Alþýðublaðið - 15.04.1944, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.04.1944, Blaðsíða 4
ILrTPUBLAPin__x____ J6n Axel Pétnrsson: Þegar sameiningarpostuÞ inn vaknaði á verðinum. ■ ■ ..-.. * } aitetjórl: Stef&a Pétnrsson. atmnr ritstjómar: 4901 og 4902. Ritatjórn og afgreiösla 1 Ai- þýöuhúsinu við Hverfisgötu. Ötgefandi: AiþýSuflohkurinn. Símar afgreiSslu: 4900 og 4908. Verð í lausasölu 40 aura. Alþýðuprentsmiðj an h.t Einn binna störn sigra. ^ Þ\Ð er ekki langt síðan lög- in um, sumarfrí verka- manna öðluðust gildi. Þau lög eru einn hinna stóru sigra, sem ixnnizt hafa í baráttu verkalýðs- ins fyrir bættum kjörum.“ Þannig farast Þjóðviljanum orð í stuttri grein um sumarfrí verkamanna, sem birtist fyrir þremur dögum. Maður skyldi af slíkum um- mælum mega ráða, að komm- únistar hefðu ekki legið á liði sínu, þegar verið var að berj- ast fyrír þessum stóra sigri í baráttu verkalýðsins fyrir bætt um kjörum. En fletti maður Þjóð viljanum upp frá þeim tímum, reynist það furðulega erfitt, að tfinna nokkur merki þess, að að- standendur hans hafi verið með í þeirri baráttu eða yfirleitt átt nokkurn þátt í þeim sigri. Dauðaþögn ríkir í dálkum Þjóð- viljans, þegar Stefán Jóh. Ste- fánsson, þáverandi félagsmála- ráðherra, hefst handa um undir búning orlofslöggjafarinnar með því að skipa milliþinga- nefnd til að gera uppkast að henni. Yarast er að minnast á iþá baráttu, sem Alþýðuflokkur inn háði fyrir framgangi henn- ar á alþingi, þing eftir þing, þar ,til loksins tókst að knýja hana í gegn. Og síðast allra dagblaða höfuðstaðarins hengslaðist Þjóð viljinn til þess að segja með fáeinum orðum frá sjálfri sam- þykkt orlofslaganna — „eins hinna stóru sigra, sem unnizt hafa í baráttu verkalýðsins fyr- ir bættum kjörum,“ eins og hann ■kemst nú að orði, þegar meira en ár er liðið frá því, að hann vannzt! Svo mikll var áhugi kommún- ista í reynd fyrir því, að öllum verkamönnum og launþegum landsins væri með lögum tryggt sumarfrí með fullu kaupi eins og flestar aðrar stéttir bæj- anna hafa þegar fyrir löngu orð ið að njótandi. Eða mátti Þjóð- viljinn máske efcki minnast á þessa miklu kjara- og réttarbót fyrir hið vinnandi fólk af því, að það var hinn hataði Alþýðu- flokkur, sem frumkvæðið átti að henni og fyrir henni barðizt? * Hvað um það: Þrátt fyrir þögn Þjóðviljans náðu orlofslögin í fyrravor fram að ganga, og því fá nú allir verkamenn og launa- menn landsins í ár að minnsta kosti tólf daga sumarfrí með fullu kaupi. Fyrir margan verkamann, sem aldrei hefir átt þess kost, að njóta slíkrar hvíldar og hress ingar úti í náttúrunni verður það vissulega þægileg nýjung. En því miður hafa enn ekki ver- ið gerðar neinar ráðstafan- ir af hinu opinbera né heldur af verkalýðssamtökunum sjálf- um til þess, að sumarfríið megi verða verkafólkinu að þeirri hressingu og hvíld, sem hægt væri, ef ferðalög þess og sumar dvalir utan hæjanna væru vel skipulagðar, eins og strax var gert annars staðar á Norðurlönd um eftir að lög höfðu verið sett þar um sumarleyfi verkaf.lks. Allar nætur alla daga er eðli þeirra og saga að líkjast rottunum með löngu slcottunum og naga, naga. Davíð Stefánsson. EGGERT ÞORBJARNAR- SON, ekki hluthafi í Al- þýðuhús Rvíkur h.f., maðurinn, sem á máli kommúnista „lifir á félagsgjöldum Dagsbrúnar- manna, svitadropum þeirra, sem vinna erfiðustu verkin“, hefir fundið köllun hjá sér til þess að láta „sameiningarljós“ sitt skína á mína mjög svo lítil- mótlegu persónu. Ber vafalaust að skoða þessa ritsmíð hans sem einn þátt sam