Alþýðublaðið - 12.02.1944, Síða 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 13. febrúar 1944.-
Norræim stfideDtagarðnr í Khöfn.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur:
Ihaldlð vill hafa hátekjarnar og eigna-
ankningnna fitsvarsfrjálsa eins og áðnr.
Tillaga Alþýðuflokksins um nið*
urjðfnunina var felld af því
— kommúnistarnir sátu hjá.
Tillagan um að ieggja allan stríðsgróða-
skattinn í framkvæmdasjóð einnig felid
Krisuvikurvenurinit:
Tiliögnnni nm 2 millj
króna fjðrveitingnna
visað til 2. nmræðn.
Þessi mynd er af nýjum stúdentagarði, sem reistur hefir verið í
Kaupmannahöfn. Var hann gefinn af diönsku fyrirtæki 1941. Les-
ið grein á öðrum stað í blaðinu.
Fjrsti vlðræðafnndir verka
maana og atvinnurekenda.
Dagsbrún svarar bréfi, sem henni hef-
ir borizt frá Vinnuveitendafélaginu.
STJÓRN DAGSBRÚNAR og 14 manna aðstoðarnefnd
hennar og stjórn Vinnuveitendafélagsins komu sam-
an á fyrsta samræðufund sinn í gær kl. 2.30, en af þeim
fundi eru engar fregnir.
1 fyrradag barst stjórn Dags-
brúnar bréf frá Vinnuveitenda-
félaginu og mótmælir Vinnuveit
endafélagið þar kröfum Dags-
brúnar.
Bréfinu lýkur með þessum
orðum:
„Þó vér, eins og sést að fram-
anrituðu, lítum svo á sem þér
í nefndu bréfi yðar hafið ekki
borið fram nokkra réttmæta á-
stæðu fyrir kauphækkunarkröf-
um yðar, viljum vér ekki skorast
undan að eiga við yður viðtal
um málið, og mælumst því til
þess að þér 'komið á fund með
oss í skrifstofu vorri, Vonar-
stræti 10, hér í bænum föstu-
daginn lil.öþ. m., kl. 2 Vá e. h.
Stjórn Dagsbrúnar svaraði
samdægurs þessu bréfi stjórnar
Vinnuveitendafélagsins og fer
bréf Dagsbrúnar í heild hér á
eftir:
„Stjórn
Vinnuveitendafélags íslands,
Reykjavík.
Vér höfum móttekið bréf yð-
ar, dags. 9. febrúar 1944, þar
sem þér svarið bréfi voru frá 3.
febrúar 1944.
Vér teljum svar yðar furðu
gegna, einkum með tilliti til
undirtekta yðar við hinar rétt-
látu breytingar á grunnkaupi
er felast í samningsuppkasti
því, er yður var afhent þann
4. þ. m. Munum vér i stuttu
máli taka framburð yðar hér
til athugunar.
1. Þér fullyrðið í bréfi yðar,
að með samningi vorum frá 22.
ágúst 1942, hafi dagkaup verka-
manna hækkað um 54% — 54
af hundraði og gangið út frá 9
stunda vinnu að jafnaði á dag.
Vér lítum á þessa málsmeð-
ferð af yðar hendi svo óvand-
aða og á svo' villandi forsendum
byggða, að ekki verður unnt að
rökræða málið á þeim grund-
velli.
Þér sem samningsaðili vor
mættuð það gerzt vita, að dag-
vinna telst, samkvæmt gildandi
samningi vorum, 8 stundir en
ekki 9 stundir, og að þegar um
er að ræða hækkun á dagkaupi,
er það út í loftið að byggja á
einhverjum vissum fjölda yfir-
Dagsbrún:
Sátlasemjari mun
reyna að koma á
samkomulagi.
C ÁTTASEMJARI ríkis-
^ ins Jónatan Hallvarðsson
mun vera í þann veginn að
bef ja samkomulagsumleitanir
xnilli Dagsbrúnar og Vinnu-
veitendafélags íslands.
Samtalsfundur þessara að-
ila í gær, sem var fyrsti fund-
ur þeirra bar engan árangur
annan en þann að aðilar urðu
sammála um að svo mikið
bæri á milli að óþarft væri
fyrir þá að ræðast við með
þessum hætti.
vinnutíma. Enda munu fulltrú-
ar vorir á vinnustöðvunum fá
tækifæri til þess að skýra yður
frá viðhorfi sínu til þessa máls.
