Alþýðublaðið - 04.02.1944, Side 5
útsölumanna Alþýðublaðsins. i
Vegna áramótauppgjörs eru útsölumenn blaðsins S
úti á landi beðnir að senda uppgjör hið allra fyrsta. S
Úseld Jólablöð
óskast endursend sem allra fyrst, vegna þess, að
blaðið er uppselt í afgreiðslunni.
Föstudagur 4. febrúar 1944. ALÞYÐUBLAÐIÐ
______ - - ... . ... ■ i.——— — i ■ i.i—..i.— ———~— " ■■■——•**•”■ .. " —1k*—
Roosevelt forseti og Chianghjónin.
Um íslenzka fánann og sérstaka misnotkun hans — við
kosningar — Bréf úr „bragga“ — Bifreiðarstjóri skrifar
kaldhæðnislega um göturnar.
ÓHANN“ skrifar: „í útvarps-
þáttum sínum um daginn og
veginn, hefir Sigurður Bjarnason
frá Vigur, tvívegis vikið að vernd-
un þjóðfánans okkar. Vel sé hon-
um fyrir það. Nú vil ég biðja þig,
Hannes minn, að skila til Sigurð-
ar, að ég vænti að hann Icomi í
veg fyrir að flokksbræður lians
hér í Bvík misbjóði fánanum —
að ekki sé meira sagt — við kosn-
ingar, eins og þeir hafa gert und-
anfarið, öllum þjóðhollum möhn-
um til hrellingar og sárrar gremju.
„ÞAÐ MUN ÁREIÐANLEGA
reynast fullörðugt að rækta við-
eigandi hugarfar og tilfinningar
til fánaans, hjá okkur íslendingum
þótt pólitískir flokkar geri ekki
leik að því að spilla þeim gróðri,
eins og sj álfstæðisflokkurinn hef-
ir gert, með því að nota fánann og
fánalitina í sambandi við kosn-
ingaáróður. Vona ég að Sigurður
taki þetta til athugunar.“
„EINSTAKLINGUB UTAN af
landi“ skrifar mér þetta bréf frá
Innri Njarðvík. „Við erum hérna
nokkrir menn í „bragganum“ okk-
ar í kvöld og erum að tala svona
um daginn og veginn eins og geng-
ur. Við erum nú ekki sammála
um allt og finrist ekki allt viðun-
andi sem hér er, og urðum því
sammála um að skrifa þér þessar
línur og vita hvað þú segðir um
eftirfarandi.“
„ER ÞAÐ FYRIR VANRÆKSLU
póst- og símamálastjórnarinnar að
hér skuli ekki vera bréfhirðing
eða opin símastöð, eðá er það fyrir
vanrækslu ráðandi mann hér í
„Víkinni“? Þetta kemur sér mjög
illa nú, þar sem hér eru margir að-
komumenn, að geta ekki talað
heim til sín, eða sent, bréf nema
fara til Keflavíkur eða eitthvað
annað burtu.“
„SVQ ER ÞAÐ ANNAÐ. Við
kaupum hér fæði fyrir kr. 10.50 á
dag, sem við höfum heyrt að væri
hámarksverð frá „Verðlagsstjóra".
Nú langar okkur til að vita hvort
í þessu verði ætti ekki að vera
kvöldkaffi, og einhver svolítill
mjólkurdreitill, á dag þó ekki
væri nú nema rétt út í þrjú kaff-
ið.“
AÐ SJÁLFSÖGÐU er það venj-
an að hafa mjólk út í kaffi. Bágt
á ég með að trúa því að fæðissal-
inn sé svo mikill nirfill, að hann
dragi undan í fæðissölunni mjólk-
„BIFREIÐARSTJÓRI“ skrifar:
„Þegar barnið fer að ganga og
leika sér utan húss, þá stígur það
sín fyrstu spor út á götuna, það
elst þar upp, hleypur eftir göt-
unni í skólann, þegar það hefir
náð s kólaaldri. Um götuna og:
göturnar liggja leiðir allra, sem
hreifa sig og sinna einhverjum
störfum, um göturnar verður mað-
ur að lalla með aurana sína niður
á bæjarkontórinn til að greiða út-
svarið sitt og aðra skatta og opin-
ber gjöld:“
„EF GÖTURNAR eru svona
þýðingarmiklar fyrir alla, að jafn-
vel þingmenn, borgarstjóri og bæj-
arstjórn verða að nota þær tií
þess að komast úr og í mat, því í
ósköpunum eru þær þá ekki gerð-
ar gangfærar? Það er eflaust til
of mikils mælst að láta sér detta
í hug að gera þær akfærar um
leið. Ég er það tilætlunarsamur að
jafnvel þótt ekki verði svona í
bráð, steyptar göturnar héma í
Reykjavík og gerðar þannig var-
anlegar um árabil, þá verði að
minnsta kosti þessum ótætis hol-
um og vilpum sem skera göturn-
ar yfir eins og strikaða stílabók,
