Alþýðublaðið - 09.05.1944, Síða 2
¥
*$>&}>&' {$?$%■■$$ M >?f8S!? i§''jí
■ *£ ■■■?- í5n
iisia..
a
iS boðar
Samúðamrkfall með
vegavinnumönnum f
allri opinberri vinnu
Það hefst næstkomandi þri^Judag, ef
samkomulag hefir þá enn ekki náðst.
SSTJÓRN Alþýðusambands íslands sendi ríkisstióminni
í gær eftirfarandi tilkynningu:
„Vér viljum hér með tjá hæstvirtri ríkisstjóm, að.
vér höfum ákveðið, að ef ekki hefir fengizt samkomulag
l yfirstandandi vinnudeilu um kaup og kjör vega- og bráafr-
gerðarmanna að morgni þriðjudagsins 16. maí n. k., verður
hafin samúðarvinnustöðvun hjá Skipaútgerð ríkisins, Síldar-
verksmiðjum ríkisins á Siglufirði, Landssmiðjunni, Reykja-
vík, og hjá Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg, bæði við prent-
verk og bókband.
Þá munu og þeir, sem em í Félagi símalagningamanna,
sem er deild innan Dagsbrúnar, einnig leggja niður vinnu.
Með bréfum og símskeytum, dags. í dag, höfum vér til-
kynnt ýmist stjórnum eða forstjórum framangreindra fyrir-
tækja þessa ákvörðun vora.“
Verður fayrjað að byggja vinnu-
heimili berklasjúkiinga í næsta
Þing sambðnds isienzkra berklasjúklsnga
jlv vsll láta reisa tín smáiiýsi S snmarD
—---------4--------—
ÞING S. í. B. S. — Sambands íslenzkra berklasjúklinga
sem lauk á sunnudagskvöldið, gerði ýmsar þýðingar-
miklar samþykktir um stofnun hins fyrirhugaða vinnuheim-
ilis að Reykjum í Mosfellssveit, þar á meðal, að byggingar-
framkvæmdir skuli hefjast í næsta mánuði, eða svo fljótt,
sem fært þyki, og að 10 smáhýsi skuli byggð í sumar.
Hér fara á eftir helztu álykt-
anir þingsins um þessi efni:
Frá byggingarnefnd var þetta
samþykkt meðal annars:
1. Þingið samþykkir kaup
miðstjórnarinnar á landi fyrir
vinnuheimilið svo og skipulags-
uppdrátt af grunnteikninvu, sem
fyrir þinginu liggur.
Þingið leggur til, að 10. íbúð-
arhús verði byggð í sumar og
'hafizt verði handa um fram-
kvæmdir eins fljótt og auðið er.
Þingið samþykkti allýtarlega
ályktun varðandi vinnuheimil-
ið og rekstur þess, frá sldpulags-
Helztu atriði voru þessi:
1. Nafn stofnunarinnar verði
vinnuheimili S. í. B. S.
2. Stofnunin verði sjálfseign-
arstofnun, rekin af S. í. B. S..
3. Stjórn heimilisins verði
skipuð 5 mönnum, 3 kosnum af
miðstjórn S. í. B. S., og 2 af
félagi vistmanna á heimilinu.
4. Komið verði strax upp
vinnustofum fyrir: trésmíði,
sauma- og málmsmíði. Jafn-
framt verði hafin ræktun trjáa,
blómd og nytjajurta í landi
heimilisins. (Til skýringar við
þennan lið skal þess getið, að
gert er ráð fyrir, að hægt verði
að koma á fót vinnustofum í
hermannaskálum þeim er fyrir
eru á landi heimilisiris).
Þá samþykkti þingið starfs-
skrá miðstjórnar fyrir næstu 2
ár.
Helztu atriði hennar eru eft-
irfarandi:
„Unnið skal að því af alefli
að kcmið verði upp vinnuheim-
ili berklasjúklinga að Reykjum
í Mosfellssveit og skulu bygg-
ingarframkvæmdir hefjast í
næsta mánuði, eða svo fljótt
sem fært þykir. Þingið ætiast
til að byggð verði 10 smáhýsi í
sumar.“
„Miðstjórnin skal, ef fært
þykir, ráða erindreka er fari
eina ferð kring um landið. Skal
bann heimsækja öll félög sam-
bandsins og stofna ný félög þar
sem .skilyrði eru fyrir hendi.
