Alþýðublaðið - 28.12.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.12.1943, Blaðsíða 3
IÞriðjudagur 28. desember 1943 ALÞYÐUBLAeiD Barátta Dana. EIR menn eru til, sem hafa, að lítt hugsuðu ráði, legið Dönum á hálsi fyrir það, að hafa ekki bar- izt sem óðir menn, er sterk- asta herveldi heimsins réðist á þá eins og þjófur á nóttu, þvert ofan í gerða samninga. Hafa menn í því sambandi viljað skírskota til Norð- manna, sem sýndu hetjulega vörn gegn margföldu ofur- efli í meira en tvo mánuði. En slíkar ásakanir í garð Dana eru, að dómi þess, sem línur þessar ritar, með öllu óréttmætar. Það er yfirleitt vandræðaráðstöfun að fremja sjálfsmorð, og það hefðu Danir gert, ef þeir hefðu att hinum litla og illa búna her sínum móti her- sveitum nazista, gráum fyrir járnum, enda var landfræði- leg aðstaða þeirra stórum óhagstæðari en Norðmanna. DANIR HAFA haldið uppi þjóðarheiðri sínum á þann hátt, að þeir mega vera stoltir af. Minnumst þess, að Þjóðverjar lögðu allt kapp á, að gera Danmörku að ein- hverju fyrirmyndar-verndar- ríki, en með þeim árangri, sem öllum er kunnur. Danir létu aldrei hinn banvæna pestarsýkil villimannastefn- unnar veikja viðnámsþrótt sinn, og í frjálsum kosningum lil danska þingsins sýndu þeir hug sinn til flugumanna aría með ótvíræðum hætti. Þeir reyndust enn sem fyrr skeleggir forsvarsmenn nor- rænnar siðmenningar og höfn uðu öllum mökum við lífs- skoðun Streichers. ÞEIR, sem samt hafa fundið hvöt hjá sér til þess að setj- ast að Dönum, eru eitt af tvennu, lítilmenni eða skiln- ingslausir aular. Köpuryrði hrakmenna og fáráðlinga fá engan meitt. Á ÖLDINN^ SEM LEIÐ áttu Danir í tveim mannskæðum styrjöldum við stórþjóð, þá hina sömu, sem nú blettar mannorð sitt með framferði sínu í hinu fagra landi beyki skóganna. Frammistaða Dana í styrjöldunum 1849 og 1864, er þeir stóðu einir síns liðs, var með þeim á- gætum, að hún mun í minn- um höfð, meðan menningar- þjóðir byggja Norðurlönd. — Nöfn eins og Dybböl og Als eru nátengd stoltustu stund- um í lífi hinnar dönsku þjóð ar, og skothríðin úr fallbyss- um flotaforingja, sem ger- sigraði flota Austurríkis- manna við Helgoland, berg- málar enn í hjörtum þjóð- arinnar. ÞAÐ ER engum blöðum um það að fletta, að Danir eru með bezt menntuðu og táp- mestu þjóðum álfunnar. Af- rek þeirra á sviði lista, vís- inda og í atvinnuháttum eru öllum kunn, og hlýlegt við- mót þeirra, gamansemi og drenglyndi, þekkja allir, sem til Danmerkur hafa komið. Fyrir rúmum áratug skarst í odda með Dönum og Norð Þýzka orustuskipið „Scharnhorst i kaí.l 46 P r • r - - Dwight Eisenhower hershöfðingi, (til hægri), sem nú hefir verið skipaður yfirmaður alls hers bandamanna á Englandi og því ber- sýnilega ætlað að stjórna innrásinni á meginland Evrópu að vestan, á tali við Cunningham aðmírál, sem áður stjórnaði Mið- jarðarhafsflota bandamanna, en nú hefir tekið við yfirstjórn alls brezka flotans. Maitlaod Wiison og Aiexander taka við af f>eim á ítaliu og við Miðjarðarhaf f Ewópustyrjðldftniii á mæsfa árL ♦ AAÐFANGADAG JÓLA var tilkynnt samtímis í Lundúnum og