Alþýðublaðið - 06.01.1944, Qupperneq 7
JFimmtudagur 6. janúar 1944
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
I Bœrinn í dag. |
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30— 16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19.25 Hljómplötur: Álfalög.
19.45 Lesin dagskrá næstu viku.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Þrettándavaka: a) Lúðra-
sveitin „Svanur" leikur
(Árni Björnsson stjórnar).
b)Upplestur: Þjóðsögur o.
fl. c) M-A-kvartettinn syng
ur (plötur). d) 21.15 Lest-
ur íslendingasagna (dr.
Einar Ólafur Sveinsson há-
skólabókavörður). e) 21.40
Þjóðkórinn syngur (plötur)
21.50 Fréttir.
2i2.00 Danslög.
Hjónaband.
Á nýjársdag voru gefin saman
í hjónaband Unnur Björnsdóttir
(Hanssonar skipstjóra) og Guð-
laugur Kristofersson verzlunar-
maður Vestmannaeyjum. Heimili
’ungu hjónanna er á Faxastíg 11
í Vestmannaeyjum.
Hjónaefni.
Á gamlaársdag opinberuðu trú-
lafun sína Lóa Kristín Sigurðar-;
dóttir og Magnús Árnason kenn-
araskólanemi.
Náttúrugripasafnið.
Síðan í stríðsbyrjun hefir Nátt-
úrugripasafnið aðeins verið opið
M. 2—3 á þriðjudögum og fimmtu
dögum, en framvegis verður það
<einnig opið á sunnudögum kl.
1.30— 3 eins og áður.
Tækni,
útgefandi fél. manna, sem stunda
verkfræðistörf er komið út. Er
jþetta myndarlegt rit og fróðlegt.
Efni þessa heftis er á þessa leið:
Eirbrynjaður stálvír, eftir Hösk-
uld Baldvinsson, Hvað segir járn-
kolefnislínuritið oss? og Flug-
póstur eftir Friðgeir Grímsson,
Rafsuða eftir Aðalstein Jóhanns-
son, Öryggið á hafinu eftir Ólaf
Einarsson. Almennar leiðbeining-
:ar um meðferð á rafmagnsvélum
og Stutt námskeið í rafmagns-
fræði eftir Benedikt Biergmann,
Lo Mont eimkatlar og steypujárn-
ið í iðnaðinum fyr og nú eftir
Þórð Runólfsson, Tæknifréttir og
Tleira,
Hjónaefni.
Á gamlaárskvöld opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Eiín B. Sig-
urðardóttir og Sigtryggur Jóns-
son, bæði starfandi hjá Vinnufata-
gerð Islands.
Bridgekeppnin
í fyrsta flokki hélt áfram í gær.
Úrslit urðu þessi: Sveit Brandar
Brynjólfssonar vann sveit Eggerts
Gilfers, sveitir Guðm. Ó. Guð-
mundssonar og Gunnars Möllers
gerðu jafntefli. Sveit Jóns Guðna-
sonar vann sveit Guðm. Sigurðs-
sonar. Sveit Gunngeirs Pétursson-
ar sat hjá. Eftir þessa umferð eru
þessar sveitir efstar: Gunngeirs
Péturssonar með 8 stig, Eggerts
Gilfers 8 stig og Brands Brynjólfs
sonar 6 stig.
Næsta' og síðasta umferð fer
fram þriðjudaginn þ. 11. Þ- na. í
húsi V. R- við Vonarstræti..
ÁSKRIFTARLISTI
fyrir samsæti Stórstúkunnar á
sunnudagskvöld, er í Bókabúð
Æskunnar, Kirkjuhvoli. Sími
4235. Dagskrá afmælishátíðar-
innar birtist í hlaðinu á morg-
mn.
Tröji-hestnlDB.
Frh. af 3. síðu.
ekki lengur haft nein.
stjórn á.“
FREKARI BOLLALEGGIN G-
AR þýzkra blaða um þessi
• mál verða ekki raktar hér,
en -nógu er af að taka. Hins
geta menn faiið nærri um,
að sumir eru farnir að efast
um hina óbilandi sigurvissu
Göbbels og fullyrðingar hans
um óskeikulleik þýzka hers-
ins og stjórnarfyrirkomulags
nazista. Hinar 12 milljónir
Rússa, Tékka, Pólverja, Jú-
góslava og Frakka, svo nokkr
ar þjóðir séu taldar, geta
reynzt tvíeggjað vopn, þótt
síðar verði, þótt þær í svip-
inn framleiði verðmæti fyrir
hina hrörnandi hernaðarvél
Hitlers.
AUKIN FISKIFRAMLEIÐ SLA
í BANDARlKJUNUM.
