Alþýðublaðið - 27.11.1943, Side 3

Alþýðublaðið - 27.11.1943, Side 3
X&ttgárdagttr 27. nóv. 1943; ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 Balkanbarónar. 3>EGAR einhverjir glæfralegir hlutir gerast í Evrópu, má að öllum jafnaði gera ráð fyrir, að þeir gerist einhvers staðar á Balkanskaga. Balkanríkin eru einhvern veginn úr al- faraleið, þróun í félagsmálum og almennri siðmenningu virðist hafa stöðvazt, eða verið heft með einhverjum hætti. Þar ríkir að miklu leyti hálfgerður ræningja- hugur, og samskipti Balkan- ríkjanna hafa oft á tiðum verið með einhverjum óper- ettubrag. Þegar amerisk kvikmyndafélög þurfa á ein- hverju efni að halda, þar sem þörf er smávegis byltinga eða óeirða og glæstra einkennis- búninga, ásamt söng og ýmis konar hoppi og híi, er yrkis- efnið oft sótt til Balkan. EINHVER helzta dægrastytting sumra Mið-Amerikurikja var byltingar og blóðsúthellingar sem jafnan urðu um helgar. Einhver hershöfðingi, en ; þeir eru sem kunnugt er, — • fleiri en óbreyttir hermenn, komst skyndilega að þeirri niðurstöðu, að hann þyrfti • að bjarga þjóð sinni frá glöt • un, og safnaði að sér ýmis ■’ konar óaldarlýð, réðist á for- ' 'setann og stjórn hans, drap þá og ruplaði eignum þeirra, • en gerðist síðan hæstráðandi til lands og sjávar. Á svipað an hátt urðu oft stjórnar- skipti á Balkan. BALKAN hefir löngum verið kallað ýmislegum nöfnum, sem ekki eru beinlínis hrós- yrði. „Órólega hornið í Ev- rópu“ og ,,púðurtunnari“ eru mjög saklaus viðurnefni, — samanborið við ýmislegt það, sem orðhögum mönnum hefir hugkvæmzt í sambandi við þessi riki. Balkanmenn eru með afbrigðum herskáir og hefir varla liðið svo áratug- ur, að ekki hafi þau fundið tilefni til ófriðar. Hins veg- ar botna fæstir í, hvers vegna þau eru í stríði, hvort það sé einhver lífsnauðsyn. Kenningar Nietzsches um nauðsyn og ágæti styrjalda virðast hafa fengið hvað beztan hljómgrunn í þessum löndum. En minni áherzla hefir verið lögð á að kenna landslýðnum lestur og skrift, enda óþarfi og hégómi fyrir hrausta hermenn og heppi- legt fallbyssufóður. ÞAÐ KOM HELDUR engum á óvart, þótt flest Baklanríkin finndu hvöt hjá sér til þess að láta til sín taka í ófriðn- um, sem nú geisar. Þegar stríðsvél nazismans var sett í gang, sáu Rúmenar sér leik á borði og skipuðu sér við hlið' hinna nazistísku ofbeld- ismanna. En afstaða þeirra er samt mjög undarleg. Þeir munu eiga í stríði við Rússa, en ekki liggur ljóst fyrir, hvort þeir telji Breta og Bandaríkjamenn í hópi fjand manna sinna. Þjóðverjar hafa notað rúmenskar her- sveitir til þess að verja und- anhald sitt viða á austurvíg- stöðvunum, á svipaðan hátt og þeir notuðu ítali í Afríku. Framh. á 7. síðu. „Samkvæmt áætlun.“ Á myndinni sjást rússneskar hersveitir fara fram hjá hrundum byggingum í Smolensk, sem þeir náðu úr höndum Þjóðverja síðast í september s.l. Þjóðverjar höfðu haft borgina á valdi sínu um tveggja ára skeið og var hún mikilvæg herstöð. S S s s s s s s s s s s s s s s V s s s s s s s s s s s s s s s s i Gomel í höndum Rússa. Þfóðverjar yfirgálu foorg-* Ina „samkvæmf áætlnn.M SÍÐDEGIS í gær birti Stalin nýja dagskipan, þar sem til- kynnt er, að Rússar hafi tekið Gomel, að afstöðnum hörð- um bardögum. f tilefni af þessu var skotið úr 224 fallbyssum í Moskva í gær. Fall Gomel er talið mjög mikilvægt frá hernað- arsjónarmiði, þar sem borgin var síðasta öfluga virki Þjóðverja