Alþýðublaðið - 05.10.1943, Síða 2
ALÞTÐUBLAÐIÐ
Þriðjudlagtíy 5. október 1943.
Málshðfðnn nt af eitraða
áfenginu f Evjnm.
.. ♦
Fyrirskipað að hðfða mál
gep þremur mðnnum.
MÁLSHÖFÐUN hefir nú verið fyrirskipuð gegn þremur
mönnum í Vestmannaéyjum vegna hinna hryggilegu
atburða er gerðust á Þjóðhátíð Vestmannaeyinga í sumar.
En að hátíðinni nýafstaðinni beið margt manna bana af
völdum áfengisvökva, er í umferð hafði verið á hátíðinni,
svo sem öllum mun enn í fersku minni.
Menn þeir, sem málshöfðun er fyrirskipuð gegn, eru
þeir Hjörtur Guðnason, Halldór Elías Halldórsson og Guðni
Einarsson. — Mál þetta verður dæmt í Vestmannaeyjum.
Tveir brezkir blaðamem á
ferðalagi hér á landl.
♦ ...
Þeir skrifa og taka Ijósmyndir fyrir
fjölda blaða á Englandi og í Ameríku.
P RÉTTAMÖNNUM út-
* varps og blaða var í
gær boðið á fund tveggja
berzkra blaðamanna, sem
dveljast hér á landi um þess
ar mundir. Menn þessir eru
Bemard L. Jacot ofursti og
James Jarche.
Jacot er frægur blaðamaður,
sem nú gegnir starfa sem stríðs
fréttaritari fyrir brezk og ame-
rísk blöð og tímarit, sem alls
koma út í mörgum milljónum
eintaka. Meðal blaða þeirra eru
heimsfræg blöð eins og London
Hlustratéd Magazine, This
Week, Life og New York Herald
Tribune. Jarche er hinsvegar
einhver mikilhæfasti ljósmynd
ari Bretlands.
Þeir félagar eru komnir hing
að til lands til þess að kynnast
herliði því, sem hér hefir nú
aðsetur, einnig landi og þjóð.
Mun Jacot rita um ísland í
blöð þau og tímarit, er hann
starfar fyrir, en Jarehe taka
myndir, er birtast munu með
greinum hans. Létu þeir fé-
lagar hið bezta af kynnum sín-
um af íslandi.
Báðir tóku þeir félagar þátt
í heimstyrjöldinni fyrri.
Jacot gegndi þá starfi sem
flugmaður. Var flugvél hans
skotin niður í orustu yf ir Frakk
landi og særðist hann alvarlega.
Hann hefir einnig verið þátt-
takandi í styrjöldinni, sem nú
geisar, og særðist í byssustingja
áhlaupi í orustunni um Dun-
kirk. Hann hefir á ferðum sín-
um séð heri Frakklands, Rúss-
lands, Spánar, Bretlands og
Ameríku.
Jarche tók og þátt í heims-
styrjöldinni fyrri. Hann hefir
gegnt starfa sem ljósmyndari
um 37 ára skeið. Hefir hann
tekið ljósmyndir af ýmsum
helztu tignarmönnum heimsins
og má m. a. láta þess getið, að
hann tók fyrstu myndina, sem
tekin var af frú Simpson og
Játvarði fyrrverandi Bretakon-
ungi, saman
Kaupendur Alþýðublaðsins
eru beðnir að tilkynna af-
greiðslu blaðsins, ef þeir hafa haft
bústaðaskifM,
ið hefor vetrar-
star! sitt.
Alþýðuflokksfélag-
IÐ er að hefja vetrarstarf
sitt. Heldur það næstkomandi
fimmtudag kl. 8,30 fund í Bað-
stofu Iðnaðarmauna fyrir trún-
aðarmenn Alþýðuflokksins í
Reykjavík (miðstjórn, stjórnir
flokksfélaga og hverfisstjóra
Alþýðuf lokksfélagsins).
Fundurinn verður boðaður
nánar með sérstökum fundar-
boðum til hvers eins.
Almennur félagsfudur mun
verða haldin einhvern tíma í
næstu viku.
Arásin á iðgreglnna:
Ekki hefir enn ver-
ið hægt að taka
skýrsta af Oeir Jðni
fleigaspi.
ArásarmonnBnum hefir veriö
sleppt úr gæzln.
LÆKNAR hafa ekki enn tal-
ið ráðlegt, að tekin væri
skýrsla af Geir Jóni Helgasyni
lögregluþjóni, sem áverkana
hlaut í óspektunum við Sýn-
ingarskála listamanna. Liggur
Geir Jón enn á sjúkrahúsi.