Frh. af 3. síðu.
að allmikill fjöldi skipa mun
verða gerður út næsta ár. Frá
fyrsta júlí hefur verið úlhlut-
að efni í 528 skip af öllum gerð
um. í sumum tilfellum mun
smíði skipanna tefjast sökum
skorts á vélum og ýmsum hlut-
um, sem flotinn þarf á að halda,
vegna aukinnar framleiðslu á
innrásarbátum, en þó er álitið,
að mestur hluti fiskiflotans
verði tilbúinn það snemma, að
framleiðslan hækki að mun.
. Aðalástæðan fyrir því, að
fiskiðnaðurinn náði ekki sett-
uon framleiðslu takmörkum fyr
ir árin 1942 og 1943, var skort-
ur á skipum. Þegar í byrjun
sjríðsins, krafðist herinn meir
en 700 fiskiskipa, og mestur
hluti þeirra er enn í notkun
víðsvegar um heiminn.
Búizt er við, að framleiðsla
niðursoðins fisks muni aukast
um 10% frarn yfir framleiðslu
ársins 1943. Einnig er búizt við
því, að framleiðsla á laxi, sar-
dánum og túnfiski frá Maine
og Kaliforníu muni aukast
mjög. Framleiðsla á ostrum,
humar, kröbbum og krækling-
um er líklega í vexti, einkum
sökum hinnar miklu eftirspurn
ar eftir þessum vörum.
Pétur Benediktsson
sendiherra Islands í London, er
dvalið hefur hér í bænum undan-
farið er nú komin aftur til Lond-
on.
Hjónacfni.
Á gamlaársdag opinberuðu trú-
lofun sína María Sveinsdóttir frá
Arnardal og Valdimar Símonson
bakarameistari Ljósvallagötu 32.
Þakkarávarp.
EG leyfi mér hérmeð að þakka
íþróttafélagi Reykj avíkur
og stjórn þess fyrir hinar rausn
arlegu gjafir ,sem þeir færðu
mér, núna rétt fyrir jólin, sem
var vindmilla og útvarpstæki
af vönduðustu gerð.
Þessar óverðskulduðu gjafir
þakka ég af heilum hug, og
vona að guðs blessun fylgi fé-
laginu á ókomnum tímum.
Ko'lviðarhóli á Aðfangadags-
kveld 1943.
Valgerður Þórðardóttir
NÁTTÚRULÆKNIN GA-
STEFNAN
Frh. af 2. síðu.
hveiti, fáguð hrísgrjón, sagó,
súkkulaði o. fl. — veldur óeðli-
legri kyrrstöðu í meltingarfær-
um og efnaskiptum líkamans,
og af þessu leiðir, að mikið af
úrgangsefnum, sem mörg eru
sterk eiturefni, safnast fyrir í
blóhinu og hvarvetna í Ííkam-
anum. Þetta er ein helzta or-
sök sjúkdóma. Ef hægt er að
halda líkamanum hreinum inn-
vortis, þá er heilsunni borgið.
Lækningaaðferðir náttúru-
lækna eru fyrst og fremst fólgn
ar í því, að leiðbeina fólki um
mataræði. í annan stað eru not-
aðar ýmsar aðferðir, til þess að
herða og stæla líkamann og
hreinsa hann ytra og innra. Má
þar til nefna gufuböð, vatnsböð,
bæði- heit og köld, loftböð, ljós-
böð, sólböð, burstun húðar og
mikla hreyfingu. En allt þetta
miðar að því, að skapa nýjan
og hraustan og betri mann.
Sumt af þessum ráðum eru cfl-
mennt viðurkennd og mikið
notuð, svo sem ljós- og sólböð.
Hins vegar er t. d. loftböðum —
viðrun líkamans í hreinu og
fersku lofti ekki gefinn sá
gaumur sem skyldi. Og heit
vatnsböð — svitaböð — eru nýj
ung í læltnisfræði hér á landi.
Sjúklingurinn er látinn liggja
í heitu vatni — eins heitu og
honum þykir þægilegt — um
stund, unz hann svitnar vel,
vafinn síðan í teppi, og þar
heldur svitastarfsemin áfram.
Líkamshitinn hækkar, upp í 38
—9 stig eða meir. Þetta ýtir við
hinu syf jaða og hrörnandi lífs-
afli. Hjartað slær örar. Hreyfing
allra vessa og vökva líkamans
verður örari, og hreinsunartæk-
in, lungu, húð, nýru og þarmar
starfa með nýjum þrótti. Með
þessu er hafið nýtt endurbóta-
starf í líkamanum, sem ásamt
neyzlu lifandi fæðu, hófsemi í
mat og drykk og öðrum hollum
lifnaðarháttum, endurlífgar og
magnar lækningakraft líkamans
sjálfs. En um allt þetta er sjálf-
sagt að fara eftir leiðbeiningum
lækna, ekki sízt varðandi heitu
böðin. Það er hæpið, að menn
geri það rétt upp á eigið ein-
dæmi, og getur jafnvel hlotizt
verra af.
