Alþýðublaðið - 09.05.1944, Blaðsíða 3
>ri8jad»gttr 9. mai 1944.
l&m .S
Aj.ÞTPtr*’^Ærð
3
Jafnaðarmenn á Póílandi móf-
ásælni Éúisa
ÐFARANÓTT hins 28. apríl
Hélta á'fulEiEngi Attlees gegEí kröfum þeirra
fiB Basida í Austur-Póliandi.
BREZKA stórblaðið Observer skýrir frá því, að jafnað-
armenn heima á Póllandi hafi ritað Attlee varáforsæt-
isráðherra Breta og einum fulltrúa brezka Alþýðuflokksins
í stjórn Churchills bréf, þar sem þeir gera ásælniskröfur
Rússa á hendur Pólverjum að umræðuefni. Er þar svo að
orði komizt, að jafnaðarmenn heima á Póllandi muni al-
úrei fallast á það, að nokkur héruð Póllands verði látin af
shendi við Rússa. Einnig er mótmælt innlimun Eystrasalts-
ríkjanna, svo óg hinum auknu áhrifum Rússa á Balkanskága.
Jafnaðarxnenn heima á Pól- * ' —————
landi hafa sent bréf þetta Attlee
varaforsætisráðherra Breta og
heita á fulltingi hans sér og
pólsku þjóðinni til thanda. Mót-
mæla þeir harðlega þeirri til-
lögu, að framtíðarlandamæri
Póllands skuli miðuð við Curz-
onlínuna svonefndu, en þess
Jxefir áður verið getið í fréttum
að nokkrar líkur væri fyrir því,
að pólska stjórnin í London
myndi fallast á hana sem fram-
tíðarlandamæri Póllands og
Pússlands. í bréfi þessu er þann
ig kveðið að orði, að jafnaðar-
menn heima á Póllandi geti al-
drei greitt því jákvæði, að pólsk
héruð verði látin af hendi við
Pússa.
í bréfi þessu eru einnig borin
fram skelegg mótmæli gegn því,
að R-ússar skuli hafa sölsað und
ór sig stjórn pólskra héraða, með
an á vopnaviðskiptum stendur
svo og gegn innlimun Eystra-
sa^tsríkjanna í Sovétríkin og
Samþykki bandamanna fyrir
auknum áhrifum Rússa á Balk-
anskaga.
„Jafnvel þau ríki á Balkan-
skaga, sem eru á lægstu menn-
íngarstigi eru paradís í menning
legu tilliti samanborið við Rúss
land,“ komast bréfritararnir að
orði. Þeir segja að Pólverjar
geti ekki horfið frá þeirri fyr-
irætlun, að á verði komið ríkja
sambandi landanna á takmörk-
um Austur- og Mið-Evrópu, er
teldi Eyistrasaltslöndin og Balk-
anlöndin innan vébanda sinna
auk Póllands og Tékkóslóvak-
íu.
í bréfi þéssu er farið hörðum
orðum um þann hóp Tékka og
Slóvaka (það er stjórn dr. Ben-
es), sem „hefdr reynt að granda
fyrirætluninni um stofnun slíks
ríkjasambands landanna í Aust-
ur-Evrópu.“
Þrjú skip á leið frá
Japan fil Þýzkalands
ISTGRAM flotaforingi, yfirmað
ur brezka flotans á Suður-
Atlantshafi, hefir gefið út til-
kynningu um það, að þrjú skip
frá Japan, sem hugðust rjúfa
hafnbannið á meginlandið og
koma vörum til Þýzklands, hafi
verið tekin. Var þessa getið í
frétt frá Lundúnum í gær. Einn
ig var tilkynnt að Ingram hefði
látið þess getið, að átta þýzk-
um kafbátum hefði verið sökkt
á Suður-Atlantshafi að undan-
fömu og fjórir laskaðir.
A1
s.l. gerðu brezkar flugvélar
harðfengilega árás á Kellerflug-
völlinn og flugvélaverksmiðjuna
við Lilleström fyrir utan Oslo.
Áður hefir verið gefin stutt til-
kynning um árás þessa, en nú
eru gleggri upplýsingar fyrir
hendi.
