Alþýðublaðið - 15.02.1944, Blaðsíða 7
S»riðjudagur 15. februar 1944.
Næturlæknir ér í nótt í Lækna-
rarðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Iðunnarapó-
fcki.
Næturakstur annast bifreiða-
®töðin „Hekla“, sími 1515.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—-16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19.25 Þingfréttir. ■
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Sálkönnun, I (dr.
Símon Jóh. Ágústsson).
20.55 Hljómplötur: Rússneskir
söngvar.
21.05 Tónleikar Tónlistarskólans:
Trío í a-moll, Óp. 50, eftir
Tschaikowsky.
31.50 Fréttir.
Segja upp samningum.
Á fundi skipstjóra- og stýri-
mannafélags Reykjavíkur, sem
haldinn var 10. þ. m., var sam-
þykkt að segja upp samningi við
Félag Mnuveiðaskipa og fiskflutn-
ingaskipá, um kaup og kjör skip-
stjóra og stýrimanna á skipum
þess félags, dag. 18. febrúar 1943,
en sem gilda átti frá 1. nóv. 1942.
Á sama fundi var samþykkt á-
skorun til Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, um að
gangast fyrir almennum umræðu-
fundi meðal sjómanna um örygg-
ismál sjófarenda. Fundurinn skor-
aði á alþingi að samþykkja til-
lögur F. S. í. og Alþýðusambands
íslands um nefndarskipun til end-
urskoðunar laga og reglugerða um
©ryggi á sjó. Þá voru og önnur ör-
yggismál sjófarenda tekin til með-
ferðar.
íslenzkir sagnaþættir og þjóðsög-
sögur IV.
eftir Guðna Jónsson magister
kom út í gær.
Rauðar stjörnur
heitir ný bók, er út kom í gær.
Er hún rituð af Jónasi Jónssyni
frá Hriflu og fjallar um ýmsa við-
burði í þjóðmálum.
Áheit á Strandarkirkju.
Kr. 4.00 frá S.
Vestfirðir.
í samtali því er blaðið birti í
fyrradag við Helga Hannesson eru
tvær meinlegar prentvillur á 7.
síðu, sem leiðréttast hér með:
Fyrri málsgreinin er þannig
xétt:
„Þar á Suðureyri og Flateyri er
mikill hugur í mönnum að bæta
við skipastólinn og treysta þeir
aðstoð þingmanns síns óskiptir í
íþeim efnum.“ Og síðari málsgrein-
'in:
„Uppstaða fregnanna, venjulega
gamla íhaldshatrið á ísafirði og í-
vafið þörfin á því að beina hugum
rnanna frá rafmagns- og hitaveitu-
málum höfuðstaðarins.
Finnbogi Arndal
gjaldkeri Sjúkrasamlags Hafn-
arfjarðar átti 30 ára starfsafmæli
í gær. 14. febrúar 1914 þegar
Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar var
stofnað var hann ráðinn gjaldkeri
þess og hefir hánn gegnt því starfi
síðan.
Sjómannasamningarnir.
Á einum stað varð villi í frá-
sögninni af samningi uni kjör sjó-
manna á vélbátum. Upphaf 1. gr.
er á þessa leið: „Af heildarafla
skipsins (brúttó) greiðist skipverj-
um 35% % .... “
STÚKAN ÍÞAKA.
Fundur í kvöld. Br. Árni Sig-
urðsson, fríkirkjuprestur flytur
erindi.
K4K>-KHKHK*KHh
ÚfbreiðiS Alþýðublaðið.
í^KHKHKHKHKHK
Hæstaréttardómnr
At af hnsnæði.
Leigjaodl dæmdnr út úr hús-
næði Þvi, sem hann hefur haft
| G Æ R var kveðinn
*■ upp í hæstarétti dómur
í húsnæðismáli. Féllst dóm-
urinn á álit húsaleigunefndar
og nam uppkveðinn úrskurð
úr gildi.
í niðurstöðum og dómi hæsta-
réttar segir:
Áfrýjandi, sem skotið hefir
máli þessu til hæstréttar með
stefnu 22. des. f. á., krefst þess,
að hinn áfrýjaði úrskurður
verði úr gildi felldur og honum
dæmur málskostnaður úr hendi
stefnda í héraði og fyrir hæsta-
rétti eftir mati dómsins.
Stefndi, Ólafur Jónsson, hefir
krafizt staðfestingar úrskurðar
fógeta og málskostnaðar úr
hendi áfrýjanida fyriú hæsta-
rétti eftir mati dómsins.
