Alþýðublaðið - 04.04.1944, Side 6
6
i
Þessi mynd sýnir tvær ítalskar konur, sem eru að koma heim
í smábæinn sinn; eða réttara sagt rústirnar af honum,
skammt frá Napoli, eftir að bardögum var lokið þar. Hversu
víða mun heimkoman ekki verða lík að þessu stríði loknu.
Árásin á háskólann í Oslo:
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN
Frh. af 4. síðu.
til þess að kosta skólahald okkar.
En með því er þjóðin að leggja
peninga á vöxtu til framtíðarinnar,
þar sem fullyrða má, að þeir 300
nemendur, sem sitja í menntaskól-
anum nú, eru allir staðráðnir í
því að vinna landi sínu og þjóð allt
það gagn, sem þeir mega. Og þá
og með því munu þeir greiða skuld
sína við land sitt og þjóð.“
Þannig farast útgefendum
„Skólablaðsins“ orð. En sjálft
ber blaðið svo margvíslegum á-
huga bæði nemenda og kennara
vott, að það verður vissulega
ekki í efa dregið, að sú kynslóð
að minnsta kosti, sem nú er í
skólanum, muni á sínum tíma
greiða landinu þá skuld, sem
hún er í við það, bæði með vöxt-
um og vaxtavöxtum.
GjaSir
lil vinnuheimilis berklasiúklinga.
Eftirtaldar gjafir
hafa síðustu daga borizt til
Vinnuhælis berklas júklinga:
Sjörlíkisgerðin Ásgarður h.f.
kr. 1000.00, NN. kr. 10.00, Simon
Kristjánsson og frú, Hafnarf.,
í minningú Ásmundsr Sírnon-
arsonar kr. 300.00, Starfsfólk
Olíuverzlunar ísl. h.f. kr.
1235.00, Ásmunduir Guðnason
o. fl., Djúpavík kr. 725.00, Af-
hent af Ríkisútvarpmu: E. S.
(áheit) kr. 20.00, Ásgeir Jó-
hannsson, Kálfh., Rang. kr.
50.00, Kona á Vestfjörðum (á-
heit) kr. 10.00, Gamall sjúk-
lingur (á'heit) kr. 10.00, Kona í
Vestmannaeyjum (áheit) kr.
50.00, Kona í Ves^mp^^nevium
(áheit) kr. 50.00, Áheit lcr. 2.00,
H. 0. kr. 5.00, D. E. kr. 50.00,
Blindur (áheit) kr. 50.00. Jón
Kristóférsson, Biarkarg. 10 kr.
50.00 Sésselja Pálsdóttir, Sléttu,
Reyðarf.. Jcr.. 100.00.
30. marz 1944.
Skrifstöfa S. í. B. S.
Frh af 4. síðu
og eins 1 snilldarþýðingu Einars
Benediktssonar. Þó finnst mér
viðeigandi að rifja upp fyrir les-
endum að lokum nokkur orð úr
grein, sem Einar Benediktsson
skrifaði sjálfur um „Pétur Gaut“
og lét fylgja þýðingunni:
„Meginefni sögunnar er lýsing
eigingirni og sjálfbyrgingsskapar
gagnvart kærleika og æðri þekk-
ing, sem Norðmaðurinn öðlast
gegrtum miklar lífsbreytingar,
víðförli og örlagaríka atburði.
Þjóðargort, sem einangrar sig
sjálft, er meistaralega teiknað
upp í sölum Dofrans, og sjálfgæði
Gauts bera þessa einkunn út í
ævi stríðið, langt frá ættarstöðv-
unum.“ . . . „Dýpsti og merkasti
lærdómurinn er falinn í áfellis-
dómi höfundarins yfir þeim, sem
vilja halda einkennum sínum með
því að byrgja sig frá áhrifum af
öðrum. Áð vera „sjálfum sér lík-
ur“ er að lifa með anda annarra
og auðgast af honum. Hitt er
dauðinn, að hrökkva frá því við-
fangsefni, það er að vera „sjálf-
um sér nægur.“ En sú ævi, sem
gerir sér það að grundvallarboð-
orði, á að hverfa sviplaus úr ver-
öldinni. Ást, von og trú Sólveigar
bjargaði Gaut frá þeim örlögúm.“
Djúp lífsspeki og ritsnilld eru
tvinnaðar saman í þessu mikla
listaverki. Þegar þar við báetist
góð leiksýning og smekkleg hlut-
verkameðferð, er það merkisat-
burður fyrir hvern leikhúsgest
að sjá slíka sýnipgu. Mikið er að
vísu fellt úr „Pétri Gaut“ í þess- i
ari sýningu leikfélagsins og tón-
listarfélagsins, en gefur þó ærið
tilefni til umhugsunar, hverjum
þeim, sem kemur í leikhúsið til að
fræðast og skilja, en ekki til þess
eins að átelja það, sem áfátt kann
að vera.
