Alþýðublaðið - 03.03.1944, Síða 2
2
<MJP»v*>UBLAÐiP
Föstudagor 3. man 1941
Fjársðfnnn til danskra
Mtamanna i Ssípjóð.
Ávarp til ísienzku pjóðarinnar.
MIKILL FJÖLDI danskra jlóttamanna dvelur í Svíþjóð og
víðar um þessar mundir. Flestir þessara manna hafa komizt
úr landi slyppir og snauðir, og munu eiga litla kosti atvinnu og
vera mjög hjálparþurfa. Fólk þetta er úr öllum stéttum þjóð-
félagsins og meðal þess margt barna, kvenna og gamalmenna.
íslenzka þjóðin hefur þegar sýnt Finnum og Norðmönnum
samúð sína í verki og efnt til almennrar fjársöfnunar þeim til
handa. Eru það þá Danir einir af hinum nauðstöddu Norður-
landaþjóðum, sem enginn slíkur vináttuvottur hefur verið sýnd-
ur. Mun það hafa komið af því, að fram til þessa hafa íslending-
ar litið svo á, að eigi væri hægt að veita þeim hjálp, er að gagni
mætti koma, en nú mun þörf hinna dönsku flóttamanna í Sví-
þjóð vera einna brýnust þeirra Norðurlandabúa, sem unnt er að
rétta hjálparhönd eins og sakir standa.
íslendingum hefur vegnað svo vel, þrátt fyrir allar hörm-
ungar stríðsins, að þeir eru aflögufærir öðrum til styrktar, og
munu þeir fúsir að sýna Dönum þannig vinarhug í verki. Verði
þátttakan almenn, erum við færir um að létta verulega raunir
margra danskra flóttamanna, og það án þess, að nokkur einstak-
lingur taki nærri sér.
Væntum vér því, að íslendingar liggi nú ekki á liði sínu,
heldur láti gjafir skjótt og vel af hendi rakna, enda er ætlunin,
að söfnunin standi aðeins yfir næstu mánuði. Mun sannast sem
jafnan, að fyrsta hjálpin er bezta hjálpin, enda verði féð sent
jafnóðum og það kemur inn.
Það má ekki einvörðungu telja rétt að íslenzka þjóðin efni
til slíkra samtaka, heldur siðferðilega skylt. íslendingar mega
aldrei láta hlut sinn eftir liggja, þegar unnið er að mannúðar-
málum
Reykjavík 1. marz 1944
Sigurður Nordal Kristján Guðlaugsson
prófessor ritstj. Vísis, form. M. F. í.
Lúðvíg Guðmundsson Ben. G. Waage
skólastjóri. forseti í. S. í.
Stefán Jóh. Stefánsson Páll S. Pálsson
form. Norræna félagsins. form. Stúdentaráðs.
Bjöm Br. Bjömsson Gísli Sveinsson
tannlæknir. forseti sameinaðs alþingis.
Björn Þórðarson Haraldur Guðmundsson
forsætisráðherra. form. þingfl. Alþýðufl.
Brynjólfur Bjarnason Ólafur Thors
form. miðstj. Sósíalistaflokksins. form. Sjálfstæðisflokksins.
Eysteinn Jónsson Sigurður Sigurðsson
form. þingfl. Framsóknarmanna. form. Rauða kross íslands.
Jón Hjaltalín Sigurðsson Guðmundur Ásbjömsson
rektor Háskóla íslands. forseti bæjarstjómar Rvíkur.
Pálmi Hannesson Magnús Jónsson
rektor Menntaskólans. próf., form. Utvarpsráðs.
Jónas Þorhergsson Jakob Kristinsson
útvarpsstjóri. f ræðslumálast j óri.
Skúli Skúlason Sigurður Guðmundsson
form. Blaðamannafél. íslands. skólameistari, Akureyri.
Ásmundur Guðmundsson Ingimar Jóhannesson
próf., form. Prestafélags íslands. form. Samb. ísl. barnakennara.
Helgi H. Eiríksson Hallgrímur Benediktsson
forseti Landssamb. iðnaðarm. foryi. Verzlunarráðs íslands.
Gúðgeir Jónssón Tómas Guðmundsson
forseti Alþýðusamb. íslands. form. Bandalags ísl. 1 istamanna.
Valtýr Stefánsson Stefán Pétursson
ritstjóri Morgunblaðsins. ritstjóri Alþýðublaðsins.
Sigurður Guðmundsson Ámi Jónsson frá Múla
ritstjóri Þjóðviljans. ritstjóri Islands.