Áfrýjandi, Ásta Hallsdóttir,
hefir til íbúðar 2 herbergi og
eldhús á neðri hæð húss síns
nr. 34 við Vesturgötu og 2 her-
tbergi á efri -hæð. Eru öll her-
ibergin lítil og þó sérstaklega
þau, sem eru ó efri hæð. Á heim
ili iáfrýjanda eru Gunnar son-
ur hennar ásamt konu -sinni og
ibarni, iþrír aðrir synir hennar,
10, 16 og 23 ára að aldri, allir
iskólanemar svo og starfsstúlka.
Samkvæmt þessu taldi húsa-
leigunefnd, að ó-frýjandi hefði
ibrýna þörf á húsnæði stefnda
og verður að fallast á þann
skilning nefndarinnar. Ber því
að f-ella hinn -áfrýjaða úrskurð
úr gildi og leggja fyrir fógeta
að framkvæma útburðargjörð-
ina.
Eftir þessum úrslitum þykir
rétt, að stefndi greiði áfrýjanda
kr. 300.00 í málskostnað fyrir
hæstarétti.
Því dæmist rétt vera:
Hinn áfrýjaði úrskurður er
úr gildi felldur og ber fógeta
að framkvæma útburðargerð
þá, sem krafizt er..
Stefndi, Ólafur Jónsson,
greiði áfrýjanda, Ástu Halls-
dóttur, kr. 300.00 i málskostnað
fyrir hæstarétti.
Dóminum ber að fullnægja
að viðlagðri aðför að lögum.
Veiðarfæraskortur.
Frh. af 2. síðu.
♦
þess til dæmis, að Bandarikja-
menn hefðu selt hingað talsvert
af vélum í byrjun ófriðarins,
en venjan væri sú, að neitað
væri um varahluti í þessar vél-
ar. Taldi Finnur Jónsson furðu-
legt ef ekki væri hægt að koma
Bandaríkjamönnum í skilning
um það, að fiskframleiðslan,
sem þeir sjálfir viðurkenna að
sé þeim nauðsynleg, hlyti að
bíða stórkostlegan hnekki ef
þessu héldi áfram.
Viðskiptamálaráðherra svar-
aði og kvað ríkisstjórnina hafa
reynt eftir mörgum leiðum að
fá úr þessu bætt, en innflutn-
ingur á hampi hefði verið skor-
inn niður í stað þess að auka
hann. Sagði v.iðskiptamálaráð-
herra ennfremur, að nú væri
verið að reyna að fá úr þessu
bætt eftir stjórnmálaleiðum,
en enginn árangur hefði enn
orðið af þessum tilraunum.
Einnig tóku til máls um
þetta efni: Pétur Ottessen,
Eysteinn Jónsson og Lúðvík
Jósefsson og brýndu þeir allir
fyrir stjórniinnji að tgera allt,
sem unnt væri til þess að fá úr
þesgum vandræðum bætt.
iBœrinn í dag.
ftLPTOUBLAÐlÐ
Sjóður Dvalarheimilis
sjómanna er nú um
Frá aðalfundi fuIStrúa
rá8s sjómanna
dagsins.
Hjartans þakkir fyrir alla auðsýnda hluttekningu og vinar-
þel við andlát og útför, mannsins míns, föður og tengdaföður
Guðmundar Bjarnasonar, frá Stykkishólmi.
Hjörtfríður Elísdóttir, börn og tengdaböm.
ÐALFUNDUR Sjomannæ
dagsráðsins í Reykjavík og
Hafnarfirði var haldinn að Hótel
Borg miðvikudaginn 8. febrúar
s. 1. í Sjómannadagsráðinu eru
nú fulltrúar frá 13 félögum sjó-
manna í Reykjavík og Hafnar-
firði og bættist eitt við á Aðal-
fundinum, Mótorvélstjórafélag
íslands. Hvert félag tilnefnir 2
fulltrúa og voru flestir fulltrú-
arnir mættir á fundinum.
Áður en gengið var til dagskrár
minntiist f-ormaður hinna miklu
-sjósly-sa og aðstandenda þeirra
sem fórust en fundarmenn heiðr-
uðu minningu hinna látnu með
því að standa upp.
Á fundinum gaf stjórnin ýtar
lega skýrslu um störfin á árinu
og lagði fram endurskoðaða
reikninga. Hreinar tekjur af síð-
asta sjómannadegi og starfsemi
Sjómannadagsráðsins síðasta
r-eikningsár, námu 51,575,90, en
eignir SjómannadgsÍns í höfuð-
stólsreikningi nema nú
106,646,69 krónum. Af því er
hrein peningaeign um kr
90,000,00, en allur hagnaður af
starfsemi Sjómannadagsráðsins,
umfram það sem þarf til rekst-
urs sjómannadgs starfseminnar,
á að renna til hins fyrirhugaða
Dvalarheimilis fyrir aldraða sjó
menn, þar að auki hefir svo
gj aldkeri F j ársöf nunamef ndar
Dvalarheimilisins meðtekið um
550,000 krónur í gjöfum og áheit
um til hins fyrirhugaða heimilis
og af -því fé hefir 360,000 krón-
um verið komið fyrir í opinber-
-um verðbréfum til skamms
tíma.
