Alþýðublaðið - 15.07.1944, Blaðsíða 5
Laugardagur 15. júlí 1944.
ALÞYÐUBLAÐW
5
Ssiýr heim úr Sræiimi för.
Mynd þessi er af einni flugvél 9. flughersins ameríska, sem hefir bækistöðvar á Bretlandi.
Var myndin tekin, er flugvélin var á heimleið úr hundraðasta leiðangri sínum gegn megin-
landi Evrópu. Flugmaðurinn, sem' stjórnar henni, heitir Paul Shannon .höfuðsmaður. Þetta
er hin fyrsta ameríska flugvél, sem farið hefir hundrað árásarleiðangra
gegn meginlandi Evrópu.
Sumarskáldsagan 1944:
Sólnæfur
Eftir finnska Nobelsverð-
launahöfundinn
F. E. Sillanpáá
Ljóðræn skáldsaga um ung
ar ástir, náttúrufegurð,
gróandi lífsins og heiðar
sólnætur Jónsmessudag-
anna.
Þetta er bókin, sem fólk tekur með sér í sumarleyfin að þessu
sinni, bókin, sem góðir eiginmenn og unnustar senda eigin-
konum, dætrum og unnustum í sveitina.
FÆST HJÁ BÓ8CSÖLUR4
Békaúfgáfa Pálma H. Jónssonar
fprweru minni
í 6 vikur gegnir hr. læknir Eyþór Gunnarsson
Kirkjustræti 6 B læknisstörfum fyrir mig.
JENS ÁG. JÓHANNESSON
Hannibal
GREIN þessi, sem er eftir Ivan Pauli og þýdd úr sænska
blaðinu Morgon-Tidningen, var rituð í tilefni þess, er
leikrit Kaj Munks, Fyrir orrustuna við Cannae, var gefið út
í sænskri þýðingu eigi alls fyrir löngu. Ivan Pauli færir rök
að því, að fyrir Munk muni liafa vakað það að láta Fabius
hinn hægfara tákna Bretann en Hannibal, hinn afríkanska
stríðsmann, Hitler. Greinarhöfundi þykir vel til fundið hjá
Kaj Munk, að láta Kómverja þess tímabils, sem hér um ræð
ir, tákna Breta vorra tíma, en hitt þykir honum miður, að
hinn mikli herforingi Hannibal skyldi vera látinn tákna
ekki meiri mann né merkari en Adolf Hitler.
KAJ MUNK hefir í einhverju
hinna síðustu leikrita sinna
„Fyrir orustuna við Cannae“
lýst fulltrúum tveggja þjóða á
snilldarlegan hátt. Leikritið virð-
ist eiga að lýsa samfundi hins
sigursæla hershöfðingja Fönika,
Hannibals, og rómverska hers-
höfðingjans, Fabiusar Maximus-
ar, er var nefndur „hinn hæg-
fara“ vegna hiks síns — kvöldið
fyrir hihn mikla sigur Hannibals
við Cannae. En gegnum hinn
sögulega listbúning er lesandan-
um auðvelt að greina tvo and-
stöðumenn samtíðarinnar: Hitler
og Bretann. Kaj Munk hefir leyft
sér hér eins og svo oft áður að
víkja við með listrænum hætti
hinum sögulegu staðreyndum til
þess að geta gert hinn púnverska
hershöfðingja að spegilmynd af
einvalda nazista. Hann lætur
Hannibal tala um sjálfan sig
sem . þann mann, „er forlögin
hafi veitt brautargengi og kjörið
til þess hlutverks að steypa hinu
blygðunarverða og hrynjandi
veldi ykkar (Rómverjanna)“.
Þetta á vissulega vel við sym
dæmi um ræður Hitlers um
Breta áður fyrr, en nálgast það
að verða hjákátíegt, ef það á að
eiga’við um baráttu kaupmann-
anna í Karþagó við Róm, sem'
var ríki bænda og hermanna.
Munk hefir og neyðzt til þess að
gefa í skyn, að Hannibal hafi
verið mun ósnjallari stjórnmáia-
maður og herforingi en raunin
var. í leikritinu heitir Hannibal.