einingarinnar eða þann þátt, sem hann leggur til þeirra mála, enda er hann meðlimur, ef ekki stjórnarmeðlimur, Sameiningar flokks alþýðu svokallaðs; mega því allir af því sjá, en enginn lá, Eggert, er hann segir hug sinn allan. í sameiningarpistli sínum gjörir Eggert á sína vísu að umtalsefni tillögu Jþá, er ég flutti á bæjarstjornarfundi um, að bærinn semdi við Verka- mannafélagið Dagsbrún um að verkamenn í Reykjavík hefðu hlutfallslega sambærilegt kaup og stéttarbræður þeirra í Hafn- arfirði. Þetta skeði eftir að Dagsbrún hafði sett fram samn ingsuppkast sitt sem sýndi að einungis var farið fram á hlut- fallslega sambærilegt kaup og var í Hafnarfirði árið 1943 og er 1944 og það í sumum tilfell- um svo, að frá því mátti ekkert hvika ef ekki átti að verða hlut- fallslega lægra kaup hér en þar. Eggert og öðrum þeim, er stjórnuðu Verkamannafélaginu Dagsbrún á árinu 1943, skal á það bent ef þeir vissu það ekki áður, hvert raunverulegt kaup verkamanna var í Reykjavík og hvað það var í Hafnarfirði fyrir almenna vinnu áður en samn- ingar hófust. í Reykjavík var raunverulegur vinnutími 7Vá stund, þ. e. tvö kaffihlé í 15 mín. hvert. Var því tímakaup- ið fyrir raunverulega unninn klukkutíma 5,88 allt árið. Á sama tíma var það í Hafnar firði á vetri 6,31 fyrir klukku- tíma hvern raunverulega unn- inn og kr. 697 á sumrin, eða að meðaltali sumar og vetur kr. 6.64 fyrir unninn tíma. Má því öllum vera ljóst að forustan í Dagsbrún lét sér nægja að reykvískir verkamenn bæru 0,76 aurum minna úr býtum fyr ir unninn tíma, en stéttarbræð- ixr þeirra Hafnarfirði gerðu. Ég held að ég megi fullyrða að ■ forustuhlutverk Dagsbrúnar hefir aldrei verið dregið svo niður í skarnið sem gjört var á því herrans ári 1943 undir hinni „stéttvísu“ leiðsögu Egg- erts og annarra fylgifiska hans. Ég læt verkamenn sjálfa, sem þessarar forustu nutu og njóta enn, um það að reikna það út hversu mikið þetta mundi nema yfir árið, en álitleg summa hefði það verið talin á þeim árum er verkamenn voru að byggja upp samtök sín við erfið skilyrði, skilningsleysi og fjandskap, þeg ar Eggert hafði illan bifur á brölti þeirra, en innkasseraði sína drykkjupeninga velhald- inn á Hótel ísland. Dæmið mætti þó vel setja upp þannig: 300 vinnudagar En hér er hlutverk bæði fyrir hið opinbera og verkalýðssam- tökin, sem leysa verður hið allra fyrsta. Sumarfríin geta orð ið hinu vinnandi fólki ómetan- margfaldaðir með 7Vá raunveru I lega unninni klukkustund og sú útkoma margfölduð með 0,76 aurum. Mér telst til að þá komi ! út fyrir árið kr. 1634.00. Það margfaldað með meðlimatölu Dagsbrúnar að viðbættri hæfi- legri tölu meðlima annara stétt arfélaga sýndi svo aftur heild- arútkomuna á því sem atvinnu- rekendur hafa fengið fyrir þann snúð að hinir svokölluðu sam- einingarmenn réðu og ráða í Dagsbrún. Er þá komið að þeirri höfuð- synd miiíni að ég skyldi bera fram tillögu um að verkamenn í Rvík hefðu hlutfallslega sam- bærilegt kaup og stéttarbræður þeirra í Hafnarfirði. En þá leyfist vafalaust að spyrja: Hafa þá verkamenn í Rvík meira en hlutfallslega sambærilegt kaup og stéttar- ■bræður þeirra í Hafnarfirði? Ég held að fæstir, að þeim sann- trúuðu undanskildum, viður- kenni það. En við skulum at- athuga þetta mál — staðreynd- irnar tala sínu máli. Kaup fyrir raunverulega unninn tíma eftir hinum nýju samningum Dags- brúnar í almennri vinnu er: kr. 7.06 allt árið að því er bezt ég veit. En í Hafnarfirði á vetrum 6.31 og á sumrum 6.97. í fyrra tilfellinu hafa Dagsbrúnarmenn 0.75 