Washington, hverja hershöfðingja bandamenn hafi valið til þess að stjórna herjum sínum í átökum þeim, er framundan eru í Evrópu. Eisenhower verð- ur yfirmaður alls herafla bandamanna' á Bretlandi. Mont- gomery verður yfirmaður brezku bersveitanna, er sendar verða þaðan til innrásar á meginlandið. Carl Spaatz verð- ur hins vegar yfirmaður flughers bandamanna. Sir Maitland Wilson verður æðsti hershöfðingi bandamanna við Miðjarð- arhaf, en Alexander verður yfirhershöfðingi þeirra á Ítalíu. Dwight Eisenhower er 53 ára að aldri. Hann varð her- maður árið 1915 og var um skeið með McArthur á Filipps- eyjum. Sir Ilenry Maitland Wilson er 62 ára að aldri. — Hann stjórnaði fyrstu sókn Breta inn í Libyu og bar þar her Grazianis ofurliði. Hann hafði og á hendi stjórn brezka hersins á Grikklandi. Sir Har- old Alexander er 51 árs. Hann fór með fyrstu herdeild Breta til Frakklands 1939 og stjórn- aði vörninni við Dunkirk. Síð- ar stjórnaði hann undanhald- inu í Burma og herjum banda manna við botn Miðjarðarhafs- ins. Sir Bernhard Montgo- mery er 56 ára. Hann tók við stjórn áttunda hersins 1942. — Carl Spaatz er 52 ára að aldri. Hann varð fyrsti yfirmaður flug hers Bandaríkjanna á Bret- landi, en síðar í N.-Afríku í styrjöld þeirri, er nú geisar. EiSenhower hershöfðingi ræddi við blaðamenn í aðal- bækistöð sinni í N.-Afríku í gær. Lét hann svo um mælt, að x styrjöldin í Evrópu myndi verða til lykta leidd með fullum sigri bandamanna á næsta ári, ef allir menn og konur í löndum þeirra legðu sig af einhug fram um að gera skyldu sína. Hann minnt- ist og á frönsku hersveitirn- ar, sem verið er að æfa í N,- Afríku og gat þess, að þær myndu taka þátt í hinni vænt- anlegu innrás. Eisenhower er nú á förum til Bretlands til þess að taka þar við hinum nýja. starfa sínum. mönnum út af yfirráðum yf- ir Norðaustur-Grænlandi. — Þessar þjóðir fóru ekki að dæmi þeirra, sem helzt vilja jafna deilur sínar með blóði og járni, heldur skutu þeir máli sínu til alþjóðadóm- stólsins í Haag og hlíttu þeim úrskurði, sem þar var upp kveðinn. Þar með gáfu þessar bræðraþjóðir okkar fagurt fordæmi um samskipti siðmenntaðra þjóða, og hefði málum verið betur komið í álfunni, ef sum stórveldin hefðu kosið að fara þessa leið í stað þess að leiða ó- Frh. á 7. síðu. Eftlr harða sjóorrustu undan Norður-Noregi í fyrradag. —■■ . . ♦ P LOTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ brezka tilkynnti síðla í fyrrakvöld, að heimaflotinn brezki/ hefði þá um dag- inn lagt til orrustu við þýzka orrustuskipið Scharnhorst und- an Norður-Noregi og sökkt því. Var tilkynningin mjög fáorð og greindi frá fáu öðru en þessu, svo og því að hrezki flotinn hefði verið undir stjórn Sir Bruce Frazer og hefði hann verið í fylgd með skipalest á leið til Rússlands. Viðureign þessi fór fram ’" undan Nord Kap. Nánari fregn ir hafa enn eigi borizt af henni — en flotamálasérfræðingar eru þegar farnir að rita um at- burð þennan. Telja þeir, að Scharnhorst muni hafa ætlað að ráðast á skipalestina í nátt- myrkri, en hún verið óvenju- lega vel varin. Láta þeir þann- ig