Alþýðublaðið - 19.03.1944, Síða 2
.,'.i •. . •. ** • *
Sunnudagxir 19. man 194C
AðalfnndurAlíýðo-
flokbsíélagsios
annað kvöld.
AÐALFUNDUR Alþýðu-
flokksfélags Reykjavík-
ur tverður haldinn annað
kvöld klukkan 8.30 og verður
fundurinn í Iðnó, gengið inn
frá Vonarstræti.
Á dagskrá fundarins eru fé-
lagsmál, skýrsla formanns fé-
lagsins, ritara og gjaldkera
um starf og rekstur félagsins
á liðnu starfsári, kosning á
stjórn og í aðrar trúnaðarstöð
ur, ákvörðun félagsgjalda og
önnur mál, sem fram kunna
að koma.
Þess er vænzt að sem allra
flestir félagsmenn komi á
fundinn og mæti stundvís-
lega.
1. maí nefnd fullirúa-
ráðs verkalýðs-
félaganna.
AFUNDI Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna 17. þ.
m. voru eftirtaldir menn kosn-
ir í l.-maí-nefnd:
Eðvarð Sigurðsson,/ Björn
Bjarnason, Snorri Jónsson, Jó-
hanna Egils’dóttir og Garðar
Jónsson.
FuHtrúaráð^fundorinn i fyrrakvold;
Koiiiítiánistar hora ekki i mál nt af
Þeir válja isara liaMa áfraiis réfi*
iBiaBsa nm ASpýéfiifiekliIaiii i sassi'
liaiidi vlö Iiapss f
Peir hlndruöu að tiliaga um málshöfð'
un væri borin undir ffundino !
FALSIÐ OG HRÆSNIN í framkomu kommúnista for-
sprakkanna kom vel fram á fundi, sem haldinn var
í Fulltrúaráði verkalýðfélaganna síðastliðið föstudagskvöld.
1 auglýsingunni um fundinn var aðallega getið tveggja mála,
sem voru á dagskrá: kosningar nefnda til að undirbúa hátíða-
höld verkalýðsins 1. maí næstkomandi og tillögu um málshöfð-
un út af sölu eigna Fulltrúaráðsins.
Á fundinum ræddu komm-
únistarnir fjálglega um það, að
verkalýðurinn ætti að standa
saman á hátíðisdegi sínum, en
við annan tón kvað, er kom að
næsta máli á dagskránni, hinni
svokölluðu tillögu um máls-
höfðun vegna sölu á eignum
Fulltrúaráðsins.
Þeir Eggert Þorbjarnarson
og Þorsteinn Pétursson voru
látnir hafa fyrir því að túlka
þetta mál fyrir meðlimum
Fulltrúaráðsins, en kommún-
istar hafa eins og kunnugt er
meirihluta þar. Bar Eggert
fram fyrir hönd stjóranr Full-
Hafin er
sðp árnessýsln.
Fyrri hluti fyrsta bindis a2 © ei‘ krnnsnn slt
Verkið verður alls um 2 pús. biaðsiður.
HAFIN er útgáfa á Ámesingasögu. Útgefandi hennar
er Árnesingafélagið. Ritstjóri útgáfunnar er Guðni
Jónsson magister. Árnesingasaga verður 6 bindi alls í stóru
broti og má gera ráð fyrir að þau verði samtals um 2 þúsund
blaðsíður að stærð.
Fyrri hluti fyrsta bindis kom
út í gær. Er það hin myndar-
legasta bók: „Náttúrulýsing
Árnessýslu" eftir Guðmund
Kjartansson jarðfræðing frá
Hruna. Er þessum fyrri hluta
skipt í tvo hluta: „Yfirlit og
jarðsaga“, og skrifar Guð-
mundur Kjartansson þann
hluta, sem er 250 blaðsíður, og
„Gróður í Árnessýslu", sem er
18 blaðsíður, og skrifar Stein-
dór Steindórsson þann hluta.
Hin bindin verða um efni
eins og hér segir: Landslagslýs-
ing, og verður það prýtt fjölda
mynda. Mun Guðmundur Kjart
ansson einnig skrifa þann
hluta, Saga Árnessýslu frá
landnámsöld til vorra daga, og
skrifar Guðni Jónsson það
bindi. Hin bindin verða með
frásögnum, þáttum og sögnum
af fólki, sem byggt hefur Ár-'
nessýslu og eitt bindi með
þjóðsögum.
Hér er um að ræða eina full-
komnustu héraðslýsingu, sem
ráðizt hefur verið í að gefa út
— og gefur þetta fyrsta bindi
sem út er komið mjög góðar
vonir um framhaldið. Er lýsing
Guðmundar Kjartanssonar á
jarðfræði Árnessýslu hin
skemmtilegasta og fróðlegasta
Fylgja frásögn hans margar
myndir og teikningar.