Unnið skal að því, að við og
- við verði flutt í útvarpið, á veg-
j um sambandsins, fræðsluerindi
j um berklaveiki og berklavarn-
{ ir. Unnið skal, að öðru leyti eft-
! ir því sem tími vinnst til, að al-
j hliða hagsmunamálum berkla-
) sjúklinga bæði innan hælanna
og utan þeirra.“
Þá samþykkti þingið eftirfar-
andi þakkarávarp til alþingis og
þjóðarinnar í heild:
„Fjórða þing S. í. B. S. vott-
ar alþingi og einstökum alþing-
ismönnum alúðarþakkir fyrlr
setningu laga um, að gjafir til
vinnuheimilis S. í. B. S. skuli
dregnar frá skattskyldum tekj-
um gefenda og tel.ur, að þessi
tilslökun stuÓli mjög að árangri
fjársöfnunarinnar og framgangi
málsins. Jafnframt flvtur það
Frh. é 7. síðu.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
í kmíí jt
Þriðjudagur 9. mai 1944
Biskup um vesiurför sína:
, um’
framfara og vaxandi jafnaðar
N ‘f TH T -l. I ♦ TTTI-- rr
Heimsofli fjölmargar ísiendingabyggðir í Ameríka og télf stérborgir
Bandaríkjanna.
O ISKUPINN, Sigurgeir
Sigurðsson, er konainn
heim eftir rúmlega tveggja
dg Ihálfs mániaðar iferðalög
um Kanada og Bandaríkin.
Hann heimsótti mikinn f jölda
byggða Vestur-íslendinga og
um 12 störborgir Bandaríkj-
anna. Hann flutti um 50 er-
indi og ræður og var önnum
kafinn frá morgni til kvölds.
Hann ferðaðist loftleiðis um
9 þúsund mílur, en hvað marg
ar mílur hann fór í bifreiðum
og með járnbrautum hefir
hann ekki haft tölu á. Er víst
óhætt að fullyrða, að það séu
ekki margir íslendingar, sem
hafi ferðast jafn víða og hann
og farið eins langar leiðir og
hann, á jafn skömmum tíma.
Biskupinn tók á móti blaða-
mönnum í gær á heimili sínu.
Hann var útitekinn af sól og
sumri Kaliforníu, þó að nokkuð
hefði tekið af roðann á ferða-
laginu gegn um vetrar-
bylji íshafsins. Hann var bros-
andi og sagði: „Gott var að heim
sækja vini okkar. í Vesturhéimi,
en heima er þó bezt.“
Biskupinn flaug héðan og til
Bandaríkjanna á 14 klukku-
stundum,. en. ferðin. hingað
heim tók allmiklu lengri tíma.
Hann sá líka fleira á leiðinni
heim og kynntist betur þeim
hættum og erfiðleikum, sem
bandarísku flugmennirnir eiga
við að stríða á ferðum sínum
milli álfanna, þó að allt gengi
skaplega og ekkert óhapp henti
hann eða aðra þá, sem með hon
um voru á leiðinni hingað heim.
fiéðar viðtokur ails
staðar.
Biskupinn og Arinbjörn Bardal, einn af kunnustu Vestur-íslend-
ingnum, í Fyrtstu lútersku kirkjunni í Winnipeg. Arinbjörn Bar-
dal er að afihenda biskupi vandaða, áletraða borðklukku til minn-
ingar um Sigurð regluboða, föður biskups, en þeir Arinbjörn Bar-
dal og hann voru vinir
„Ég hefi heyrt að þið hafið
fengið að fylgjast með ferðalagi
mínu undanfarna mánuði,“ sagði
biskupinn við blaðamennina. „Ég
stóð ekki fyrir þeim auglýsing-
um, en er þó þeim þakklátur, sem
gaf þjóð minni fregnir um för
mína. Ég var fulltrúi hennar og
starfsmaður á þessu ferðalagi,
enda naut ég þess. Mér var alls
staðar tekið með kostum og kynj-
um, þar sem ég kom. Það var
ekki verið að hylla mig persónu-
lega, heldur þjóð mína og kirkju
hennar. Ég stend í þakkarskuld
við mikinn fjölda manna hér
heima og vestur í Ameríku fyrir
margvíslega hjálpsemi og greiða-
semi, sem gerðu mér för mína
vestur létta og ánægjulega. Ég
þakka fyrst og fremst ríkisstjórn
jslands, Þjóðræknisfélagi Vestur-
íslendinga, Upplýsingadeild
Bandaríkjanna, bandarísku her-
stjórninni hér og kirkjunni
vestra, sem hjálpuðu mér á allan
hátt. En í mestri þakkarskuld
stend ég við forsjónina, sem gaf
mér styrk og aultið trúarþrek á
þessari för minni. Ég hefi stýrkst
í trú minni — og.ég vona að það
geti á einhvern hátt orðið kirkju
þjóðar minnar að liði.“
Wrh. á 7. síðu.
