Alþýðublaðið - 06.06.1944, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 06.06.1944, Blaðsíða 7
I»riðjudagur 6. júní 1944. | Bœrinn í dag. f Næturlæknir er í Læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Ingólfsapóteki. Næturakstur annast Hreyfill, sími 1633. ÚTVARPIÐ: 12.10—13.00 Hádeigsútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Einsöngur: Daníel Þórhalls- son frá Siglufirði. 20.00 Fréttir. 20.30 Tónleikar Tónlistarskólans: a) Svíta í a-moll eftir Tele- mann. b) Fjögur danslög í gömlum stíl eftir Niemann. (Hljómsveit leikur. — Dr. Urbantschitscr stjórnar). 21.00 Erindi: Ferð til Vestur- heims (Sigurgeir Sigurðs- son biskup). 21.25 Tónleikar. 21.30 Erindi: K. F. U. M. 100 ára (Ástráður Sigursteindórsson cand theol.). 21.50 Fréttir. Dagskrárlok. Þjóðhátíðardagur Svía. í tilefni af þjóðhátíðardegi Svía er móttaka í sænska sendiráðinu í dag kl. 16—18. Jón Símcnarson, bakarameistari, hefir heitið að gefa brauð til Vinnuheimilis íslenzkra berkla- sjúklinga, fyrsta árið, sem heim- ilið starfar. Hjónaefni. Á Hvítasunnudag opinberuðu trú lofun sína ungfrú Sigrún Sigurð- ardóttir, starfsstúlka í Laugavegs- apóteki og Guðmundur Guðmunds son sjómaður, Bárugötu 29. Pétur Gautur verður sýndur í næst síðasta sinn annað kvöld. Aðgöngumiða- sala hefst kl. 4 í dag. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Paul Lange og Thora Pars- berg kl. 8 í. kvöld. Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 2. Félagslíf. íþróttasýningar þjóðhátíðar- innar. Hópsýning karla: Samæfing í kvöld með öllum flokkum kl. 8,30 í Austurbæjar skólaportinu, ef það er þurt. Annars æfingar á venjulegum tímum. Fjölmennið. Hópsýninganefndin. Í.S.Í. Í.R.R. 17. júní íþróttamótið verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 18. júní á íþrótta- vellinum. — Keppt verður í þessum íþróttagreinum: 100 m., 800 m. og 5000 m. hlaup- um, Kúluvarpi, Kringlukasti, Hástökki, Langstökki og 1000 m. Boðhlaupi. Öllum félögum innan Í.S.Í. er heimil þátttaka. — Tilkynningar um þátttöku skulu komnar til Jens Guð- björnssonar form. framkvæmd- arnefndarinnar eigi síðar en 10. júní. Glímufélagið Ármann, íþróttafélag Reykjavíkur. Knattspyrnufélag Reykjavíkur. FaSíegar HSidartöskur í'l 'Á h Qi . þ l .1 G' ‘ Vr'í l [ : l't G; • H. TOFT. Skólavörðust. 5. Sími 1035. ^LÞYÐUBLAÐIP Akranes fékk veglega sundíaug að gjöf á sjómannadagsnn Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi okkar, ÍÞorfojorn fHfaEldórsson trésmiSur, andaðist að heimili sínu, Hofsvallagötu 20, laugardaginn 3. þ. m. Helga Helgadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Alúðar þakkir vottum við öllum hinum mörgu vinum og skyldfólki, fyrir auðsýnda samúð, margvíslega hjálp og gjafir við fráfall og jarðarför mannsins míns GuÓ|óus HristiBis Sveinssonar, Brautarholti, Hafnarfirði. Kristensa Arngrímsdóttir og börn. iahöld sjómannadagsins Frh. af 2. síðu. ASJÓMAíNNADAGINN var Akraneskaupstað afhent vegleg sundlaug að gjöf. Tildrög til ibyggingar laugarinnar voru þessi: Stjórn Minningarsjóðs ÍBjarna Ólafssonar, s’kipstjórafé- lagið Hafþór, sjómanna- og vél- stjóradeild Verkalýðsfélags Akraness, bundust samtökum vorið 1939, um fjársöfnun til