Alþýðublaðið - 27.11.1943, Síða 2

Alþýðublaðið - 27.11.1943, Síða 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ Mtngaráag-Hir .27:- zé&*Snk$éhjl. Kommunistar fengu línuna í Þeir eiga „að taka forystutia af yfirstéttum Sjálfstæðisflokksins“! MálaflutniogsmonnHi faiið að innheimta ógreiddar npphætnr fjrir bæodar frá 1940 og 1941! .............. ♦... Övænt bomba við umræður á al~ þingi i gær. ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA þeirra Finns Jóssonar, Sig. Kristjánssoar og Áka Jakobssonar um greiðslu uppbóta á landbúnaðarafurðir kom til umræðu í samein- uðu þingi í gær. í lok umræðunnar, sem var frestað, gaf Finnur þær upplýsingar, að framleiðendur hér í nágrenninu hefðu falið málflutningsskrifstofu að innheimta ógreiddar uppbætur á landbúnaðarafurðir frá árunum 1940 og 1941, er næmu samtals um 30 þús. krónum. Þetta fé hefðu framleiðendur ekki fengið greitt og því snúið sér til málflutningsskrifstofunnar í því skyni að hún rétti hlut þeirra. Tjörnin er niii kættaieg fyrir böra Foreldrar mega ekki leyfa bðrnum sinum að fara par á skauta. RÁTT FYRIR aðvaran- ir Slysavarnafélags ís- lands virðist ungt fólk ekki óttast að nota skautasvellið á Tjöminni. Undanfarin kvöld hefir verið krökt af fólki á Tjörninni og þó sérstaklega framundan Iðnó Eins og kunnugt er, rennur heitt vatn í Tjörnina við Tjarn- arbrúna og er hún þar auð á stóru svæði, en síðan þunnur ís, og mjög erfitt að sjá mörkin. Fólk hefir farið svo óvarlega á Tjörninni, að settur hefir verið lögregluvörður við hana til eftirlits og má fullyrða, að lögreglan hafi afstýrt slysum. En foreldrar ættu að minnast slyssins á Patreksfirði fyrir skömmu síðan og leyfa ekki börnum sínum að fara með skauta niður á Tjörn meðan hún er jafn ótraust sem raun er á. Hjónaband. í dag verða gefin saman í hjóna- band af séra Bjarna Jónssyni, ung- frú Karlotta Karlsdóttir og Einar Ásgeirsson framkvæmdastj. Heim- ili þeirra verður á Mímisvegi 2. Spegillinn kom út í gær, skreyttur mörg- um myndum úr sögu kjötútburð- armálsins, sem enn er á allra vör- um. Ungmennafélag Reykjavíkur heldur skemmtifund í kvöld kl. 8.30 í Menntaskólanum uppi. Dag- skrá: Upplestur, songur, ræða, dans, góð músik. Veitingar verða. Er skorað á félagsfólk að fjöl- menna á skemmtifundinn. Þingsályktunartillagan, sem hér um ræðir, er fyrir alllöngu fram komin og er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að leggja fyrir ríkisstjórnina að fram- kvæma svo þingsályktun frá 31. ágúst 1942, um verðupp- bætur á útfluttar landbún- aðarvörur, að uppbæturnar •gjrfeiðist bændum þeim, er vöruna framleiddu, enda krefji' ríkisstjórnin útflytj- endur um sundurliðaðar skrár yfir úthlutun uppbót- anna, með árituðum kvittun- um viðtakenda." Finnur Jónsson fylgdi tillög- unni úr hlaði með stuttri ræðu. Kvað hann hana flutta í tilefni af því, að engar skýrslur lægju fyrir um það, hvernig skiptist sú upphæð, sem varið er til verð uppbóta á útfluttar landbúnað arafurðir samkv. þingsályktun- inni frá 31. ágúst 1942. En það væri ekki rétt að verja svona miklu fé úr ríkissjóði, 15—16 millj. kr., án þess að afla vit- neskju um skiptingu þess milli héraða og býla í landinu. Raéðu- maður kvaðst leggja mikla á- herzlu á það, að aflað yrði sund- urliðaðra skýrslna um þetta efni til afnota fyrir alþingi. Nokkrir Framsóknarmenn með tilstyrk