Alþýðublaðið - 05.05.1944, Page 2
ALÞYOUBUÐIB
r '
Arni Jónsson frá Múla segir
sig úr bæjarsljérn!
---------------:--
1UPPIIAFI fundar í bæjarstjórn Reykjavíkur í gær las
forseti Guðmundur Ásbjörnsson, áður en geilgið var til
dagskrár, bréf frá Árna Jónssyni, bæjarfulltrúa.
í bréfinu tilkynnti Árni Jónsson að hann segði sig hér
með úr bæjarstjórn og jafnframt úr öllum nefndum sem hann
hefði verið kosinn í.
Forseti bæjarstjórnar bar þessa úrsögn Árna Jónssonar
imdir bæjarstjóm. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sam-
þykktu að taka úrsögnina gilda, en aðrir bæjarfulltrúar
greiddu ekki átkvæði.
Svona fór um sjóferð þá.
Oboiandi ásfand i fiúsnæis-
Vegavinnuverkfallið:
Hún neitar bM failast á sömu sklpun kaup
gjaidssvæ^a og f fyrra til aö hafa þær kaup-
hækkanir af v@rkamönnum; @r oröiö hafa
'LJ’ VERGI á landinu er nú unnið að vegagerð eða brúa-
* * smíðuxn. Verkfall það, sem Alþýðusambandið lýsti yfir
3. þ. m. vegna þess að ekki náðist samkomulag við ríkis-
stjómina, er algert.
Ríkisstjómin neitar að fallast á þá skipan kaupgjaldssvæða,
sem fulltrúar Alþýðusambandsins telja viðunandi fyrir verka-
menn, og neitar hún því auðsýnilega í þeim tilgangi, að hindra,
að verkamenn verði þeirrar lítilfjörlegu kauphækkunar aðnjót-
andi, sem sumstaðar úti um land hefir fengizt síðan í fyrrasumar.
málum
ntræoasKoia
300 stunduðú iiám i slíéSaneim
I vetur -- § ffórum konnslustofum!
Hnefaieikannidara-
méi íslands
Cuðmundur Arason varð meistari
í þungavigf
♦OÚSNÆÐISMÁL Gagn-
I.J. fraeðaskólans í Reykja-
vík komu til umræðu á fundi
bæjarstjórnar í gær. Hóf S0f-
fía Ingvarsdóttir umræður
um þetta mál og gaf ræða
hennar glögga hugmynd um
þau ömurlegu kjör sem skpl-
inn á við að búa.
AMERÍSKA íþróttahöllin við
Hálogaland var fullskipuð
áhorfendum, er hnefaleikameist
aramót íslands fór þar fram í
fyrra kvöld. Eins og áður var
skýrt frá voru þátttakendur á
mótinu frá tveimur félögum Ár
manni og íþróttafélagi Reykja-
víkur. Úrslit urðu þessi:
í fluguvigt varð meistari Frið
rik Guðnason (Á). Sigraði hann
Björn Jónasson (Á).
Marteinn Björgvinsson (Á)
várð meistari í bantamvigt.
Keppinautur hans var Kristinn
Gunnarsson (Á).
í þungavigt fór fram leikur
utan keppni milli þeirra Þor-
kells Magnússonar (I.R.). Þorkell
sigraði.
í léttavigt varð meistari Ste-
fán Magnússon (Á). eftir keppni
•hans og Kristmundar Þorsteins-
sonar (Á).
í veltivigt fóru leikar þann-
ig, að Jóel Jakobsson (Á) sigr-
aði Arnkel Guðmundsson (A).
í millivigt sigraði Jóhann _Ey-
fells (Í.R.) Stefán Jónsson (Á) á
„knock out“ í þriðju lotu.
Gunnar Jónsson (Á) varð
meistari í léttþungavigt, sigraði
Braga Jónsson (Á).
Guðmundur Arason (Á) varð
meistari í þungavigt. — Keppi-
nautur hans var Kristbjörn Þór
arinsson (Í.R.). Var Guðmundur
í sókn mest allan tímann, en
Kristbjörn varðist.
Peter Wigelund var hringdóm
ari, og rækti starf sitt vel.
525 hðiy greift al-
kmM í gærböMi
IGÆRKVÖLDI höfðu alls
525 greitt atkvæði í utan-
kj örstaðaratkvæðagreiðslunni
um skilnaðinn og lýðveldis-
stofnunina. • Þar af voru 389
utanbæjarmenn, en 144 Reyk-
víkingar.
Soffía sagði frá því að aldrei
hefðu jafnmargir nemendur ver
ið í skólanum og í vetur og hefði
þó orðið að vísa mörgum frá
síðastliðið haust. 300 nemendur
sóttu skólann. Þfeir stunduðu
nám sitt í 4 kennslustofum.
Kennt var án hvíldar allan dag
inn eða frá kl. 8 á morgnana og
til kl. 8 á kvöldin, án þess að
hægt væri þó að ræsta stofurn-
ar á þessum tíma.
Af 150 nemendum í 1. bekk
náðu 120 prófi upp á 2. bekk.
