Alþýðublaðið - 14.05.1944, Side 5
Simnudagur 13. maí 1944.
ALÞYBUB LAÐKÐ
s
Símaskrá er ófáanleg — Hver smíðar borðfánastengur?
— Lesandi um drengilega málafærslu — Vegur ófær
að garðlöndum — Orðsending til vinnukvenna frá mér.
ENGIN SÍMASKRÁ var gefin
út um síðustu áramót. Ástæð-
an fyrir þessu, mun hafa verið sú,
að landssímastjóri mun ekki hafa
talið, að þörf væri á nýrri útgáfu
vegna þess, að tiltölulega litlar
breytingar hafa orðið á símanot-
endum og engum nýjum númerum
hefir verið bætt við. Það er ef til
vill eðlilegt, að landssímasíjóri
hafi litið' þannig á málið,, en þó
hafa allmiklar breytingar orðið á
símanotendum.
AUK ÞESS mun engin bók
velkjast jafnfljótt og eýðileggjast
með öllu og símaskráin, því að
fólk er alltaf með hana milli hand-
anna og henni er venjulegast flett
f flýti og mjög illa. Mim líka
raunin sú, að hjá mörgum síma-
notendum sé skráin orðin alveg
eyðilögð eða svo gott sem, að mörg
blöð vanti orðið í hana og önnur
séu orðin lítt læsileg. En nú er
svo komið, að engin símaskrá fæst.
Þetta er vitanlega mjög óþægilegt,
enda dálítið fyrirhyggjuleysi að
hafa upplagið svo lítið af síma-
skránni, að ekki sé hægt að bæta
úr rýrnun sem á upplaginu verður
í höndum kaupendanna.
ÉG GERI EKKI ráð fyrir því, að
úr þessu sé hægt að bæta bráð-
lega, þó að illt sé, en gera verður
ráð fyrir því, að ný símaskrá verði
prentuð í sumar og að símanot-
endur geti fengið hana undir
haustið, jafnvel þó að ekki verði
hægt að stækka stöðina, sem ekk-
ert útlit mun vera fyrir, fyrr en
að styrjöldinni lokinni, en þá
verður líka að stækka hana mikið,
því að þúsundir Reykvíkinga bíða
nú eftir að fá síma.
„KONA“ SKRIFAR mér á þessa
leið: „Eg er sammála ykkur, sem
hafið skrifað um íslenzka fánann
upp á síðkastið. Ég vil, að fána-
stengur komi á sem allra flest hús
í Reykjavík, en ég tel ekki minna
um vert, að íslenzkur fáni sé til á
hverju heimili. Hann á að skipa
heiðurssess hjá hverri fjölskyldu.
En nú langar mig til að biðja þig
að segja mér hvar hægt sé að fá
snotrar og fallegar fánastengur. Nú
er hvergi hægt að fá borðfána-
stengur. Eitt sinn voru búnar til
mjög snotrar stengur úr kopar, en
það er langt síðan ég hef séð þær.“
ÞVÍ MIÐUR get ég ekki upp-
lýst þig um þetta, vina mín, en ég
vil mælast til þess, að þeir, sem
selja slíkar stengur, skýri frá því
opinberlega, svo að almenningur
eigi kost á að kaupa stengurnar.
Geta ekki einhverjir laghentir
menn búið til fánastengur úr fall-
egum viði með þungum fæti? Þær
gætu orðið fallegar og svo yrðu
þær miklu ódýrari en fánastengur
úr málmi.
LESANDI SKRFAR mér þetta
bréf: „Morgunblaðið gleiðletrar
fyrirsögn: „Kristján X. hefir enga
möguleika til þess að gegna skyld-
um sínum sem konungur íslands.“
— En blaðmu hefur þótt kenna of
mikillar sannleiksástar og réttlæt-
istilfinningar að hafa þetta að
eftirfarandi fyrirsögn: „Það sem
andúðinni veldur, er það, að þau
(sambandsslitin) eru lcnúin fram,
án þess að löglegra formsatriða sé
gætt.“ Var þetta þó í sömu grein-
inni. Og enn fremur er þar skráð:
„Það leikur ekki á tveim tungum,
að hinn formlegi réttur er Dana
megin.“ Heiðarleikurinn, réttlætis-
tilfinningin og mannvitið helzt í
hendur hjá leiðtogum þessum."
QARÐEIGANDI skrifar: „Veg-
urinn frá Klömbrum við Rauðar-
árstíg og upp í garðlöndin í
Kringlumýri verður alltaf gersam-
lega ófær í rigningum. Það er mik-
il nauðsyn að vegurinn sé lag-
færður eitthvað ofurlítið, svo að
við, Sem stundum garðrækt þarna
efra, getum komizt í garðana.“
í DAG ER vinnuhjúaskildagi. Þá
fara vinnukonurnar úr vistunum,
sem þær hafa verið í í vetur, ráða
sig annað eða flytja burtu úr bæn-
um. Nú vil ég vekja athygli á því,
stúlkur mínar, að þið eigið rétt á
að fá orlofsfé hjá húsbændum ykk-
ar, ekki aðeins fyrir það kaup sem
þið fáið greitt í peningum eða
hafið fengið í vetur, heldm- einnig
fyrir fæði og húsnæði, Ijós og hita.
