Alþýðublaðið - 23.08.1944, Blaðsíða 2
ALÞYPUBLAÐIÐ
MiSvikudagiim 23. ágúst 1S-44,
Eldsvoði í Neðra-
Gufudal í Barða-
sfrandarsýslu
Titfinnanlegt tjón af
eldinum, en fólk
sakaöi ekki
LDUK kom upp i
bænum
Neðri-Gufudal { Barða-
strandarsýslu í fyrrnótt. Brann
bærinn að undantekinni bað-
stofunni og varð af mikið tjón.
Heimilisfólkið í Neðri-Gufu-
dal vaknaði við íþað í fyrrinótt,
að eMur var koaninn upp í bæn
utm. Bjargaðist fþað allt úr eld-
inum og baðstofuna tókst að
verja. Innanstokksmunir
ibrunnu, svo og eldiviðarforði
vetrarins. Var þetta óvátryggt
og er því tjón bóndans tilfinn
anlegt.
Hjónaefni:
S. 1. sunnudag opinberuðu trúlof-
un sína Unnur Sigurðardóttir,
Bolungavík og Kristján Jónsson,
verzlunarmaður, Hrefnugötu 5,
Reykjavík.
Fjármálaráöstefnan í Bretton Woods:
Samkomulag um sfofnun gjafdeyr-
issjóðs og alþjoðabanka
Áællað að ísland greiði rúmlega 13 milijónir
kröna lil þessara stofnana
-....♦ ■ ■ ■■
Ríkisstjórnin mun leggja tillögur sínar um
þátttöku fyrir næsta alþingi
RÍKISSTJÓENIN mun leggja fyrir næsta alþingi skýrslu
um störf íslenzku sendinefndarinnar á fjármálaráð-
stefnunni í Bretton Woods. Enn fremur mun ríkisstjórnin
leggja fyrir alþingi tillögur sínar um þátttöku íslands í stofn
un gjaldeyrisjöfnunarsjóðs og alþjóðabanka, en samkomu-
lag varð á ráðstefnunni um þessar stofnanir.
Fjármálaráðstefnan áætlaði fslenzka ríkinu að l'eggja
fram eina milljón dollara til gjaldeyrisjöfnunarsjóðs og eina
milljón dollara sem hlutafé til alþjóðabankans.
Skemmt amerískt smjör í verzl-
unum í Reykjavík
■r^"
Deila milli malvörukaupmanna
Mjólkursamsölunnar
og
SKEMMT AMERÍSKT SMJÖR er selt hér í búðum í
Reykjavík. Smjörið er myglað og sett svörtum blett-
um, en þeir standa grunnt og lítið myglubragð mun finnast
af smjörinu, þegar búið er að skafa blettina úr því.
Mjólkursamsalan sér um dreyfingu þessa smjörs meðal mat-
vörukaupmanna. Hún aðvarar þá fyrirfram um það að smjörið
kunni að vera spillt, en neitar beim um að fá að opna kassana
til rannsóknar, neitar að taka við skemmdu smjöri og endurgreiða
þeim kostnaðinn og neitar að selja smjörið við lægra verði.