Rannsókn málsins er lokið að
öðru leyti en þessu. Hefir árás
armönnunum þremur, Hrafni
Jónssyni, Sigurjóni Þórðarsyni
og Andrési Bjarnasyni, nú verið
sleppt úr gæzluvarðhaldi. Ekki
er unnt að vita enn, hvenær
hægt muni að taka skýrslu af
Geir Jóni Helgasyni. En vænt-
anlega dregst uppkvaðning
dómsins ekki lengi eftir að það
hefir verið gert.
Byggingarfélag verkamanna:
Ein íbúð á hverjum 10 dög-
um síðan í nóvember 1939!
Þrátt fyrir geysilega erfiðleika eru íbúðirnar
ódýrari en aðrar, byggðar á þessum árum.
ÞJónnsta kommúnista við íhald-
10 i húsnæðismðlunnm.
BYGGINGARFÉLAG VERKAMANNA hefir frá því að
það hóf byggingastarfsemi sína í nóvembermánuði
1939 byggt 31 íbúðarhús með 124 íbúðum. Það lætur því
nærri að félagið hafi byggt eina íbúð á hverjum 10 dögum
síðan það hóf byggingastarfsemi sína.
Þessi ágæti árangur af starfsemi félagsins er því athyglis-
verðari, þegar það er athugað að félagið, eins og allir aðrir, sem
hafa byggingastarfsemi með höndum síðan styrjöldin braust út,
hefir átt við gífurlega örðugleika að stríða.
Örðugleikarnir hafa verið'"
margskonar. Það þefir vantað
algeng byggingarefni og ýmis
tæki, sem þurft hefir til „hús-
anna svo að þau gætu talizt
íbúðarhæf — og hefir jafnvel
stundum orðið að bíða eftir slík
um tækjum vikum og mánuð-
um saman. Skorturinn á vinnu-
krafti hefir og komið við félag-
ið ekki síður en aðra — og
hefir það einnig orðið til tafar.
Byggingjarfélag verkamanna
hefir því lyft grettistaki.
Félagið var eins og kunnugt
er, stofnað árið 1939. Aðdrag-
andinn að stofnun þess var sá,
að gamla byggingafélagið neit-
aði að uppfylla skilyrði, sem
sett voru fyrir láni úr bygging-
arsjóði..
Félagið hafði ekki getað
byggt vegna féleysis. En þegar
þjóðstjórnin var mynduð setti
Álþýðuflokkurinn það sem eitt
skilyrði sitt fyrir þátttöku í
henni og stuðningiívið'hana, að
byggingarsjóði yrði fengið væn
•legar fjárupphæðir til umráða
svo að byggingarfélög verka-
manna gætu hafizt handa um
byggingar. Þetta fékkst.
En Byggingarfélag alþýðu
vildi ekki hlýða þeim skilyrð
um, sem sett voru fyrir lán-
um úr sjóðnum. Leit þá svo
út sem engir verkamannabú-
staðir yrðu byggðir meira í
Reykjavík, þó að Hafnfirð-
ingar, ísfirðingar og Akureyr
ingar teldu sér ekkert að van
búnaði um að ganga að skil-
yrðunum. Var því ekki annað
að gera en að stofna annað
byggingarfélag og var það
gert fyrir forgöngu ráðherra
Alþýðuflokksins í þjóðstjórn
inni.
Félagið fékk mjög góðar und
irtektir og menn flykktust í það.
Samtímis var. fenginn ágætur
staður fyrir nýja bústaði — og
hafist handa. Var byrjað með
byggingu 40 íbúða rétt um
sama leyti og styrjöldin var að
brjótast út og var lokið við
þær og flutt í þær 1940. Þetta
eru ódýrustu íbúðirnar, sem
byggðar voru hér á landi það
ár og eru mánaðargreiðslur
manna fyrir þær 3ja herbergja)
um 90 krónur.
En nú fór að syrta í álinn.
Dýrtíðin óx ægilega með hverri
viku — og það var talið ískyggi
legt, vegna afkomu vænianlegra
kaupenda og framtíðar þeirra í
íbúðunum að ráðast í nýjar,
byggingar. '
Þá kom formaður Alþýðu-
flokksins enn til skjalanna.
. (Frh. á 7. síðu.)
AtvinnnmálanefndlB:
Shýrslnsðfnnn hjð at
vinnnrehendnm er
Nefndin óskar eftir skiótnm
svornm.
NEFND sú, er skipuð var
samkvæmt ályktun bæjar
stjórnar 2. sept. s.l. til þess að
rannsaka atvinnuhorfur í
Reykjavík á komandi vetri er
nú tekin að viða að sér gögnum.