Þá hefir og Sjómannadagsráð
ið varðveizlu á kr. 10,314,46,
sem íslenzkir -útgerð-armenn
gáfu til fyrirhugaðrar Sjómanna
stofu í Fleetwiood, sem ekki hefir
ennþá verið ráðstafað.
Sjómannadagsráðið vottar
dýpsta þakklæti sitt öllu-m þeim,
sem gefið hafa fé til Dvalarheim
ilis aldraða sjómanna og árnaði
þeim heilla.
Samþykkt var að fresta að
láta fara fram hugmyndasa-m-
keppni um híð fyrirhugaða Dval
arheimili, meðan allt væri í ó-
vissu um hvort Lauganesið feng
ist undir heimilið, en lögð á-
herzlu á að keppa að hinu eftir
sótta marki.
Fjársönfunarnefnd var þakk-
að fyrir slörf sín og var hún öll
endurkosin.
Þá -hefir Sjómannadagsráðið
barist fyrir að komið yrði upp
Sjóminjasafni og á tvo fulltrúa
í Sjóminjasafnsnefnd. Viðvíkj-
andi Sjóminj-asafninu voru eftir-
farandi tillögur samþykktar:
Aðalfundur Sjómannadags-
ráðsins samþykkir að heimila
gjaldkera Sjómannadgsráðsins
að a-fhenda nú þegar til hins fyr-
irhugaða Sjóminjasa-fns íslands
kr. 2,630,00, sem eru e-ftirstöðv-
ar frá sýningu Sjómanna 1939
og hagnaður af veðbanka í sam-
bandi við kappróðra Sjómanna-
dagsins. Enda verði peningun-
um varið til að hefja skipulagða
söfnun á skipa og áhalda eftir-
líkingum í ákveðnum innbyrðis
hlutföllum, er sýni söguleg-a þró
un íslenzkrar sjómenzku frá upp
hafi. Og verði þau hlutföll höfð
í sem nánasta samræmi við þá
líkön, sem nú eru til af togur-
■um og eknsklpum landsmanna.
Sömuleiðis samþykkir aðal-
fundur Sjómnnadagsráðsins, að
lafhenda n-ú þegar sjóminjasafns
nefnd, muni þá, sem sjómanna-
dagurinn á -frá Sjómannasýning
unni, og nema að bókuðu verði
kr. 775,00.
Ennfremur ley-fir Sjómanna-
Leikfélag Hafnarfjarðar:
Ráðskona Bakkabræðra
verður sýnd , annað kvöld kl 8,30.
Aðgöngumiðar í dag frá klukkan 4—?
Ath. Ekki svarað í síma fyrsta hálftímann.
dagsráðið sér að skora á Bæjar-
stjórn Reykjavíkur að undir-
strika góðan hug sinn til Sjó-
minjasafnsins samkvæmt fyrri
samþykkt bæjarstjórnar, og
vei-ta nú á þessu ári ríflegum
fjárstyrk til Sjóminjasafnsins,
og samþykkir Sjómannada-gsráð
ið af -sinni hálfu að sú breyting
verði gerð á Sjóminjasafnsnefnd
að bæjarstjórn fái þar fulltrúa.
Þá skorar Sj-ómannadagsráð-
ið ó alþingi að auka nú mjög f jár
styrk sinn til hins fyrirhugaða
Sjóminjasafns, svo nefndin geti
látið sjást einhvern árangur af
störfum sínum.
Samþykkt var á fundinum að
gefa út Sjómannadagsblaðið
eins og að undanförnu, og vanda
útgáfu -þess eftir mætti. Friðrik
Halldórsson lofskeytamaður var
ráðinn ritstjóri næsta blaðs.
Á f-undinum fór fram stjórnar
kosning, og var sama stjórn end-
urkosin, en hana skipa Henry
Hálfdánarson form., Sveinn
Sveinsson ritari, Bjarni Stefáns-
son Fjölnisveg 4 gjaldkeri. Vara
menn: Guðmundur H. oddsson,
Jón Kristófersson og Þor-steinn
Árnason. Fundarstjóri á fundin-
um var Þorsteinn Árnason.
Yfirlýsing.
Frá stúdentaráði háskól-
ans hefir Alþýðublaðinu
horizt ef-tirfarandi yfir-
lýsing.
