt.
Sovétstjórnin fær
mpd af nodirskrift
sinni að gjðf.
BRETAR hafa sent rúss-
nesku ríkisstjórnlnni aS
gjöf málverk af undirskriftum
hins tuttugu ára samnings
míllum Breta og Rússa.
Rússneska stjórnin hefur
þakkað gjöfina og komizt þann-
ig að orði, að samningur þessi sé
hinn merkilegasti og mikilvæg-
asti fyrir báðar þessar þjóðir.
Loftáráslr ð Hýzkalaod
bæði siaoao og vestao!
Fljúgandi virki fara frá Norður-'AMku
til árása á Suður-Þýzkaland.
T OFTSÓKNIN gegn meginlandinu hefir sjaldan verið
•*-* harðari en í fyrrinótt. Amerískar flugvélar „fljúgandi
virki“ sem hafa bækistöðvar í Norður-Afríku, fóru til árása
á Suður-Þýzkaland og Austurríki, brezkar flugvélar réðust
einnig til atlögu við Norður-Þýzkaland1 og bækistöðvar
Þjóðverja í hernumdu löndunum.
Amerísku fljúgandi virkin, i
sem komu frá Norður-Afríku, *
beindu aðalárás sinni að Mun-
chen, hinni mikilvægu sam-
göngumiðstöð og borginni, þar
sem nazisminn átti upptök sín.
Liberatorflugvélar gerðu og
harða árás á Wiener Neustadt,
sem er skammt suður af Vín,
höfuðborg Austurríkis, en þar
fer fram mikil hergagnafram-
leiðsla, einkum flugvélafram-
leiðsla.
Brezku flugvélarnar beindu
einkum sókn sinni gegn Hagen
í Ruhrhéraðinu og gerðu þar
mikinn usla, svo og á stöðvar
Þjóðverja í Frakklandi og Nið-
urlöndum.