Nýjar reglur um
fálkaorðuna
Enn fremur veröur
orðunni nokkuð
breytt
Alþýðublaðið sneri sér til
Guðmundar Guðjónssonar for-
manns Félags matvörukaup-
manna og spurði hann um þetta
smjörmál og sagði hann meðal
annars:
„Það er bókstaflega ekki
bægt fyrir okkur matvörukaup
menn að gera annað en að neita
að selja þessa vöru með öllu. —
Mjólkursamsalann hefir lengi
undanfarið selt okkur ágætt
amerískt smjör og það kom þess
vegna alveg eins og þruma úr
heiðskíru lofti yfir okkur, þegar
ihún sendi okkur skemmda
vöru. Við snerum okkur strax
til Samsölunnar og fórum fram
á það að fá að rannsaka kass-
ana, en o'kkur var neitað um
það. Við fórum þá fram á að fá
að endursenda það af smjörinu,
sem reyndist spillt. Því var neit
að. Við fórum þá fram á að fá
að selja fólki smjörið við lægra
verði, svo að það fengi eitt-
bvaö fyrir það sem það verður
að skafa burtu af smjörinu, þeg
ar myglublettir eru í því. En
þessu var líka neitað. Þessi af-
staða Samsölunar nær vitan-
lega ekki nokkurri átt. Hún
myndi ekki standast fyrir nokkr
um dómstóli. — Samsaian virð
ist koma með þetta smjör nú,
vegna þess að nú er ekkert
smjör á markaðinu og smjör-
líki af mjög skornum skammti.“
Þá sneri Alþýðublaðið sér til
Samsölunar. Forstjóri hennar,
Halldór Eiríksson, er ekki í bæn
um og átti blaðið tal við Ólaf
Sigfússon skrifstofustjóra Sam-
sölunar. Hann sagði meðal ann
ars:
„Það er rétt. Það hafa komið
fyrir skemmdir í smjörinu. Það
hefir reynzt myglað, með svört
um blettum, en þeir standa
mjög grunnt. Við sjáúm aðeins
um dreifingu smjörsins fyrir
ríkisstjórnina. Við getum ekki
leyft að sélja það við lægra
verði. Við getum ekki tekið aft-
ur smjör, sem búið er að kaupa
og við getum ekki leyft það að
kassarnir séu opnaðir áður en
þeir eru keyptir.1'
— Er þetta smjör nýkomið?
„Nei, það er ekki nýkomið.
Það er nokkuð síðan það kom
hingað. Okbur finnst að við ger
um skyMu okkar með því að
aðvara kaupmenn um það að
smjörið í kössunum kunni að
vera skemmt. Meira getum við
ekki gert.“
Þessi afstaða Samsölunar get
ur ekki staðist. Kaupmaðurinn
verður að taka aftur við af við
skiptamanni sínum þá vöru sem
h’ann hefir selt honum, ef hann
vill skila henni aftur végna
skemmda á henni. Vitanlega
verður Samsalan að gera það
líka. Kaupmaður getur ekki
neitað viðskiptamanni sínum
að skoða vöru, sem hann vili
kaupa. Það getur Samsalan
heMur ekki gagnvart sínum við
skiptamönnum.
Áheit á Strandarkirkju. .
kr. 6.00 frá Þ.
Ríkisstjórnin sendi blaðinu í
gær greinargerð um fjármála-
ráðstefnuna og fer hún hér á eft
ir:
„Samkvæmt boði Bandaríkja
stjórnar, sendi íslenzka ríkis-
stjórnin þrjá fulltrúa á pen-
inga- og fjármálaráðstefnu, sem
haMin var í Bretton Woods í
Band ríkjunum 1. til 24. júlí s. 1.
Fulltrúar íslands voru þeir
Magnús Sigurðsson, Lands-
bankastjóri, Asgeir Ásgeirsson,
Útvegsbankastjóri og Svan-
björn Frímannsson, formaður
Viðskiptaráðs. Ritari nefndar-
innar var ungfrú Marta Tbors.
Saga þessa máls, í fáum drátt
um, er sú, að í aprilmánuði 1943
•birtust tvennskonar tillögur um
alþjóðarmálaviðskipti að ófriðn
um loknum. Tillögur Banda-
ríkjastjórnar voru um Alþjóða-
gengisfestingarsjóð og éru
kenndar við Mr. White, aðal-
höfund þeirra. Tillögur Breta-
stjórnar voru aftur um gjald-
eyrisjöfnunarsjóð og eru þær
kenndar við Lord Keynes. Um
líkt leyti voru og birtar tillög
ur frá Kanadastjórn og frönsk-
um fjármálamönnum. Fyrir for
göngu Bandaríkjsnna var svo
unnið að samkomulagstillögum
um þessi mál allt fram til þess
að fundurinn í Bretton Woods
hófst, og tóku þátt í þeim und-
irbúningi sérfræðingar frá 30
þjóðum, en til fundarins í Brett
on Woods var boðið 44 þjóð-
um og sendu allir fulltrúa. Voru
það einkum sérfræðingar, sem
mættu á þeim fundi, útnefndir
af viðkomandi stjórnum, en eng
inn hafði fullnaðarumboð til að
skuMbinda stjórn sína eða þing.