um mælt, að Þjóðverjar telji sig miklu skipta að stöðvá flutninga til Rússlands. Scharnhorst var 26000 smá- lestir að stærð, systurskip Gneisenau. Var þeim báðum hleypt af stokkunum árið 1936. Lágu þau í Brest í tíu mánuði fyrir rúmu ári og urðu fyrir ítrekuðum loftárásum bandamanna, unz þeim tókst að komast brott vestur Ermar- sund. Þjóðverjar játa það, að Scharhorst hafi verið sökkt. — Láta þeir þess getið í fréttum sínum, að það hafi verið í flota deild, sem ráðizt hafi á skipa- lest. Hins vegar halda þeir því fram, að orustan hafi staðið lengi yfir og hafi Scharnhorst unnið flutningaskipum og her- skipum mikið grand. Rússland: lússar sækja fast frant til Ztaitomir og landa- mæra Póllands. ERSVEITIR RÚSSA sækja fast fram vestur af Kiev og beina þunga sóknar sinnar í áttina til Zhitomir og landamæra Póllands. Hafa þær náð á vald sitt um hundr að og fimmtíu þorpum á þess um slóðum og unnið Þjóð- verjum mikið grand. Þjóðverjar gera hverja til- raunina af annarri til gagná rása, en án árangurs. Nær víg- línan víða yfir allt að áttatíu kílómetra svæði. Hafa Rússar nú náð á vald sitt jámbrautar- miðstöðvunum Radomysl og Brusilova. Kreppir æ meira að hersveitum von Mansteins. Hafa Rússar hrakið 120,000 Þjóð verjá á skipulagslausan flótta, en 15,000 Þjóðverjar liggja dauðir eftir í valnum. Einnig hafa hinar flýjandi þýzku her- sveitir skilið mikið herfang eft- ir hvarvetna á hinum víðáttu- miklu vígstöðvum. Ítalía: Birizt í Bðiigi i Ortooa. P REGNIR frá ftalíu greina frá því, að 5. og 8. herinn séu í hægri en öruggri sókn. Orustan rnn Ortona held- tur áfram af sömu hörku og fyrr. Kanadiskir fótgönguliðs- menn úr 8. hernum berjast þar í návígi við Þjóðverja og hrekja þá úr hverju húsinu af öðru eftir harðfengilega viður- eign. Indverskar hersveitir náðu þorpinu Villa Grande á vald sitt. Unnu þær Þjóðv. mikið grand og tóku mikinn fjölda fanga. Á vesturströndinni hefir 5. herinn náð á vald sitt tveim mikilvægum stöðvum við Cass ano og sækir fram eftir vegin- um, er liggur til Róm. Flugher bandamanna hefir haft sig mjög í frammi bæði á vígstöðvunum og norður í landi. Hefir hann lagt til at- lögu við samgöngustöðvar við Florence. Prato, Pistoria og Em oli hafa og orðið fyrir miklum árásum. Aðrar járnbrautar- stöðvar og samgöngumiðstöðvar urðu og fyrir hörðum árásum. Jngósiavar viona nýja sigra. ____ / 10 REGNIR frá Júgóslavíu greina frá miklum orrust- um í vestanverðri Bosníu. Draga Þjóðverjar að sér mikið vara- lið í því skyni að freista þess að bera hersveitir þjóðfrelsis- hersins ofurliði. — Þjóðfrelsis- hernum hefir orðið vel ágengt á Sanjakvígstöðvunum. Þjóð- verjar freistuðu landgöngu á eyju nokkurri undan ströndum Króatíu, sem þjóðfrelsisherinn hafði á valdi sínu, en urðu frá að hverfa. Flugvellir Þjóðverja við Zagreb hafa og orðið fyrir slíkum skemmdum, að þeir eru ónothæfir taldir. Bandaríkjamenn hafa ráðizt til landgöngu við Gloucester- höfða, án þess að hafa misst þar nokkurn mann. Eru það sömu hersveitir og börðust á Guadal canal.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.