Alþýðublaðið - 17.11.1943, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 17.11.1943, Qupperneq 6
te Snmar i Kalifernin. Myndin er af kvikmyndaleik- konunni Evelyn Keyes í bað- stað í Kaliforníu. HANNES A HORNXNU Erh af 5. síð<u. STJÓENARVÖLDIN. ættu að vera kunnugri þessum málum en ég, enda eru þau það. Hjal mitt um þetta stafar af því að ég veit að nú ber meir á vöruþurrö hér en nokkru sinni áður, og þykir mér, sem það bendi til þess, sem fram- leiðslusérfræðingar Bandaríkj anna og Bretlands hafa verið að segja undanfarið. (Þessa vörutegund vantaði í gær, þessa vantar til við- bótar í dag. Hvenær kemur að þeirri næstu? Ég vænti þess að þetta verði athugað nú þegar, svo að ekki komist allt í vandræði. HVAf) SEGJA HIN BLÖÐIN? Frh. af 4. síðu. varða, að þjóðin sameinist um þetta höfuðatriði, en fresti hins vegar því um stund, að taka á- kvarðanir um ýmis önnur atriði várðandi framtíðar stjórnskipan landsins, atriði, sem eru mjög þýð ingarmikil, en þurfa ekki nauðsyn lega að afgreiðast í sambandi við aðalmálið. Af þessari ástæðu hefir Morg- unblaðið ekkert blandað sér inn í þann ágreining, sem er innan stjórnarskrárnefndar, -varðandi kjör forseta lýðveldisins, hvort hann eigi að vera þjóðkjörinn eða kosinn af alþingi, eins og meiri hluti nefndarinnar leggur til. Blað ið lítur svo á, að enda þótt það fyrirkomulag þætti heppilegra, að forseti væri þjóðkjörinn,( beint eða óbeint, gegnum fulltrúakjör), getur sú skipan biðið þar til stjórn arskrán í heild verður endurskoð- uð, sem væntanlega verður strax að stríðinu loknu, vegna þess, að fyrsti forsetinn hefir í raun og veru þegar verið kjörinn. Um hann er enginn ágreiningur, hvorki á alþingi né hjá þjóðinni. Vafalaust mun einnig rísa á- greiningur um valdaskiptingu for- setans og alþingis. Þetta er ákaf- lega mikilsvert atriði og nauðsyn- legt, að þar sé sú ein skipan ger, sem lýðveldinu er mestur styrkur aö í framtíðinni. Þetta atriði þurfa ▼itrustu menn um að fjalla og ger- hugsa tillögur í því efni. En það er sannfæring vor, að minni hætta verði á víxlsporum við skipan þessara mála, ef það er látið bíða', þar tilbúið er að stofna lýðveldið." Það leynir sér ekki, að Morg- unblaðið vill sem minnzt um lýðveldisstjórnarskrána ræða. Um hana á allt að vera í óvissu þar til skilnaðurinn er um garö genginn. Þáð er ekki nema réít í samræmi við óðagot og hunda vaðshátt hraðskilnaðarmann- anna í sjálfu sambandsmálinu. ALÞYÐUBLA3ÍÐ Miðvikudagur 17. mév. 1043. Reykjanesr af veitan. (Frh. af 4. síðu.) fyrri umræðu væri lokið yrði settur fundur á ný og máiið þar endanlega afgreitt, sýna þessi tilmæli mín greinilega, hversu tilefnislaus rógur það er þeg- ar Morgunblaðið er að reyna að læða því inn hjá mönnum, að ég hafi viljað tefja fyrir af- greiðslu málsins. Strax og tillagan hafði verið samþykkt við fyrri umræðu var fundi slitið og síðan settur, á ný til að afgreiða málið endanlega við aðra umræðu. Gerist nú sá atburður, sem betur en flest ann að afhjúpar svik og blekkingar Olafs Thors í málinu. Þegar málið kemur til end- anlegrar atkvæðagreiðslu við aðra umræðu liggur hin upp- haflega tillaga Ql. Thors um Keflavíkurveituna eins fyrir og við hana ein breytingartillaga frá Finni Jónssyni þess efnis, að ríkisstjórninni heimilist að ínnleysa þegar í stað efnið í Keflavíkurveituna, en