HVERRI SXÚEKU á að reikna
215 krónur á mánuði í þetta, og
af þessari upphæð eiga þær að fá
kr. 8.60 í orlofsfé á mánuði. Fyrir
7 mánuði eru það kr. 60.20, sem
þær eiga að fá í orlofsmerkjum.
— Svo skulum við skemmta okkur
saman fyrir þetta í sumar, elsk-
urnar mínar — ef það verður þá
nokkuð sumar að þessu sinni, sem
er þó óþarfi að Örvænta um, því
að í dag, í fyrra, var 12 stiga frost
í Reykjavík.
Hannes á hornlnu.
Stjórnniála- og fræðslurit Alþýðuflokksins.
Lesi® ritið ier« rsaaSa bæinn:
r
Alþýðuhreyfingin og Isafjörður
Eftir Hannibal Valdimarsson skólastjóra.
Rit Gylfa 1». Gíslasonar:
Sésiaiismi á vegum Sýéræéis éöa
einræðSs
fæst nú aftur í bókabúðum.
Löndun í fallhlíf.
Myndin var tekin við æfingar failhlífarhermanna í Bandaríkjunum.
Siðari grein:
STÆÐAN fyrir því að ein
ræði komst á í Argentínu,
var ótti við aukna íhlutun
Bandaríkjanna, öfgafull þjóðern
iskennd og mikil óánægja vegna
fjárhagsvandræða landsmanna,
svo og hið mikla stjórnmálaöng-
þveiti og dugleysi ríkisstjórnar
þeirrar, SfEm frá fór. í Bólivíu
var aðaliástæðan fyrir valdatöku
núveranidi stjórmar hin mikla
fátækt almennings og eymd
námuverkamanna, áhrii' hersins
á stjórnmál landsins, áróður
Þjóðverja og Gran Chaco stríð-
ið, sem lauk með hinurn ógnleg-
ustu hermdarverkum. í ríkis-
stjórn þeirri, er nú situr þar að
völdum, eiga sæti frjálslyridir
menn, áhrifamenn hersins, naz-
istavinir og aðrir slíkir.
Þau ríki, þar sem viðhorfin
eru áþekk og í Bólivíu, eru
Paraguay, Peru og Ecuador. í
Paraguay ríkir þegar einræði.
Arið 1940 lýsti Morinigo hers-
höfðingi yfir því, að hann hefði
tekið sér einræðisvald. Allar
uppreisnartilraunir voru bæld-
ar miskunnarlaust niður, og
fjölmargir uppreisnarmenn hafa
verið teknir af lífi síðan 1940.
Þjóðverjar hafa rekið þar víð-
tækan áróður. Paraguay er
mjög illa sett fjárhagslega og
hefir því verið næsta háð Ar-
gentínu. En þess hefir mjög orð
ið vart að undanförnu, að stjórn
Morinigos vilji vingast við
Bandaríkin og Brazilíu.
í Peru ríkir hálfgert einræði.
Forseti laridsins, dr. Prado, er
raunverulega frjálslyndur og
mikilhæfur maður, en hann er
háður siðvenju einræðisins.
Stjórnarskrá landsins minnir í
ýmsu á stjórnarskrár lýðræðis-
ríkja, og ef frjálsar kosningar
yrðu leyfðar í Peru er mikil á-
stæða til þess að ætla, að hinir
róttækari flokkar myndu vinna
sigur, Bakhjarl núverandi
stjórnar er herinn og landeig-
endurnir, og hún mun leitast
við að bæta hinn erfiða fjárhag
lands og þjóðar, þó án raun-
hæfs árangurs. Þjóðverjar og
Japanar láta áhrifa sinna gæta
þar allmikið. — En Peru hefir
leitað stuðnings Bandaríkjanna
um fé til skipulagningar iðnað-
ar og málmvinnslu í landi sínu,
og Bandaríkjamenn hafa einnig
fjölmarga flugvelli þar á leigu.
Ecuador er lýðræðisríki að
nafninu til, en raunverulega
drottnar forsetinn sem einvald-
ur væri. .Þar ríkir mikil fátækt
meðal almennings, möndulveld
in reka þar ákafan áróður, land
eignir eru í eigu fárra einstak-
linga og iðnaður og atvinnulíf
landsins má heita í kaldakoli.
Arið 1941 geisaði styrjöld milli
Ecuador og Peru, er spratt af
landamæradeilu. Henni lauk þó
árið 1942, en hefir skilið eftir
mikla beiskju.