þess að koma upp fullkominni sundlaug með tilíheyrandi böð- um og útbúnaði. Þessi fjársöfn un gekk lákaflega vel, var al- mennur og níkur áhugi fyrir því að þetta mætti verða sem fyrst. Ofannefndir aðilar kusu fram- kvæmdanefnd sem þessir menn áttu sæti í. Frá Minningarsjóði Bjarna Ólafssonar: Ól. B. Björnsson, Niíels Kristmanns- son og Þórður Ásmundsson og síðar Júlíus Þórðarson. Fyrir sj cmannadeildina: Guðmundur Siveinbjörnsson. Fyrir vélstjóra- deildina: Gunnar Guðmundsspn og fyrir Skipstjórafólagið Haf- þór: Axel Svieinbjörnisson. — Nefndinni fannst það timabært að befja byggingu vorið 1943. Laugin var vígð á sjómannadag ■inn 4. júnlí kl. 4 e. h. að við- stöddu mjög miklu mjölmenni. Vlígsluræðuna hélt formaður nefndarinnar Ól. B. Björnsson. Hann skýrði aðdraganda og gang mrálsins frá upphafi til enda. Nefndin hafði fyrst hugs að sér 25 m. langa laug og síðar 16% m. En við eftirgrenslan af reynslu annara í þessum efnum varð nefndin sannifærð um að imálið fengi rétta lausn og happa drýgsta með því að byggja laug ina ekki stærri en 12V2X63á m. og það er stærð þessarar laug- ar. Hún er 2 m. þar sem hún er dýpst en 90 cm. grynnst. Fram með syðri hlið laugarinnar er allstórt áho rf e ndas v æ ði (upp- hækaðir pallar). Yfir því er sólskýli. Sitt hvoru megin í aðalbyggingunni eru búnings- berbergi fyrir ikarla og konur. Eru þar samtals 44 fataskápar. Þar innaf' eru herbergi fyrir þrifaböð (sturtur) ásamt snyrti Iherbergjum. Á efri hæð húss- ins er gufubaðstofa Rauðakross deildar Akraness, sem fljótlega verður fullgerð. Undir öllu hús- inu er kjallari. Stærsta herberg ið ’þar er ætlað fyrir hreinsun- arvélar laugarvatnsins. ‘Laugin er hituð með kælvatni ljósa- mótora. Hiti laugarinnar var í dag 20 stig. En það er talið víst að það sé það lægsta sem það get ur orðið, vegna þess að nú dag- lega er aðeins minnsta vélin not uð og með litlu álagi. Eftirtaldir menn stóðu fyrir verkinu við bygginguna: Óskar S veinsson byggingameistari, Aðalsteinn Árnason, múrara- meistari, Sveinn Guðmundsson rafvirkjameistari. Vélsmiðja Þorgeirs og Ellerts sáu um nið- ursetningu allra hitunartækja svo og um vatnislögn í laugina. Vélsmiðjan Jötunn smáðaði for- vermarann. Lárus Árnason mál- arameistari sá um málningu, og Lárus Þjóðibjörnsson húsgagna- smiður smíðaði hurðir og glugga. Teikningar voru gerðar af húsameistara í samráði við í- þróttafulltrúa Þorstein Einars- son, Óskar Sveinsson og nefnd- ina. Eftir iþví sem nú þegar er vit- að um bostnaðinn er hann 2ili8972,35. Styrkur úr ríkissjóði hefir þegar verið greiddur 50 þúsund kr. En það er ekki loka- greiðsla. Yfir 100 þúsund hefir nú þegar komið í frjólsum fram lögum og það er búizt fastlega við að það sem ávantar fulla greiðslu komd á sama hátt. Nefndin aflhenti í dag í um- boði áðurnefndra aðila og al- mennings, bænum þetta mann- virki skuldlaust samkv. svo- feldu gjafabréfi: „Fyrir hönd ofanritaðra, höf- uim við ákveðið, í fullu trausti til vilja allra annarra sem hér hafa lagt fé til eða fyrirhöfn, að aflhenda mannvirki þetta eins og það nú er, skuldlaust, Akraneskaupstað til ævinlegrar eignar, með eftirgreindum skil yrðum: 1. Að laugin sé rekin með al- menningsheill fyrir augum, og að aðgangur að henni og böð- un sé ekki sélt hærra verði en sem þarf til viðhalds, og til að standa undir rekstri. 