Þórarinn Þórarinsson Bjarni Ásgeirsson
ritstjóri Tímans. form. Búnaðarfélags Islands.
Kristinn Stefánsson Kjartan Thors
stórtemplar. form. Landssamb. ísl. útvegsm.
Magnús Pétursson Ragnhildur Pétursdóttir
héraðsl., form. Læknafél. ísl. form. Kvenfélagasamb. íslands.
Daníel Ágústínusson Bjarni Jónsson
ritari sambandsstj. U. M. I. vígslubiskup.
Steindór Steindórsson Kristjan Jónsson
form. Akurey.deildar Norr. fél. form. Isafjd. Norræna félagsins.
Jakob Jónsson Jón Thorarensen
prestur. prestur.
Garðar Svavarsson -■ Ámi Sigurðsson
prestur. f ríkirlcj uprestur.
Helgi Tómasson Gunnlaugur Einarsson
læknir.
Stórkostleg vandræði í Reykja
vik vegna rafmagnsleysisins.
Borgin rafmagnslaus í hálfan
annan sólarhring.
ðll Iðntyrirtæki stððvuðnst, og
neyðarástand var á heimilnnnm
Reykjavíkurbær var rafmagnslaus undanfar-
inn lVz sólarhring. Hvarf rafmagnið kl. rúmlega
8 á miðvikudagsmorgun, kom um stund kl. 9 um kvöld-
ið, en hvarf aftur um miðnætti — og kom ekki aftur
fyrr en kl. tæplega 6 í gærkvöldi.
Allur iðnaður í bænum stöðvaðist, engin blöð komu
út, nær öllum greiðasölustöðum var lokað og fjölda-
mörgum skrifstofum, þar á meðal opinberum skrifstof-
um t. d. skrifstofum stjórnarráðsins.
* Mesta hörmungarástand ríkti á
hundruðum heimila í bæmun.
Ekki var hægt að elda eða hita
vatn, þar sem ekki voru til olíu-
eða kolaeldfæri, og svo bættist
það við, að mestan hluta mið-
vikudags hvarf einnig gas, þar
sem það var þó fyrir.
Hreinustu vandræði voru að
dæla heitu vatni til bæjarins —
og var þó Elliðaárstöðin notuð til
þess (og handa útvarpsstöðinni,
svo að hægt væri að útvarna út
um land). En revnt var þó af
fremsta megni að dæla heita
vatninu, en er líða tók á báða
dagana, tæmdust geymarnir og
nístandi kuldinn bættist við
mvrkrið á heimilum fólksins.
Þó að enginn útreikningur liggi
fyrir um tjón af völdum raf-
magnslevsisins, þá má þó full-
yrða, að það skipti milljónum
króna. Er ægilegt til þess að vita,
að við getum þá og þegar átt von
g . n , áað slíkt og þvílíkt endurtaki
efrl § fiær. sig. Eru Reykvíkingar að vísu
orðnir ýmsu misjöfnu vanir í
þessu efni á þessum vetri.
Aðfaranótt miðvikudags gerði
mikið frost og bfsarok. Var veður
ákaflega vont og frostharkan
mikil við Ljósafoss. IJndir morg-
uninn . stöðvuðust vélarnar og
kom í Ijós að ísnálar eða krap
hafði setzt í vélar stöðvarinnar
og varnað vatnsrennslinu. Stafaði
þetta af frostinu og því. að rokið
var svo mikið að vatnið lagði
ekki. Þegar í stað voru allir verk-
færir menn við stöðina, sem
Dæmdur úr hemum
með smán og í 8 ára
þrælkunarvinnu.
jL| ERNAÐ ARYFIRVÖLDIN
gáfu í fyrradag út tilkynn-
ingu um að hermaður sá, sem
gerði um daginn tilraun til að
nauðga 15 ára gamalli íslenzkri
stúlku, sem var á leið til heimil-
is síns á Seltjarnarnesi, snemma
um kvöldið 16. febrúar, hefði
verið dæmdur.
Maðurinn var dæmdur burtu
úr hernum með smán og í átta
ára þrælkunarvinnu.
Stiórnarskráin:
Til lyrsiu umræðu
iild í aær.
1
ST J ÓRN AR.SKRÁRFRUM-
VARPIÐ kom til fyrstu
umræðu í efri deild í gær, en
alþingi hélt fundi báða dagana,
þrátt fyrir rafmagnsleysið. —
Ekki urðu teljandi umræður
um frumvarpið í deildinni að
þessu sinni og var því vísað til
annarrar umræðu með sam-
hljóða atkvæðum.