R. Jóh.
50 ára
verður á morgun (miðvikudag)
5.. aprO, frú Guðmundína Guð-
mundsdóttir, Framnesvegi 54.
(Frfa. af 5. síðu.)
menn að fallast á hina varfæm-
islegu og heimspekilegu skoðun
dr. Seips á viðhorfunum. Johan
Sandes, forseti stúdentasam-
bandsins, var handtekinn eftir
fund þann, er Johan Scharff-
enberg hélt hina frægu ræðu
sína, er fyrr um getur, þar sein
hann hvatti stúdentana til þess
að votta Hákoni konungi fyllstu
hollustu og líta á harm sem
tákn norsku þjóðarinnar. Þeg-
ar fagnaðarlæti áheyrendanna
hljóðnuðu loksins, mælti Sand
es: „Slík samsinning krefst
kvaðar“. Nokkrum dögum síð-
ar ruddust ‘hinar einkennis-
klæddu stormsveitir Quislings
inn í kaffistofu háskólans. Þá
heyrðist einhver hrópa: „Kast-
ið svínunum á dyr“. Þarna
kom svo til ryskinga milli mála
liðs Quislings og stúdentanna.
Háskólanum var lokað í
nokkra daga og dr. Seip var
stefnt á fund Jósefs Terbov-
ens, landstjóra Þjóðverja í
Noregi.
„Það er kominn tími til þess“,
þrumaði Terboven, „að stú-
dentarnir breyti afstöðu sinni
til Þjóðverja og vina þeirra og
taki upp vinsamlega samvinnu
við þá.“
Hinn herðibreiði, öldurmann-
legi skólafrömuður svaraði ró-
legur í bragði: — „Ég get full-
vissað yður um það, herra land-
stjóri, að það mun ekki koma
til frekari óeirðá og stúdentar
munu ekki láta stjórnmál til sín
taka sem stúclentar. Þýzka mun
að sjálfsögðu verða kennd við
háskólann í Osló eins og áður
og þar mun verða lögð mikil
áherzla á það sem endranær,
að Noregur stendur í mikilli
þakkarskuld við þýzka menn-
ingu. Ep hins vegar hefi ég
hvorki vald né rétt til þess að
skipta mér af einkaskoðunura
stúdentanna.“
Frá þessari sturtdu var ten-
ingunum kastað. Terboven duld-
ist engan veginn, hver afstaða
háskólans og dr. Seips var. En
Þjóðverjar töldu sér hagkvæm-
ast að fresta því að gripa til
sinna ráða að svo komnu, og
veturinn 1940—1941 leiö án
þess að til alvarlegra tíðinca
kæmi að því fráskildu, að íhlut
un nazista fór jafnan vaxandi.
Stúdentarnir hættu gersamlega
að sækja kennslustundir til
þeirra tveggja prófessora, sem
voru nazistum fylgispakir. Ýms
ir háskólakennaranna voru
smám saman handteknir cg
bornir sökum, sem vörðuðu þó
ekki störf þeirra við skólann
beinlínis, eða flýðu land. Það er
táknrænt fyrir afstöðu stúdent-
anna, að „A. B. C.“, enska fé-
lagið, og „Marianne“, franska
félagið, döfnuðu betur en
nokkru sinni fyrr í sögu skól-
ans, þegar þýzka félagið ..Nod-
esta“, sem fyrrum hafði notið
mikilla vinsedda, lagðist niður.
Vorið 1941 voru aðeins fjörutíu
stúdentar af fjórum ]>úsundum
meðlimir flokks Quislings, enda
þótt nazistasíúdfntarnir nytu
ýmissa forréttinda, .