2. Að skipstjórafélagið, sjó- mannafélögin og stjórn Minning arsjóðs Bjarna Ólafissonar megi velja 3, af 5 manna nefnd er sjláf um rejkstur laugarlnnar., Bærnn velji 2 menn í nefndina. 3. Að á þar til gerða stöpla .— framan við laugina — sem (byggðir verði utan um núver- andi flaggstengur, láti bærinn eftir nánari samkomulagi siðar, letra nöfn þeirra sjómanna er béðan hafa drukknað — og vit- að er um — svo og síðar, jafnóð- um og isliík slys bera að höndum. 4. Að húsi og tækjum sé á- valt vel við haldið, til þess að allt þetta svari 'þeim tilgangi sem að er kept.“ Laugin var vígð með því að 3 sjómenn í fullum sjóklæðum stungu sér og syntu yfir hana. Á elftir vígsluræðunni þakk- aði bæjarstjóri Arnljótur Guð- mundsson með ræðu. Þá héldu þeir og ræður Guðm. Kr. Guð- mundsson formaður íþrótta- nefndar rlíkisins og Ben G. Waage forseti I. íS. í. Á eftir þreyttu 8 menn kappsund í lauginni. En að því búnu var mannfjöldanum sýnd bygging- j in öll. Þá var öllum sem vildu, i gefinn kostur á að nota laugina og foöðin endurgjialds laust. Var oift um 40 manns í lauginni ií einu Formaður gat þess í ræðu sinni að þennan dag og næstu daga ó undan hefðu nefndinni borizt um 15 þúsund kr. og þeg- ar eftir vígsluna bárust benni og noikkur þúsund kr. Þetta er fyrsta laug á landi hér sem hefir áhorfendasvæði. fluttu ávörp, auk ríkisstjóra, en milli þess lék Lúðrasveit Reykja víkur. Biskup minntist fallinna sjómanna en að því loknu varð mínútu þögn og um leið var lagður sveigur á leiði óþekkta siómannsins, að því loknu söng Hreinn Pálsson „Alfaðir ræður“. Að þessu loknu voru björg- unarverðlaunin veitt og hlaut þau að þessu sinni Þorstp;v”- TA hannesson skipstjóri á v. b. Jóni Finnssyni frá Gerðum, en hann bjargaði skipverjum af v. b. Ægi er honum hvolfdi á s. 1. vetri. Þá voru og veitt verðlaun- in fyrir íþróttaafrekin. Allri þessari athöýn var út- varpað. Um kvöldið var hóf að Hótel Borg og skemmtanir í öðr um samkomuhúsum. Að Hótel Borg var ríkisstjóri og frú hans. Henry Hálfdánsson ávarpaði ríkisstjóra og afhenti honum gjöf til minningar um það, að hann lagði hornstein að Sjó- mannaskólanum þann dag. Var gjöfin múrskeið úr silfri með fílabeinshandfangi. Um leið og formaður sjómannadagsráðsins afhenti ríkisstjóra gjöfina árn- aði hann honum allra heilla og sagði það von sjómanna, að með landsföðurshendi sinni mætti honum auðnast að múra festu og gæfu í íslenzku þjóðina og þar með leggja traustan horn- stein að hinu endurreista ís- lenzka lýðveldi. — Ríkisstjóri þakkaði gjöfina. í þessu hófi heiðraði ríkisstjóri tvo gamla sjómenn með því að veita þeim riddarakross fálkaorðunnar, þá Friðrik Ólafsson skólastjóra og Guðmund Markússon skipstjóra. Karlakórinn Vísir frá Sigul- firði mætti á hófinu og hyllti sjómenn með söng, en sjómenn þökkuðu og fögnuðu kórnum á- kaflega. Ræður fluttu m. a. í þessu hófi Sveinn Jónsson og Brynjólfur Jónsson. íþróttakepfHii sjé- mannadagsins Mikil þátttaka var í íþrótt- um sjómannadagsins á laugar- dag og sunnnudag. Nítján skips hafnir tóku þátt í kappróðrin- um á Rauðárvík, þar