í BLAÐINU HVÖT, sem
S.B.IS. sér um útgáfu á —
en ríkið ber kostnaðinn af —
hirlist grein eftir Guðmund
Sveinsson stud. theol, sem á að
vera svar til Stúdentaráðs, við
yfirlýsingu þess varðandi út-
varpsræðu, sem stúdent þessi
flutti á vegum S.B.S. — 30. jan.
s. 1. og fræg er orðin.
í grein þessari leggur höfund-
ur aðaláherziluna á þrjú eftir-
farandi atriði:
1. Að hann hafi efcki flutt
ræðuna í þeim tilgangi að sverta
skólaf-élaga sí-na né háskólann
í augum þjóðarinnar.
2. Að -Stúdentaráð hafi með
yfirlýsing-u sinni tekið -upp
hanzkann fyrir drykkjuskap og
óreglu.
3. Að tfyrrnefnda yfirlýsingu
Stúdentaráðs sé ekki að marka,
því að lögreglan hefir neit-
að Stúd-entaráði um yfirlýsingu
þess efnis, að skemmtunin hafi
farið sómasamlega fram.
Við þetta hefir Stúdentaráð
eftirfarandi að -athuga.
1. Enginn stúdentaráðsmaður
hefir látið þá skoðun upp, að
titfgangur Guðm. Sveinssonar
með ræðunni hafi verið sá að
rýra áli-t háskólas-túdenta eða
háskólans með ræðu sinni, enda
mun ómögulegt að ráða það
af yfirlýsingu Stúdentaráðs.
Þar segir, að Stúdentaráði þyki
það miður, að háskólastúdent
skuli hafa gert sig sekan í þessu
en það hefir Guðm. Sveinsson.
vissulega gert, og mun það
st-afa af því, að hann hefir ekki
gert sér ljóst hvernig umtal
ræða hans myndi vekja meðal
hjóðarinnar. Hér er því skamm-
sýni hans um að kenna, en ekki
illgirni, og hróflar það í engu
við ytfirlý-singu St-údentaráðs.
2. í yfirlýsingunni er enga
vörn að tfinna fyrir drykkjuskap
og óreglu. iStúdentaráð gerði að-
eins þá skyldu sína að verja
stúdenta fyrir óréttmætum á-
-burði, sem vissule-ga gat verið
skaðlegur hagsmunum þeirra
og -heiðri. í yfirlýsingunni legg-
ur það áherzlu á, að umrædd
skemmtun hafi farið það sóma-
samlega tfram, -að umvandanir
Guðmundar iSveinssonar og
safnaðar hans séu ástæðulausar.
'Hvort þessi skoðun -Stúdenta-
ráðs á 'skemmtuninni er -réttari
-heldur en ummæli G. S. verður
hver að gera upp við sig eftir
eigin siðfræði. En til þess að
skera ótvírætt -úr um hvor að-
ilinn hafi á réttu að standa
Iþyrfti réttarrannsókn og síðan
dóm.
3. Um yfirlýsingu lögregl-
unnar er það að segja, að lö-
regluþjónarnir, -sem eftirlit
höfðu á dansleiknum tjáðu sig
fúsa til að votta, að sk-emmt-
unin hafi farið mjög vel fram
og með ágætum, ef tillit er tek-
ið til fólksfjölda. Sitjórn 1-ögregl-
unnar, sem ekki var á skemmt-
uninni, bannaði rögreglunni að
gefa þess-a yfirlýsingu, — ekki
vegna þess að þeir rengdu lög-
regluþjónana, — heldur vegna
þess, að lögreglan hefir aldrei
-gefið yfirlýsingu í hliðstæðum
tilfellum, og fþví varhugavert
að þrjóta þá reglu. Þetta vis-si
G. S. mjög vel, og er það því
vægast sagt ódrengilegt að núa
Stúdentaráði því um nasir, að
það væri -á óviðeigandi hátt að
iblanda lögreglunni í þetta mál.
Viðvíkjandi „Opnu bréfi“
Helga iSæmundssonar um þetta
mál í umgelnu eintaki ,,Hvatar“
til formanns Stúdentaráðs, -sér-
ráðið ástæðu til að taka það
fram, að það stóð sem einn mað-
ur að yfirlýsingunni, en stjórn
ráðsins var -falið að ganga end-
anlega frá henni í samráði við
rektor háskólans og koma -henni
til 'birtingar í blöðum og út-
varpi.
í stúdentaráði háskólans:
Páll S. Pálsson, Jónas G. Rafn-
ar, Bárður Daníelsson, Björgvin
Sigurðsson, Einar Ágústsson,
'Gunnar Vagnsson, Guðmundur
V. Jósefsson, Björn Þorþjörn-
son, Eiríkur Finnþogason.
‘“sk“r \
i hæsta verði. c
UúsoagnaviHnDStor >
> BaldursgP' \