Ef ekki verður hægt að bæta
húsnæði skólans verður að vísa
allmörgum af þessum ungling-
um frá náminu áfam. Svo þétt
er skipað í stofurnar og svo ó-
hentugar eru þær fyrir slíkan
fjölda, að sumir nemendur sjá
ekki kennara sína og kennararn
'ir ekki þá.
Soffíá Ingvardóttir sagði að
við þetta væri ekki hægt að búa
lengur. Skólinn yrði mjög fljótt
að fá fullfgpmið skólahús. En þar
sem útilokað væri að það kæm-
ist upp fyrir nsesta skólaár yrði
að finna bráðabirgðalausn. Gat
hún þess að á lóð skólans væri
geymsluskúr, þar slam hægt væri
í neyð að útbúa skólastofur.
Fluttu fulltrúar Alþýðuflokks
ins eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn samþykkir að
fela borgarstjóra að hlutast til
um að bygging skólahúss Gagn-
fræðaskólans verði hraðað sem
mest. Jafnframt skal borgar-
stjóri taka nú þegar til athugun
ar á hvern hátt verði bezt ráðið
fram úr húsnæðisvanuræðurn
skólans á komandi vetri og í því
sambandi kynna sér hvort eigi
sé tiltækiiegt að útbúa kennslu-
stofu í geymsluhúsi því, er stend
ur á lóð skólans.“
Borgarstjóri kvað sér Ijóst að
nauðsyrf væri á umbótum í hús
næðismálum Gagnfræðaskól-
ans. Var tillögunni vísað til bæj
arráðs.
Óperettan
„í álögum" verður sýnd annað
kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar eru
seldir í dag kl. 4—7.
Alþýðus ambandið birti í gær
greinargerð um þann ágreining,
sem til vinnustöðvunarinnar hef
ir leitt og fer hér á éftir:
„I sambandi við vegavinnu-
deiluna óskar Alþýðusamband
íslands að taka eítirfarandi
fram:
Eins og segir í skýrslu vega-
málastjóra, sem birt var í út-
varpi og blöðum hafa samninga-
umleitanir staðið yfir að undan-
förnu milli nefndar frá Alþýðu
sambandinu og vegamálastjóra
f. h. ríkisstjórnarinnar, um kaup
og kjör við vega- og brúagerðir.
Kröfur Alþýðusambandsins
voru þær, að samningar yrðu
gerðir á sama grundvelli og yfir
lýsing ríkisstjórnarinnar frá í
fyrra var byggð á, þ. e. að kaup
og kjör yrðu samkvæmt samn-
ingi eða viðurkenndum taxta
þess verkalýðsfélagis, sem næst
væri þeim stað, innan sömu
sýslu, sem vinna-n væri fram-
kvæmd á, að því viðbættu, að
leyft yrði að skila 48 stunda
vinnuviku á 5 dögum, ef þess
yrði óskað, enda væri það sam-
þykkt af meirihluta' vinnuhóps,
auk annarra smávægilegra lag-
færinga.
Allt fram til síðasta dags er
samningaumleitanir fóru fram,
var af báðum aðiljum málið rætt
á grundvelli þess, að sú kaup-
svæðaskipting, er gerð var í
fyrra surnar, héldist í öllum meg
inatriðum óbreytt, en að sjálf-
sögðu varð að gera breytingar
vegna breytinga á kaupi víða um
land.
Hins vegar gerði vegamála-
stjóri þá kröfu að ef 5 daga
vin-nuvilka yrði leylfð, yrði nefnd
Alþýðusambandsins -að ganga
inn á að leyía að unnið yrði í
10 stundir á -dag eða 60 stundir
á viku fyrir dagvin-nukaup, ef
þess væri óskað af vinnuhópum,
enda væri það samþykkt af
meiri hluta vikomandi verka-
manna, og taldi vegamálastjóri,
að af s-érstökum ástæðum væri
þ-etta nauðsynlegt, og þó eink-
um á 3—4 stöðu-m á heiðum
uppi, er tiln-efndir voru. Nefnd
AJiþýðusambanidsins tjáði sig
reiðubúna til þess að ræða
þetta.
Fram til síðasta dags virtist
ekki annað í milli bera í aðalatr-
iðurn en það sem að -framan er
greint, og kom því Alþýðusam-
bandinu alveg á óvart hin fáorða
yfirlýsing vegamálastjóra f. h.
ríkisstjórn'arinnar, um greiðslu
kaups í sumar, þar sem gjör-
samlega er raskað þeirri megin-
reglu um kaupsvæðaskiptingu,
sem gilti á s. 1. sumri, t. d. ætti
núgi'ldandi kaup á Siauðárkróki
aðeins að greiðast innan tak-
marka Sauðárkrókshrepps, -en
víðast hvar annars s-taðar í
Sikagafjarðarsýslu sama kaup og
í fyrra.
