Alþýðublaðið - 02.11.1943, Síða 3
Þnðjndagtt? 2. nóvember 1943.
ALÞYÐUBLAÐKÐ
Moskvaráðsteinaii s
. >r0»Q?Zr-~~~'--
Hríðskotabyssa á Ítalíu.
Byssur þeirrar tegundar, sem sést á mynd þessarr nota banda-
mienn í framsókn sinni á Ítalíu. Þótlu þær gefast vel, er átökin
á Sikiley voru háð ' og nú eru þær komnar yfir Messinasundið.
BAssar hafa tefcli Perekop.
♦ ■ ..
Hrinda gagnárásum Þjóðverja í
Krivoirog.
RÚSSNESKAR HERSVEITIR, sem sækja fram norður
a£ Krímskaga, hafa náð borginni Perekop á vald
sitt, "tejamkvæmt Lundúnafregn í gærkvöldh, og þannig
rofið hina síðustu undanhaldsleið hersveita Þjóðverja á
Krím landleiðis. Sókn hersveita Rússa í áttina til Nikopol
miðar örugglega áfram. Rússar hafa einnig treyst aðstöðu
sína enn við Krivoirog og hrundið öflugum gagnárásum
Þjóðverja inni í borginni.
Taka Perekop er mikilvægur
sigur fyrir hinar rússnesku
hesveitir, enda hefir hún verið
takmark framsóknar þeirra
norður af Krímskaganum, þar
sem mikil átök hafa verið háð
síðustu sólarhringa. Tefldu báð-
ir aðilar fram miklu liði og her-
göngnum í úrslitaátökunum um
borgina og telja Rússar, að
Þjóðverjar hafi goldið mikil og
tilfinnanleg afhroð. Rússar
hafa með töku Perekop rofið
líðustu undanhaldsleiðina er
liggur landleiðis frá Krím.
Rússar sækja fram í áttina til
Nikopol af sama harðfengi og
fyrr. Eru hersveitir þeirra
komnar að bökkum Dniepr
suður af Nikopol og eiga um 30
km. ófarna til borgarinnar. Er
lítt um skipulagt viðnám að
ræða af Þjóðverja hálfu á þess-|
um slóðum, heldur þréyta þeir
hraðan og algeran flótta vestur
yfir Dniepr, en hraðsveitir
Rússa hrekja flótta þeirra af
mikilli hörku og greiða þeim
mörg högg og þung á undan-
haldinu.
Rússar hafa hrundið öflugum
gagnárásum Þjóðverja inni í
Krivoirog og kreppt mjög að
þeim síðustu sólarhringana.
Hafa Þjóðverjar teflt þar fram
miklu stórskotaliði og vélaher-
sveitum en verið ofurliði born-
ir af Rússum, þrátt fyrir harð-
fengilega framgöngu. Hersveit-
ir Rússa austur . af Krivoirog
hafa og.sótt fram og treyst að-
stöðu sína. Hafa þær greitt her-
sveitum Þjóðverja, sem freísta
flótta brott úr Dneiprbugðunni
þung högg og mörg og náð járn
brautinni, er liggur frá Dniepr-
opetrovsk til Krivoirog á vald
sitt á löngu svæði.
Handfökur í Belgíu
LUNDÚNAFRÉTTIR í gær-
kvöldi létu þess getið, að
Þjóðverjar hefðu nýlega efnt til
mikilla handtakna meðal Belg-
íumanna á herskyldualdri. Er
þetta talið glöggt vitni þess, að
Þjóðverjar óttist, að banda-
menn muni freista þess að gera
innrás í Niðurlönd og hyggist
koma sem mest í veg fyrir það,
að íbúarnir veiti væntanlegum
innrásarherjum fulltingi og
brautargengi.
í stnoinu;og
■xswwmutmF--
eftir sögð tryggð.
»
Anstnrribi á að Irð sjálf*
stæði á ný að loknu stríði.
Striðsglæpamennirnir verða
heimtaðir framseldir.
nP ILKYNNINGAR um hið fengna samkomulag á þrí-
-*• veldaráðstefnunni í Moskva voru hirtar samtímis
í London, Washington og Moskva í gær.
Fullyrt er í tilkynningum þessum, að á ráðstefnunni
hafi ekki aðeins tekizt að tryggja samvinnu þríveldanna
og Kína um styrjaldarreksturinn og málin eftir stríðið,
heldur og að samkomulag hafi orðið um að endurreisa
sjálfstæði Austurríkis.
Churehill, Roosevelt og Stalin hafa lýst því yfir, að
allif stríðsglæpámenn skuli fram seldir og látnir sæta
ábyrgð gerða sinna í löndum þeim, er þeir unnu ódæði
sín í.
Tilkynningar voru birtar um ♦
kl. 16 í gær samtímis í London,
Washington og Moskva um að
algert samkomulag hefði náðst
á þríveldaráðstefnunni í Moskva
um .styrjaldarreksturinn og
samvinnu Bretlands, Bandaríkj
anna', * Kína og Rússlands eftir
styrjöldin og hefði samkomu-
lag þetta þegar verið undirrit-
að. Sérstöku ráði eða stofnun
skal fahð að fjalla um Evrópu-
málín, en önnur nefnd skal þó
hafa mál Italíu með höndum.
Samkomulag náðist og á ráð-
stefnúnni um það, að Austur-
ríki Skyldi endurheimta fullt
sjálfstæði sitt eftir styrjöldina.