því með stóryrðum að leggja til
atlögu við Róm, þegar hann hafi
sigrað í orustunni við Cannae,
en hinn ■ raunverulegi Hannibal
var um of vitur og forsjáll til
þess að freista slíks. Þegar Fa-
bius svarar því til: ,-,Þá lætur þú
til leiðast að gera það, sem þú
raunverulega vilt ekki gera“, þá
á það við um hið örlagaiýka
glappaskot , .hershöfðingjans og
stj órnmálamannsins1! Hitlers að
ráðast á hið volduga ríki í austri. ,
*
EGAR að því er gætt, að
höfundur leikritsins hefir
sýnilega vikið hinum sögulegu :
sannindum við af ásettu ráði, má
með sanni seg'ja, að það sé snilli-
lega til fundið af honum að tefla
saman hinum rómýerska aðals-
manni og afríkanska stríðsmanni,
til þess að ná þeim tilgangi, er
fyrir honum vákir. Þýzkaland
hefir iðulega í barattu sinni gegn
Bretlandi efnt til samanburðar
við styrjöld Rómverja og Pún-
verja, en hefir þá ávallt talið sér
hlut Rómverja. Eigi alls fyrir
löngu líkti dr. Göbbels Þriðja
ríkinu við Rómaveldi og freist-
aði þess og að gera samanburð
á Þýzkalandi og Spörtu og —
Aþenu! En að líkja Þýzkalandi
við Aþenu er vissulega einhver
hin mesta fjarstæða, sem hugsazt
getur.
Þýzkaland á dögum Hitlers-
stjótnarinnar minnir( vissulega
um margt á Spörtu, er var fyrst
og fremst ríki þræla og her-
manna. En hins vegar á Þýzka-
land ekkert sameiginlegt með
hinni frjálsbornu menningu
Aþenu. Og enda þótt Karþagó
væri hnignandi veldi, verður
maður þess brátt var, er um lýð-
frelsi og mannréttindi er að
ræða, að hún á mun meira sam-
eiginlegt með hinu þýzka ein-
veldisríki, eins og Kaj Munk
sannar í þessu leikriti sínu, en
Bretlandi. Bretland minnir hin®
vegar um margt á Rómaveldi
eins og það var um þessar mund-
ir. Karþagóborgarmenn bundu
sem sé þjóðum þeim, er þeir
réðu, þunga bagga félagslega og
fjárhagslega, sem varð aítur á
móti ekki með slíkum sanni sagt
um Rómverja.
'C, N ÞAÐ eru þó ekki fyrst og
fremst þessi stjórnmálalegu I
og félagslegu viðhorf, sem Kaj
Munk hefir mestan áhuga fyrir.
Fyrir honum vakir fyrst og
fremst það, að lýsa muni skap-
lyndis og skaphafnar stríðsaðil-
anna. Sá Fabius hinn hægfara,
sem hann lýsir, minnir á gamlan,
rólyndan, kíminn, mannlegan
brezkan dánumann, gæddan
miklum persónuleika. Hann seg-
ir Hannibal — Hitfer — sann-
leikann afdráttarlaus og er í senn
gagnorður og hnittinyrtur: „Þú
lítur á mig sem gamlan aulabárð.
Þú hefir á réttu aS standá, vissu-
lega er ég gamall aulabárður.
Heima í Róm eru menn á sama
máli. En það er einmitt-þetta,
sem vekur traust manna á mér.
Þú ert snillingur, Hannibal, það
viðurkennum við allir, og við
þökkum Júpíter fyrir það, að þú
skulir ekki vera einn af oss. Það
er ógæfa sérhverrar þjóðar, að
snillingur sæki hana heim. Snill-
ingurinn gerir sér í hugarlund,
að hann eigi alls kostar við okk-
ur aulabárðana. En þvíj fer alls
fjarri. Þess vegna er snillingur-
inn glötuninni ofurseldur.11 Mað-
ur minnist þegar orða „foringj-
ans“ um það, að Bretar væru
„aulabárðar í hermennsku“ og
hin hnittinyrtu svör Breta. Þó.
Framh. á 6. síðu.
¥egna skemmliferðar
verða verkstæði okkar og verzlun lokuð laugar-
daginn 15. júlí
H.f. Egill Vilhjálmsson
Ljðsnpdasfofa j
I Lofts I
I Nýja Bíó. |
| ¥©r®fisr, vegna sumarleyfa, lok- I
I uð tiS 1. ágúst en þá verður aftur I
| myndaS af fuSlum krafti I
j L o ff u r - |
<yy>t><>0<><><><><><><><><^><>^<><>^<><><><><^<><>0<><><><><^^
áöGLÝSSÐÍÁLÞÝÐUBLAÐINB