En öllum vcr um það kunn-
ugt, að háskólinn hélt áfram
starfrækslu sinn af einskreru
umburðarlyndi. í september-
mánuði árið 1941 var svo hógg-
ið greitt. Seip rektor var vísaö
frá embætti og sendiu' til fanga-
búðarinnar að Grini. Þegar
hann hafði dvalizt þar um hríð
og sætt miklum pyndingum —
meðal annars hafði hann verið
hafðrtr í haldi í myrkrastofu í
nokkrar vikur — var liann
sendur til hinnar illræmdu
fangabúðar að Oranienburg í
Þýzkalandí vorið 1942. í hans
stað var Adolf nokkur Iioel skip
aður rektor, Hoel þessi hafði
getið sér nokkurn . orðstír sem
heimskautafari, en var af þeim,
er til hans þekktu, vart talinn
með réttu ráði vegna mikil-
mennsku sinnar og sjálfbirgings
skapar. Þessi ráðstöfun orkaði
þó engu til þess að breyta við-
horfrmum innan háskólans. Inn
tökubeiðnum fækkaði verulega,
en allar deildir skólans voru þó
starfræktar og lögð áherzla á
það að skólastarfið breyttist
sem minnst frá því sem var fyr-
ir stríð. Allar tilraunir til þess
að fá stúdenta til þess að ganga
í félagssamtök' nazista eða
stunda framhaldsnám í Þýzka-
landi mistókúst gersamlega. En
í árslok 1942 kom til nýrra á-
rekstra. Kennslumálaráðuneyti
nazista gaf þá út reglugerð, sem
mælti svo fyrir, að krafizt
skyldi stjómmálalegrar hæfni
sem skilyrði íyrir inntöku - í
læknadeildina, en þar voru
mjög margir stúdentar á bið-
lista. Reglugerð þessi var sér-
staklega gefin út í því skyni að
ívilna sjálfboðaliðum nazista,
sem barizt höfðu gegn Rússum
á austurvígstöðvunum. Allt
kennaralið háskólans mótmælti
þessu þegar í stað og það svo
skelegglega að frestað var að
framkvæma reglugerð þessa.
Um þessar mundir hafði nýtt
nazistiskt stúdentasamband ver-
ið stofnað í stað hins, er bann-
að hafði verið. En aðeins örfáir
stúdentar gengu í hið nýja
samband, og drógu hinir stú-
dentarnir óspart dár að þeim.
Vorið 1943 gáfu nazistar út fyr-
irskipun um almenna vinnu-
skyldu í Noregi, og stúdenta-
sambandinu var tilkynnt, að ef
því yrði leyft að láta þetta mál
eitthvað til sín taka, myndi að-
ein's til þess ætlazt, að stúdent-
arnir innt vinnuskylduna af
höndum, meðan kennsluleyfi
stæðu yfir. Jafnframt var þess
getið, að ef stúdentarnir féll-
ust ekki á þetta myndi þeim
gert að skyldu að lúta sömu
lögum varðandi vinnskyldu og
öðrum landsmönnum í Noregi.
Nokkrum stúdentum var þröngv
að til þess að fallast á kvöð
þessa, en þegar blöð nazista til-
kynntu, að allir stúdentarnir
ættu þar hlut að máli, undir-
rituðu tvær þúsundir þeirra
mótmælaskjal til háskólaritara,
þar sem borið var á móti þessu
og vinnuskyldunni harðlega mót
mælt. Fimm stúdentar voru
handteknir og hinum ógnað með
„alvarlegum afleiðingum“. En
þar eð níutíu af hverjum hundr-
að stúdentanna voru við mót-
mæli þessi riðnir, var fram-
kvæmd vinnuskyldunnar skotið
á frest.
í árslok 1943 gaf kennslu-
málaráðuneyti nazista út nýja
reglugerð, sem heimilaði rektor
að veita mönnum, sem ekki
hefðu lokið stúdentsprófi, inn-
töku í háskólann. Kennararnir
við allar hinar fimm deildir há-
skólans, að einum undanskild-
um, sendu kennslumálaráðu-
neytinu þegar mótmæli, þar
sem rök voru að því leidd, að
hin nýja reglugerð hefði í för
með sér „gerbreytingu á regl-
um háskólans og röskun á grund
velli ævistarfs kennara hans.
