Alþýðublaðið - 26.11.1943, Blaðsíða 3
JPöstudagur 26. nóvember 1943
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
Hlutskipti Finna
SJALDAN EÐA ALDREI
hefir samúð íslendinga
með erlendri þjóð verið látin
í ljós á jafn ótvíræðan hátt
og 1. desember 1939, þegar
sú fregn barst hingað, að
Rússum hefði þótt sæma að
ráðast með fólskulegum
hætti á norræna smáþjóð,
Finna. Áður höfðu ýmsar
,,samningaumleitanir“ farið
fram og Molotov, utanríkis-
ráðherra Rússa, hafði gefið í
skyn, að Rússum, sem eru
um 200 milljónir að tölu,
stafaði veruleg hætta af
Finnum, sem eru tæpar fjór-
ar milljónir. Yar látið í veðri
vaka, að Leningrad væri inn-
an skotmáls frá finnsku
landamærunum og Finnland
væri heppileg innrásarbæki-
stöð fyrir fjandsamleg stór-
veldi. Hins vegar upplýstist
aldrei, hvers vegna Rússar
hefðu nú fyrst komið auga á
hina viðsjárverðu landfræði-
legu aðstöðu Finnlands, og
höfðu þeir þó haft meira en
tvo - áratugi til þess að átta
sig á þessari óheppilegu stað-
reynd.
ÓÞARFT ER að rekja gang
styrjaldarinnar þá, en öllum
fannst mikið til um hetjuleg^
vörn Finna, nema einstaka
mönnum, sem erfitt eiga með
að skapa sér sjálfstæðar
skoðanir, en hafa erlenda
menn í fjarlægu landi til
þess að hugsa fyrir sig og
segja sér fyrir verkum. Yfir-
leitt eru nefnilega íslending-
ar þannig gerðir, að þeir taka
málstað lítilmagnans, og
skiptir ekki máli, hver svo
sem á hann ræðst. Sann-
gj örnum mönnum verður á
að hugsa sem svo, að ,,samn-
ingaumleitanir‘ ‘ Paasikivi og
Molotovs séu mjög áþekkar
viðræðum Hitlers og Schuss-
niggs áður en Austurríki
hvarf úr tölu sjálfstæðra
ríkja eins og menn mun reka
minni til.
AÐSTAÐÁ FINNA í DAG er
mjög örðug og að ýmsu leyti
er erfitt að átta sig á henni.
Þeir eru nú í, bandalagi við
þá menn, sem skeleggastir
hafa reynzt til þess að kúga
og undiroka frjálsa menn,
þar á meðal tvær bræðra-
þjóðir Finna, Dani og Norð-
menn. En hins vegar er vit-
að mál, að Finnar vilja teljast
til frjálsra Norðurlandaþjóða
enda bundnir þeim menning-
arlegum og sögulegum tengsl
um. Má vel vera, að ekki
verði full-ljóst fyrr en að
styrjöldinni lokinni, að hve
miklu leyti Þjóðverjar hafa
ráð þeirra í hendi sér. Þó má
öruggt telja, að yfirgnæfandi
meirihluti finnsku þjóðar-
innar sé andvígur nýskipan
Hitlers og hyggi ekki á lánd-
vinninga í skjóli Þjóðverja.
Þessu til sönnunar má geta
þess, að ekki alls fyrir löngu
bárust hingað fregnir um
það, að miðstjórn Alþýðu-
flokksins finnska hefði birt
ályktun, þar sem lýst er
þeim vilja flokksins, að
Finnar ættu að semja frið,
heiðarlegan frið.
Myndin sýnir Karl Gústaf Mannerheim, yfirhershöfðingja Finna, Adolf Hitler
Keitel, yfirmann herforingjaráðs Þjóðverja.
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
i
og Wilhelm
tw
BaDdamean hefjast handa d Italin.
8. herinn brauzt yfir Sangro-
fljót í gær.
------» —----
FREGNIR FRÁ ÍTALlUVÍGSTÖÐVUNUM í gærkveldi
hermdu, að 8. her Montgomerys hefði hafið sókn og brot-
izt yfir Sangro-fljót, skammt frá mynni fljótsins við Adríahaf.