í Hvíta-Rússlandi og auk þess mikil samgöngumiðstöð. í tilkynn ingum Þjóðverja er sagt, að setuliðið þýzka hafi hörfað úr borg- nni til fyrir fram ákveðinna varnarstöðva samkvæmt áætlun. Jafnframt er þess getið, að allt verðmætt í borginni hafi verið eyðilagt, áður en Þjóðvei-jar yfirgáfu hana. Hermálasérfræðingar virðast sammála um það, að Rússar hafi sýnt mikla herkænsku er þeir tóku Gomel, og að mikil ringulreið hafi ríkt í herbúðum Þjóðverja. Kvað svo rammt að þessu, að því er segir í fréttum frá London, að þýzkt stórskota- ið skaut á þýzkar hersveitir. Fyrir norðan Gomel hafa Rúss- ar hafið mikla sókn, og virðist sóknarþrek þeirra með öllu ó- bilað, en Þjóðverjar fá ekki að gert. Við Zhitomir reyna Þjóð- verjar enn að hrekja Rússa af þeim vígstöðvum og tefla fram ógrynni liðs og öflugum véla- hersveitum, en þeim hefir ekki tekizt að rjúfa varnir Rússa, sem þó hafa orðið að hörfa nokkuð undan. Yfirleitt virðast Rússar í sókn á öllum vígstööðvum, nema við Zhitomir, sem fyrr getur. Milli Dniepr og Priþet- mýranna geisa enn harðir bar- dagar og láta Þjóðverjar undan síga. I Berlínarfregnum segir frá mjög hörðum bardögum við Nikopol og í Dniepr-bugnum, og hafi Þjóðverjar hrundið á- rásum Rússa við mikið mann- fall í liði hinna síðarnefndu. Suðvestur af Kremenchug segj- ast Þjóðverjar hafa eyðilagt 102 skriðdreka fyrir Rússum. Enn fremur greina Þjóðverjar frá hörðum bardögum norð- vestur af Nevel. Loks segir Berlínarútvarpið, að á Kiev- svæðinu og við Korosten hafi árásir Rússa mistekizt. Italta: 8. berioo treystir aðstöðfl siqa. UM meiri háttar bardaga er ekki að ræða á Ítaliuvíg- stöðvunum, að þvi er segir í Lundúnafréttum í gærkveldi. 8. herinn hefir treyst aðstöðu sína á norðurbakka Sangrofljóts og tekizt hefir að koma liðsauka yfir fljótið, enda þótt það sé í miklum vexti vegna mikilla rigninga og því mjög erfitt um vik fyrir bandamenn. 5. herinn hefir lítið aðhafzt vegna óhagstæðs veðurs, en í fyrradag var haldið uppi heift- arlegri skothrið á stöðvar Þjóð verja og stóð hún í stundar- fjórðung. — Könnunarflokkar bandamanna hafa verið at- hafnasamir á þessum vígstöðv um og tekið allmarga fanga. — Við Castel di Sangro hafa bandamenn bætt aðstöðu sína, en Þjóðverjar látið undan síga. í fregnum frá Algier segir, að hersveitir úr 7. her Banda- ríkjamanna, sem lýtur stjórn Pattons hershöfðingja, séu nú komnar til Ítalíu, meðal annars er 45. herfylkið komið á vett- vang og tekur þátt í " bardög- um. Pólskur kafbátur hefir sökkt allmörgum kaupförum Þjóðverja á Miðjarðarhafi. Loftsóknin á Vestur-Evrúpu. Loflárásir á Franktart am Hain «b Norövestnr- Bjzkaland. Bandamenn halda áfram loft sókninni á hendur Þjóðverjum af fullum krafti. í fyrrinótt fóru brezkar flugvélar til árása á ýmsa staði í Þýzkalandi, en meginárásinni var beint gegn Frankfurt við Main-fljót, sem er m'ikilvæg verzlunarborg og samgöngumiðstöð. Um sama leyti var enn gerð loftárás á Berlín. Árásin var ekki mjög hörð og voru það Mosquito-flug vélar, sem þar voru að verki. Síðdegis í gær gerðu stórar amerískar sprengjuflugvélar á- rásir á ýmsa staði í Norðvestur- Þýzkalandi og Marauder-flug- vélar varðar Spitfire-flugvél- um, skæðar árásir á staði í nánd við Calais í Frakklandi, svo og Boulogne. 