Ingólfs á Hellu hófu þegar í stað hatraman and róður gegn tillögunni. Varð þeim þó rakafátt í andmælum sínum og var málfærsla þeirra með sundurleitum og vanburð- ugum hætti, enda erfitt að andmæla þessari sjálfsögðu til- lögu af nokkru viti. Sumir and ófsmanna reyndu 'að hártoga orðalag tillögunnar. Aðrir sögðu þð þessar skýrslur yrðu svo langar, að enginn mundi endast til að lesa þær. Voru ,,rök“ þeirra öll eftir þessu. En megináherzlu lögðu þessir ræðumenn á það, að tillagan væri óþörf. Útflytj- endur þessara vara greiddu bændum það, sem þeim bæri, enda vissu bændur hvað það væri og mundi þeim ekki verða skotaskuld Frh. á 7 síðu. Sfératlif'fglisveFllar applýsiiBgar í ræéis ' Stefáns Jéh. Sfefáiassesiar vié eldhúsumrœðnrnar I fyrradafg — ,. — Einar Olgeirsson steinþagði við þeim. . ■ ♦ KDMMÚNISTAFLOKKURINN á ekki aðeins að láta sig sjálfstæðismálið miklu skipta, ekki aðeins að fylgj- ast með hinum flokkimum, heldur fyrst og fremst að taka að sér forustuna úr höndum yfirstétta SjáIfstæðisflokksins“. Þetta er línan frá Moskva í sjálfsæðismálinu, fyrir- skipun þaðan til Kommúnistaflokksins hér, sem send var flokksþingi hans einu fyrir nokkrum árum, sem síðan hefir verið starfað fullkomlega eftir, eins og öllum mun vera ljóst í dag. — Þessi „lína“ var afhjúpuð af Stefáni Jóhanni Stefánssyni í síðari ræðu hans við eldhúsumræðurnar á alþingi á fimmtudagskvöldið með orðréttum tilvitnunum í leynileg þingtíðindi Kommúnistaflokksins. Stefán Jóhann skýrði frá því, að á öðru þingi Kommúnista- flokksins, sem haldið var fyrir nokkrum árum undir forystu þeirra Brynjólfs Bjarnasonar og Einars Olgeirssonar hefði verið komist þannig að orði í áliti „þjóðernisnefndar“ flokks- þingsins: „Frá Komintern (þ. e. Al- þjóðasambandi kommúnista) hefur oftar en einu sinni komið gagnrýning á afstöðu Kommúnistaflokks íslands til þjóðcrnismálsÍQS, t. d. í bréfi POLSEKR í nóvember 1931 og nú nýlega í bréfi SKLS. Aðfinnslurnar hafa aðallega verið fólgnar í því að Komm- únistaflokkurinn hafi vanmet ið þýðingu þeirrar hreyfing- ar móti sambandinu við Dan- mörku, sem varð út af þing- rofinu 1931, og því ekki gert skyldu sína í henni“. Síðar í sama áliti, sem sam- þykkt var á flokksþinginu, seg- ir, að Kommúnistaflokkurinn verði að láta skilnaðinn við Danmörku til sin taka, af þeim ástæðum, sem þar eru til- greindar og endar sá þáttur á- lyktunarinnar á eftirfarandi orðum: „Þessvegna verður flokk- urinn, sem gerir kröfu til að taka völdin í landinu í sínar hendur, að láta sig þetta miklu skipta,, ekki aðeins að fylgjast með hinum flokk- unum, heldur fyrst og fremst að taka að sér forustuna úr höndum yfirstétta Sjálfstæð- isflokksins.“ Þessar tilvitnanir Stefáns Jóhanns í þingtíðindi Kom- rpúnistaflokksins, sem hvergi hafa verið birt svo vitað sé, — vöktu ekki litla athygli þeirra, sem á hlýddu í útvarpsumræð- unum á fimmtudagskvöldið og það varð sízt til þess að draga úr þeirri athygli að Einar Ol- geirsson, sem talaði næstur á eftir Stefáni Jóhanni, hliðraði sér algerlega hjá því að minn- dst á þessar afhjúpanir einu orði. Þarf ekki mörgum blöð- um um það að fletta, að hann | myndi hafa svarið fyrir þessar afhjúpanir og sakað Stefán Jóhann um falsanir og hver veit hvað, ef hann hefði ekki vitað það upp á flokk sinn, að hafa látið ákveða línu sína í sjálf- stæðismálinu, eins og í