Hefir 8. herinn nú nokkra landspildu norðan fljótsins á valdi
sínu. Segja fréttaritarar, að sókn þessi hafi komið Þjóðverjum
mjög á óvart, og hafi Þjóðvetjar ekki getað hindrað bandamenn
í því að koma flotbrúm á fljótið. Á vígstöðvum 5. hersins er allt
með kyrrum kjörum, enda slæmt veður og erfitt um hernaðar-
aðgerðir. Loftárásir hafa verið gerðar á Toulon og Cannes í Frakk
landi, Sofia í Búlgaríu og Torino á Norður-Ítalíu.
Undanfarna fjóra daga hefir
8. her Montgomerys verið að
undirbúa sókn við Adríahaf og
hafa verkfræðingasveitir nú
komið brúm á fljótið. Er svo að
sjá, sem Þjóðverjar hafi verið
óviðbúnir og búizt við því, að
bandamenn biðu þar til veður
batnaði. Var fyrst haldið uppi
mikilli stórskotahríð, en síðan
þustu fótgönguliðar, studdir
skriðdrekum og vélknúnum
hergögnum yfir brýrnar og
tókst þeim að koma sér fyrir
norðan fljótsins. Flugvélar
Á HINN BÓGINN er skiljan-
legt, að Finnar séu tor-
tryggnir í garð Rússa. Allt
frá dögum Péturs mikla hafa
Rússar haft hug á því að
færa út yfirráðasvæði sitt í
vestur, þeir hafa verið erfða-
fjendur Finna í meira en
tvær aldir. Finnar hafa ekki
P
gleymt kúgun og ofsóknum
hinna rússnesku zara og
þeim eru enn í fersku minni
aðgerðir Kuusinens, undan-
fara Quislings. Eins má líka
gera ráð fyrir, að Finnum sé
vel kunnugt um „atkvæða-
greiðsluna“ í Eystrasaltslönd
UHum, sem samþykktu með
90% meirihluta.að fá að ger-
ast hlutgengir aðilar í ríkja-
héldu uppi skæðum árásum á
stöðvar Þjóðverja og herflokka.
Er nú mikill reykjarmókkur
yfir orrustusvæðinu og segja
fregnritarar, að erfitt sé að átta
sig á hverju fram vindur. Ekk-
ert markvert hefir gerzt á víg-
stöðvum 5. hersins amerí&ka.
Fljúgandi virki gerðu harða
árás á flotahöfnina Toulon í
Suður-Frakklandi. Var árásinni
einkum beint gegn kafbáta-
byrgjum og vopnabúrum og
urðu mikil spjöll af. Þá var og
ráðizt á járnbrautarbæinn Can-
sambandi Rússa, enda þótt
þau hefðu unnið að því baki
brotnu um árabil að losna
undan yfirráðum þeirra.
ALLIR ÞEIR, sem unna nor-
rænni samvinnu, hljóta að
harma það, að rás viðburð-
anna skuli hafa hagað því
svo, að Finnar berjast nú j
með fjepdum alls þess, sem
heitir frelsi og menning á
norræna vísu. En sennilegast
er, að Þjóðverjar hafi öll ráð
Finna í hendi sér í bili,
og geti knúið þá til þess að
veita sér brautargengi. Þýzki
herinn í Finnlandi er hættu-
legt vopn, hann er svipan,
sem knýr Finna áfram, nauð-
uga viljuga.
nes á Rivieraströndinni, en um
þann bæ flytja Þjóðverjar lið
og hergögn frá Frakklandi til
Ítálíu. Sprengjuflugvélar af
Liberator-gerð réðust á Sofia,
höfuðborg Búlgaríu, en Wcll-
ington-flugvélar á Torino.
í fregnum frá London er tek-
ið fram, að bandamenn séu ekki
komnir áð hinni svokölluðu
vetrarlínu Þjóðverja, og má
því búast við harðari bardögum
er þeir komast að henni nú á
næstunni.