á meðal skipshöfnin á Arinbirni hersi, sem kom í höfn í Reykjavík kl. 10 á laugardagsmorguninn og Karlsefni, sem kom inn kl. 2 á laugardag, en kappróðurinn hófst klukkutíma síðar. Sýnir þetta ljóslega þegnskap og á- huga sjómanna til þess að gera hátíðisdag sinn sem glæsilegast- an. Skipshöfnin af botnvörpungn um „Helgafell" sigraði í kapp- róðrinum með sérstaklega góð- um tíma. Ennfremur sigruðu menn af Helgafelli í öllum hin- Kappróðurinn hófst eims og r um greinunum, sem keppt var í nema björgunarsundinu. áður er sagt kl. 3 á laugardag- inn. Gripir þeir sem keppt var um eru „Fiskimaður“ Morgun- blaðsins, fyrir skipshafnir af skipum yfir 150 rúmlestir og „June Munktel-bikarinn“, sem er fyrir skipshafnir af skipum undir 150 rúmlestir. Þá er og „Róðrarfáni Sjómannadagsins“, sem er veittur þeirri skipshöfn, sem nær beztum tíma í róðrin- um. Eins og áður var sagt bar skipshöfnin af Helgafelli sigur af hólmi og fór vegalengdina á 4 mín. 12,7 sek. og er það tal- inn sérstaklega góður tími, og hlaut hún því bæði „Fiskimann- inn“ og „Róðrarfánann“, en hún var handhafi þessara verðlauna gripa frá því í fyrra. Skipshöfn- in af m. s. „Freyju“ hlaut June Munktel-bikarinn og var tími hennar 4 mín. 24. sek. Er þetta með mestu þátttöku, sem verið hefir í róðrarkeppni Sjómannadagsins. Voru á milli 130 og 140 menn, sem þátt tóku í róðrinum. Er virðingarvert hve sjómenn leggja mikla rækt við þessa íþrótt, bæði í æfingum fyrir keppnina og þátttöku í henni, og ber sérstaklega að virða það er sjómenn koma þreyttir af hafi utan og setjast undir árar við kappróðurinn, eins og skipshafnirnar á Arin- birni hersi og Karlsefni gerðu. Að kappróðrinum loknum hófst stakka- og björgunarsund. 1 stakkasundinu bar sigur af hólmi Jóhannes Guðmundsson af botnvörpungnum Helga- felli og hlaut hann stakkasunds bikar Sjómannafélags Reykja- víkur. En hann vann gripinn og í fyrsta skipti, er keppt var um hann. Björgunarsundsbikarinn vann Valur Jónsson frá Keíla- vík. Veðbanki starfaði og var mik- ið veðjað og mikill áhugi ríkj- andi fyrir þessum keppnum. Á sunnudaginn fóru svo fram reiptog og keppni í netabæting- um og vírasplæsingum. Voru þessar íþróttir háðar upp við Sjómannaskólann nýja, eftir að- alhátíðahöldin þar. í reiptoginu kepptu þrjár skipShafnir: af Esju, Helgafelli og Súðinni. Leikar fóru þannig, að skipshöfnin af Helgafelli sigr aði bæði skipshöfn Esju og Súð- innar, og hlaut því verðlauna- þikarinn sem veittur var fyrir reiptogið. Handhafi þessa bikars var skipshöfnin af Súðinni. í vírasplæsingu varð fyrstur Haraldur Ólafsson bátsmaður af Helgafelli og í netabætingu vann Sigfús Bjarnason netamað ur af Ilelgafelli. Með þessu höfðu menn af Helgafelli borið sigur af hólmi í öllum íþróttunum, sem keppt var í nema björgunarsundinu og er slíkt algert einsdæmi á Sjó- mannadaginn. Opinbert uppboð verður haldið í dag 6. þ. m., á eft- irtöldum húseignmn, svo sem hér segir: Kl. 1 e. Íi. á Hverfisgötu 16 A. Kl. 3 e. h. á Njálsgötu 4 B. ■Ji í Hverfisgötu 16 A er laus neðri hæðin (3 herbergi og eldhús), stórt herbergi á neðstu hæð og svo lítið herbergi. Borgarfógeftinn í Reykjavík.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.