Á fundinum tókst að ná allsherj
arsamkomulagi um:
1. GjaMeyrisjöfnunarsjóð og
2. Alþjóðabanka, og verða
þær tillögur nú lagðar fyrir
hlutaðeigandi stjórnir og þing
til samþykktar eða synjunar,
og er til þess ætlast, að öllum
undi^búningi geti verið lokið
fyrir árslok 1945.
TILGANGUR GJALDEYRIS-
JÖFNUNARSJÓÐSINS ER,
1) að stuðla að, alþjóðasam- |
vinnu í peningaviðskiptum,
2) að efla milliríkj averzlun,
auka atvinnu og tryggja launa-
kjör,
3) að vinna að gengisfestingu
og koma í veg fyrir óheilbrigða
samkeppni,
4) að koma á peningagreiðsl-
um þjóð^ á milli og drága úr
Frh. á 7. síðu.
MEÐ breytingunni á stjórn-
arformi ríkisins úr konung
dæmi til lýðveldis, féllu regl-
umar um hina konunglegu
fálkaorðu í reyndinni úr gildi.
En þar sem rétt þótti, að orðan
félli ekki niður, bar nauðsyn til
að setja að nýju fyrirmæli um
um hana, og gaf forseti Islands
því út reglur um fálkaorðuna
í rjkisráði 11. júlí s. 1 .
Auk sjálfsagðra breytinga á
sjálfri orðunni voru gerðar
nokkrar aðrar breytingar á áð-
ur giMandi reglum um orðuna,
og eru þessar helztar:
Skipun orðunefndar var
breytt þannig, að í stað þess að
Alþingi tilnefndi áður tvo af
f jórum í orðunefndina, þá kveð-
ur forseti ' íslands nú, sam-
kvæmt tiliögum forsætisráð-
herra, fjóra menn, sem sæmd-
ir eru og bera heiðursraerki
orðunnar, í nefndina til 6 ára,
en þriðja hvert ár ganga 2 þess
ara manna úr nefndinni og ger-
ist það í fyrsta sinn eftir hiut-
kesti. — Áður var það ekki skil
yrði, að hinir kjörnu orðunefnd
armenn hefðu hlotið heiðurs-
merki orðunnar og bæru það.
Þetta skilyrði er nú sett í sam-
bandi við fastbundnar reglur,
sem gilda með öðrum þjóðum
um skipulag orðuveitinga. —
Ennfremur skipar forseti einn
þessara manna formann nefnd-
arinnar, og einn varamann, sem
tekur sæti í nefndinni í foríöR
um hvers eins þessara fjógurra
manna. — Áður var ekki skip-
aður sérstakur formaður og eng
inn varamaður. — Fimmti mað-
ur í nefndinni er ritari fors'
íslands.
Nefndin skal setja sér sjálf
starfsréglur, sem hún leggur
fyrir forseta íslands til stað-
festingar. Áður voru engin fyr
irmæli um starfsreglur.
Orðunni má sæma ekki að-
eins menn, sem öðrum frem-
ur hafa eflt hag og heiður fóst-
urjarðarinnar, heídur og þá,
sem unnið hafa afrek í þágu
mannkynnsins.
Þegar íslehzkur ríkisborgari
er sæmdur orðunni, skal ávallt
skýrt opinberlega frá því. hverj
ir sérstakir verðleikar haía gert
hann verðan sæmdarinnar.
í innsigli órðunnar skulu
standa orðin: „EIGI VÍKJA“í í
stað orðanna: „ALDREI AÐ
VÍKJA“.