í Chile virðist vera mun
meiri stjórnmálaþroski meðal
almennings en í öðrum löndum
Suður-Ameríku. Landinu er
stjórnað af samstjórn miðflokka
manna og frjáislyndra manna.
— En Þjóðverar eru fjölmennir
þar í landi, herinn má sín ali-
mikils og þar eru fjölmennir
þjóðernissinnar, sem hafa van-
þóknun á Bandaríkjunum og
•auknum áhrifum þeirra. Þjóð-
ernissinnarnir og áhrifamenn
innan hersins hafa efnt til ým-
issa vandræða. En aðstaða
stjórnarinnar er sterk, þar eð
hún nýtur stuðnings fjölmenn-
ustu stéttanna að meira eða
minna lpyti.
p FALAUST er það rétt
litið, að minnstar séu 1
urnar fyrir auknum áhrifi
einræðisstefnunnar í Suður-i
eríku í Uraguay, Brazilíu, Ve:
zuela og Colornbíu. Uraguajr
lýðræðisríki, sem nýtur fra
sýnnar stjórnar dr. Ameza
Framfarir hafa orðið margar
merkar þar í landi á síðustu
um. Landkostir eru þar me
en víðast annars staðar í Suð
Ameríku, og þó að margt
raunar ógert þar, hefir mi!
þegar verið áorkað til gc
Möndulveldin reka mikinn á:
ur í Uraguay, og landið er f j
hagslega allmikið háð Arg
tínu, en eigi að síður stenc
lýðræðið þar traustum fótun
BRAZILÍU ríkir eins k
ar landföðurlegt einre
Dr. Getulio Vargas hefir sc
þar að völdum frá því að h;
efndi til uppreisnar sinnar i
1930. Stjórnin er umburc
lynd við andstæðinga sína' e
því sem menn eiga að venja
einræðislöndum. Uiúatala la
ins nemur fjörutíu milljóm
en pólitískir fangar kváðu v
þar aðeins um fimm hundi
Dr. Vargas er vingjarnle
maður og vinsæll. Hann h
ekki myndað fjöldaflokk um
\
né klíku ráðamanna. Ekkert
landa þessara hefir efnt til eins
náinnar samvinnu við Bandarík
in og Brazilía, enda hafa Banda
ríkin veitt henni mikinn fjár-
hagslegan stuðning. Brazilía
hyggst hagnýta sér tækifæri
það, sem styrjöidin hefir veitt
henni í mynd aukinnar atvinnu
og aukins lánstrausts, til þess
að endurskipuleggja iðnaðinn í
landinu. Hagur almennings hef
ir vænkazt þar að miklum mun
á síðustu árum. Þjóðverjar eru
fjölmennir í Brazilíu, en talið
er, að fæstir þeirra aðhyllist
skoðanir nazista. Fasistafiokk-
urinn starfar enn þar í landi, en
vegur hans hefir mjög minnkað
að undanförnu. Áhrifamenn
hersins voru taldir hlynntir
Þjóðverjum allt til ársins 1941.
Eigi að síður tekur Brazilía, svo
og raunar Colombía og Bolivía,
virkan þátt í styrjöldinni gegn
möndulveldunum, og Vargas
forseti hefir gefið fyrirheit um
að endurskipuleggja stjórn sína
áður en langt um líði, en það
myndi þýða það, að frjálslyndu
flokkarnir fengju þar aukin á-
hrif.
í Venezuela hafa mestu harð-
stjórar ríkt, sem saga Suður-
Ameríku kann frá að greina. En
árið 1935 urðu straumhvörf í
stjórnmálunum þar í landi. Þeg
ar Gomez forseti lézt, tók her-
málaráðherra hans, Lopez Cont
reras við forsetatigninni. —
Hann aflýsti einræðinu, lét
semja þriggja ára áætlun, stofn
aði þing, aflétti ritskoðun og
leyföi alla stjórnmálaflokka.
Eftirmaður hans, Medina for-
seti, hefir fetað dyggilega í fót-
spor fyrirrennara síns. En þrátt
fyrir það, sem áunnizt hefir til
hags og heilla þar í landi, bíða
enn mörg verkefni úrlausnar,
og fátækt almennings er mikil.
Colombía er sennilega það
land Suður-Ameríku, sem hefir
notið heillavænlegastrar þróun
ar á liðnum ái]um næst Urag-
uay. Æðri menntun er þar á
háu stigi, og alþýðan hefir unn
ið þýöingarmikla sigra hin síð-
ustu ár til aukinna mannrétt-
ii:da. Áhrif hersins á stjórnmál
landsins eru hverfandi. —
Lengi vel stafaði nokkur hætta
af áróðri Þjóðverja í Colombíu,
en þeirri hættu hefir nú verið
bægt brott, og Colombía heyir
s styrjöldina gegn möndulveldun
i um við hlið bandamanna.