Bæjarstjómarfundor í gær;
Yerður raSmagnsverðlð
læifkað afitur f
Sérfróðir merni eiga að rannsaka bil-
anirnar og truflaiiirnar á rafmagninu
—-----------------------------
BÆJARSTJÓRNARFUNDUR, sem haldinn var í gær,
samþykkti svohljóðandi tillögu frá hæjarfulltrúum Al-
þýðuflokksins og Árna Jónssyni frá Múla:
„Bæjarstjórnin samþykkir að fella niður hækkun þá
á verði rafmagns, sem ákveðin var 18. nóvember 1943.“
Mun þessi tillaga koma til annarrar umræðu og úrslita-
atkvæðagreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.
Þá var samþykkt að fela hæjarráði að fá sérfróða menn
til að athuga, hver ráð verði fundin til að koma í veg fyrir
bilanir og íruflanir á Sogsvirltjuninni og rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Uátlðahðld Nor-
rænafélagsins.
■SL5 ÁTÍÐ Norræna félagsins
■*■-" af tilefni aldarfj órðungs-
afmælis félaganna verður í
kvöld í Hótel Borg og hefst kl.
19.30 stundvíslega. Aðalræð-
una flytur Björn Þórðarson
forsætisráðherra. Aðgöngumið
ar sækist fyrir kl. 2 í dag.
Dagskráin, sem félagið átti
að hafa í útvarpinu í fyrra-
kvöld, en fórst fyrir vegna raf-
magnsbilunarinnar, verður á
sunnudaginn kemur.
Konsert félagsins verður á
sunnudag kl. 1.30 (en ekki kl.
7.30 eins og misprentaðist á að-
göngumiðunum). Eru félags-
mennirnir beðnir að sækja
miðana sem allra fyrst, annars
verða þeir seldir öðrum.
hægt var að koma við, settir til
að reyna að hreinsa ísnálamar
eða klakastykkin burtu. Var
þetta ákaflega erfitt verk og ill-
vinnándi, einnig vegna þess að
líklegt var að það væri unnið-
fyrir gýg. Reyndist það og svo.
Þegar mennirnir höfðu unnið
sleitulaust frá því snemma á
miðvikudagsmorgun og fram á
kvöld,_ var búið að hreinsa svo
mikið, að hægt var að setja vél-
arnar í gang og setja strauminn
á bæinn. En strax sótti í sama
horfið, nýjar ísnálar mynduðust
og allt stoðvaðist enn að nýju.
Var vinnunni enn haldið áfram
án nokkurrar hvíldar. Veðrið
lægði mjög við Ljósafoss um há-
degisbilið í gær, og varð þá hæg-
ara um vik og meiri vonir um að
vinnan yrði ekki til einskis, og
kl. 5.48 í gær var straumnum
hleypt á bæinn.
Það ástand, sem verið hefir
hér í höfuðstaðnum tvo undan-
farna daga af völdum rafmagns-
leysisins, hlýtur énn einu sinni
að vekja þann grun, að eitthvað
meira en lítið hljóti að vera
bogið við stjórn rafmagnsmál-
anna hjá okkur. Menn trúa þv£
ekki, að við þurfurn að vera svo'
varnarlausir gegn vetrarveðrátt-
unni, sem nú hvað eftir annað
hefir komið í ljós á þessum vetri
í rafmagnsmálunum.
Menn spyrja í því sambandi:
Hvernig fara Norðmenn, Finnar,
Svíar, Rússar og aðrar norðlæg-
ar þjóðir að? Ekki eru frostin og
vetrarhörkurnar minni í löndum
þeirra en hér. Þó heyrist það
ekki nefnt, að orkuver þeirra,
lamist né heilar borgir verði raf-
magnsláusar.
Afreitt |fem löl:
mm y
Sigríður Eiríksdóttir Þuríður Bárðardóttir
form. Hjúkrunarkv.fél. íslands. form. Ljósmæðrafélags íslands.
Friðrik Hallgrímsson
dómprófastur.
■E* RUMVARPIÐ um réttindi
danskra ríkishorgara á ís-
landi var í gær afgreiíí sem Iög
frá alþingi, en þá gekk það I
gegnum þriðju og síðustu um-
ræðu í efri deild. Tók frumvarp-
ið engum breyíingum í meðferð
þingsins, enda gekk það gegnum
allar umræður í báðum deildnm
án þess að nokkur þjnymaður
tæki til míls um það.