Ef farið væri eftir reglu yðar
við útreikning hækkunar á dag-
kaupi, væri ekkert auðveldara
en að finna út mörg hundruð
prósent hækkun með því einu
að bæta við fleirum og fleirum
eftir- og næturvinnutímum,
sem eitthvert óvenjulegt ástand
kynni að skapa.
Vér skiljum þennan mál-
flutning yðar á þann veg, að
þér séuð að reyna að fá oss út
í umræður um fráhvarf frá 8-
stunda vinnudeginum og enn-
fremur sem ríka tilhneigingu
af yðar hálfu til þess að þurrka
út öll mörk dagvinnu, eftir-
vinnu og næturvinnu, en það
minnir alltof óþægilega á kjör
verkamanna, eins og þau voru
fyrir hartnær fjörutíu árum, er
félag vort var stofnað.
En að ræða nýjan samning
á þessum grundvelli yðar er
auðvitað fásinna, enda höfum
Frh. á 7. síðu.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavíkurbæjar var endan-
lega afgreidd á bæjarstjórnarfundi í fyrrinótt kl. 4.30.
Meirihluti bæjarstjórnar hélt fast við fyrri stefnu sína. Hann
felldi tillögur Alþýðuflokksins um að útsvörin skyldu fyrst
og fremst lögð á hátekjurnar og eignaaukninguna. Þá var
og felld tillaga Alþýðuflokksins um að leggja 3,5 milljónir
króna í framkvæmdasjóð. En samþykkt var að leggja það
af stríðsgróðaskattinum sem yrði fram yfir 1 milljón í sjóð-
inn.
Samþykkt var og tillaga Alþýðuflokksins um að leggja
í framkvæmdasjóðinn, auk þess sem umfram yrði 1 milljón
af stríðsgróðaskattinum, það sem ónotað kynni að verða af
fé áætluðu til framleiðslu'bóta og atvinnuaukninga. Þá var
og samþykkt að áætla 500 þúsundir kr. til undirbúnings bú-
reksturs til framleiðslu barnamjólkur og hagnýtingar jarð-
eigna bæjarins.
Til bæjarráðs var vísað til-
ögu Jóns Axels Pétúrssonar um
lánveitingar til sjómanna til
kaupa á fiskiskipum og tillög-
unni um lóð Hótel ísland. Til
byggingarmálanefndar var vís-
að tillögunni um rannsókn á því
hvað kosta myndi að byggja hús
með 50—75 eins og tveggja her-
bergja íbúðum. En felldar voru
tillögurnar um bæjarrekstur
strætisvagnanna og 50 þús. kr.
fjárveiting til stofunar dagpen-
ingasjóðs innan Sjómannafélags
ins, Dagsbrúnar og „Framsókn-
ar“.
Aákin claffheimili Syr-
ir hiirn.
Eftirfarandi tillaga, sem
Soffía Ingvarsdóttir bar fram,
var samþykkt með 8 atkvæðum
gegn 2:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur á-
kveður að verja megi allt að
100 þús. krónum til þess að
stofna dagheimili fyrir börn í
þeim hverfum bæjarins þar
sem slík heimili eru ekki fyrir,
eins og t. d. í vestanverðu
Höfðahverfi, Laugarneshverfi
og Grímsstaðaholti. Leitað verði
stamstarfs við Barnavinafélag-
ið Sumargjöf — og dagheimilin
rekin undir þess stjórn.“
Ankin tr|áræht inican
bæjai'ins.
Þá bar Soffía Ingvarsdóttir
einnig fram eftirfarandi tillögu,
sem var samþykkt:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
samþykkir að verja af óviss-
um útgjöldum bæjarins 20 þús.
kr., til að efla trjárækt til
skjóls og prýðis í bænum. Skal
leitað til skólastjóra barna- og
unglingaskólanna í Reykjavík
um að fá ungmenni til að gróð-
ursetja trjáplöntur í skemmti-
görðum, torgum, við opinberar
byggingar og víðar. Unnið skal
að þessu í sambandi við garð-
yrkjuráðanaut bæjarins og
Skógræktarfélag íslands.“
Reykjavfknrbær ocj
rekstnr kvikmynda-
hásanna.