Rætt var um það, hversu unnt
myndi að Ijúka styrjöldinni sem
fyrst.
Churchill, Roosevelt og Stalin
hafa tilkynnt, að það skilyrði
muhi sett í vopnahlésskilmálun
um, að allir stríðsglæpamenn
verði framseldir. Þeir, sem
bera ábyrgð á hryðjuverkum,
er unnin hafa verið í hernumdu
löndupum, skulu sendir þangað
og dæmdir þar. Einnig er þess
getið í tilkynningu þeirra, að
fasisminn á Ítalíu skuli upp-
rætlur og stjórnmála- og trú-
frelsi komið á þar í landi.
Handfökur í
Þrándheimi.
BL|* ÉTTIR frá skrifstofu
norska blaðafulltrúans í
Reykjavík greina frá því, að
Þjóðverjar bafi efnt til fjölda
handtakna í Þrándheimi hinn
16. okt. sl. Handtökurnar hóf-
ust kl. 16 og var síma borgar-
innar lokað, til þess að ekki
yrði aðvörunum við komið. —
Þjóðv. voru mjög harðhentir
við þá, sem handteknir voru,
og settu flesta þeirra í hand-
járn eða bundu hendur heirra
fyrir aftan bak.
Ciano greifi
handfekinn.
"O ERLÍNARÚTVARPIÐ
skýrði frá því í gær sam-
kvæmt fréttum ítalskra blaða,
sem gefin eru út í þeim hluta
landsins, er Þjóðverjar og fas-
istar ráða yfir, að Ciano greifi,
tengdasonur Mussolini, hafi
verið handtekinn og varpað í
dýflissu í Verona. Ciano var
fyrrum utanríkismálaráðherra
Mussolini og síðar sendiherra
hans í páfaríkinu og er hann
kvæntur Eddu, dóttur Musso-
lini. Samkomulagið milli Musso
linis og tengdasonarins hefir
hins vegar farið mjög versn-
andi upp á síðkastið, og er Ci-
ano talinn hafa átt drjúgan
þátt í því, að Mussolini var
knúinn til þess að segja af sér.
Jafnframt var þess getið að
Emanuel konungur, Badoglio
marskálkur og aðrir þeir ítalsk
ir áhrifamenn, sem svikið
hefðu málstað fasismans á ít-
alíu, skyldu af lífi teknir, þeg-
ar unnt væri að láta þá standa
reikningsskap gerða sinna.
Menn frá Elsass Loiltr-
ingen sendir fil Noregs
ÞAU tíðindi hafa borizt frá
Noregi, segir í frétt frá
skrifstofu norska blaðafulltrú-
ans í Reykjavík, að um 2000
menn frá Elsass Lothringen
séu nýkomnir til Noregs og beri
þeir einkennisbúninga þýzkra
hermanna. Svo var til ætlazt í
öndverðu, að menn þessir yrðu
látnir gegna störfum í Þýzkal.,
en vöru sendir til Noregs, til
þess áð leysa hermenn af, með
an þeir fengju stutt heimfar-
arleyfi. Eiga þeir að hafa varð-
mannastörf með höndutn og
önnur hliðstæð verk.
5. berinn heflr tekið Teano.
Loftsökn á Ítalíu og við Miðjarðarhaf.
TJf ERNAÐARAÐGERÐIR bandamanna á Ítalíuvígstöðv-
-*• unum eru enn erfiðleikum háðar vegna óhagstæðra
yeðurskilyrða. Þó hefur 5. herinn sótt nokkuð fram og
náð hænum Teano á vald sitt. Hægri fylkingararmur 5.
hersins og vinstri fylkingararmur 8. hersins sækja sam-
tímis fram í áttina til Isemia. Flugher handamanna á Ítalíu
og við Miðjarðarhaf hefir gert loftárásir á höfnina í Civita
Vecchia og flugvöllinn í Tirana, höfuðborg Albaníu, svo
og á Miðjarðarhafsströnd Frakklands.
5. herinn hefir enn treyst að-
stöðu sína með töku borgarinn
ar Teano, sem stendur uppi í
Massicofjöllunum norður af
Capua, of er mikilvægur járn-
brautarbær. Voru grimmileg
átök háð um Teano í þrjá sól-
arhringa og átti 5. herinn þar
að mæta hinu fræga Hermann
Göring herfylki. Jafnframt,
hefir hægri fylkingararmur
hans sótt fram á miðvígstöðv-
unum og nálgast nú Isernia óð-
um, en vinstri fylkingararmur
8. hersins sækir samtímis fram
í áttina til hennar. Dylst ekki,
að ætlun bandamanna er sú,
að láta hersveitir sínar samein-
ast þar, áður en þær leggja til
meginátaka við hinar þýzku
hersveitir á miðvígstöðvunum.
Flugher bandamanna á ítal-
íu og við Miðjarðárhaf er mjög
athafnasamur, þrátt fyrir ó-
hagstæð veðurskilyrði og hef-
ir gert harðar árásir á Mið-
j arðarhafsströnd Frakklands
og rofið þar járnbrautina milli
Marseilles og Genúa, borgina
Civita Vecchia á Ítalíu og flug
völl Þjóðverja í Tirana, höfuð-
borg Albaníu; Urðu miklar
skemmdir af völdum árása
þessara.