Hvað láhrærir þá skoðun ríki-s
stjórnarinnar, að vinnustöðyun-
in sé ólögmæt, vill Alþýðusam-
bandið taka fram, að hún er til-
kynnt viðkomandi aðilja með
löglegum fyrirv-ara -o-g -því full-
komlega lögmæt og breytir þessi
yf irlýsing ríkisstj órnarinnar
engu um framkvæmd vinnu-
stöðvunarinn-ar cif hálfu sam-
bandsins.“
Sama gjald fyrir börsiio og í fyrra
Q UMARDVALARNEFND I
^ hefir ákveðið að Reykja !
víkurbörn, sem dvelja í sveit
í sumar á hennar vegum skuli
f-ara á sumardvalarheimil-
in í byrjun júnímánaðar, eða
nokkru fyrr en áður hefir ver
ið.
Er þessi ákvörðun tekin með
tilliti til fyrirhugaðra hátíða-
halda í júnímánuði, en þá má
gera ráð fyrir miklum skorti á
farartækjum. Hefur þjóðhátíð-
arnefndin til dæmis tilkynnt, að
aðalhátíðisdagana verði öll far-
artæki tekin leigunámi og sett
undir eina stjórn, en margar
bifreiðar þarf sumardvalar-
nefndin til þess að flytja börn-
in til heimilanna.
| Þá hefur sumardvalarnefnd
j ákveðið að allar umsóknir um
dvöl barna á heimilum nefnd-
arinnar, skuli vera komnar til
skrifstofu hennar fyrir næst-
komandi þriðjudagskvöld. Telur
nefndin að nauðsynlegt sé að fá
umsóknirnar svona fljótt vegna
útvegun heimilanna, þar sem
þau þurfa að vera tilbúin til að
taka á móti börnum heldur fyrr
en undanfarin sumur.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Alþýðublaðið fékk í gær hjá
Gísla Jónassyni yfirkennara,
en hann er í surnar, eins og áð-
ur, skrifstofustjóri sufnardval-
arnefndar, verður dvalargjald-
ið fyrir börnin í sumar, hið
sama og það var í fyrrasumar,
Frh. á 7. síðu.
Föstudagur 5. snaI19Í4..
27.138 eru á kjör-
skrá í Reykjavík
íT!!jL ENGH> hefir nú verið að
fullu frá kjörskrá fyrir
Reykjavík — og undirritaði
bæjarstjórn hana í gær. Gild-
ir þessi kjörskrá til 22. júní
1945.
Á kjörskránni eru 27138
kjósendur. En þess ber að
gæta að á henni eru nokkru
fleiri, en þeir sem tekið geta
þátt í þjóðaratkvæðagreisl-
unni 20.—23. þ.. m. því að
þeir, sem ekki eru orðnir 21
árs gamlir þá — en verða það
fyrir 22. júní 1945, eru á
skránni. Síðast þegar kosning
ar fóru fram munu um 25
þúsundir manna hafa verið
á kjörskránni.-
HraðfrýsfisföS Eyrarkkka þar sero-
30—40 masius muEiu vinaa
M ÝTT myndarlegt at-
j vinnufyrirtæki tók til
starfa á Eyrarbakka í gær.
Hraðfrystistöð Eyrarbakka
tók þá á móti fyrsta fiskinum
til vinnslu. Var sá fiskur um
6 smálestir, tekinn úr bátum
sem gerðir eru út frá Eyrar-
bakka og Stokkseyri.
Hraðfrystistöð Eyrirbakka er
hlutafélag, skipað Eyrbékking-
um heima og Eyrbekkingum,
sem fluttir eru af Bakkanum„
aðallega þeim, sem búsettir eru,
hér í bænum.
Hlutaféð er nú um 250 þús-
undir króna, en hlutafjársöfn-
un heldur áfram. Af þessari
upphæð hafa gamlir Eyrbekk-
ingar, sem fluttir eru burtu,
lagt fram um 70 þúsundir
króna. Næstum því hvert ein-
asta heimili á Eyrarbakka hef-
ur lagt fram hlut í þetta fálag.
Hraðfrystihúsið er að stærð
12 X 29 flatarmálsmetrar, önn-
ur álman: vinnusalur, véla-
salur og kaffisalur, og 12 X
15 flatarmálsmetrar hin álman,
en þar eru geymsluklefar.
Bygging þessa mikla húss
gekk framúrskarandi vel. Byrj-
að var að grafa fyrir því 21.
desemþer, á aðfangadag jóla
var byrjað að steypa, og 15.
marz var húsið komið upp að
fullu.
Flraðfrystistöðin er búin öll-
um beztu.vélum, sem fáanlegar
eru, og getur hún afkastað um
10 smálestum í fiskflökum á
sólarhring. — Stendur hrað-
frystistöðin í miðju þorpinu,
skammt frá Stóru-Háeyri.
Stjórn hlutafélagsins skipa:
Magnús Magnússon, Vigfús
Jónsson og Gísli Jónsson. End-
urskoðendur eru: Sig. Ól. ÓI-
afsson og Sigurður Guðmunds-
son. Verkstjóri í hraðfrysti-
stöðinni er Jón Tómasson, en
vélstjóri Þorkell Þorkelsson. —
Talið er að 30—40 manu^ n-.iinj
vinna í hrnðfrTTr'4''T:"fWm, beg-
ar hún er komin í fullcn gang.