Hefir hún snúið sér til atvinnu-
rekenda hér í bænum og spurzt
fyijir um breytingar þær, er
kynni að verða á starfsmanna
haldi þeirra næstu sex mánuði.
Spurningar þær, er nefndin
óskar eftir að fá svarað í þessu
sambandi eru sein hér segir:
.1. Hve margt starfsfólk hafið
þér í þjónustu yðar, miðað við
1/10 — ’43?
2. Hve margt af því telur
lögheimili sitt utan Reykjavík-
ur?
3. Ef líkur eru til að þér
fækkið starfsfólki á næstu 6
mánuðum óskast tilgreint:
a) Tala þess, b) Orsök fækkunar
innar.
4. Ef yður vantar starfsfólk
fyrir núv. atvinnurekstur,
hve mörgum mönnum mynduð
þér bæta við á næstu 6 mán-
uðum, ef starfsfólk fengist?
6. OEf þér hafið í hyggju að
auka atvinnurekstur yðar á
næstu 6 mánuðum, hve mörgu
starfsfólki mynduð þér bæta
við, þegar aukningin kemst í
framkvæmd?
•6. Ef einhverjar sérstakar á-
stæður torvelda eða hindra fyr
irhugaða aukningu atvinnu-
rekstrarins, óskast þær tilgreind
ar.
Nefndinni eru og kærkomnar
allar frekari upplýsingar. er at-
vinnurekendur kynnu að vilja
gefa henni. Með alla þá vit-
neskju, ;er nefndin aflar sér á
þennan hátt, verður að sjálf-
sögðu farið sem trúnaðarmál.
Það ríður á miklu fyrir starf
nefndarinnar, að atvinnurekend
ur bregðist vel við og láti henni
í té umbeðnar upplýsingar Og
Frh. á 7. síðu.
Tfir 50 hdsnnd hr.
sðfnnðnst í Rvih.
Takmark S. t. B. láðlst
FJÁRSÖFNUN Sambands
berklasjúklinga hér í höf-
uðstaðnum í fyrradag „gekk
samkv. áætlun.“ Þeir, sem að
fjársöfnuninni vinna, höfðu
sett sér það mark að safna kr.
50 000. Þetta tókst. í Reykjavík
komu inn fyrir blöð og merki,
að viðbættum gjöfum, um 53
þús. krónur.
Af fjársöfnuninni úti á landi
hefir aðeins frétzt úr tveimur
stöðum. í Vestmannaeyjum
söfnuðust um 1300 krónur og
um 4000 krónur á Akureyri.
Árangur ' fjársöfnunarinnar
hér er Reykjavík verður að telj-
ast góður. Hefir almenningur
sýnt það enn einu sinni, aS
hann kann vel að meta þá við
leitni í baráttunni gegn berkla-
veikinni, sem kemur fram í
förgöngustarfi S. í. B. S. En
sambandið er sem kunnugt er
að safna fé til byggingar vinnu-
hælis fyrir berklasjúklinga.
Óhjrrrt i hænnm um
helgina.
Olvun og rysbingar á al-
mannafæri.
ALLMIKIL ÖLVUN var í
bænum um helgina og
kom víða til óspekta. Voru 25
menn teknir „úr umferð“ fyrir
ölvun á almannafæri á sunnu-
dags- og mánudagsnótt. Til
nokkurra ryskinga kom og milli
íslendinga og setuliðsmanna.
„Á laugardagskvöldið kom til
átaka milli íslendings og setu-
liðsmanna fyrir utan „Pennan“
í 'Hafnarstræti. íslendingurinn.
sem var drukkinn var sleginn
í höfuðið með bjórflösku og
hlaut af nokkurn áverka. Var
hann fluttur í læknavarðstof-
una. — iLögreglunni tókst að
hafa upp á árásarmönnunum.
Sarna kvöld kom til handa-
lögmáls milli íslendings og setu
liðsmann á kaffistofunni í
Tryggvagötu 6. Hlaut íslending
urinn áverka á andliti og brák-
að rif.
Á sunnudagskvöld kom til
ryskinga á veitingastofunni
Gullfoss milli íslendings og am-
erískra hermanna. íslendingur
inn var undir áhrifum áfengis.
Lögreglan skakkaði leikinn.
Hákon J. Waage,
verkstjóri í verksmiðjunni Sani-
tas, andaðist í Landakotsspítala á
sunnudagsmorguninn. Hann var
sonur jþeirra hjónanna Enfemiu
Waage og Jens heit. Waage banfera-
stjóra.