Það er ekki fyrir hendi nein
trygging íyrir því, að háskólinn
verði framvegis stofnun frjálsr-
ar leitar og kennslu þar sem
kunnátta á viðfangsefnunum sé
aðalatriðið. Kennarar háskólans
geta ekki fallizt á slíka kosti
sem þessa nema að bregðast
jafnframt skyldu sinni við and-
legt líf í landinu . . . Iiáskól-
inn telur hina nýju reglugerð
algera lögleysu og mun því að-
eins samþykkja inntöku nýrra
nemenda, að þeir uppfylli þau
menntunarskilyrð, sem tíðkazt'
hafa til þessa“.
Á-fleiðing þessara mótmæla
varð sú, að átta prófessorar og
fjörutíu stúdentar voru hand-
teknir í septembermánuði fyrra
árs. . -
Nú hefir svo síðasta höggið
Þriðjudagur 4. apríl 1944
Kaupum tuskur________
hæsta verði.
iflsöagaaviaaasíðfaii
Baldursgölu 30.
gegn háskólanum í.Osló veri5
greitt.
Samkvæmt síðustu fréttum,
sem borizt hafa frá Osló, var
stúdentunum safnað saman I
samkomusal háskólans, þar sem
þeir voru teknir fastir af Kurt
Rediess, lögreglustjóra Gestapo
í Noregi.
Rediess kvað þannig að orði,
að allt frá því að landið var her-
numið hefðu stúdentarnir í
Osló myndað viðnámsflokk, er
rekið hefði áróður og unnið lög-
bönnuð skemmdastörf gegn
Þjóðverjum og Þýzkalandi.
Hann komst þannig að orði, að
andleg viðhorf stúdentánna
hefðu birzt glögglega í því, er
þeir mótmæltu því að stúdent-
um, „sem gert höfðu skyldu
sína sem Evrópumenn með því
að berjast sem sjálfboðaliðar
gegn kommúnismanum“ yrði
veitt inntaka í háskólann. Hann. .
bætti því við, að íkveikjan í
samkomusal skólans væri aðal-
orsök handtaknanna, en jafn-
framt bæri að láta þess getið,
að Þjóðverjar hefðu fyrir löngu 1
gert sér þess glögga grein, að
stúdentarnir hefðu rekið vís- ’•
vitandi ólöglega starfsemi, sem
yrði að koma í veg fyrir.
Rediess gaf fyrirheit um bað, ’
að stúdentarnir skyldu fá notið
betri aðbúðar í Þýzkalandi en
venjulegir pólitískir fangar.
Slíkt er þó kaldranaleg huggun
þeim, er vita örlög þeirra Norð-
manna, sem sendir' haf^ ’i
til Þýzkalands. En norsku stú- .
dentarnir geta þó fagnað yfir
vissunni um það, að þeir hafa
sigrazt á hinum hötuðu Þjóð-
verjum á norskum vígstöðvum.
Hinar luktu dyr og hinir þöglu
salir Oslóarháskóla eru hljóð-
lát en glögg vitni sigurs þeirra.
Áttræður
braotrySJandi
Einar Finnur Jónsson múrari
í Borgamesi.
ATTATÍU ára varð 31. marz
Einar Finnur Jónssom •
múrari í Borgarnesi.
Einar hefir dvalið í Borgar-
nesi síðan 1913. Vann hann við
mörg fyrstu steinsteyptu húsin
í þorpinu og héraðinu. Var hann
dugnaðarmaður hinn mesti við
alla vinnu.
Einar bjó í Reykjavík frá 1900
til 1913, að hann flutti í Borgar-
nes. Þar kynntist hann verka-
lýðshreifingunni og er Dagsf-
brún var stofnuð gekk hann í
félagið; var hann jafnan síðan
mjög áhugasamur um öll verka-
lýðsmál.
Fluttist Borgnesingum með
honum fyrsta alda verkalýðs-
ihrfeiíingarinnar.
Eftir að verkalýðsfélag var
stofnað í Borgarnesi, var hann
um 4 ára skeið varaformaður
félagsins.
Einar kvæntist 1895 Vilborgu
Oddsdóttur frá Hvammi í Kjós.
Þau eignuðust 5 börn, en af
þeim lifir aðeins ein dóttir,
Svanhvít, er nú dvelur sjúkl-
ingur á Vífilstöðum. Konu sína
missti hann 1937. Hefir hann
nú um skeið búið einn mikið
af árinu, og stundar þó nokk-
uð vinnu. Er honum erfiðast
að sjónin er orðin slæm.
Við verkamenn í Borgarnesi
þökkum Einari störf hans í
þágu verkalýðshreifingarinnar,.
I. E.