aurum hærra, en á sumr- in 0.07 aurum hærra, eða að meðaltali yfir allt árið 0,41. — Það getur svo hver sem vill fyr- ir mér haft það álit, að um annað og meira hafi verið samið af Dagsbrúnar- hálfu en hlutfallslega sambæri- legt kaup á við stéttarbræður í Hafnarfirði — enda ekki gjört ráð fyrir öðru í hinum upphaf- legu kröfum Dagsbrúnar, sem öllum voru kunnar. Með allri virðingu fyrir sáttasemjam rík- isins, Jónatan Hallvarðssyni, og þeim útreikningum. sem Egg- ert segir að hann hafi gjört á hlutfalli milli kaupgjalds í Rvík og Hafnarf. hefi ég því einu til að svara — að ég hefi aldrei fyrr á ævi minni, eða í þau rúm tuttugu ár, er ég hefi starfað í verkalýðshreyfingunni, vitað nokkurn forustumann verka- lýðsfélags tefla fram sem sín- um rökum, þeim rökum, er sátta semjarar hafa teflt fram í sátta umleitunum; en íhér kemur loks einn — Eggert Þorbjarnarson — sem smjattar og kjamsar á rökum sáttasemjarans og gjörir þau að sínum rökum, að vísu til að ná sér niðri ef hægt væri á pólitískum andstæðingi. Jú til- gangurinn helgar meðalið hjá sameiningarpostulanum. í mínu ungdæmi í verkalýðs- hreyfingunni og ávallt síðan, var litið á sáttasemjara ríkis- ins sem sómamenn, er hefðu vandaverk að vinna — en að nokkrum dytti í hug að taka allt er þeir sögðu og settu fram í samningaumleitunum sem væri það í hinni helgu bók eða í viðbótafskýringum Stalins á Marxismanum og Leninisman- um, það hefi ég aldrei fyr vitað og ég held að verkalýðssamtök- in megi vara sig á slíkum mönn um þó þau séu orðin öflug og sterk fyrir harðvítuga baráttu margra ágætra manna, og vax- andi skilning allrar alþýðu. Mig furðaði ekki á því er kunningi minn sagði mér frá grein Eggerts í Þjóðviljanum 11. marz og ýmsuih öðrum síð- legar hvíldar- og ánægjustundir. En til þess þarf að hugsa fyrir þeim í tíma —: skipuleggja þau, einis og hjá frændþjóðum okk- ar á Norðurlöndum. an, þó að nafn míns, ýmissa Alþýðuflokksmanna, Alþýðu- blaðsins og Alþýðuflokksins yrði að einhverju getið á þeim bæ og með þeim venjulega blæ, sem þar ber mest á. Það er venjulega mestur vandinn að sigra sjálfan sig og að viður- kenna mistök sín og yfirsjónir, skrif Eggerts bera þess ljósan vott. Hann svaf á verðinum í kaupgjaldsmálum Dagsbrúnar- manna. Hann vissi að þeir voru alveg sammála Alþýðublaðinu sem hvatti til uppsagnar á samn ingum á síðast liðnu ári. Hann og hans nótar vildu enga nýja samninga, engar kjarbætur, meðal annars vegna þess að hinir marghötuðu krat- ar og Alþýðublaðið hvöttu til þess. Og svo tregur var hann enn á þessu ári þó hann yrði að láta undan ofur- eflinu, vilja verkamannanna sjálfra, að mitt í öllum herleg- heitunum láðist starfsmannin- um að segja upp öllum samning unum sem í gildi voru, svo sem hjá Skipaútgerð ríkisins og ef til vill fleirum. Hann varð þess var að eld- ur hafði færst að fótum hans, en í stað þess að horfast drengi- Mmð i A Tómas guðmundsson skáld minnist í „Léttara hjali“ í hinu nýútkomna hefti af Helgafelli á þær alvarlegu tilraunir til skoðanakúvunar og ofbeldis við frjálsa hugsun og frjálst orð, sem hér hafa verið gerðar í seinni tíð. Hann skrifar í því sambandi: „Nú hefir ..'