skuli auk þess Ieita eftir efni í Keykjanesveituna að öðru leyti og innleysa það með fé úr ríkissjóði strax og leyfi fæst fyrir efninu. Þegar málið fer til seinustu atkvæðagreiöslu er hreyt- ingartillaga Finns Jónssonar einasta breytingartillagan, sem fyrir liggur. Ólafur Thors og Morgun- blaðið hafa þrásinnis haldið því fram, að breytingartillögur okkar Alþýðufloldísmanna væru fram komnar til að spilla fyrir málinu og myndu draga fjölda breytingartillagna á eftir sér. Hér var málið komið til endanlegrar atkvæðagreiðslu og engin breytingartillaga var komin fram, nema tillaga Finns Jónssonar, sem fól í sér allt það, sem Ólafur Thors þykist vera að berjast fyrir í þessu máli. Hefði Ólafur Thors því viljað leysa málið til hagsbóta fyrir Suðurnesjamenn alla, þá bar honum nú, þegar engin hætta var á frekari tillögum, að taka undir tillögu Finns Jónssonar og tjyggja framgang hennar. En Olafur Thors var ekki að hugsa um málið, hann var að hugsa sjálfan sig. Hann hvatti sína menn til að fella tillögu Finns Jónssonar á sama hátt og hann hafði látið fella tillögu mína. Atkvæðagreiðslan fór þannig, að allir Alþýðuflokksmenn og flestir Framsóknarmenn greiddu atkvæði með tillögu Finns Jónssonar, en allir Sjálfstæðis- menn og allir sósíalistar, nema einn, á móti og féll því tillagan. Síðan var tillaga ÓI. Thors samþ. með öllum greiddum at- kvæðum og hafði Ól. Thors þá felt þrívegis í einni lotu að að heimila ríkisstjórninni að kaupa efni í alla Reykjanesveit una og notið við það stuðnings allra flokksmanna sinna og sósíalista. Það er fagnaðarefni, að Kefl- víkingar hafa nú fengið nokkra úrlausn sinna mála á alþingi, — enda stóðu allir þingflokkamir að því. Hinu ber heldur ekki að leyna, að rafmagnsmál annarra Suðurnesjabúa hefir ekki verið leyst. Af hálfu Alþýðuflokks- manna á alþingi hafa þó komið fram tillögur, sem tryggðu það, að hægt yrði að kaupa efnið í alla Reykjanesveituna strax og leyfi fengizt fyrir því í Banda- ríkjunum. Ól. Thors beitti sér fyrir því, að þessar tillögur yrðu felldar og honum tókst það. — Framsóknarmenn hafa líka sýnt góðan vilja á því að leysa málið, en Ólafur Thors snerist einnig á móti þeim og lét fella þeirra tillögur. Sjálfur hefir ÓI. Thors enga tillögu borið fram á alþingi til lausnar Reykjanesrafveitunn ar í heild og hafa því allar aðgerðir hans beinst að því að eyðileggja tillögur annara. Þegar Suðurnesjabúar utan Keflavíkur hafa spurt Ól. Thors að því nú undanfarið, hvað þessu sætti og hvað hann ætlað- ist eiginlega fyrir hefir hann ekki getað bent á, að hann sjálfur hafi borið fram neina till. á Alþingi til lausnar á þeirra málum. Vonir sínar setur Ólafur Thors nú á sósíalistana. Þeir hafa borið fram þingsálykt .unartillögu, þar sem ríkis- stjórninni er heimilað að kaupa efni í nokkrar tilgreindar raf- veitur. Um þessa tillögu er hins vegar það að segja, að hún á enn þá langt í land að ná samþykkt alþingis og ekkert verður á þessu stigi málsins fullyrt um, hvort hún nær fram að ganga eða ekki. Hér við bætist og það, að í tillögu sósíalista eru nafn- greindar nokkrar rafveitur, sem ríkisstjórninni er heimilað að kaupa efni í og er Reykjanes- rafveitan sú fimmta, sem nefnd er í tillögunni. Hvers vegna Ól. Thors vill heldur samþykkja slíka tillögu, en ganga inn á til- lögu mína