öllum öðrum málum, — austur í Moskva. A setiiiðlð að „annast“ ðt- varp hér á fnllveldisdaginn? . — ----—• Furðuleg frásögn Morgunfolaðsins og umræður á alþingi um hana í gær. NOKKRAR umræður urðu utan daggkrár í sameinuðu þingi í gær um dagskrá útvarpsins á fullveldisdaginn, 1. desember n. k. og spunnust þær út af fyrirspurn, sem Finnur Jónsson gerði til ríkisstjórnarinnar. Finnur Jónsson kvaddi sér hljóðs í þessu tilefni utan dag- skrár. Kvað hann frásögn Mgbl. af fyrirhugaðri dag- skrá ríkisútvarpsins 1. des. á þá lund, að útvarpið hefði sam fellda dagskrá frá kl. 1 til kl. 12 á miðnætti. Hins vegar væri það tekið fran, að setuliðin ensku og amerísku „önnuðust dagskrána kl. 1—2, en ræðu ríkisstjóra yrði útvarpað kl. 2. Kvaðst Finnur lita svo á, að ekki væri tilhlýðilegt að há- tiðadagskrá útvarpsins hæfist á útvarpi útlendinga og ríkis- stjóri kæmi fyrst fram í út- varpinu að því loknu. Beindi hann þeirri fyrirspurn til rík- isstjórnarinnar, hvort það mundi raunverulega vera ætl- Frh. á' 7. síðu. AlpýðnflokfespInBið: Fnndir hefjast í dag kl. 2. Afimmtudaginn og í . gær störf uðu nefndir Alþýðuflokksþingsins að þeim málum, sem fyrir þær höfðu verið lögð. í gær hóf- ust fundir kl. 4.30 og var þá tekið fyrir álit skipulags- málanefndar. Var gengið til atkvæða um þau mál. í dag hef jast fundir flokks- þingsins stundvíslega kl. 2. Menfl dæmdir fjrrir ðivflsi við akstor og fleira. ¥ T NDANFARNA mánuði hefir lögreglan gert gangskör að því að hafa hendur í hári ökumanna, sem aka ölvaðir og hafa eins og kunnugt er margir verið dæmdir. Nýlega kvað sakadómari upp dóm yfir sjö mönnum, sem höfðu verið fundnir sekir um að hafa verið ölvaðir við akstur, fyrir að reyna að aka ölvaðir og fyrir að veita bifreiðastjóra á- fengi. » Voru 5 þessara manna dæmd ir fyrir ölvun við akstur og voru þrir þeirra atvinnubif- reiðastjórar. Þeir voru dæmdir i 10 daga varðhald og sviptir ökuréttindum í 3 mánuði. — Tveir, sem reyndu að aka ölv- aðir voru dæmdir í 7 daga varð hald og einn var dæmdur í 300 króna sekt fyrir að veita bif- reiðarstjóra áfengi, meðan. hann var við akstur. Leikfóiag ffafnar- fjarðar hefnr vetrar- starfsemi sioa. Samtal við Svein V. Síefáns- son formann félagsins 1" eikfélag Hafnarfjarðar ***' er nú að hefja leikstarf- semi sína að þessu sinni. Byrjar það með því að sýna gamanleikinn „Ráðskona Bakkabræðra“. Alþýðublaðið átti í gær sam- tal við formann félagsins, Svein V. Stefánsson, og sagði hann meðal annars: „Já, við biðjum nú i raun og veru afsökunar á því, hvað seint við erum á ferðinni í ár með leiksýningar, en það stafar eins og svo margt annað böl nú til dags — af húsnæðisleysi. — Góðtemplarahúsið hefir verið í aðgerð. Þar eru nú komnir mun betri bekkir en áður var og fleira hefir verið gjört, sem til bóta horfir. En á meðan höfum við hvergi höfði okkar að að halla. Nú er þetta sem betur fer, breytt til batnaðar og verð ur fyrsta frumsýning félagsins á þessu leikári annað kvöld kl. 8.30. Fyrir valinu hefir orðið að þessu sinni sprenghlægilegur leikur, „Ráðskona Bakka- bræðra,“ sem margir munu kannast við, en það var flutt í útvarpinu fyrir nokkru síðan. Ekki er mér kunnugt um að það hafi áður sézt á leiksviði hér syðra né í Reykjavík, en hefir eitthvað verið leikið úti um land. Framh. á 7 i síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.