Alþýðublaðið - 25.01.1944, Síða 3
iÞríðjudagm- 25. jánuar 1944. _____ALÞYÐUBLAÐiÐ
50 þúsund hermenn úr 5.
hernum hafa nú gengið á
Pær eiga um 4® km. eftir éfarrsa tii foergar-
innar. Mótspyraa. ÞJéðverJa er Biarónagicfi.
TALIÐ ER, samkvæmt síðustu fregnum frá aðalbækistöðv-
um bandamanna á Ítalíu, að iþeim liafi nú tekizt að skipa
á land um 50 þúsund manna her, brezkum og amerískum, suður
af Róm. Berst þeim stöðugt liðsauki og hafa nú sótt um 7 km.
á land upp, en verða fyrir litlu viðnámi Þjóðverja. Mun það vera
Kesselring marskálkur, sem stjórnar þýzka hernum á þessum
hvað Rommel hefst að.
3
Eisenhower og Clark.
Á myndinni sjást iþeir Eisenhower og Clark, sem hafa átt mikinn
þátt í undir.búningi landgöngunnar suður af Róm. Clark stjóm-
6
ar 5. hernum, en Eisenhower hefir nú bækistöð í Bretlandi, en
þaðan mun hann stjórna innrásinni að vestan.
Rússar filkynna töku borganna Push-
kin og Pavlovsk suður af. Leningrad
B nóv. fengu Rússar S0®.0®0 smálesfir af
láns- og leigulagavörum frá Bandaríkjunum.
NÝRRI dagskipan, sem Stalin gaf út í gær, var til-
-®- kynnt að Þjóðverjar hefðu verið hraktir úr tveimur
borgum, er hafa mikla hernaðarþýðingu. Borgir þessar heita
Pushkin og Pavlovsk og eru skammt suður af Leningrad.
Yfirleytt virðist sókn Rússa á norðurvígstöðvunum fara æ
Sharðníandi,. Oijrustuskijpið „Októberbyltmgin“, sem er á
Finnlandsflóa, hefir aðstoðað landherinn með skothríð úr
hinum stóru fallbyssum sínum.
„Með lögum skal
land byggja."
EKICI ALLS FYRIR LÖNGU
voru fimm norskir gislar
tekni af lífi. Var þeim gefið
að sök að hafa vitað um og
stuðlað að því; að slys varð á
járnbraut skammt frá Oslo-,
þar sem nokkrir Þjóðverjar
fórust. Ekki hefir þó enn
sannast að neinu leyti, svo
vitað sé, að þessir menn hafi
á nokkurn hátt verið við þetta
riðnir. En atburður þessi
vakti hinn mesta viðbjóð
allra siðaðra Norðurlanda-
. búa og raunar víðar um heim,
enda þótt þetta. sé ekkert
nýtt fyrirbrigði í ofbeldis-
stefnu nazista. Aftökur gisla
hefir Þjóðverjum þótt sjálf-
sag'ður hlutur í styrjaldar-
rekstri sínum, en hafa ein-
róma verið fordæmdar þar
sem frjáls hugsun má sín
nokkurs.
MORSKU N AZIST ARNIR
jþurftu að reyna að afsaka
þennan glæp, en gerðu það
á hinn óskynsamlegasta og
aulalegasta hátt, sem virðist
þeim svo hjartfólginn. Blaðið
.5jNationen“, sem að sjálf-
sögðu er undir handarjaðri
quislingsleppanna birtir grein
um morðið á þessum fimm
Norðmönnum undir fyrirsögn
inni „Gunnar frá Hlíðar-
enda“, sem á að veita glæpa-
verkum þessum og öðrum
svipuðum einhvers konar lög
heimild. Blaðið skrifar á
þessa leið, í lauslegri þýð-
ingu: „Ábyrgðin, samkvæmt
norrænum rétti hefir sums
staðar komið fram í Njáls-
sögu. Á alþingi var rætt
um; hver ætti mesta sök, sá,
er drýgði glæp, eða sá, er
hvatti til hans. Slíkt mál var
lagt fyrir alþingi árið 1000
og var á hendur Gunnari á
Hlíðarenda. Alþingi kvað
upp úr um það, að sá, ■—-
1 er verður fyrir hnjaski,
eigi mikinn rétt á hend-
ur öllum, en þó mestan
á hendur þeim, er stendur að
baki glæpaverkinu og hvetur
aðra til þess. — Mörgum í
Noregi hefir orðið hverft við
aftöku hinna fimm manna,
eftir spellvirkið á járnbraut-
inni. Vér skírskotum til sög-
unnar. Þeir; sem beinlínis eru
sefcir, hafa ekki fundizt, en
þeir, sem stóðu að baki þeirra,
hafa náðzt. Þetta getur virzt
harðneskjulegt, en stríð er
stríð.“ —
fSVO MÖRG VORU ÞAU ORÐ
Þau varpa skæru ljósi yfir
réttlætisvitund þeirra leigu-
þýja, sem nú virðast fjalla um
lög og rétt með þessari
bræðraþjóð vorri. Manni
kemur fátt á óvart, er á rót
sína að rekja til handbenda
Himmlers, en þetta eru sem
sé norskir lærisveinar þeirra,
er þannig hugsa, og leyfá sér
að skírskota til norræns
drengskapar og réttarvitund
ar, þessir menn, sem með
skipulagsbundnum hætti
hafa reynt að drepa allt það,
er teljast mætti til fyrr-
nefndra eiginleika.