Auk þeirra tillagna, sem nú
hefur verið getið, og sagt var
frá í blaðinu í gær, að náð
hefðu samþykki, bar Árni Jóns-
son fram eftirfarandi tillögu,
sem var samþykkt með 8 at-
kvæðum gegn 4:
..Bæjarstjórn ályktar að
kjósa 5 manna nefnd til að at-
huga, með sérstöku tilliti til
revnslu Háskólans af rekstri
kvikmyndahúss, hvort tekjur
bæjarins af rekstri kvikmynda-
húsa í eigu einstakra manna.
séu hæfilegar. Jafnframt sé
nefndinni falið að athuga,
hvort allri aðgöngumiðasölu að
k'^kmyndahúsum bæiarins sé
ekki bezt fyrir komið í höndum
bæjarins."
Árni Jónsson skvrði frá því,
er hann bar fram þessa tillögu
að upplýst hefði verið að ágóði
Tiarnarbíós hefði numið um
400 þúsundum króna. „Þetta
hús hefur 387 sæti — og hefur
það því grætt 1000 krónur á
hverju sæti, eða vel það. Hér í
bænum eru tvö önnur bíó. Ann-
að þeirra hefur um 500 sæti, en
hitt um 600 sæti. Bæði hafa því
um 1100 sæti. Tjarnarbíó hefur
öll sömu útgjöld og þessi tvö
bíó, nema hvað það greiðir
ekki útsvar né skatt. Ánnað
bíóið greiðir 50 þús. kr. í út-
svar og hitt 65 þús. kr. En gróði
þessara fyrirtækja nemur, ef
dæma má eftir útkomunni hjá
Tjarnarbíó um 1,1 milljón
króna! Finnst bæjarstjórn ekki
að 'hér sé mál, sem þurfi at-
hugunar við?“
Nær allir styrkir, sem félög
og félagasamtök njóta, voru
hækkaðir að verulegu leyti.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Sigrún B. Ólafsdóttir,
Reykjanesbraut 1, og Hilmar E.
Guðmundsson, Frakkastíg 24 B.
Áheit á Strandarkirkju.
Kr. 10.00 frá H. P.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messað á morgun kl. 2, sr. Garð-
ar Þorsteinsson.
E| INGSÁLYKTUNARTIL-
LAGAN um tveggja millf
ón króna fjárveitingu til lagn-
ingu Krísuvíkurvegarins nú á
þessu ári, til viðbótar því fé,
sem veitt er á fjárlögum ársins
1944 til sama vegar, var til fyrri
umræðu í sameinuðu þingi í
gær.
Emil Jónsson og Sveinbjöm
Högnason mæltu með tillögunni.
Ingólfur á Hellu bar sig upp
undan því að hafa ekki átt þess
kost að gerast meðflutninigsmað
ur tillögunnar. Gísli Sveinsson
og Eiríkur Einarsson, sem báðir
tóku til máls hliðruðu sér sem
allra mest hjá að taka afstöðu
með eða móti málinu. Hjá Gísla
varð þó vart greinilegrar andúð
ar í garð þessara framkvæmda.
Umræðunni lauk í gær og var
tillögunni vísáð til 2. umræðu
og fjárveitingarnefndar. Sig-
urður Bjarnason frá Vigur
greiddi einn þingmanna atkvæði
gegn því, að tillagan gengi til.
2. umræðu.
Fisksölflsamningani-
ir og fitgerðarkesti-
aðiinn.
FISKIÞINGIÐ hefur gert
eftirfarandi samþykkt út
af fisksölumálunum:
„Fiskiþingið skorar á stjórn
Fiskiféiagsins að hún hlutist til
um, við núverandi samninga-
nefnd fisksölusamninganna, að
fullt tillit verði tekið til hækk-
unar á útgerðarkostnaði, sem
orðið hefur síðan síðasti fisk-
sölusamningur var gerður. Enn
fremur sé reynt til hins ítrasta,
að í hinum nýja samningi, sé
tekið til greina ef dýrtíð og út-
gerðarkostnaður eykst á samn-
ingatímabilinu, og að það at-
hugist ársfjórðungslega.11
Samningar um kjðr
á fogbátum og ílutn-
ingaskipum undirrtf-
aðir í gærkveldi.
SAMNINGAR voru undirrit-
aðir hjá sáttasemjara í
gærkvöldi milli sjómannafélag-
anna í Reykjavík og Hafnar-
firði annars vegar og útgerðar-
manna um kjör á bátum með
botnvörpu, dragnót, á ísfiskflutn
ingum og vöruflutningum inn-
anlands, hins vegar.
Eru samningarnir að mestu
samhljóða kauptöxtum, sem sjó-
mannafélögin gáfu út í desem-
ber.
Mun verða skýrt nánar frá
þessum samningum síðar.