Um hundrað Lancasterflugvél-
ar flugu lágt inn yfir Osloborg.
Þær flugu nokkra hringi yfir
Keller áður en árásin hófst, svo
að fólk fékk forðað sér burtu í
tíma. Því hæst létu þær sprengj-
ur sínar falla, sem margar hverj-
ar voru um tvær smálestir að
þyngd. Sprengingarnar, sem
urðu af völdum árásarinnár,
heyrðust glöggt í Oslo og ná-
grenni hennar. Öll þau mann-
virki, sem uppi stóðu að Keller
eftir loftárás Bandaríkjamanna í
vetur, voru í rústum eftir árás
þessa. Reykjarmökkurinn, sem
gaus upp, meðan árásin stóð yfir,
bar hátt við himin, og miklir eld-
ar loguðu, enda hæfðu sprengjur
flugvélanna meðal annars bén-
zín- og olíubirgðir staðarins. Á
hæð handan við Keller stóð hús
nokkurt, þar sem þýzkir foringj-
ar höfðu aðsetur. Það var hæft
íkveikjusprengju og brann til
kaldra kola. Þýzkir skriðdrekar
á götunum í Lilleström hófu
skothríð gegn flugvélunum, og
við það kviknaði í nokkrum hús-
um þar. Mörg hús í einkaeign,
er voru í nágrenni flugvallarins,
voru jöfnuð við jörðu í viður-
eign þessari. Því miður létu tíu
Norðmenn lífið í árás þessari, en
raunar má merkilegt teljast, að
ekki skyldu fleiri farast, þegar að
því er gætt, hversu árásin var
harðfengileg og þéttbýli mikið
aðeins örskammt frá flugvellinum
Daginn eftir veittu Þjóðverjar
Oslóarblöðunum leyfi til þess að
birta í örstuttu máli frétt um
loftárás „á nágrenni Oslóar“, eins
og þar var komizt að orði. En
brátt kvisaðist hvar árásin hefði
verið gerð, og morguninn eftir og
fram eftir deginum voru járn-
’ brautarlestirnar til • Lilleström
fullskipaðar fólki, er lék hugur á
því að sjá tjónið, sem orðið hafði
af völdum loftárásarinnar. Þýzku
hermennirnir, sem á verði voru,
urðu mjög gramir yfir þessu og
hófu meira að segja skothríð á
mannfjöldann til þess að dreifa
honum.
(Samkvæmt frétt frá skrif-
stofu norska blaðafulltrúans.)
Ofar skýjum inn yfir meginlandið.
Myndin sýnir brezkar sprengjuflugvélar á hinni daglegu leið þeirra til árása á ríki Hitlers.
Þær fljúga hátt yfir skýjahafinu.
ÞýzkalancB og Balkanskaginn eru sföðugt þau svæ$in, sem megin-
árásirnar eru gerHar á.
O IÐASTA sólarhringinn hnfa bandamenn haldið uppi*
^ hörðum loftárásum gegn meginlandinu. Hefir megin-
þungi þessara árása beinzt annars vegar gegn Þýzkalandi
sjálfu og þá fyrst og fremst Berlín, en hins vegar gegn Balk-
anskaga og þar fyrst og fremst að Búkarest, höfuðborg Rúm-
eníu, sem orðið hefir fyrir miklum árásum að undanförnu.
Aulc Berlínar hafa borgirnar Múnster, Leverkusen, Braun-
schweig og Osnabruck orðið fyrir miklum árásurxi, svo og
stöðvar Þjóðverja við Rennes, Tours og Orleans á Frakk-
landi. í fréttum af loftsókninni gegn Balkanskaga er þess
getið, að miklar skemmdir hafi orðið á járnbrautarbrú milli
Belgrad og Sofia, svo og í Búkarest.
Hin mikla loftsókn gegn meg-
landi Evrópu, sem margir telja
undanfara hinnar væntanlegu
innrásar, virðist sífellt fara
harðnandi. I gær var megin-
þunga hennar beint gegn stöðv-
um Þjóðverja við Rennes, Tours
og Orleans á Frakklandi og báru
þær mikinn árangur. Fórust níu
flugvélar Breta í árásum þess-
um. Einnig voru harðar árásir
gerðar á Levérkusen og Osna-
brúck í Þýzkalandi, og varð mik
ið.tjón af þeirra völdum.