eða tillögu Finns Jóns sonar, þar sem Reykjanesraf- veitan er ein, verður sennilega nokkuð erfitt fyrir hann að út- skýra með öðru en útúrsnúning- um og venjulegu yfirborðs snakki ,sem honum er að vísu mjög tamt. f grein, sem ég rítaði í Al- þýðubiaðið þann 7. þ. m. sýndi ég fram á það, hvernig öll af- skipti Ólafs Thors af rafveitu- málunum miðuðu að því einu að gera málið að pólitísku áróðurs- máli fyrir hann sjálfan, en hirða lítt um hitt, hvert tjón málinu getur af slíku stafað. Atburðir þeir, sem síðan hafa gerst á alþingi staðfesta full- komlega, að raforkumál Suður- nesja er eingöngu pólitískt áróðursmál fyrir Ólafi Thors og ekkert annað. Eftirfarandi atriði marka stefnuna greinilega: 1. í kosningunum 1942 lofar Ól. Thors rafveitu um öll Suður nes í nánustu framtíð, en þegir vandlega yfir því, að hann hefir enga hugmynd um, hvort útflutn ingur fæst í Bandaríkjunum á rafveituefninu. 2. Um kosningarnar 1942 gef- ur Ólafur Thors sendiherra ís- lands í Bandaríkjunum umboð til að kaupa efni í Reykjanes- rafveituna fyrir fé úr ríkissjóði og skýrir kjósendum sínum frá þessu, en gleymir því bara, að hann hafði ekki heimild til þessa. Umboðið reyndist því mark- leysa, enda reyndi Ól. Thors aldrei að fá staðfestingu al- þingis á því og sýnir það bezt áhuga hans fyrir málinu. 3. Eftir kosningarnar fer Ól. Thors að athuga, hvort hann geti staðið við kosningaloforð sitt og kemst þá að því, að efn- ið í rafveituna fæst ekki útflutt úr Bandarikjunum. 4. Ekki lætur Ólafur Thors kjósendur sína vita, þegar hann sjálfur í byrjun þessa árs gefur upp alla von um að fá útflutn- ing á rafveituefninu. Hann læt- ur kjósendur sína vera áfram í þeirri trú, að efnið sé að koma, þó hann sjálfur telji slíkt von- laust að sjálfs hans sögn, sbr. grein hans í Morgunblaðinu 4. þ. m. og greinargerð hans fyrir þingsályktunartillögunni. 5. Suðurnesjabúar frétta af tilviljun og án atbeina Ólafs Aðalsteinn Sigmundsson kennari er íslendingum ,vel kunnur. Hann var afburða kennari og uppeldisfræðingur og einn ágætasti drengur, sem þjóðin hefir átt. — Aðalsteinn frumsamdi eina bók, sem aðallega var ætluð drengjum. Bókin heitir „TJÖLD í SKÓGI,“ og er bráðskemmtileg og merkilegt' merki- leg á margan hátt. — Aðeins lítið er enn óselt af bók- inni. — Lítið eitt er enn til af bókinni „FEÐGAR Á FERГ eftir Færeyingin Heðin Brú, sem Aðalsteinn þýddi. Thors hvernig málum er komið. Keflvíkingar fyrstir, aðrir síðar. Af grein S. A. í Alþýðublaðinu þann 11. má sjá, að Grindvík- ingar hafa staðið í þeirri trú fram í septembermánuð, að raf- veitan færi að koma, en fá þá að vita hið sanna, er þeir fara sjálfir að rannsaka málið. 6. Vegna þess, að Keflvíking- ar komust fyrir tilviljun að því sjálfir á sl. vori, ,að rafmagns- málið væri strandað í höndym Ólafs Thors og hann búinn að gefa málið upp;/gátu þeir sjálfir hafizt handa þá þegar og gert ráðstafanir, sem leiddu til þess að efni fékkst í Keflavíkurlín- una. 7. Þegar Keflvíkinga vantar fé til kaupa á sinni línu, geta þeir fengið efnið, ef skriflegt samþykki fjárveitinganefndar og meiri hluta þingmanna fæst fyrir því. Atkvæðagreiðslan s. 1. föstu- dag sýndi að þetta samþykki var fáanlegt. Ól. Thors reyndi ekki þessa leið. Hann notar málið í aug- lýsingaskyni, enda þótt hann með því stofnaði því í hættu. 