Frh. á 7. síðu.
slóðum, en ekki er kunnugt um,
Loflárásir á Vestur-
Þýzkaland og Norður-
Frakkland í gær.
TO> RESKA flotamálaráðu-
neytið tilkynnti í gær, að
stórir hópar amerískra sprengju
flugvéla, nutu fylgdar Thund-
erbolt-, Mustang- Lightning- og
Spitfire-flugvéla hefðu ráðist á
staði á V.-Þýzkalandi, en ekki
var nánar tiltekið, hvar árás-
irnar hefðu verið gerðar.
Þá réðust sprengjuflugvélar
af meðalstærð, einkum svo-
nefndar Marauder-vélar á ýmsa
staði á Frakklandsströndum. —
Aðrar flugvélar fóru til árása á
N.-Frakkland. Ein brezk or-
ustuflugvél skaut í gær niður
þrjár þýzkar.
Loflárás á Kuril-eyjar.
._j—
LUGVÉLAR frá amerísk-
um flugvélaskipum hafa
gert harða árás á japanska bæki
stöð á Kurileyjum, norður af
Japan. Talið er, að sumar flug-
vélarnar hafi þó komið frá
stöðvum á Aleutaeýjum. Jap-
anar veittu ekkert viðnám og
allar flugvélarnar sneru heilar
aftur til stöðva sinna. Var þetta
ein mesta loftárásin á japansk
ar eyjar á þessum slóðum.
* ■
t
Búlgarska sfjórnin
skipuleggur
SS-Sögreglusveitir
B ÚLGARSKA stjórnin hefir
nú gripið til þess ráðs að
koma upp herlögreglu, sem
skipulögð er á svipaðan hátt og
hinar þýzku SS-sveitir. Nýliðar
í þessar lögreglusveitir eru
teknir úr hernum, bæði hinum
reglulegu sveitum og úr sjálf-
boðasveitum.
Þetta nýja búlgarska lið mun
eiga að halda almenningi í
skefjum og öflum, sem fjand-
samleg eru ríkinu. Meðal
bandamanna er litið svo á, að
þetta sé örvæntingarfull til-
raun til þess að kæfa sívaxandi
mótþróa þjóðarinnar gegn stjórn
Frh. á 7. cíðu.
' í Rómaborg má nú heyra
skotdrunurnar frá stórskotaliði
5. hersins, sem er nú um 40
km. frá Rómaborg. Sækja
bandamenn fram á breiðu svæði
en Þjóðverjar eru nú • fyrst
farnir að veita öflugt viðnám.
Er ekki annað að sjá en land-
gariga bandamanna við Anzio og
Nettuno á laugardagsmorgun,
hafi komið Þjóðverjum alger-
lega á óvart. Er síðast fréttist,
gekk greiðlega að skipa á land
hergöngnum og vistum banda-
manna. Borgin Nettuno og um-
hverfi hennar en nú örugglega
á valdi bandamanna.