Aðalárásirnar í fyrradag voru
gerðar á Berlín og Múnster. Er
talið, að alls hafi nær tvær þús-
undir flugvéla tekið þátt í leið-
angri þessum. Þrettán flugvél-
ar bandamanna áttu ekki aftur-
kvæmt til stöðva sinna.
Tjón af völdum árása þess-
ara varð geysilegt, þrátt fyrir
hin erfiðustu skilyrði. Var loft
skýjað og mikill kuldi. Var þess
getið í fréttum frá Englandi í
gær, að þar hefði víða Verið
frost í fyrrinótt og miklir kuldar
kváðu og vera á meginlandi
Evrópu, svo að einsdæmi eru
t talin um þetta leyti árs. Var lagt
| til atlögu við járnbrautarstöðv-
ar, brýr og vegi, járnbrautir,
flugvelli, verksmiðjur og ýmis
önnur skotmörk, sem hafa hern-
aðarlega þýðingu. Til dæmis
skýra sum sænsk blöð frá því,
að árásin á Berlín muni vera
einhver hin árangursmesta, sem
gerð hafi verið langa hríð. Þjóð
verjar héldu uppi harðfengilegri
loftvarnaskothríð, og víða ‘háðu
þýzkar flugvélar miklar loft-
orrustur við flugvélar banda-
manna.
Loftárás bandamanna á Búka
rest í fyrradag var hin harðasta
og var það fjórða árás þeirra á
borgina á tveim sólarhringum.
Miklir eldar komu upp í verk-
smiðjuhverfum Búkarestborgar,
en hingað til hafa bandamenn
svo að segja einvörðungu beint
loftárásum sínum gegn j árn-
br autarstöðvum ♦hennar.
Einnig var ráðizt til atlögu
við mikilvæga járnbrautarbrú
suður af Belgrad. Er járnbraut
arbrú þessi um átta hundruð
feta löng og hin fhikilvægasta,
því að um hana liggur eina
járnbrautin til Sofíu og hafn-
anna við Eyjahaf. Bandamenn
halda einnig uppi linnulausum
loftárásum frá stöðvum sínum
á Ítalíu og við Miðjarðarhaf
með miklum árangri. í gær var
þess meðal annars getið, að
árásir hefði verið gerðar á ýms
ar eyjar í Eyjahafi, þar sem
Þjóðverjar hafa aðsetur, og
hefðu þær borið tilætlaðan ár-
angur.
Lundúnafréttir x gær létu
þess og getið, að Mosquitoflug-
vél hefði skotið þýzka flugvél
Ný sókn Rússa við
Sevastopol.
ÚSSAR tilkynntu í gær-
*• kvöldi samkvæmt frétt frá
Lundúnum^ að þeir hefðu hafið
nýja sókn við Sevrstopol, en
aðstaðan væri annars óbreytt
á austurvígstöðvunum.
Rússar hafa lítt látið stór-
sigra getið að undanförnu, og
urðu Þjóðverjar þeim fyrri til
þ'ess að tilkynna hina nýju sókn
þelirra við Slevastopöl í gær.
Létu þeir þess getið, að Rúss-
um hefði (tekizt að rjúfa víg-
girðingar þeirra við borgina og
myndi mikilla tíðinda að vænta
af þessum vígstöðvum á næst-
unni. Hins vegar hafa Rússar
borið á móti því, að þeir hafi
hafið nokkra nýja sókn við ræt-
ur Karpatafjalla, en létu þess
getið, að Iþeir héldu uppi harðri
loftsókn gegn stöðvum og sam-
gönguleiðum Þjóðverja.
Háfíðahöld í Túnis.
MIKIL hátíðahöld vonx í
Túnis í fyrradag í tilefni
þess, að þá var liðið ár síðan
Þjóðverjar voru sigraðir á þeim
slóðum. Einn þáttur þessara há-
tíðahalda var tilkomumikil her-
sýning. De Gaulle hélt ræðu í
tilefni þessara hátíðahalda, en
hann dvelst um þessar mundir
í Túnis. \
niður skammt frá Kaupmanna-
höfn.