13 flugvélar komu ekki aftur. Blaðið Stockholmstidningen ræðir um hinar gífurlegu loft- árásir bandamanna á Berlín að undanförnu og segir meðal ann ars, að í Wilhelmsstrasse, þar sem flestar stjórnarskrifstof- urnar voru, sé ekki nema eitt hús nokkrun veginn heilt, nefni lega kanzlarabústaðuránn. Þá er og sagt, að sprengja hafi fallið á samkomuhúsið Sportpalast, en þar flutti Hitler oft ræður og aðrir áhrifamenn nazista. Á fimmtudaginn var ástandið óg- urlegt í borginni, segið blaðið, Borgarbúar gátu ekki fengið mjólk né brauð og vatnsveitu- kerfi borgarinnar var svo lam- að, að fæstir gátu þvegið sér eða rakað. Af fregnum Þjóð- verja verður ráðið, að um 14 hluti borgarinnar sé í rústum, en í London er talið, að skemmd ir hafi orðið mun meiri. í fregnum, sem teknar voru laust fyrir kl. 2 í nótt segir, að amerískar flugvélar, sem hafa bækistöðvar á Bretlandi, hafi einkum beint árásum sínum í Frh. á 7. síðu. 1812-1943. AMKVÆMT síðustu fregn- um frá Rússlandi eru Rúss- ar nú komnir að Beresina- fljóti og eru ú hælum Þjóð- verja, sem reyna að bjargast yfir fljótið. Beresína er fræg fyrir þá sök, að yfir það fljót skreiddust leifarnar af stórher Napoleons árið 1812 eftir hina misheppnuðu tilraun hans til þess að sigrast á Rússum. Þykir það einhver mesta harmsaga í hersögunni, að nokkur þúsund manns komust yfir Beresína, en meira en hálf milljón manna hafði fallið á vígvöllunum eða orðið hinum rússneska vetri að bráð. Her Napoleons fór yfir fljót- ið dagana 26.—29. nóvember. Á hæla Napoleons komu her- sveitir Kutusovs, en Wdttgen- stein og Tschitschagov gerðu stöðugar hliðarárásir á her- sveitir hans. 25. nóvember byrjuðu Frakkar að koma tveim brúm yfir fljótið við Studianka og 26. nóvember kl. 1 eftir há- degi byrjaði herinn að fara yfir fljótið. Fyrst í stað fór þetta skipulega fram, en brátt tóku Rússar að skjóta á brýrnar úr fallbyssum sínum og brast þá flótti í liði Frakka. Urðu þeir að skilja eftir fjölmarga særða menn og þá, sem síðastir voru á undanhaldinu. Fjöldinn allur drukknaði í fljótinu eða féll fyrir Kósökkum Kutusovs. Tal- ið er, að Frakkar hafi misst um 30 þúsund menn, er þeir fóru yfir Beresína. í dag, 131 ári síðar, er enn mikill her á bökkum Beresána. Hinn „ósigrandi“ her þriðja ríkisins er núna í svipaðri að- stöðu og stórher Napoleons. Að baki honum eru Kósakkarnir sífellt á ferli og vei þeim, sem dregst aftur úr. Og veturinn, hinn miskunnarlausi rússneski vetur, er genginn í garð. Ætli Manstein og aðrir herShöfð- ingjar Þjóðverja hafi ekki við sömu örðugleika að stríða og þeir Ney marskálkur, sem kall- aður var hinn hraustasti hinna hraustu, Oudinot og aðrir hers- höfðingjar Napoleons, sem þótt- ust þó vita lengra en nef þeirra náði? Og heima í Þýzkalandi bíða þeirra sundurtættar rústir Berlínar og Hamborgar og margra annarra borga. Og enn sannast hið fornkveðna: Sér grefur gröf þótt grafi. Loftðrðs ð Formosa. tS IN opinbera japanska frétastofa, Domei, skýrir frá því, að loftárás hafi verið gerð á eyjuna Formosa, sem er undan Hongkong í Kína. Fregn þessi hefir ekki verið staðfest af bandamönnum. Hins vegar er vitað, að flugsveitir Still- wells hershöfðingja hafa komið sér upp flugvélabækistöðvum í Kina og þaðan hafa amerískar flugvélar farið til árása á kín- verskar borgir, sem eru á valdi Japana, — svo og skip og her- flokka. Fylgir það hinni jap- önsku fregn, að hér hafi 4ra hreyfla Liberator-flugvélar ver ið að verki. Segjast Japanar hafa skotið niður 3 þeirra.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.