og ég sem er atvinnubifreiðastjóri
er farinn að þekkja eins vel og
strætisvagnastjóri sínar stoppi-
stöðvar, verði með einhverjum
hætti komið fyrir kattamef, því
þótt drottni almáttugum ofbjóði
stundum og beri snjó á göturnar,
þá er hann þó, hvergi nærri eins
endingargóður og ofaníburðurinn
hans Bjarna sem stjórnar bænum.“
„EN ÞÓTT GÖTURNAR séu í
skýrslu bæjarstjórnar (víst ekki
skattskýrslu) færðar honum til
eigna í eignaupptalningu eins og
mig minnir að fyrir hafi komið,
þá get ég ekki séð að það geti
hækkað fjárhæð bæjarsjóðsins að
nokkrum mun, þótt drullupollar og
aðrar vilpur séu gerðar að persónu
légri eign borgarannna, sem um
göturnar fara, og við bifreiðar-
stjórarnir, sjálfkjörnir til að út-
deila þessum óþverra á föt þeirra
gegn nokkrum þakkarorðum, sem
ekki er hægt að setja í dálkan þína
Hannes minn og augnatilliti sem
gæti hleypt öllum vindinum úr
hjólbörðunum mínum.“
„JÁ, QG SVO þegar fólkið sofn-
ar svefiiinum langa og er flutt í
líkvagninum suður Laufásveginn
þá er hroðalegt að horfa á vagn-
' inn veltast eins og skip í stórstjó
og kastast á allar hliðar.“
Hannes á horninu.
Á myrid þessari sjást þau Chiang Kai-Shek, yfirhershöfðingi Kínverja, Roosevelt forseti og
Chiang (talið frá vinstri til hægri). Myndin var tekin, þegar Chiang Kai-Shek, yfirhershöfð
ingi, Churchill forsætisráðherra og Roosevelt forseti sátu ráðstefnu í Norður-Afríku og skipu
lögðu sóknina gegn Japönum. Myndin var send loftleiðis vestur um haf.
Skotland framtíðarinnar.
MAÐUR þarf ekki að hafa
dvalizt lengi í Gfasgov/
eða Edinborg til þess að sann-
færast um það, að styrjöldin
hefir lostið Skotland ógnar-
sprota sínum — og meira að
segja í hjartastað. Það, sem ég
á við með þessu, er í stuttu
máli þetta: Fjöldi skozkra
kvenna — ég faefi heyrt því
haldið fram, að þær hafi verið
alls nær 10 þúsuhd að tölu ■ —
voru ráðnar til þess að vinna í
hergagnaframleiðslu ufcan ætt-
lands þeirra. Hvort þetta hefir
verið nauðsynlegt, eða hvort
þetta hefir verið æskilegt, er
mál, sem ég mun ekki íella dóm
um. En hitt er staðreynd, að
þessi útflutningur verðandi
skozkra mæðra vakti almenna
gremju og andúð þar í lendi.' —
Frambj óðandi til þings kvað
þannig að orði í samtali ■ við
mig: —■ Skozka þjóðin heíir
orðið fyrir mikilli bióðtöku-
gegnum aldirnar, en þetta hef-
ir orðið til þess að við höfum
staðráðið að korna í veg íyrir
slíkt í framtíðinni. Þetta síð-
asta atvik opnaði nugu okkar
Um tíu ára skeið — frá 1921
—1931 hafa áttatíu af hverjum
þúsund íþúum Skotlands flutt
af landi brott. Á sama tíma
hafa aðeins fimm af hverjum
þúsund íbúum Fngiands ilutt
af landi brott. iJtílutningur
skozku kvenr.ann.a er því írarn
hald þess. sem bav hefir verið
að gerast frá því að heimstyri-
öldinni fyrri lank eða réttara
sagt allt frá því að Marlbor-
oughsstyrjöldunum linnti. Skot
land lét herjum hinna ýmsu
þjóða Evrópu á átjándu óld í
té marga mikilhæ’ía menn. Það
lét til dæmis Pétri mikla Rússa
keisara í té hinn fræga raðu-
naut hans, Patrick Gordon.
Það lét Friðriki mikla Prússa-
konungi í té foringja her-
foringjaráðs síns, sem átti
mikinn þátt í sköpun prúss-
neska hersins, Georg Keith.
Það lét Lúðvíki fimmtánda í té
fjármálafræðing hans, John
Law. Skotar námu á nítjándu
öld Nýja-Sjáland og Nýja-Skot
land, mikinn hluta Ástralíu og
verulegan hluta Montrealhér-
aðsins. Þeir brúðuð velflest stór
fijót þessara landa og lögöu
járnbrautir um finnn heims-
álfur. Þeir smíðuðu einnig fjöl-
mörg skip, sem sigldu um höf
og vötn í þann tíð, svo og vél-
ar þeirra.