8. Þegar aðrir Suðumesja- menn komast að því nú í haust, hvernig málum er komið, leita þeir sjálfir eftir því við ríkís- stjómina, að á ný verði leitað eftir leyfi í rafveituefnið vestra, þegar útséð verði um Kefla- víkurlínuna. Ríkisstjórnin gef- ur þeim fyrirheit um þetta. Er mér vel kunnugt um, að þegar Suðurnesjabúar fóru sjálfir að leita eftir þessu, höfðu allar til- raunir til efnisútvegana í Reykjaneslínuna verið lagðar á hilluna, nema tilraunir til að fá efni í Keflavíkurlínuna. Upplýstist þetta í viðtali, sem ég átti, ásamt Suðurnesja- mönnum, við ríkisstjórnina. 9. Þegar leyfið fæst fyrir Keflavíkurlínunni töldu kunn- ugir menn, að allar líkur bentu til þess, að leyfið myndí einnig fást innan skamms fyrir allri Reykjaneslínunn. Ég bendi þá á, að nauðsynlegt sé að tryggja það að hægt verði að innleysa þetta efni þegar í stað er leyfið fengist, og vildi fá ríkisstjóm- inni heimild til þess. Ól. Thors vildi ekki fallast á þetta. 10. Ég þer þá fram tillögu í alþingi um heimild handa ríkis- stjórninni til að kaupa efni í alla Reykjanesveituna. Ólafur Thors fer hamförum þar til hon um tekst að fá tillögu mína fellda. 11. Framsóknarfloíkkurinn reynir að endurbæta tillögu Ólafs Thors, en Ólafur kemur sjálfur í veg fyrir það. 12. Þegar Keflavíkurtillaga Ól. Thors er til endanlegrar af- greiðslu við aðra umræðu, kem- ur Finnur Jónsson með breyt- ingartillögu þess efnis, að rík- isstjórninni sé falið að kaupa strax efnið í Keflavikur veituna og einnig í Reykjanes- veituna að öðru leyti strax og leyfi fáist. Hér lá engin breyt- ingartillaga fyrir nema tillaga Finns Jónssonar og því útilokað að nokkur hætta væri á því, að samþykkja hana. Ól. Thors ! beitti sér fyrir því að tillaga ! Finns var feld. I 13. Ól. Thors hefir sjálfur ! enga tillögu borið fram á al- : þingi til lausnar Reykjanes- veitumálsins utan Keflavíkur. Hann hefir látið sér nægja að fella tillögur annarra. 14. Sósíalistar bera fram til- lögu um heimild handa ríkis- stjórninni til kaupa á efni í nokkrar rafveitur. Ekki er vit- að hvað um þessa tillögu verð- ur, og hún tryggir Reykja- nesveituna ekkert sérstaklega, nema síður sé. Þessari tillögu þykist Ól. Thors ætla að fylgja nú, þegar hann sjálfur er búinn að drepa allar aðrar tillögur fyrir Suðurnesjabúum. 15. Alþýðuflokksmenn hafa beitt sér fyrir því, að efnið yrði keypt í alla Reykjanesveituna, og þeir hafa á allan hátt stutt og greitt fyrir því, að ríkis- stjórnin keypti nú þegar efnið í Keflavíkurveituna. Ég gat þess hér í upphafi, að fjandskapur Ól. Thors við hags munamál hans- eigin kjósenda væri einstaéður og ætti sér enga fyrirmynd. Ég hef reynt að beina málum Suðurnesjamanna inn á þær brautir, að þau fengj ust leyst. Ól. Thors tekur af- stöðu á móti þessu. Hann ræðst á mig persónulega og tillögu mína á alþingi, á fundi í Kefla- vík og í Morgunblaðinu. Hann velur mér ýmis skammar- og smánaryrði fyrir tilraunir mín- ar til að leysa málið. Get ég að sjálfsögðu látið mér slíkt í léttu rúmi liggja, en hitt er verra, að fjandskapur hans við tillögur mínar er einnig fjandskapur við hans eigin kjósendur. Sandcrépe og Silkiefni, í mörgum litum. Unnur (horni Grettisgötu og Barónsstígs). I : Silkisokkar í úrvali. ) Verð frá S.95 parið. Gretttsgetu 57.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.