í formála fyrir þessu riti sínu
segir Guðmundur Kjartainsson
meðal annars:
„Undanfarin sumur, einkum
sumarið 1941, hef ég ferðazt
nokkuð um Árnessýslu í rann-
sóknarskyni og hafði þá samn-
ingu þessa rits í huga. Lítið hef-
ur áður birzt á prenti um jarð-
fræðiathuganir mínar, og segir
frá þeim flestum í fyrsta skipti
í þessu riti. Mér verður miklu
tíðræddara um mínar athuganir
en annarra, og því vil ég taka
það skýrt fram, að jarðsaga
Árnessýslu er að mjög litlu
leyti mitt verk. Sjálft efnið —
rannsóknir og uppgötvanir —
hefur verið dregið að um því
nær tveggia alda skeið. Þeir
Eggert Ólafsson og Sveinn
Pálsson drógu að fyrstu viðina
til þeirrar smíðar. Jónas Hall-
grímsson og ýmsir merkir út-
lendir vísindamenn juku miklu
við. Þorvaldur Thoroddsen við-
aði feikimiklu að, en lét ekki
þar við sitja: hann rak saman
grindina. Helgi Péturss fann
veilu í grind Þorvalds, reif
nokkurn hluta hennar niður og
reisti að nýju traustari en áð-
ur. Síðan hefur lítill hópur
jarðfræðinga, innlendra og út-
lendra, neglt fjalir á máttar-
viðina, en lítt hróflað við þeim
sjálfum. Minn skerfur er aðeins
af því tagi.“
trúaráðsins tillögu um það, að
spyrjast fyrir um það hjá fé-
lögunum, sem mynda Fulltrúa-
ráðið, hvort þau æsktu þess, að
Fulltrúaráðið höfðaði riftunar-
mál gegn kaupendum eign-
anna.
Þetta kom fulltrúunum á ó-
vart, því að svo leit út í aug-
lýsingunni um fundinn, að bor-
in yrði fram tillaga um að slílc
málshöfðun yrði látin fara
fram fyrir hönd stjómar Full-
urinn var. Hann var ekki sá,
að leita til dómstólanna til þess
að fá úr þessu máli skorið,
heldur aðeins sá að skapa nýj-
an grundvöll fyrir áframhald-
andi rógi og níði innan verka-
lýðshreyfingarinnar út af mál-
inu.
Héðinn Valdimarsson hóf
þapnan róg á sínum tíma og
var dæmdur fyrir. Síðan tóku
kommúnistar hann upp og hafa
japlað á honum síðan. Nú
finnst þeim vera farið að dvaga
eitthvað úr notagildi níðsins og
þess vegna fitja þeir upp á
iþessu máli nu, og nú skal gefa
kommúnistasprautunum í fé-
lögunum „frítt spil“ með róg-
inn. Beynt mun verða að draga
þetta sem mest á langinn svo
að vel notist að.
Þetta varð fulltrúum á fu.nd-
inum ljóst.
Báru þá þeir Guðgeir Jóns-
son, forseti Álþýðusambands-
ins, og Jón Axel Pétursson
fram svohljóðandi tillögu:
„Þráít fyrir það þó að við
vitum að rétt og löglega var
gengið frá sölu svokallaðra
eigna fulltrúaráðs verkalýðsfé-
laganna í Reykjavík og salan
samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta aíkvæða við tvær
umræður, þá viljum við með
tilliti til þessa sífelda rógs er um
þessar ráðstafanir gengur og á-
lygar á einstaka menn í verka-
lýðssamtökunum út af nefndu
máli, samþykkja og leggja til
að salan verði sannprófuð fyrir
dómstólunum.“
Þegar þessi tillaga kom fram
kom fát á kommúnista. Tillag-
an var að sjálfsögðu borin fram
sem breytingartillaga við til-
lögu stjórnarinnar, en fundar-
stjórinn, Eggert Þorbjarnarson,
úrskurðaði hana sjálfstæða til-
lögu og samþykktu kommún-
istar það.
Hallbjörn Halldórsson, fuí-
trúi prentarafélagsins, bar
fram tillögu um að vísa málinu
frá, en hana felldu kommiín-
istar. Var tillaga stjórnarinnar
síðan samþykkt, og þar með
tillaga Gugeirs Jónssonar og
Frii. á 7. síðu.
Jún Dorle fsson epa-
ar spingis I dag.
JÖN Þorkelsson listmálari
opnar málverkasýningu í
dag í Sýningarskála listamanna.
Á sýningunni eru um 90 mynd
ir, málverk og vatnslitamyndir.
Verður hún opin í 12 daga.
Þrjú ár eru nú liðin síðan Jón
Þorleifsson hafði sýningu á lista
verkum sínum.