Montgomery.
Á myndinni sést Montgomery,
hinn sigursæli foringi 8. hersins
brezka.
URTIN, forsætisráðherra
Ástralíu, hefir skýrt frá
því, að bráðlega verið farið að
smíða stórar sprengjuflugvélar
í Ástralíu. Fyrst um sinn verða
smíðaðir hreyflar og varahlutar
í flugvélar.
Verður bandamönnum mikið
hagræði að þessu, þar sem skip-
rúm sparast. Fram til þessa
tíma hafa Ástralíumenn einung-
is smíðað smærri flugvélar, en
orðið að flytja inn flugvélar frá
Bandaríkjunum og Bretlandi.
við
iZhitomir brnndið.
jO ÚSSAR virðast hafa stöðv-
að sókn Þjóðverja við
Zhitomir, enda þótt hinir síðar-
nefndu tefli þar fram ógrynni
liðs og fjölmörgum Tigris-skrið-
drekum og stórum fallbyssum.
Við Gomel þrengja hersveit-
ir Rokossovskys æ meir að setu-
liði Þjóðverja, og er játað í Ber-
línarútvarpinu, að bardagarnir
um borgina séu mjög harðir.
Rússum verður einnig allvel
ágengt suður af Kremenchug
og í Dniepr-bugnum. Þjóðverj-
ar tilkynna hins vegar, að þeir
hafi hrundið hörðum árásum
við Nikopol og fyrir vestan
Kiev. Þá segjast þeir hafa eyði-
lagt fyrir Rússum 199 skrið-
dreka, 554 fallbyssur og 166
bifreiðir, og tekið allmarga
fanga.
Enn ein árás á Berlín
Wí OSQUITO-FLUGVÉLAR
■*■ ■“■ fóru til árása á Berlín.
í fyrrinótt og í björtu í gær. 1
flugvél týndist í leiðöngrum
þessum. Samkvæmt fregnum
frá Stokkhólmi hafa margar
stjórnarskrifstofur í Berlín ger-
eyðilagzt í hinum heiftarlegu
loftárásum undanfarið, þar á
meðal bygging ráðuneytis dr.
Speers, og hafa ýmsar stjórn-
ardeildir verið fluttar á brott
úr borginni.
í gær fóru margar flugvélar
til árása á herteknu löndin
handan Ermarsunds. Boston-,
Mitchell- og Typhoon-flugvélar
réðust á hafnarmannvirki í
Cherbourg, flugvelli í Hollandi
og Norður-Frakklandi og fleiri
hernaðarstöðvar Þjóðverja.
4 japönskum tundur-
spillum sökkt
T WASHINGTON er tilkynnt,
•*■ að komið hafi til sjóorrustu
undan Nýja Bretlandi á Kyrra-
hafi, er hafi lokið með sigri
Bandaríkjamanna. Fjórum jap-
önskum tundurspillum var
sökkt, en hin skipin lögðu á
flótta. Bandaríkjamenn misstu
ekkert skip.
Japanar hafa ekki enn birt
neina tilkynningu um þessa við-
ureign.
Bandamenn eru nú í sókn á
Bougainville og hafa fært út
kvíarnar við flóa Ágústu keis-
aradrottningar. Japanar hafa
orðið fyrir tilfinnanlegu mann-
tjóni í átökum þessum. Loftá-
rásir hafa verið gerðar á birgða-
skip Japana á þessum slóðum
með miklum árangri.
Á Nýju Guineu eru ástralsk-
ar hersveitir komnar að Saddle-
burg, en þangað hörfuðu Japan-
ar frá Lae. Hins vegar hafa
Japanar öflugt setulið skammt
frá Finschhafen og er búizt við
snörpum orrustum við það áður
en lýkur.
Frá Gilbert-eyjum berast þær
fregnir, að Bandaríkjamenn
hafi á sínu valdi Makin- og
Apemama-eyjar og gangi hern-
aðaraðgerðir mjög að óskum.
Er talið að hertaka þessara
eyja séu upphaf mikillar sókn-
ar á Kyrrahafi.