GR EIN þessi, sem lýsír
vel viðhorfunum i Skot-
landi fyrr og nú, svo og hin-
um miklu framtíðarmögu-
leikum þess, er eftir Gcorge
Edinger og hér þýdd úr fima
ritinu World Dige;st. Mnn
mörguni þykja fróðlegt að
kynna sér þá þróun. sem er
í undirbúningi með skozku
þjóðinni og í súmum efnum
þegar hafin.
En heimalandið var vanrækt.
Á tímabilinu rnilli hinna tve«“ia
heimsstyrjalda réðust aðeins
níutíu þúsundir skozkra manna
í það að reisa bú í heimalandi
sínu. Nú eru þar í landi aðeins
um fimm hundruð þúsund hús,
en íbúatala landsins nemur
hins vegar fimm miUjónum.
Það gefur að skilja, að margt
sé um manninn, eða hafi verið,
í húsum Skotlands. Meíra en
helmingur • allra: fjölskyldna í
Glascow búa í tveggja her-
bergja íbúðum éða minni. Á
Englandi og í Wales eru sex
manns af hverjum hundrað hús
næðislausir, en í Skotlandi hins
vegar yfir tuttugu. Afleiðing
þessa er sú. að í Skotlandi dóu
áttatíu af hverjum þúsund ung
börnum á tímabilinu milli styrj
aldanna, en í .Englandi nam
hins vegar tala þeirra ung-
barna, sem dóu miðað við sömu
hlutföll, fimmtíu og þrem.
❖
KOZKA þjóðin átti við
mikið og tilfinnanlegt at-
vinnuleysi að stríða. Um fjög-
urra ára skeið var einn af hveri
um fjórum verkamönnum at-
vinnulaus. Og þegar styrjöldin
hófst, leituðu fjölmargir skozk-
ir vei’kamenn sér atvinnu ann-
ars staðar.
En. styfjöldjn hefir breytt við
horfunum í Skotlandi að mikl-
um mun. Tala atvinnulausra
manna lækkaði úr fjórung mill
jónar niður í sextán þúsundir.
Matvælaskömmtunin hafði
mikla og góða breytingu í för
með sér eirikum fyrir börnin.
Sjö af liverjum átta ungbörn-
um, sem fæðast þar á landi,
halda nú lífi. Styrjöldin hefir
kennt Skotum að taka þjóðmál
in föstum tökum. Þessi forna
þjóð hefir staðráðið að efna
til nýrrar þróunar og nýrra
framfara -— og það þessu sinni
innan landamæra heimalands-
ins..
Skotar hafa efnt til merkra
nýjunga í félagsmálum sínum.
Þeir hafa og efnt til marg-
þættra nýjunga á vettvangi at-
vinnumálanna. Þeir hafa hafizt
handa um umbætur og fram-
farir, sem vitna um mikla djörf
ung og framsóknarhug. Og nú
eru allir menn og konur lands-
ins önnum kafnir heima fyrir.
:|=
SKOTLAND mun í framtíð-
inni verða mikilvæg án-
ingarstöð á flugleiðinni frá
Vesturheimi yfir Norður-
Atlantshafið til Norðurlanda,
Rússlands og Norður-Evrópu.
Skotar hafa í hyggju að reisa
flugvöll við Clydefljótið, sem
verði einn af helstu miðstöðv-
um flugsamgangnaan í hinum
nýja heimi eftir stríðið. Glas-
cow er nær New York en Liv-
erpool. Það er unnið hörðum
höndum og af miklu kappi á
bökkum Clydefljótsins um þess
ar mundir. Þrjú skmasmíðafé-
lög hafa horfið að því að smíða
flugvélar. Þess er skylt að minn
ast, að Skotar ‘smíðuðu tvö þús
und og fimm hundruð flugvél-
ar í síðustu styrjöld. Árið 1938
voru smíðaðar tvö hundruð flug
vélar í Skotlandi. Árið 1943
voru hins vegar smíðaðar tutt-
ugu þúsund fjugvélar þar á
landi. Þess er og skylt að minn-
ast og hafa ríkt í huga, að við
Clyde er flugvöllur, þar sem
þoku gætir lítt eða ekki og ó-
vænt veðrabrigði eru þár sjald-
gæft fyrirbæri. Það er því eng-
an veginn mælt út í bláinn, þeg
ar um það er rætt, að þar muni
verða einhver þýðingarmesta
flugsamgöngumiðstöð heimsins
í framtíðinni.
Skotar gera sér einnig von
um það, að skipaskurður sá, er
þeir hyggjast leggja frá Forth
til Clyde, verði í framtíðinni
talinn þýðingarmikill í líkingu
við Suez- og Panamaskurðinn.
Þegar hann hefir verið lagður,
hefir siglingaleiðin milli Norð-
ur-Ameríku og Evrópu verið
stytt um margar sjómílur, sem
farmenn munu engan veginn
sakna. Þar með opnast og sigl-
ingaleið frá Atlantshafi til
Eystrasalts og Norðursjávar.
Samgöngur hafa löngum ver
Frh. á 6. síðu.
#