Togarinn Sindri
bjargar 4 amerísk-
um flugmennum.
Flugvél þeirra bilali og þelr
nauðlenfu á sjónum skammf írá
fogaranum.
brem verkiræinpm faiið afS
aíbuga þsr.
FUNDI sínum í fyrrakvöld
samþykkti bæjarráð að
fela verkfræðingunum Stein-
grími Jónssyni rafmagnsstjóra,
Gunnlaugi S. Briem og Sigurði
Thoroddsen (yngri) að rannsaka
og gera tillögur til úrbóta
vegna bilananna á raímagns-
stöðinni við Sogið.
Það er orðið nokkuð langt síð
an bæjarstjórn samiþyklcti að
CAMKVÆMT frásögn
ameríska setuliðsblaðs-
ins hér „Hvíti fálkinn“, sem
út kom í gær, bjargaði tog-
arinn „Sindri“ nýlega 4 ame*
rískum flugmönnum, er vom
í nauðum staddir.
Segir í blaðinu meðal annarw
þannig frá þessari björgun:
Togarinn Sindri var að veið-
um fyrir Suðvesturlandi þegar*
ameríska flugvél bar þar að.
Var hún sýnilega biluð og flug-
mennirnir í leit að möguleikum
til björgunar. Fyrst flaug flug-
vélin einn hring lágt yfir tog-
aranum, en settist síðan á sjó-
inn svo sem í 300 metra fjar-
lægð frá honum. Sindri hrað-
aði sér þegar í stað til flugvél-
arinnar. Var fremur slæmt í
sjóinn. Var línu skotið til flug-
mannanna og þeir dregnir um
borð hver af öðrum. Tóku.
skipverjar á togaranum flug-
mönnunum tveim höndum.
Voru þeir klæddir úr blautum
klæðunum og látnir í rúm.
Nokkrum klukkustundum síðar
voru þeir fluttir til hafnar.
Þegar flugvélin skall á sjónum,
hrökk einn flugmannanna út
úr henni, en honum tókst að
synda að gúmmíbát, sem settur
háfði verið á flot. Ánnar flug-
maður hrökk af öðrum væng
flugvélarinnar og munaði
minnstu að hann drukknaði.
Róma flugmennirnir mjÖg
þær móttökur, sem þeir fengu á
togaranum.
Leikfélag: Reykjavíkur
sýnir Óia smaladreng kl. 4.3Ö í
dag. Aðgöngumiðasalan hefst kl.
1.30 í dag. Leikritið Eg hef kom-
ið hér áður verður verður sýnt £
kvöld kl. 8.
slík nefnd yrði skipuð og hefur
ekki verið flýtt sér að því að
gera það. »
Mun almenningi áreiðanlega’
leika mikil forvitni á því að fá
að sjá hvort sérfræðingar þess-
, ir komasl að nokkurri niður-
! stöðu.
„Eg hef tíiiogur í undirbúningi um
þaðu, segir bæjarverkfræðingur ?
SVO MÁ SEGJA, að bærinn
sé allur sundur rifinn,
þegar ég tck við starfi mínu“,
sagði Boili Thoroddsen bæjar-
verkfræðingur í gær í samtali við
Alþýðublaðið.
Blaðið spurði hann, hvort búið
væri að ákveða hvaða götur
yrðu teknar til viðgerða fyrst
er byrjað yrði á gatnagerðinni.
„Nei, svaraði bæjarverkfræð-
ingur. Það er enn ekki búið að
ákveða, en bæjarráð hefir falið
mér að gera tillögur um þetta
efni og ég mun leggja tillögur
mínar fyrir bæjarráð, annars
þarf í mörg horn að .líta — alls
staðar er mikil þörf fyrir um-
bætur, hitaveituframkvæmdirn
ar hafa eins og eðlilegt er valdið
miklu raski á götunum og hin
stóraukna umferð krefst vitan-
lega aukinnar viðgerðar.“
— Hvað á að verjá miklu fé
til viðhalds gatpa á þessu fjár-
hagsári?
„Til viðhalds gatna eru áætl-
aðar 2 milljónir og 700 þúsund
krónur, en til nýrra gatna og
hoíræsa 2 milljónir króna. Þann
ig höfum við ráð yfir tæpum
5 milljónum króna, dýrtíð er
mikið fé, þörfin er mikil, það er
allar framkvæmdir kosta því
mikið fé þörfin er mikil, það er
öllum ljóst — og allt verður
gert sem unnt er“.
Það gefur nökkra lýsingu á
ástandi gatnanna hér í bænum
sem bifreiðarstjóri sagði við
þann, sem þetta skrifar, í gaer.
Hánn sagði: „Nú er betra að
aka um göturnar, snjórinn fjdlir
upp holurnar!“