Fyrsfu ieikir 2. flokks
mótsins
A"" ”” FUNDI Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur í gær var
varpað hlutkesti um ,byrjunar-
leiki 2. fl. í landsmótskeppn-
inn, sem á að hefjast 28. þ. m.
iog varð niðurstaðan þessi:
1. leikur, Valur gegn Fram.
2. leikur, KR gegn Knatt-
spyrnufélagi Hafnarfjarðar.
Fleiri félög taka ekki þátt í
keppninni.
Meistaramótið: l
Gunnar Slefánsson,
K.V., varð meisiarf
í tugþraut og hlauf
4999 sfig
Annar varö Jón
Hjartar, K.R., meS
4820 stig
O.IDASTI DAGUR meistam
^ móísins var í gær og lattk
þá keppni í tugþraut. Meistan
varð Gunnar Stefánsson úr
Vestmannaeyjum, K. V. Fékk
hann alls 4999 stig. Annaar varS
Jón Hjartar, KR, með 4820 stig.
Þriðji varð Ingólfur Amarson,
K.V., með 4555 stig, og fjórðs
Einar Guðjohnsen, KR, meff
4061 stig.
Árangur þriggja fyrstu kepp
endanna var í einstökum grein-
um sem hér segir:
Gunnar Stefánsson:
100 m hlaup: 12,5 sek., lang-
stökk: 5,86 m, kúluvarp: 10,©5
m, hást.: .1,66 m, 400 m hlaup:
55,0 sek., 110 m grindahlaup:
21,1 sek., kringlukast: 30,45 rp,
stangarstökk: 3,00 m, spjótkast:
42,53 im, 1500 m hlaup: 4:40,6
mín.
Tón Hjartar:
100 m hlaup: 13,1 sek. lang-
stökk: 6,12 m, kúluvarp: 9,00 m,
hástökk: 1,70 m, 400 m hlaup:
58,0 sek, 110 m grindahlaup:
20,8 sek. kringlukast: 31,94, mi,
stangarstökk: 2,50 m, spjótkast:
50,00 m, 1500 m hlaup: 4:39,6
mín.
Ingólfur Arnarson:
100 im hlaup: >18,1 sek. lang-
stökk 5,48 tm, kúlukast 11,74 m,
hástökk: 1,60 m, 400 m Ihlaup:
60,3 sek. 110 m grindahlaufp :
21,5 sek. kringlukast: 34,76 m.
stangarstökk: 2,90 m, spjótkast
45,23 m, 1500 m hlaup 5:22,0
mín. “
Á meistaramótnu í fyrra varð
Jón Hjartar meistari í tugþraut
og hlaut 4532 stig. Íslandsmet í
tuglþraut er 5475 stig. Methafi
er Sigurður Finnsson, KR.
-ingar keppa vil
Auslfirðinia
AÐUR en Austfirðingarnir,
sem hér voru á meistara-
mótinu, héldu heim, kepptu.
KR-ingar við þá í nokkrum.
greinum. Fóru leikar sem hér
segir:
100 m. hlaup:
1. Brynj. Ingóífsson, KR 11,8;
2. Guttormur Þormar, U.Í.A.
11,8.
3. Jóhann Bernhard, KR 11,9
4. Bragi Friðriksson, KR 11,9
300 m. hlaup:
1. Brynj. Ingólfsson, KR 37,8
2. Guttormur Þormar, U.Í.A.
38,1
3. Jóharin Bernhard, KR 38,7
4. Brynjólfur Jónsson, KR 39,2
Spjótkast:
1. Tómas Árnason, UÍA 53,01
2. Jón F. Hjartar, KR 51,60
3. Þorvárður Árnas., UÍA 46,47
Kringlukast:
l.Bragi Friðriksson, KR 38,64
2. Þorvarður Árnas. UÍA 38,42
3. Jón Ólafsson, UÍA. 35,79
Árarigurinn er yfirleitt góð-
ur og eftirtektarvert að seyð-
firzku bræðurnir náðu sér
miklu betur á strik í köstunum
en dagana áður á meistaramót-
inu.