Sex ára dreng bjargai
Siglufirðl.
Tveim möomim tókst
að lífga haon.
C! EX ÁRA gömlum dreng
var bjargað í fyrradag
með naumindum frá drukkn-
un.
Um miðjan dag á sunnudag
voru drengir að leikjum á
bryggju á Siglufirði. Féll þá
einn drengurinn skyndilega út
af bryggjunni og í sjóinn. Aðr-
ir drengir 'hittu þá Jón Jóhanns-
son og Óskar Gari'baldason, sem
voru þarna skammt frá og
sögðu þeim frá hvarfi drengs-
ins og brugðu þeir strax við.
Jón Jóhannsson kastaði sér til
sunds og náði drengnum, en
þá virtist ekkert lífsmark vera
með honum. Þeir félagar gerðu
strax lífgunartilraunir á hon-
um og tókst þeim að lífga hann
eftir nokkra stund. Drengurinn
var búinn að vera þó nokkuð
lengi í sjónum, er hann náðist.
Heitir hann Egill Jóhannessson.
I
SÍÐASTI bæjarstjórnarfund-
ur sarnþvkkti að* taka upp
samvinnu við þjóðhátíðarnefnd
ina og skyldi Reykjavíkurbær
tilnefna einn fulltrúa til þess
að starfa með nefndinni.
Á bæjarráðsfundi, sem hald-
inn var á laugardaginn var á-
kveðið að Tómás Jónsson borg-
arritari skyídi vera fulltrúi bæj
arins hjá nefndinni. Þjóðhátíð-
arnefndin- hafði skrifað bæjar-
ráði og farið fram á þessa sam-
vinnu vegná fýrirhúgaðra há-
tíðahalda hér í bænum.
a
ÐALSAFNAÐARFUNDUR.
Laugarnessóknar var hald-
;inn á sunnudaginn að aflokinní
guðsþjónustu í salnum 'niðri f
kirkjunni.
Jón Ólafsson, formaður safn-
aðarstjórnarinnar gerði grein
fyrir fjárhag safnaðarins og
kom það fram i skýrslu hans að
byggingarkostnaður kirkjurinar
er orðinn 380 þúsund krónur.
Af þeirri upphæð eru ekki nema
60 þúsund krónur í skuld, en
það skuldar söfnuðurinn hinum
almenna kirkjusjóði, en nær all
ar nýjar kirkjur njóta stuðn-
ings þessa sjóðs. Nokkuð fé er í"
sjóði og er ákveðið að verja því
til þess að múrhúða kirkjuna
að utan í sumar.
Störf sóknarnefndarinnar hafa
verið mikil og erfið enda þakk-
aði fundurinn henni vel unnin
störf. Átíi fundurinn að kjósa
tvo menn í stjórnina í stað
tveggja sem gengið höfðu úr
henni sarnkvæmt hlutkesti og
komu upp nöfn Jóns Ólafsson-
ar og Tryggva Guðmundssonar
og voru þeir báðir endurkosnir.
Samþykkt var að sóknargjald-
ið skyldi haldast óbreytt, 15
krónur.
Fjörugar umræður urðu um
kirlcj ubyggi nguna og ríkti mjög'
mikill áhugi um að flýta þvi
eins og hægt væri að fullgera
hana. Kom undir þeim fram sú
uppástunga, að hver og einn
sóknarbúi legði fram til kirkj-
unnar sem svaraði einum dag-
launum sínum. Ef það fengist
myndi vera hægt að Ijúka
kirkjubyggingunni að fullu og
öllu.