Til marks um það, hversu ó-
viðbúnir Þjóðverjar hafi verið,
er þess getið í Lundúnafréttum,
að aðeins ein herdeild (batta-
lion) hafi verið til varnar, en
af henni hafi einn herflokkur
(company) verið tekinn hönd-
um. Flugher _ bandamanna
veitti þeim hina mikilvægustu
aðstoð með sífelldum árásum
á stöðvar Þjóðverja að baki
víglínunni. Allmargar þýzkar
flugvélar reyndu að ráðast á
skipalest bandamanna við
Korsiku, en 8 þeirra voru skotn
ar niður, án þess að tækizt að
heftá för skipalestarinnar.
Ilermálafræðingar telja, að
aðstaða Þjóðverja verði mikl-
um mun örðugri, er herir þeirra
á Garigliano-stöðvunum eigi nú
í vök að verjast, þar sem þeir
eru í úlfakreppu milli herja
bandamanna á Suður-Ítalíu og
landgönguhersveitanna að
norðan, sér í lagi ef þeim tekst
að rjúfa sambandið milli hinna
þýzku herja. Eru nú um 110
km. milli herja bandamanna á
Norður- og Suður-Ítalíu.
Þrátt fyrir undanhald Banda
ríkjamanna við Rapido-ána,
hefir þetta reynzt Þjóðverjum
dýrkeyptur stundarsigur.
Bandaríkjamenn náðu aftur á
sitt vald öllu því svæði, er þeir
höfðu látið af hendi, svo að
segja jafnskjótt og þeim hafði
borizt vistir og skotfæri.
Fregnin um landgöngu banda
manna suður af Róm, var birt
þýzku þjóðinni 28 klst. eftir að
hún átti sér stað. Þá létu for-
mælendur þýzku stjórnarinnar í
veðri vaka, að Þjóðverjum hefði
ekki komið hún á óvart. Var
sagt, að bandamenn hefðu brot-
izt á land eftir harða bardaga,
en verið væri að gera viðeig-
andi ráðstafanir, en ekki væri
tímabært að ræða málið frek-
ar.
Borgirnar Pushkin og Pavl-
ovks eru um eða innan við 25
km. suður af Leningrad og
eru mikilvægir hlekkir í varnar
belti Þjóðverja umhverfis borg-
ina. Fjórir, geysiöflugir herir
Rússa sækja nú fram af mikilli
harðfengi og virðist markmið
þeirra, að því er fregnritarar
telja, að hrekja Þjóðverja alla
leið vestur fyrir Peipus-vatn í
Estlandi, á öllu svæðinu frá
Leningrad til Novgorod.
Fyrir norðvestan Novgorod
hafa Rússar tekið allmörg varn
arvirki Þjóðverja og valdið
miklu manntjóni í liði þeirra. Á
þessum vígstöðvum einum hafa
Þjóðverjar misst um 60 þús.
menn undanfarna 10 daga. í
Hvíta-Rússlandi verður Rúss-
um vel ágengt og eru á einum
stað, sem heitir Rudnia, komn-
ir fast að pólsku landamærun-
um.
Blaðið „Pravda“ birtir í gær,
ásamt öðrum dagblöðum
Moskvu, tölur um hjálp Banda-
ríkjamanna við Rússa. í nóvem-
ber s. 1. bárust Rússum 500.000
smálestir af ýmsum vörum,
samkvæmt ákvæðum láns- og
leigulaganna. Af láns- og leigu-
lagavörum Bandaríkjanna á
þessum tíma, fengu Bretar 60%
Rússar 38%, en afgangurinn
var sendur til Norður- og Vest-
ur-Afríku.
Edvard Munch látinn
____
U REMSTI málari Norð-
*- manna og einn kunn-
asti málari Norðurlanda,
EdVard Mundh, lézt að
heimili sínu, skammt frá
Oslo í fyrradag, rúmlega átt
ræður að aldri. Með honum
er hniginn í valinn afburða
listamaður, sem láta' mun
eftir sig djúp spor í menn-
ingarlífi þjóðar sinnar.
Edvard Munch er fæddur í
smáþorpi, skammt norður af
Oslo, hinn 12. desember 1863,
og varð hann því áttræður í
síðastliðnum mánuði. Um hann
hefir verið sagt, að hann væri
fyrsti norski listmálarinn, sem
hefði getið sér heimsfrægðar.
Verk hans má nú sjá á listasöfn
Frh. á 7. síðu.
Frh. á 7. síðu.