Svitaböðin eru ein öflugasta
lækningaaðferð, sem náttúru
læknar hafa yfir að ráða. Enda
eru þau notuð á náttúrulækn-
ingaheilsuhælum erlendis, svo
sem í: Þýzkalandi, Sviss, Banda
Nríkjunum og víðar. Svitinn
rennur í stríðum straumum, eins
og marka má af því, að menn
léttast stundum um 2—3 pund
í einu baði. Með svitanum
hreinsast út úr líkamanum ó-
grynnin af skaðlegum úrgangs-
efnum, svo að vart er hægt að
hugsa sér betri innvortis hreins
unaraðferð. Sérstaklega reynast
þessi böð vel við hvers konar
gigtarsjúkdómum, exemi o. fl.
húðsjúkdómum, ristilbólgu, of-
fitu o. fl., en þó því aðeins næst
fullur árangur, að sjúklingur-
inn breyti mataræði sínu jafn-
framt á viðeigandi hátt.“
* '
Fimm ára reynsla Jónasar
Kristjánssonar af þessum böð-
um, bendir ótvírætt til þess, að
mikils sé af þeim að vænta hér.
Þó hafa hingað til hlutfallslega
fáir sjúldingar getað notið
þeirra, vegna þröngra húsa-
kynna. En nú hefir læknirinn
flutt 1 nýtt húsnæði, þar sem
hann getur boðið sjúklingum
sínum upp á meiri þægindi og
fljótari afgreiðslu en áður. Þetta
er fyrsta „baðstofan“ af þessu
hægi, hér á landi. En til þess að
hún nái tilgangi sínum þyrfti að
vera matstofa í sambandi við
hana, þar sem sjúklingar gætu
fengið þann mat, sem læknir-
inn ráðleggur þeim. Nú hefir
Náttúrulækningafélag íslands
mikinn hug á að koma upp slíkri
matstofu, og má segja, að ekki
standi á öðru til þess en hent-
ugu húsnæði.
Þetta tvennt, lækningastarf-
semi J. K. og matsala Náttúru-
Kvæstist áttræðir í aooað sinn.
Fyrir nokkru barst sú fregn ,að David Lloyd George, hinn
heimsfrægi brezki stjórnmálamaður, hefði kvænzt í annað
sinn, áttræður að aldri, og gengið að eiga Miss Franees L.
Steenson, sem um 30 ára skeið hefir verið einkaritari hans.
Hin nýja frú Líoyd George, sem sést með honum hér á mynd-
inni, er nú 55 ára. Fyrri kona hians lézt fyrir rúmu ári síðan.
Islendiooar vlð prð
pljmáiti I dueríkB.
k
UNITED PRESS, fréttastof-
an, gat nýlega um það, að
Halldór Jónsson sé nú sem
stendur nemandi við The Mis-
souri Botanical Gardens í St.
Louis. Halldór er 24 ára að
aldri. Hann kom til New York
eftir 23 daga sjóferð. Áður en
hann kom til The Missouri Bo-
tanical Gardens, nam Halldór
garðyrkjufræði við Ohio State
University. Hann mun dvelja
tvo mánuði í St. Louis til þess
að rannsaka hydropronics-rækt
un jurta í vatni án gróðurmold-
ar. Áhugi Halldórs fyrir þess-
ari fræðigrein vaknaði er
hann las um tilraunir þær, sem
fyrst voru gerðar í Kalifornia,
til þess að rækta grænmeti í
vatni, þar sem náið eftirlit var
haft með öllum næringarefn-
um.
Halldór sagðist álíta, að eftir
nokkur ár mætti sjá öllum íbú-
um íslands fyrir hita með virkj
un hinnar sjóðandi gufu og
vatns, sem kemur frá hinum
óteljandi eldsvæðum í iðrum
íslands. Enn fremur sagði
Halldór, að iðnaðurinn væri
enn eigi kominn yfir bernsku-
skeiðið, en samt hafi verið
framleidd árið 1942 um 80 tonn
af tómötum í gróðurhúsum, og
„bráðlega munu íslendingar
rækta ávexti og grænmeti til
útflutnings“. Að lokum gat
Halldór þess, að mestöll Reykja
vík væri nú þegar hituð upp
með heitu vatni, sem kæmi frá
hverum í nágrenni Reykja-
víkur.
og ræðu, er Árni Óla heldur
á mánudagskvöld. í tilefni há-
tíðahaldanna sýnir Leikfélag
templara og sjónleikinn Fárið
leftir Pál J. Árdál í Iðnó á
mánudags- og þriðjudagskvöld.
Merkjasála og blaðasala verður
og á sunnudag og mánudag.
Blómarós
lækningafélagsins, þegar hún
kemst upp, verður sýnishorn og
undirbúningur að rekstri heilsu
hælis þess, sem er eitt stærsta
framtíðarmál félagsins og nú er
verið að safna fé til.
Á myndinni sést ung og fög-
ur blómarós, sem er klsedd
í nýtízku baðföt.
/