. svo skipazt, að grundvallaratriði þeirra innan- landsmála, sem deilum valda í þjóðfélagi voru, snerta æ meir iirnsta kjarna þeirra viðfangsefna, seon kallað hafa önnur og stærri ríki til vopnaðrar baráttu á und- angengnum árum. Einnig vor á meðal berst heimsmenningin fyrir lífi sínu, og sé það rétt, sem oss hefir verið imnrætt frá blautu barnsbeini, að andlegt frelsi sé lífsskilyrði hennar, má ef til vill segja, að hún eigi sem stendur í vök að verjast. Á íslandi hefir ótt- inn við frjálsa hugsun aldrei ver- ið átakanlegri en á því ári, sem nú er að kveðja, og Helgafell tel- ur sér sæmd að því að hafa gert sitt til að vekja gremju meðal þéirra leiðsögúmanna þjóðarinn- ar, sem játa skoðanakúgun og of- beldi hollustu sína, samtímis því sem aðrar þjóðir úthella blóði sínu í baráttunni fyrir andlegu frelsi, sínu og aninarra. Raunar gleymum vér því þráfaldlega, að sú bar- átta er einnig háð fyrir oss, sem hér búum, og vissulega furðar mig á því, að jafnhraðgáfaðir menn og stjómmálaritstjórar Morgun- blaðsins skuli nokkurn tíma geta gleymt því, að það hefir kostað mannkynið margra alda harða baráttu að tryggja þeim frelsið til að hugsa og álykta jafnlátlaust og heimskulega eins og þeim er eðli- legt.“ Eftir þessa ábendingu minn- ist Tómas á þrjú áföll, sem há- skólinn hefir orðið fyrir í seinni tíð. Er það málarekstur- inn á móti Sigurði Einarssyni Laugardagnr 15. apríl 1944» Augfýsingar, sem birtast elga f AlþýðublaðihUi verða að vera komnar til Auglýs- ingaskrifstofunnar í Alþýðuhúsinu, (gengið inn frá Hverfisgötu) l fyrir kl. 7 aS kvöldL Síffli 706. lega í augu við það, þá er tekið til þess ráðs að færa þær glæður elds að höfðum þeirra er leyfðu sér að hafa meiningu án þess að spyrja Eggert og hans nóta um það. Eggert veit það ofur- vel að verkamenn í Dagsbrún hafa þegar reiknað það út hvert tjón þeir hafa beðið af því að samningunum var ekki sagt upp fyrr. Hann veit það vel, að þeir vita það að pólitísk spekulation Eggerts og annarra félaga hans úr innratrúboðinu í hinum svo kallaða Sameiningarflokki er um að kenna, og að töf þeirra á því að ekki var sagt upp, verð- ur þeim ekki til skjóls í vornæð ingunum frekar en húsaleigu- hækkunin af völdum Steinþórs í Höfðaborginni. Ég skil vel gremju Eggerts Frh. af 6. síðu. dósent, Morgunblaðsgrein Al- exanders Jóhannessonar pró- fessors um skilnaðarmálið og Tjarnarbíóhneykslið svokall- aða, sem öllum er enn í fersku minni. Um Morgunglaðsgrein Alexanders skrifar hann: „Hvort sem dósontsmálið ber að teljast áfall fyrir háskólann eða eléki, er hitt víst, að hann hlaut annað og miklu alvarlegra áfall 14. nóvember s.l., en þá birtist £ Morgunblaðinu grein eftir dr. Al- exander Jóhannesson prófessor» Þótt ritsmíð þessi verði gerð að umtalsefni, sneiði ég hjá því að fara verulega út í það, sem hún að efni til fjallar um, en það er skilnaðarmálið. Fyrir Léttara. hjali vakir einungis að' gera nokkra grein fyrir andlegu við- horfi þessa fulltrúa vestrænnar háskólameniningar, og það er þv£ meiri ástæða til þess sem dr. Al- exander hefir marga þá eiginleika til að bera, sem gera hann að at- kvæðamiklum áhrifamanni. Harm er gæddur óvenjulegum áhuga og bjartsýni, dugnaði og ósérplægni, en auk þess nýtur hann að verð- leikum mikilla persónulegra vin- sælda hjá öllum, er honum kynn- ast. Allra þessara ágætu hæfileika hefir háskólinn notið í ríkum mæli, enda mun almennt viður- kennt, að hann eigi ytra gengi sitt að þakka dr. Alexander meira en nokkrum einum manni öðrum. Það er ekki fyrr en dr. Alexander fer að skrifa, sem hann gerist liá- skólanum óþarfur." Morgunhlaðsgrein dr. Alex- anders mun nú því betur að mestu gleymd og því ekki á- stæða til að rekja ummæli Tómasar Guðmundssonar um hana nánar. En um Tjarnarbíó- hneykslið segir hann að end- ingu: „Þriðja og þyngsta áfallið fékk Frh. á 6. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.